Fréttablaðið - 31.07.2006, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 31.07.2006, Blaðsíða 47
MÁNUDAGUR 31. júlí 2006 19 AF NETINU SENDIÐ OKKUR LÍNU Við hvetjum lesendur til að senda okkur línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Eingöngu er tekið á móti efni sem sent er frá Skoðanasíðunni á visir. is. Þar eru nánari leiðbeiningar. Rit- stjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskil- inn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Nýlega var gengið frá yfirlýsingu LEB og ríkisstjórnarinnar, sem er áætlun til fjögurra ára um til- lögur um úrbætur í lífeyris- og þjónustumálum aldraðra. Gæta skal þess að hér er því ekki um samning að ræða, heldur viljayfir- lýsingu um framkvæmdir. Jafn- framt árétta aðilar vilja til áframhaldandi samráðs um þau viðfangsefni sem yfirlýsingin tekur til og annað það sem upp kann að verða tekið í samráðs- nefnd aðila. Þetta þýðir í raun að LEB getur óskað funda með ráða- mönnum þegar þurfa þykir. Í stuttu máli má segja að megin- ástæða undirskriftar samninga- manna LEB var að tryggja þjón- ustuþátt yfirlýsingarinnar. Hann á að tryggja yfir tveggja milljarða kr. framlög á ári til aukinnar þjón- ustu, eflingar heimahjúkrunar og gerbreyttrar stefnu í bygginga- málum, þ.e. þjónustu- og öryggis- íbúða í stað einhliða steinkumb- aldabygginga, ennfremur mun Framkvæmdasjóður aldraðra ein- ungis veita fé til bygginga – en ekki rekstrar. Í stuttu máli er um gerbreytta stefnu í þessum málum að ræða. Í öðru lagi töldu menn rétt að tryggja þeim sem lægstar tekjur hafa fullar vísitölubætur strax á þessu ári. Í þeim hópi eru aðallega húsmæður, bændur og öryrkjar. 15.000 kr. hækkun frá 1. júlí 2006 fá einungis þeir sem engar aðrar tekjur hafa en frá TR. Aðrir fá minni hækkun, t.d. einstakling- ur sem ekki býr einn og hvort hjóna sem hafa um 40.000 kr. í aðrar tekjur á mánuði mun fá um 13.400 kr. hækkun, þeir sem hafa 50.000 kr. í aðrar tekjur á mánuði munu fá um 8.000 kr. hækkun. Þeir sem hærri tekjur hafa munu fá minni hækkun. Reikna má með að 1/3 af þessum upphæðum sé hækkun á kaupmætti eftir skatta. Hins vegar munu þessar upp- hæðir hækka frá 1. janúar 2007 vegna lækkunar skerðingarhlut- falls. Á bilinu 1. jan. 2006 til 1. jan. 2007 verður um að ræða mun jafnari krónutöluhækkun til allra sem hafa haft tekjutryggingu. Ennfremur hefur náðst fram einföldun bótakerfisins, smá- vægilegur ÁFANGI Í LÆKKUN skerðingarhlutfalls bóta, sveigjan- leg starfslok ná fram að ganga vegna þess að lífeyrisgreiðslur hækka við frestun á töku lífeyris. Nú fær einstaklingur sömu hækkun bóta án tillits til hjú- skaparstöðu. Í fyrsta sinn hefur náðst fram sú stefnubreyting að opnað er fyrir að einstaklingar geti haft nokkrar tekjur án þess að bætur skerðist. Það olli okkur veruleg- um vonbrigðum að ekki tókst að binda þessa ákvörðun við 1. jan. 2007 OG AÐ UPPHÆÐ FRÍ- TEKJUMARKSINS SKULI EKKI VERA HÆRRI. Ljóst er að hér er um fyrstu skref að ræða á langri göngu. LEB mun halda áfram að leggja höfuðáherslu á eftirfarandi. - að frítekjumark verði fest í lög frá 1. janúar 2007. - lög um sveigjanleg starfslok taki gildi frá 1. jan. 2007. - að unnið verði frekar að því að draga úr skerðingum og ein- falda flókna tryggingalöggjöf, sem