Tíminn - 05.01.1978, Page 13

Tíminn - 05.01.1978, Page 13
Fimmtudagur 5. janúar 1978 13 llíiíiÍMÍí 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8; 15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbænkl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 9.15. Geir Christensen lýkur lestri sögunnar um Grýlu, Leppa- lúða og jólasveinana eftir Guðrúnu Sveinsdóttur (3). Tilkynningar kl. 9.30. Létt lög milli atriða. Tii umhugs- unar kl. 10.25. Þáttur um áfengismál i umsjá Karls Helgasonar lögfræðings. Tónleikar kl. 10.40. Morgun- tónleikarkl. 11.00: Sinfóniu- hljómsveit Lundúna leikur Forleik að óperunni „Heilagri Jóhönnu” eftir Verdi, Richard Bonynge stj. Sviatoslav Rikhter og Parisarhljómsveitin leika Pianókonsert nr. 2 i B-dúr op. 83 eftir Brahms, Lorin Maazel stj. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. A frivaktinni Sigrún Sigurðardóttir kynn- ir óskalög sjómanna. 14.40 Verð ég alltaf i öskunni? Þáttur um fulloröins- fræðslu. Umsjón: Þorbjörn Guðmundsson. 15.00 Miðdegistónleikar André Watts leikur Sex Paganini- etýður eftir Franz Liszt. Ye- hudi Menuhin og hljómsveit Filharmonia i Lundúnum leika „Romance, réverie et Caprice” op. 8 eftir Hector Berlioz, John Pritchard stjórnar. Heinz Holliger og Nýja Filharmóniusveitin leika óbókonsert i D-dúr eftir Richard Strauss, Edo ' de Waart stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Tónleikar. 17.30 Lagið mitt Helga Stephensen kynnir óskalög barna innan tólf ára aldurs. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Daglegt mál. Gisli Jóns- _ son flytur þáttinn. 19.40 íslenskir einsöngvarar og kórar syngja. 20.10 Leikrit: „Eiginkona ofurstans” eftir Somerset Maugham Þýðandi: Torfey Steinsdóttir. Leikstjóri og sögumaður: Rúrik Haralds- son. Persónur og leikendur: George Peregrine... Gisli Halldórsson, Evie Per- grine... Margrét Guð- mundsdóttir, Henry Blake... Jón Sigurbjörnsson, Daphne... Sigríður Þor- valdsdóttir, Bóksali... Helgi Skúlason, Klúbbfélagar: Ævar R. Kvaran og Þorsteinn ö. Stephensen. Aðrir leikendur: Kristbjörg Kjeld, Gisli Alfreðsson, Baldvin Halldórsson, Valde- mar Helgason, Brynja Benediktsdóttir og Klemenz Jónsson. 21.10 Sinfóniuhljómsveit is- lands leikur i útvarpssal. Einsöngvarar: Sieglinde Kahmann og Sigurður Björnsson. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. a. „Orfeus i undirheimum”, forleikur eftir Offenbach b. „Still wie die Nacht” eftir Böhm. c. „Intermezzo úr „Cavalliera Rusticana” eftir Mascagni. d. „Niemand liebt dich so wie ich” úr „Paganini” eftir Lehar. e. „Sag ’ja, mein Lieb, sag ’ja” úr „Maritzu greifafrú” eftir Kalman. 21.40 Að Kleifarvegi 15 Ingi Karl Höskuldsson ræðir við Reginu Höskuldsdóttur og Eirik Ragnarsson, en þau veita forstöðu heimili fyrir börn sem eiga við sálræn og félagsleg vandamál að striða. David Graham Phillips: j 106 SUSANNA LENOX JánHélgason manna í Sutherland að leiklist væri af vondum uppruna — að vísu ekki eins óhagganleg og hún hafði verið áður f yrr en þó nógu rótgróin til þess að blása Súsönnu í brjóst þeirri þægilegu kennd þar sem hún sat í rúmgóðu og iburðarmiklu sæti mitt á meðal f jölda áhorfenda að nú væri hún lausaleikskrakkinn komin í umhverfi sem hæfði henni. Venjulega verður fólk fyrir sárum von- brigðum er það sér það sem það hef ur lengi þráð í f yrsta skiptið. En