Fréttablaðið - 29.07.2006, Síða 66
46 29. júlí 2006 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
VISA-bikar kvenna:
KR-VALUR 0-3
0-1 Margrét Lára Viðarsdóttir (65), 0-2 Margrét
Lára (81), 0-3 Dóra María Lárusdóttir (90)
HK/VÍKINGUR-FJÖLNIR 0-2
BREIÐABLIK-KEFLAVÍK 2-0
STJARNAN-ÍR 4-0
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Valsstúlkur unnu öruggan
sigur á KR, 0-3, í stórleik átta liða
úrslita VISA-bikars kvenna.
Lokatölur leiksins segja þó ekki
alla söguna um þróun hans því jafn-
ræði var með liðunum í fyrri hálf-
leik og bæði lið gátu tekið forystu.
Valsstúlkur voru ákveðnari í
seinni hálfleik og Margrét Lára
Viðarsdóttir skoraði gott mark um
hann miðjan. KR-stúlkur misstu
Aliciu Wilson af velli á 77 mínútu
þegar hún fékk sitt seinna gula
spjald og Valsstúlkur gengu á lagið.
Síðasta stundarfjórðung leiksins
spiluðu þær vel og tryggðu góðan
sigur. - shá
VISA-bikar kvenna:
Öruggt hjá Val
gegn KR
VALSSIGUR Valur reyndist sterkara liðið í
gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI „Öll sætin eru komin til
landsins en þakið verður ekki
komið fyrir leikinn, við vissum
það alltaf. Við byrjum að setja
sætin á eftir helgina og þau verða
öll tilbúin fyrir leikinn gegn Spán-
verjum. Þakið verður svo tilbúið
fyrir Danaleikinn,“ sagði Eggert
Magnússon, formaður KSÍ, við
Fréttablaðið í gær.
Framkvæmdir á Laugardals-
velli eru í fullum gangi og verka-
menn vinna hörðum höndum að
því að gera allt klárt fyrir vígslu-
leikinn á endurbættum þjóðar-
leikvangnum. Sæti fyrir 10.500
manns munu komast fyrir á leik-
vangnum og meðal annars verða
settar nýjar sætaraðir fyrir neðan
stúkuna sem ná alveg niður að
hlaupabrautina.
„Við erum með flott sæti, vand-
aðri en þau sem voru á. Annars vil
ég sem minnst gefa upp um þau en
stúkan er á áætlun eins og við
gerðum ráð fyrir í vor þegar við
vorum að skipuleggja leikina,“
sagði Eggert, en auk þess sem
stúkan mun rúma fleiri verður
nýtt og glæsilegt húsnæði fyrir
KSÍ í viðbyggingunni.
Miðar á leikinn gegn Spánverj-
um fara í sölu fljótlega og býst
Eggert við miklum áhuga. „Við
getum selt mun meira en 10 þús-
und miða fyrir leikinn gegn Spán-
verjum. Við þurfum ekki að selja
bara í stúkuna þar sem um vin-
áttuleik er að ræða og því kemst
fólk fyrir í stæðunum líka. Við
bætum ekki aðsóknarmetið en það
væri frábært að fá 12-15 þúsund
manns. Spánverjar voru með flott
lið á HM og ég býst við rífandi
stemningu á vellinum,“ sagði
Eggert Magnússon. - hþh
Aðeins rúmar tvær vikur eru í stórleik Íslands og Spánar sem fer fram 15. ágúst:
Laugardalsvöllur verður tilbúinn
STÚKAN Í BYGGINGU Verkmenn fylgjast
með leik Val og Bröndy á fimmtudaginn en
aðeins eru rúmar tvær vikur í leikinn gegn
Spánverjum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Landsliðið hefur verið
að æfa saman í allt sumar en tekið
sér frí þess á milli í eina til tvær
vikur. „Við höfum æft þrjár vikur
samfleytt núna og þannig verður
það næstu tvo mánuðina. Æfing-
arnar hafa gengið mjög vel,“ sagði
Sigurður Ingimundarson, þjálfari
liðsins, við Fréttablaðið.
