Fréttablaðið - 29.07.2006, Side 63

Fréttablaðið - 29.07.2006, Side 63
29. júlí 2005 LAUGARDAGUR 43 HÖNNUÐURINN Roksanda var fyrirsæta áður en hún gerðist fatahönnuður. Söngkonan unga Christina Aguilera hefur verið með mismunandi fata- stíl síðan hún steig fram í sviðsljós- ið fyrir nokkrum árum. Þá kom hún oftast fram í mjög efnislitlum og djörfum fötum. Nú virðist hún þó loksins vera búin að finna sinn stíl enda orðin eldri og vitrari. Sá stíll er kvenlegur og fallegur. Oftast er hún með belti í mitt- inu og í hnésíðum kjólum eða pilsum. Aguilera hefur verið líkt við kven- fyrirmyndina Marilyn Monroe enda með ljóst hár og oftast nær með hárauð- an varalit. Stutt- ar buxur, háir hælar, flegnir bolir og þröngir kjólar eru henn- ar aðalsmerki. Hin nýja Monroe FLOTT Hér er Christina eins og algjör díva með hvít sólgleraugu og í háum hælum. KVENLEG Í svörtum Gucci-kjól sem er með svokölluðu „smokka- sniði“ en það er ef kjóllinn er þröngur alveg niður að hnjám. GLITRANDI Fallegur kjóll úr glitrandi silfurlit- uðu efni með mjóum hlýrum. Kvenlegur og glæsilegur í senn. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES Hin serbneska Roksanda Ilincic er búin að ná athygli í tískuheim- inum fyrir framúrstefnulega hönnun og vægast sagt glæsilega kjóla. Hún byrjaði að læra arki- tektúr í Belgrad en flutti svo til London og útskrifaðist úr hinum margrómaða Central Saint Mart- ins listaháskóla árið 2000. Tveim- ur árum seinna stofnaði hún sitt eigið merki og hefur dregið að sér fastakúnna á borð við Björk, Roisin Murphy og Jamelia. Roks- anda er þekkt fyrir framúr- stefnulega og kvenlega hönnun. Er hún mikið fyrir að hanna flík- ur í fallegum efnum og miklar drapperingar eru oftast í fötun- um hennar. Innblásturinn segir hún koma frá tískunni á þriðja áratug síðustu aldar. Nú eru þess- ir fallegu kjólar fáanlegir á Íslandi í búðinni Kronkron á Lauga- vegi. Kjólarnir hanga uppi í loft- inu í miðri búð- inni og eru hálf- gerðir safngripir, þeir eru svo fallegir. Framúrstefnulegt SUMARLEGUR Fölbleikur kjóll með rauðum rósum á hlýrum. GLÆSILEIKI Fallegur kjóll í svörtu með hvítu munstri hér og þar í efninu. DJÚPUR LITUR Fallegur fjólublár kjóll úr smiðju Roksöndu sem samlit- um rósum á kraganum. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR RAUÐUR Sam- kvæmiskjóll af bestu gerð.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.