Súsanna varð ekki f yrir vonbrigðum. Frá því leikurinn hófst og þar til tjaldið féll var hún hugfangin gersamlega heilluð að hún gleymdi alveg umhverf inu og meira að segja Roderick líka. Og hún gat alls ekki talað milli þáttanna aðeins hugsað. Roderick gramdist þessi þegjandaháttur. Hann hafði lengi hlakkað til þess að sjá gleði hennar er hún kæmi í leikhús i fyrsta sinn, og vænt sér mikils þekkingarauka af því að gaumgæfa hvernig það orkaði á ósnortinn huga hennar. Það var ekki f yrr en þau voru komin á leið heim að hann fékk hugboð um hvernig henni var innanbrjósts. „Við skulum fá okkur eitthvað að borða", sagði hann. „Ég vil heldur fara heim ef þér væri það ekki á móti skapi. Ég er sárþreytt". „Þú svafst þó fast í morgun. Þú hlýtur að hafa sofið eins og selur í alla nótt", sagði hann háðslega. „Það er leikurinn". „Hvað? Hvað þótti þér að honum?" sagði hann önug- lega. Hún leit forviða á hann. „Að honum? Leiknum?" Hún dróandann djúpt. „Mér var hér um bil ofraun að horfa á hann". Hann skildi þetta þegar þau voru komin heim. Hún var ekki f yrr kominn úr fötunum en hún steinsofnaði sof naði svo fast að hann var dálítið órólegur. Þetta minnti hann á örþreytu barns eftir æsandi kvikmyndasýningu. Og þegar það brást að hún væri ofsakát daginn eftir dró hann enn af því rangar ályktanir. „Modjesta var góð í gervi Mögdu", sagði hann hirðuleysislega eins og sá sem sem talar án þess að gera ráð fyrir að aðrir skilji sig. „En það kvað vera einhver ítölsk dís sem leikur þetta hlutverk ennþá betur, alveg dásamlega". Modjesta — ítölsk dís...Súsanna virtist alls ekki skilja hann. „Faðir hennar var viðbjóðslegur", sagði hún. „Hann átti ekki skilið að eiga svona yndislega dóttur". Spenser var byrjaður að hlæja en þegar hún saqði síðari setninguna hleypti hann i brúnirnar og sagði gremjulega: „Ég hefði svo sem átt að vita það! Þú mis- skilur það allt. Þú ert náttúrlega á bandi Mögdu". ,, Ég tigna hana", sagði Súsanna skjálfrödduð. Roderick hló beisklega. „Náttúrlega", sagði hann. „Þú ert skilningslaus". Málið var auðskilið hugsaði hann. Hún var ein af þess- um stúlkum sem skortir siðferðisvitund. Stöku menn eru svo óhamingjusamir að fæðast fótalausir eða handvana aðrir eru með þeim ósköpum fæddir að skorta siðferðis- vitund. Fagur líkami,glæsilegur vöxtur en sálin aldeyða. Allur hugur hans til hennar var breyttur eða réttara sagt: tilf inningar hans urðu að lúta hinum járnharða aga hleypidómanna. En eina breytingin sem varð á fram- komu hans við hana var sú að nú varð ástleitni hans skef jalausari en áður. Allar þær hömlur sem virðingin fyrir konunni leggur á karlmanninn voru burt numdar. Og Súsönnu sem þráði að elska og vera élskuð var hugf ró að þessu. Hún vildi ekki gefa því gætur hvað duldist undir yf irborðinu á samlífi þeirra — velti ekkert vöngum yf ir því hvað hann kynni að hugsa um hana né hvað hún hugsaði í rauninni um hann. Hún barðist gegn öllum efa, vísaði á bug einstæðingskenndinnifgrun sínum um yfir- vofandi hættu. Ofan á annað bættust áhyggjur út af f járhagsafkomu þeirra. í viðleitni sinni að koma leikritinu á framfæri eyddi Roderick oft talsverðu fé, bauð hinum og þessum að snæða með sér og ef ndi til smásamkvæma í veitinga- stöðum við Breiðstræti. Hún taldi víst, að þetta væri óumf lýjanlegt. Svo sagði hann að minnsta kosti, og hann