Ekki hafa allir getað æft með
liðinu í allt sumar og þrír leikmenn
verða ekki með á Norðurlandamót-
inu sem hefst 1. ágúst og stendur
yfir í fimm daga. Jón Arnór Stef-
ánsson, Brenton Birmingham og
Fannar Ólafsson verða ekki með á
mótinu vegna þreytu og meiðsla en
koma inn strax eftir það.
„Ég vil meina að þetta sé eitt
sterkasta lið sem við höfum haft og
við ætlumst til að ná árangri núna,
það er ekkert öðruvísi. Við erum
með mikið af ungum mönnum sem
eru að banka á landsliðsdyrnar
þrátt fyrir að þeir séu kannski ekki
í hópnum núna,“ sagði Sigurður,
sem fylgdist að sjálfsögðu vel með
yngri landsliðum Íslands sem hafa
verið í eldlínunni síðustu vikur.
„U18 ára liðið féll um deild sem
var svekkjandi en þeir voru að
spila við gríðarlega erfiðar þjóðir.
Þeir unnu þó Frakka sem var
algjörlega frábært hjá þeim en
U20 ára liðið var upp og ofan. Þeir
voru allt í lagi og áttu nokkra góða
leiki,“ sagði Sigurður en bæði lið
áttu erfitt uppdráttar á Evrópu-
mótunum sem þau hafa nú lokið
keppni á. Sigurður er mjög ánægð-
ur með hópinn sem hann er með í
höndunum.
„Þetta er mjög þéttur hópur. Það
má segja að undirstaðan sé leik-
menn sem eru á aldrinum 24-25 en
hafa samt sem áður yfir mikilli
reynslu á að skipa. Þessir strákar
eiga að vera tilbúnir að axla þá
ábyrgð að stíga skrefið áfram,“
sagði Sigurður, sem er með mark-
miðin á hreinu.
„Markmiðið er klárlega að kom-
ast upp en þó svo að þetta heiti B-
deild er þetta langt frá því að vera
slakur hópur liða. Þarna eru átján
lið þar sem aðeins tvö komast upp
og mörg þeirra eru virkilega góð.
A-deildin er svo rjóminn þar sem
24 bestu lið Evrópu eru, til dæmis
Júgóslavía og Ítalía. Fyrirkomu-
lagið er mjög strembið en það gerir
þetta mjög spennandi og skemmti-
legt um leið. Verkefnið er krefj-
andi en þetta er keyrt á nokkrum
dögum þar sem mikið er um ferða-
lög og liðin verða að vera undirbú-
in og í góðu líkamlegu formi. Þá
skiptir einbeitingin miklu máli,“
sagði Sigurður.
„Ég er bjartsýnn á að þetta tak-
ist hjá okkur. Ég ætlast til þess að
þetta gangi upp. Allur hópurinn er
einbeittur að þessu verkefni og
gerir sér grein fyrir mikilvægi
þessa leikja,“ sagði þjálfarinn, sem
hefur fengið körfuboltamógúlinn
Friðrik Inga Rúnarsson með sér í
lið.
„Við Friðrik þekkjumst vel og
höfum verið lengi í þessu saman,
yfirleitt á móti hvor öðrum. Það er
gott að fá hann inn í þetta. Að sumu
leyti eru skoðanir okkar ekkert
ólíkar en að öðru leyti erum við
ólíkir og það sem hann kemur með
inn í þetta verður áhugavert fyrir
okkur sem og leikmennina. Hann
kemur með ráðgjöf og aðstoð fyrir
okkur,“ sagði Sigurður Ingimund-
arson, bjartsýnn þjálfari íslenska
landsliðsins, að lokum.
hjalti@frettabladid.is
Ætlast til þess að þetta gangi
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta stendur í ströngu þessa dagana en það býr
sig nú undir Evrópkeppnina. Sigurður Ingimundarson, þjálfari liðsins, segir
kröfuna vera að komast upp úr B-deildinni, ekkert annað komi til greina.