fáir skilja. - krafist verður skattalækkun- ar á þeim sem lægst ellilaun hafa (um þetta hefur verið deilt, en í ráðherranefndinni (Ásmundar- nefndinni) var samþykkt sam- hljóða bókun þess efnis að skatt- byrði hefði aukist á lægstu laun og skattleysismörk lækkað á síð- ustu árum). - komið verði á skattfrjálsum grunnlífeyri - áfram verður unnið að því að minnka það bil hraðar sem mynd- ast hefur á síðasta áratug á milli launahækkana og lífeyrishækk- ana. Skattar fengust með engu móti ræddir, þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir og tilvitnanir í bókaða samþykkt forsætisráðherra þess efnis í ráðherrabústaðnum 21. des. 2005. Vakin skal athygli á að á árinu 2007 ver ríkissjóður tæpum 5 milljörðum til lífeyris- og þjón- ustuhluta aldraðra og á næstu 3 árum 6 til 7,5 milljörðum á ári til þessara mála. Ólafur er formaður LEB, Pétur er verkfræðingur, Borgþór S. Kjærnested er framkvæmdastjóri LEB og Einar er hagfræðingur LEB. Hvað hefur áunnist? Með eða á móti Morgunblaðinu hefur enn ekki tekist að losna úr hlutverki áróðursvélar í kalda stríðinu – jafnvel þó að allir séu sam- mála um að stríðið sé fyrir löngu yfir- staðið. En vegna þess að Múrinn var aldrei áróðurstæki í neinu stríði þarf rit- stjórn þess ekki að réttlæta allar gjörð- ir þeirra stjórnvalda sem að öðru leyti er fagnaðarefni að hafi náð kosningu. Þess vegna felst engin mótsögn í því að fagna því hvað Hugo Chavez hefur gert fyrir fátækustu íbúa Venesúela og að harma um leið nýlega vígvæðingu. Mótsögnin er aðeins til staðar í augum hins nafnlausa staksteinahöfundar sem þarf að einfalda stjórnmálin í með-eða- á-móti. Finnur Dellsén á murinn.is Gulli kvaddur Fór til Guðlaugs Jónssonar í hársnyrti- stofunni Nikk við Kirkjutorg kl. 14.00 í síðasta sinn á þessum stað, en hús- næði stofunnar hefur verið selt og lokar Guðlaugur henni 1. ágúst og lýkur þar með 105 ára starfrækslu rakarastofu við Kirkjutorg. Ég hef verið meðal við- skiptavina stofunnar frá barnæsku með stuttu hléi og hjá Guðlaugi í um fjóra áratugi. Björn Bjarnason á bjorn.is Endurgreiðsla Næstu daga mun svo hópur fólks fá tékka frá skattheimtumönnum og gengur séu greiðsla jafnan undir heitinu „endurgreiðsla frá skattinum“. Í fæstum tilvikum er þó um raunveru- lega endurgreiðslu að ræða heldur ýmsar bætur sem hrært hefur verið saman við skattkerfið. Má þar nefna vaxtabætur en því minni skatta sem menn hafa greitt þeim mun hærri geta vaxtabæturnar orðið. Annað skil- yrði fyrir vaxtabótum, en að hafa litl- ar tekjur og greiða lága skatta, er að hafa safnað verulegum veðskuldum á járnbenta steinsteypu. Annað dæmi eru tekjutengdar barnabætur. Þessar bætur eru bara alls ekki „endurgreiðsla frá skattinum“ heldur styrkur frá öðrum skattgreiðendum. Sem sést best á því að til þess að hámarka þessar bætur er best að hafa engar tekjur og greiða þar með engan tekjuskatt. Vefþjóðviljinn á andriki.is UMRÆÐAN YFIRLÝSING LANDSSAMBANDS ELDRI BORGARA OG RÍKISSTJÓRNAR ÍSLANDS ÓLAFUR ÓLAFSSON, PÉTUR GUÐMUNDSSON, BORGÞÓR S. KJÆRNESTED OG EINAR ÁRNASON ������������������������������ ������������������� ������� ������������������������������ �������������� ������� ���������� ����
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.