hlaut að vita það manna bezt. Hann vár líka ósínkur, þótt þau væru tvö ein, vildi alltaf fá dýrustu réttina og auk þess vín, sem henni hefði verið eins hollt að vera án — og honum sennilega líka. Hún vissi, að hann var nú svona gerður — honum var ekki sýnt um að f ara með peninga. I sjálfu sér geðjaðist henni vel að þessu skapferli, því að hún leit þannig á, eins og flestir unglingar, sem ekki kryf ja málin til mergjar, að skeytingarleysi i meðferð f jármuna væri óbrigðull vottur um gjafmildi — þótt það séu i rauninni f jarskildir eiginleikar. En þrátt fyrir það sá hún hættuna — mikla hættu, sem vofði yfir þeim i iskyggilegri nálægð. Hann lýsti fyrir henni þeim vand- kvæðum, sem það var bundið að ná fundi leikstjóranna og fá leikrit sitt lesið af ábyrgum mönnum, og öllum þeim viðbárum, sem fólk fann upp á til þess að vísa hon- um á bug. En þetta fékk ekki svo mikið á hann sjálfan. Sá næsti gatgripið leikritið hans fegins hendi, greitt hon- um stóra f járhæð fyrirfram, látið leika það eftir stuttan tíma — og þá — þá myndi allt ganga af sjálf u sér úr því. En reynslan hafði sálgað þeim votti af bjartsýni, sem hún hafði átt í fari sinu. Hún hafði ekki gleymt f rásögn- um Burlinghams um skipbrot hans. Nú skildi hún stríð hans betur en áður. Hún sárbændi Spenser að leyfa sér að leita sér vinnu. Hann brást reiður við og skipaði henni að hætta að hugsa um aðra eins vitleysu. Eftir nokkurn tíma herti hún þó upp hugann og hóf aftur máls á þessu. Þá játaði hann hreinskilnislega, hvers vegna hann vildi ekki fallast á þetta. „Nei", sagði hann umsvifalaust. „Ég þyrði ekki að treysta þér þar, sem svo miklar f reistingar væru annars vegar. Þú verður að vera þar, sem ég get haldið hlífi- skildi yfir þér". Og þótt hún héldi áfram að hugsa um þetta og leitaði jafnvel hófanna i kyrrþey, ympraði hún aldrei oftar á því við hann. Hún eyddi aldrei grænum eyri í óþarfa, og hún áminnti hann um að sóa ekki peningum sínum. Þannig beið hún þess, sém koma vildi. Hún lagðist samt ekki í þunglyndi eða gekk um með tárin í augunum. Það væri f jarri réttu lagi að hugsa sér Súsönnu niðurbeygða og lamaða af þunga áhyggnanna. Hún var gædd þrótti, sem var öllu slíku yfirsterkari. Hún var stálhraust, og hún f ann velliðanina streyma um hverja taug hins f agra og þróttmikla likama sína. Hún gat ekki annað en verið kát, hvort sem hún vildi það eða ekki. Hún elskaði sólina, og í þessari borg, þar sem var sólskin svo til hvern ein- asta dag og ferskt sjávarloftið utan frá flóanum fyllti vitin — i þessari sólskinsborg gat hún ekki annað en verið kát, jafnvel þótt henni væri þungt um hjartaræturnar. Því fór þess vegna f jarri, að hún væri Roderick leiðin- legur og keipóttur félagi þessa daga, er hún beið hruns- ins. Það bar að höndum í þriðju vikunni. Hann hafði verið úti allan daginn. Rétt f yrir miðnættið kom hann heim vel drukkinn. Hún var háttuð. „Á fætur með þig og í fötin", sagði hann argur. „Ég er sársoltinn — og þyrstur. Við skulum út og fá okkur eitthvað að borða". „Komdu hingað fyrst og kysstu mig", sagði hún og breiddi útfaðminn. Með þessu kænskubragði hafði henni oftlega tekizt að fá hann ofan af fyrirætlunum sínum, „Hann er sætur litia greyiö... en fyrirmina parta vilég meiri hund fyrir mig.” DENNI DÆAAALAUSI

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.