Tíminn - 05.01.1978, Qupperneq 9

Tíminn - 05.01.1978, Qupperneq 9
Fimmtudagur 5. janúar 1978 9 Wimmm Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Heigason. Rit- stjórnarfulitrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Stein- grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Siöumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftif kl. 20.00: 86387. Verð I lausasölu kr. 80.00. Askriftargjal*} kr. 1.500.á mánuði. • 1 - Blaðaprent h.f. ,, Landbúnaðarmálin Ólafur Jóhannesson. formaður Framsóknar- flokksins, vék sérstaklega að málefnum land- búnaðarins i áramótagreininni, sem birtist hér i blaðinu 31. f.m. Hann sagði.að útreikningar sýndu, að langt væri frá þvi að bændur næðu tekjum svo- kallaðra viðmiðunarstétta. Þetta stafaði af ýms- um ástæðum, sölutregðu innanlands, sem m.a. ætti rætur i breyttum neyzluvenjum .meiri útflutn- ingi en rikisframlagið hrykki til að verðbæta,van- metnum kostnaðarliðum o.s.frv. Bændum þætti að sjálfsögðu hart að búa við þetta. Mál þessi væru nú til athugunar hjá rikisstjórninni. ,,Ég vona fast- lega”, sagðiólafur Jóhannesson, ,,að sanngjarnar kröfur bænda fái hljómgrunn á réttum stöðum.” Þá vék hann að árásum þeim, sem land- búnaðurinn hefði sætt að undanförnu. Vitaskuld ætti málefnaleg gagnrýni rétt á sér og henni mætti svara með rökum. Þannig mætti rökræða um stefnuna i landbúnaðinum. Hún þyrfti að taka breytingum eins og annað i timans rás og menn þyrftu að vera opnir fyrir öllum nýjungum, jafnt i framleiðslu og markaðsmálum. En margt i um- ræddum ádeilum væru hreinar öfgar. Ólafur Jó- hannesson sagði siðan: ,,Uppistaðan i málflutningi öfgamanna er sú að framleiðsla á innlendum landbúnaðarafurðum sé of mikil.Það þurfi þvi að draga verulega úr henni og jafnvel hef ja innflutning i stórum stil áafurðum sem framleiddar hafa verið hér innanlands fram til þessa. Það er að minum dómi regin firra að snúa með þessum hætti baki við elztu atvinnugrein okkar íslendinga. I fyrsta lagi er i þvi fólginn mik- ill gjaldeyrissparnaður að þurfa ekki að flytja inn landbúnaðarafurðir. Við Islendingar erum mjög háðir öðrum þjóðum um aðdrætti og þvi væri var- hugavert að verða með þeim hætti enn háðari er- lendum viðskiptum. Það er heldur ekki eins auð- velt og margir vilja vera láta að setja hér á stofn atvinnufyrirtæki.til dæmis á sviði iðnaðar, er skili umtalsverðum gjaldeyri i þjóðarbúið. Slik upp- bygging tekur langan tima. í öðru lagi er það skoðun min,að við Islendingar eigum að nýta land okkar sem bezt án þess þó að ofnýta það. Með þvi móti sýnum við bezt i verki,hvers við metum landið og jafnframt leggjum við fram okkar skerf til matvælaframleiðslu i heiminum. Ég teldi það nánast ögrun við umheiminn, ef við íslendingar færum að dragasaman matvælaframleiðslu okkar nú,meðan Sameinuðu þjóðirnar og aðrar alþjóða- stofnanir leggja allt kapp á það að auka fram- leiðslu á matvælum til þess að seðja einhvern hluta þeirra milljóna.sem þjást af hungri i löndum þriðja heimsins, svonefnda. I þriðja lagi álit ég.að islenzkar landbúnaðarafurðir standist hvað gæði varðar fyllilega samkeppni við hliðstæðar vöru- tegundir erlendis. Ræktunarframkvæmdir og framfarir i landbúnaði eru likastar ævintýri. Hvaða starfsemi skyldi vera þroskavænlegri en sú, að framleiða hollar fæðutegundir? Bændur hafa að minum dómi tekið vel vinsam- l^um ábendingum um fjölbreyttari framleiðslu og gera það eflaust i framtiðinni. Ráðleggingar sérfræðinga á sviði matvælafræða eru lika góðra gjalda verðar og er sjálfsagt að færa þær sér i nyt, séu þær byggðar á visindalegum grunni. Að sjálf- sögðu getur þurft að hafa stjórn og skipulag á framleiðslunni og sniða framleiðslu i einstökum greinum stakk eftir vexti, þ.e. þörfum. Allir skilja að útflutningsbótum verður að setja skynsamleg takmörk. En markmiðið verður alltaf að vera það að við Islendingar séum sjálfum okkur nógir með landbúnaðarvörur. Ég hef alltaf litið svo á.að land- búnaður væri liftrygging islenzku þjóðarinnar.” Þ.