FYLGST MEÐ Sigurður og Friðrik fylgjast
með á æfingunni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
TEKIÐ Á ÞVÍ Páll Axel Vilbergsson er umkringdur af þremur andstæðingum sínum á æfingu
landsliðsins á fimmtudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
FÓTBOLTI Sögunni endalausu um
Ruud van Nistelrooy er loksins
lokið en hollenski framherjinn
skrifaði undir þriggja ára samn-
ing við Real Madrid í gær eftir að
hafa staðist læknisskoðun. Talið
er að Real borgi Manchester Unit-
ed um 11 milljónir punda fyrir
þennan mikla markahrók, sem
óskaði eftir því að vera seldur frá
félaginu.
„Ég gæti ekki verið ánægðari
með að vera kominn til Real
Madrid, þetta er eitt stærsta félag
í heimi og ég hlakka til að skora
mörk fyrir það. Ef Real Madrid
vill fá þig þá geturðu ekki sagt
nei,“ sagði van Nistelrooy, sem
skilur eftir sig stórt skarð í sókn-
arlínu United.
„Ruud var einn af fyrstu val-
kostunum okkar sem ég vildi kaupa
þegar ég kom til félagsins. Hann
hefur sannað hversu góður hann er
og ég er mjög ánægður að hafa kló-
fest hann,“ sagði Fabio Capello,
stjóri Real Madrid, í gær. - hþh
Van Nistelrooy kominn til Real:
Ég gæti ekki
verið ánægðari
VAN NISTELROOY Var ánægður maður í gær
eftir læknisskoðunina hjá Real Madrid.
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar FH
fengu engan óskadrátt þegar dreg-
ið var í þriðju umferð Meistara-
deildarinnar í gær. FH á eftir að
spila síðari leikinn gegn sterku
liði Legia Varsjá og eftir 1-0 tap á
heimavelli í vikunni er borin von
að liðið komist áfram. Það lið sem
vinnur viðureignina mætir
Shakhtar Donetsk frá Úkraínu.
Liverpool fékk skelfileg tíðindi
en liðið mætir Maccabi Haifa.
Líklegt er að sá leikur verði færð-
ur vegna stríðsástands í Ísrael um
þessar mundir. Arsenal mætir
Ekranas frá Litháenen. Fyrri leik-
irnir fara fram 8. og 9. ágúst og
þeir síðari 22. og 23. sama mánað-
ar. - hþh
Meistaradeildin:
Dregið í þriðju
umferð í gær
DRÁTTURINN Í HEILD SINNI
Tiraspol/Spartak Moskva - Liberec
Shakhtar Donetsk - FH /Legia Varsjá
FC Zurich/SV Red Bull Salzburg - Valencia
Levski Sofia/Sioni Bolnisi - Chievo
Hearts/Siroki Brijeg - AEK Athens
CSKA Moskva - Djurgården IF/Ruzomberok
AC Milan - Cork/Crvena Zvezda
Galatasaray - Mlada Boleslav/Vålerenga
Standard Liege - Gorica/Steaua Búkarest
Austria Magna - Benfica
FK Ekranas/Dinamo Zagreb - Arsenal
FC Köbenhavn/MyPa - Ajax
Hamburg - Osasuna
Metalurgs/Dynamo Kiev - Fenerbahce/B36
Liverpool - Maccabi Haifa
Lille - Debrecen/Rabotnicki Kometal
FÓTBOLTI Leit Manchester United
að miðjumanni virðist loksins hafa
borið árangur en Michael Carrick
er á leiðinni til félagsins. Sir Alex
Ferguson hefur lengi leitað að arf-
taka Roy Keane á miðju United en
kaupverðið á Carrick er um átján
milljónir punda.
