Fréttablaðið - 29.07.2006, Qupperneq 64
ÞÚ ERT ALDREI OF UNGUR TIL AÐ DEYJA!
HÖRKU SPENNUMYND Í ANDA JAMES BOND
50.000
MANNS
BYGGÐ Á VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI!
Milla Jovovich í mögnuðum
Sci-Fi spennutrylli!
FRÁ HÖFUNDI BRING IT ON
Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þinu?
ADAM SANDLER, KATE BECKINSALE OG
CHRISTOPHER WALKEN Í GAMANMYND
ÁRSINS
Sprenghlægileg grínmynd með
Íslandsvininum Rob Scheider úr
Deuce Bigalow og John Heder úr
Napoleon Dynamite!
SILENT HILL kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 8 og 10.40
ULTRAVIOLET kl. 4.50 og 8 B.I. 12 ÁRA
OVER THE HEDGE ÍSL. TAL kl. 1, 3 og 5
OVER THE HEDGE ENSKT TAL kl. 1, 3, 5, 7 og 9
SÝND Í LÚXUS ENSKT TAL kl. 1, 3 og 5
STICK IT kl. 3, 5.30, 8 og 10.20
CLICK kl. 10.10 B.I. 10 ÁRA
RAUÐHETTA ÍSL. TAL kl. 3
ÍSÖLD 2 ÍSL. TAL kl. 1
SILENT HILL kl. 5.20, 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
STORMBREAKER kl. 3, 6 og 8
THE BENCHWARMERS kl. 3, 8 og 10 B.I. 10 ÁRA
CLICK kl. 3, 5.30, 8 og 10.10 B.I. 10 ÁRA
DA VINCI CODE SÍÐ. SÝNINGAR kl. 5 og 10 B.I. 14 ÁRA
ÍSÖLD 2 ÍSL. TAL kl. 3
SILENT HILL kl. 5.45, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
STORMBREAKER kl. 4, 6, 8 og 10
STICK IT kl. 4
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Borgarbíó merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
ATH
: sí
ðus
tu
sýn
ing
ar
Fullt var út úr dyrum á tónleikum
skosku hljómsveitarinnar Belle &
Sebastian á Nasa á fimmtudags-
kvöldið. Emilíana Torrini hitaði
upp og var henni vel tekið af áhorf-
endum. Sérstaka athygli vöktu tvö
ný lög söngkonunnar sem voru
kraftmeiri en flest sem hún hefur
áður gert. Belle & Sebastian steig
svo á svið við mikinn fögnuð við-
staddra. Sveitin lék í tæpa tvo
klukkutíma og tók mörg af sínum
þekktustu lögum en lög af nýju
plötunni, The Life Pursuit, voru
áberandi. Tónleikarnir voru nokk-
uð vel heppnaðir í heildina og þeir
sem eiga miða á tónleikana á Borg-
arfirði eystri í kvöld geta átt von á
góðu.
Sveitt stemning á Nasa
VEL TEKIÐ Stuart Murdoch fór fyrir Belle &
Sebastian á Nasa.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FRÁBÆR POPPSVEIT Þegar Belle & Sebastian tók hressu popplögin sín voru áhorfendur
heldur betur vel með á nótunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FULLT HÚS Aðdáendur Belle & Sebastian og
Emilíönu slógust um miða á tónleikana og
komust færri að en vildu.
GLÆSILEG Emilíana var einbeitt á sviðinu.
Hún tók meðal annars tvö ný lög sem
lögðust vel í gesti.
MINNINGAR TIL SÖLU Tónleikagestir gátu
keypt sér boli merkta Belle & Sebastian og
Emilíönu.
KVIKMYNDIR
[ UMFJÖLLUN ]
RJ er tækifærissinnaður og eigin-
gjarn þvottabjörn sem kemst í hann
krappann eftir að hann klúðrar ráni
á matarbirgðum geðstirðs bjarn-
dýrs. Góssið skemmist þegar bangsi
grípur meistaraþjófinn glóðvolgan
og RJ er gefin vika til þess að
hamstra saman nýjum lager eða
gjalda annars með lífi sínu.