Þ. ERLENT YFIRLIT Nýi borgarstjórinn kom í strætisvagni Koch er orðinn borgarstjóri 1 New York Nýi borgarstjórinn hitar sér morgunkaffi A NÝÁRSDAG tók nýr maö- ur viö þvi embætti, sem oft er taliö vandasamasta embættiö 1 Bandarlkjunum og þótt miklu viöar sé leitaö. Þetta er borgarstjóraembættiö I New York. Hinn nýi borgarstjóri New York, Edward Irving Koch, segist lika gera sér fulla grein fyrir þvi, hvaö hann sé aö takast á hendur. Hiö fyrsta sem hann hafi ásett sér, sé aö lifa áfram eins og óbreyttur borgari og búa viö sömu kjör og gengur og gerist hjá al- menningi. Þetta áréttaöi hann meö þvl aö fara I vinnuna á nýársdag I strætisvagni eins og hann var vanur áöur. Aöur haföi hann aö venju hitaö sjálfur morgunkaffiö sitt og tilreitt morgunveröinn, en hann er piparsveinn. Eina breytingin var sú, aö nú fengu ljósmyndarar aö vera viö- staddir þessa athöfn. Hann bjó svo um rúmiö sitt og gekk frá ýmsu smádóti, sem hann haföi meö sér. Slöan tvílæsti hann þriggja herbergja leigulbúö- inni, sem hann haföi búiö I og hann ætlar sér aö leigja áfram og nota ööru hverju, þótt hann flytji I hinn viröulega borgar- stjórabústaö, 'sem stendur á fögrum staö niöur viö Austurá. Koch fór síöan á hina næstu biöstöö fyrir strætis- vagna.sem aka til ráöhússins, og fór meö næsta vagni á vinnustaöinn. Biöstööin var næstum mannlaus og strætis- vagninn einnig, þvl aö ekki haföi veriö búizt viö aö borgarstjórinn kæmi I þessu farartæki til ráöhússins, þar sem talsveröur mannfjöldi beiö eftir honum. Koch hefur ekki átt sjálfur bíl slöan 1965, heldur notaö almennings- vagna og leigubíla. Hann hef- ur lengi veriö mikill talsmaö- ur þess, aö þjónusta almenn- ingsvagna og neöanjaröar- lesta yröi bætt og dregiö úr bílanotkun á þann hátt. Hann hyggst sem borgarstjóri láta sérstaklega taka til sln á þessu sviöi. ÞEGAR Koch hóf baráttu slna fyrir þvl aö veröa borgar- stjóri I New York, þótti hann ekki sigurvænlegur. Hann átti aöalfylgi sitt I Greenwich Vill- age, á Manhattan, þar sem hann var búsettur, og fylgi hans var taliö nær eingöngu bundið viö Manhattan. Svo fór þó, aö hann hlaut flest atkvæöi I fyrra prófkjörinu hjá demó- krötum og vann svo endanlega I siöara prófkjörinu, þegar valiö var milli tveggja þeirra efstu. Hann vann svo sjálfa borgarstjórakosninguna auð- veldlega. Koch er 52 ára gamall, kom- inn af Gyðingaættum I New York. Hann var I hernum á árunum 1943-1947, aöallega I Vestur-Þýzkalandi. Eftir heimkomuna hóf hann laga- nám við New York-háskóla og gerðist málaflutningsmaöur aö þvl loknu. Hann haföi fyrst 1952veruleg afskipti af stjórn- málum, þegar hann vann eftir megni fyrir Adlai Stevenson I forsetakosningunum. Hann byrjaöi þá aö reka áróöur á götuhornum I Greenwich Vill- age og hefur síðan átt heima þar. Eftir þessa þátttöku I kosningabaráttu Stevenson, fór Koch að starfa I félagi demókrata I Greenwich Will- age og var kosinn formaöur þess 1963. Þá keppti hann viö þekktan leiötoga demókrata, Carmine de SapioK sem var leiötogi Tammany Hall-kllk- unnar alþekktu, en hún var þá mikilsráöandi hjá demókröt- um. Ariö 1968 bauö Koch sig fram til Bandarikjaþings I kjördæmi á Manhattan, þar sem demókrati hafði ekki náö kosningu I 30 ár. Koch vann og hefur veriö endurkjörinn slö- an. A Bandarlkjaþingi skipaöi hann sér strax I frjálslyndari arm demókrata og var strax mikill andstæöingur Víet- nam-strlösins. Annars er stefna Kochs talin nokkuö tækifærissinnuö. í kosninga- baráttunni sagöi hann, aö New York þarfnaöist sterkrar for- ustu og aukinna afskipta á ýmsum sviöum, en reglan yröi samt að vera sú, aö þessi af- skipti yröu ekki meiri en ýtrasta þörf útheimti, þvl aö annars myndi kerfiö vaxa skattþegnunum yfir höfuö. Þá lagöi hann áherzlu á aö lögum og reglum yröi stranglega framfylgt. ÞESSI stefnumótun Kochs er á þá leiö, aö erfitt getur orö- iö að framfylgja henni. Mörg málefni borgarinnar eru I niöurnlðslu sökum fjárskorts. Efnaðri borgarar hafa flutt úr borginni, þótt þeir vinni þar, en fátæklingar hafa flutzt þangað úr öllum áttum. Þann- ig hefur fátækraframfærsla stóraukizt á sama tíma og skattamöguleikarnir hafa rýrnað. Koch veröur aö reyn- ast meira en meöalmaöur, ef hann á að geta kippt þessu I lag. Þ.Þ. Borgarstjórinn á leiö I vinnu I strætisvagni

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.