Tottenham keypti Didier Zok-
ora fyrr í sumar og því verður
áfallið við að missa þennan snjalla
enska landsliðsmann ekki jafn
mikið, en Carrick verður fimmti
dýrasti leikmaður United frá upp-
hafi á eftir Rio Ferdinand, Juan
Sebastian Veron, Wayne Rooney
og Ruud van Nistelrooy. - hþh
Manchester United:
Festir kaup á
Michael Carrick
CARRICK Þótti leika mjög vel með Totten-
ham á síðasta tímabili. NORDICPHOTOS/AFP
> Evrópudráttur í dag
Í dag verður dregið í riðlakeppni
Meistaradeildar Evrópu í handbolta en
meðal liða í hattinum verða Íslands-
meistarar Fram. Safamýrarliðið er í 24.
sæti í styrkleikaröðinni og hefur leik í
riðlakeppninni sem hefst 30. október.
Fram er í þriðja styrk-
leikaflokki en
dregið verður
í höfuðstöðv-
um Ciudad
Real sem
varð Evrópu-
meistari í fyrra.
Sannkallaður
draumadráttur
væri líklega að
fá Evrópumeistar-
ana sjálfa með Ólaf
Stefánsson í broddi fylkingar, Gummers-
bach úr öðrum styrkleikaflokki og Dag
Sigurðsson og félaga hans úr Bregenz í
fjórða styrkleikaflokki.
Dennis Siim hélt til viðræðna við FH í
gær eftir að Íslandsmeistararnir höfðu
samband við danska liðið Randers um
að kaupa Siim til liðsins á nýjan leik.
Siim er samningsbundinn Randers til
2008 og sagði við Fréttablaðið í gær að
hann vonaðist eftir því að fá jafn langan
samning hjá FH, ef ekki lengri.
„Ég var mjög hrifinn af því að spila
hér. FH er mjög gott félag og mér leið
vel hérna,“ sagði Siim í gær en hann
var þá nýlentur á Íslandi og var ekki par
sáttur við kuldann hér en um 30 gráður
voru í Kaupmannahöfn í gær. „Ég hefði
kannski átt að klæða mig í eitthvað
meira en stuttermabolinn,“ gantaðist
Siim, sem þótti ekki leika jafn vel í fyrra
og hann á að geta.
„Ég var mikið meiddur og tognaði
fjórum sinnum á vinstri fæti, það
eyðilagði fyrir mér enda var ég alls
ekki í góðu formi. Ég vona að ef við
náum samningum nái ég að sýna
mitt rétta andlit í þetta skiptið, ég
skulda FH það,“ sagði Siim, sem
gekk í raðir Randers sem
sló FH út úr Evrópukeppni
félagsliða í vikunni.
„Við unnum 1. deildina
í Danmörku og komumst
upp í efstu deild þar sem
tímabilið er nýbyrjað.
Stuttu eftir að ég kom
til Danmerkur frá Íslandi
lenti ég í nokkuð erfiðum
meiðslum og eftir þau
þurfti ég að fara í aðgerð.
Ég er þó búinn að ná mér
en ég var ekki alveg nógu sáttur með
það hversu fá tækifæri ég fékk hjá
liðinu, ég vildi vera stærri hluti af
Randers en ég var,“ sagði Siim.
„FH hafði samband við Randers
og ég held að forráðamenn lið-
anna hafi hist núna í vikunni.
Ég heyrði af því að Davíð
Þór meiddist illa og það var
mjög leiðinlegt og því vant-
aði þá kannski miðjumann.
Ég vona að ég fái að spila
aftur fyrir FH og ég vona
að ég fái samning sem er
jafn langur og samning-
urinn minn hjá Randers,
til 2008 ef ekki lengur.
Ég hlakka mikið til,“ sagði
Dennis Siim.
DANSKI MIÐJUMAÐURINN DENNIS SIIM: ER Á LEIÐINNI TIL ÍSLANDSMEISTARA FH Á NÝJAN LEIK
Ég skulda FH að sanna mig á Íslandi
Sigmundur með forystu
Sigmundur Einar Másson úr GKG er með
örugga forystu eftir annan keppnisdag
þegar í Íslandsmótinu í holukeppni.
Hann lék annan hringinn á 75 höggum
og hefur sex högga forystu á Tryggva
Traustason. Í dag verður bein útsending
frá mótinu á Sýn sem líkur á morgun.