RJ getur þetta ekki einn og vélar
því hóp af nývöknuðum skógardýr-
um til þess að herja með sér á mann-
heima, handan við stóra limgerðið
sem skilur nú að villta náttúruna og
malbikaðan undraheim mannfólks-
ins þar sem nægan mat er að finna.
Dýrin ganga vasklega fram í
söfnuninni og koma því illilega við
kauninn á mannskepnunum sem
bregða á það ráð að leysa þessa
milliríkjadeilu með því að kalla til
skæðan meindýraeyði til þess að
útrýma innrásarliðinu.
Allir þessir árekstrar; uppgjör
bjarndýrs og þvottabjarnar, koma
einfarans og ævintýradýrsins inn í
einfalt og samheldið samfélag
skógardýranna og svo auðvitað átök
dýraríkis og mannheima bjóða upp
á mikið fjör og spennu þannig að
það er ekki dauður punktur í Over
The Hedge. Þar fyrir utan er mynd-
in listavel gerð og tölvutæknin
gæðir skrautlegar persónurnar lífi
sem sækja svo enn meiri kraft til
fínna leikara sem margir hverjir
fara á kostum. Bruce Willis fer létt
með að túlka hinn upplitsdjarfa RJ
og rám viskírödd veðruðu fyllibytt-
unnar Nick Nolte fer birninum
grimma ákaflega vel.
Over the Hedge sver sig í ætt við
aðrar fyrsta flokks tölvuteikni-
myndir. Hún er áferðarfögur, litrík
og lifandi. Sagan er einföld og ristir
ekki djúpt frekar en fyrri daginn
enda kveða við sömu stef og venju-
lega í myndum af þessu tagi og gildi
samvinnu og vináttu eru áréttuð
með stöðluðum aðferðum. Fjörið og
fíflagangurinn yfirgnæfir þetta svo
allt saman en hasarinn og skemmt-
unin er vitaskuld það sem markhóp-
urinn sækist eftir og þar skilar
Over the Hedge sínu með sóma.
Þórarinn Þórarinsson
Öll dýrin í skóginum
OVER THE HEDGE
LEIKSTJÓRAR: TIM JOHNSON, KAREY
KIRKPATRICK
AÐALHLUTVERK: BRUCE WILLIS, NICK
NOLTE, GARRY SHANDLING, STEVE CAREL
Niðurstaða: Vönduð og vel gerð teiknimynd
þar sem skemmtileg skógardýr halda fjörinu
gangandi. Skemmtilegir leikarar hafa sitt að
segja og eiga drjúgan þátt í að gera Over the
Hedge að fyrirtaks fjölskylduskemmtun.
Uma Thurman og hótelmógúllinn
Andre Balazs hafa verið sundur og
saman lengi en Uma sást á dögun-
um með leikstjóranum Quentin
Tarantino. Orðrómur um ástarþrí-
hyrning fékk byr undir báða bængi
þegar Uma og Quentin eyddu
góðum tíma saman í New York í
eftirpartíi eftir nýjustu mynd
Umu, My super ex-girlfriend.
„Uma sat í fangi Quentin í dágóðan
tíma,“ sagði heimildamaður OK!-
tímaritsins. Þegar þrumuveður
skall á þaki klúbbsins þar sem
partíið var haldið hlupu allir í skjól
og Quentin tók sig til og greip í
Umu og hélt á henni inn.
„Það var mjög sætt,“ sagði
heimildamaðurinn. Quentin hefur
oft lýst því yfir að Uma sé skálda-
gyðja hans, en hún lék sem kunn-
ugt er í Pulp Fiction og Kill Bill-
myndum leikstjórans fræga.
Ástarþríhyrningur Umu
UMA THURMAN Orðuð við
tvo karlmenn um þessar mundir.