Tíminn - 10.01.1978, Blaðsíða 5

Tíminn - 10.01.1978, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 10. janúar 1978 5 á viðavangi Þeir syndlausu Þjóðviljinn hefur aö undan- förnu nokkrum sinnum fallið í þá freistni að reyna að gera svikamálin sem hæst ber I þjóðfélaginu um þessar mund- ir að pólitfsku áróðursefni. Ritstjórar Þjööviljans hafa þannig reynt að veifa þvl, að fjármálaóreiða og misferli einstakra ógæfumanna eigi að einhverju leyti rót sína að rekja til tveggja stærstu stjórnmálaflokka þjóöarinn- ar. Fáránlegar öfgar af þessu tagi hitta auövitað enga fyrir fremur en sjálfa ritstjóra Þjóðviljans. Sérstaklega var það átakanlegt að hlusta á annan ritstjóra blaðsins fara þessum staðleysum fram I sjónvarpi nú fyrir skemmstu. Það liggur auövitaö alveg fyr- ir aö misferli fer ekki eftir flokkslit og veröur ekki dregið I flokkspólltlska dilka, fremur en t.d. óöaveröbólgan sem að slnu leyti er vafalaust með- verkandi ástæða fjármála- legrar upplausnar I landinu. Þar eiga allir stjórnmála- flokkar þjóöarinnar sameigin- lega sök, og er aðeins hjákát- legt þegar einhver einn þeirra hyggst munu geta hvltþvegiö sig með öllu. Þegar upp kom hið mikla fjársvikamál I Landsbanka ts- lands og trúnaðarmaöur i Sjálfstæðisflokknum reyndist tengdur þvl vegna viöskipta sinna við bankann.þóttist Þjðð viljinn heldur en ekki hafa komizt i feitt séð frá pólitisku sjónarmiöi. Við þessu brugð- ust málgögn Sjálfstæöis- flokksins af sams konar heift og einkenndi skrif Þjóðviljans. Hvor tveggja skrifin báru nokkurri hræsni vitni, þar sem hvor um sig ásakaði hinn um sömu afglöpin I skrifum. Minnt á moldviðrið Þjóðviljinn svaraði fyrir sig I ritstjórnardálki sl. laugar- dag og vék I leiðinni að hinum alræmdu skrifum slðdegis- blaöanna I Reykjavlk um glæpamálin sem hæst bar i landinu fyrir ári. Þjóöviljinn segir um það efni m.a.: „Sérstaklega eru skrifin I VIsi hámark hræsninnar. Voru það ekki slðdegisblöðin, tvl- burarnir sem um tveggja ára skeið reyndu að kllna á forystu Framsóknarflokksins ábyrgð á Geirfinnsmálinu og fleiri málum þvl tengdu? Það var ekki taliö dæmi um pólit- Iskar ofsóknir þótt ekkert lægi fyrir sannað I málinu.” Hvað sem öðru llður er það tlmabært að slðdegisblöð Sjálfstæðismanna séu minnt á þær óheyrilegu sakargiftir og dylgjur sem þau fóru með á hendur Framsóknarmönnum á sinum tlma, nú þegar þau þykjast verða ókvæða við svipuð skrif annarra um trún- aðarmenn I Sjálfstæðisflokkn- um. Reyndar hefur það vakið furðu margra hve lítið Fram- sóknarmenn hafa gert að þvl að benda á ofstækiö og skyn- semisskortinn sem einkenndi árásarskrifin á hendur flokkn- um og forystumönnum hans. Ástæöan er fyrst og fremst sú, aö hver heilvita maöur, sem reyndi aö gera sér ein- hverja grein fyrir eðli mál- anna, sá aö hér var veriö að þyrla upp svlviröilegu pólit- Isku moldviðri I þvl skyni einu að torvelda lögreglurannsókn og vinna meö þvl væntanlegan pólitlskan ávinning. Það fór heldur ekki á milli mála, að rannsóknin var tafin og leidd inn á rangar brautir um hríö, og m.a. veröur að telja koma til greina að blaðaskrif þessi hafi átt einhvern þátt I þvl að draga athygli rannsóknar- manna að saklausum mönn- um, sem slðan uröu fyrir þeirri óbærilegu reynslu aö þurfa að sæta frelsissviptingu vikum saman. Eiga að geta lært eitthvað Abyrgð þeirra manna er mikil, sem þannig hafa fariö með ritfrelsi sitt og áhrif blaðaskrifa sinna. Nú er að vlsu svo komið, að þeir hafa þagnað allflestir. Enn heyrast þó við og við undarleg andvörp tveggja manna sunnan úr Keflavlk. Hefur þar annar eitthvað lltillega veriö kennd- ur við menningarmál, en hinn aldreigi. Og I Reykjavlk ber þaö við enn, þótt sjaidnar sé en áður að nafntogaöur vin- sæidarmaðurog frambjóðandi æsir sig upp I það að sýna al- menningi að hann kann ekki að skammast sfn. Hin flokkspólitlsku skrif um ' Geirfinns- og Guömundarmál- in munu að vlsu lengi I minn- um höfð sem vlti til varnaöar. Hins vegar ætti mönnum aö geta auðnazt að læra eitthvað af þeim hræðilegu mistökum sem ýmsum þeim sem I dag- blöð skrifa urðu á í þvi mikla róti sem þá varð. Það er bein- linis hlægilegt þegar Sjálf- stæðismenn þykjast hafa efni á hneykslun, þegar haft er I huga hverjum orðum þeir aft- ur og aftur hafa farið um pólit- iska andstæðinga I málum af þessu tagi, ekki slzt ef haft er I huga hvflíkt ofurveldi þeirra er i fjármálastofninum og at- vinnullfi landsins. A hinn bóg- inn er það jafnbroslegt ef skriffinnar Alþýðubandalags- ins þykjast geta gefið sjálfum sér eitthvert algilt hreinlynd- is- og siðferðisvottorð á kostn- að annarra. JS VETRARÖNN hefst mánudaginn 16. jan. Kennslugreinar: TUNGUMAL: islenska 1. og 2. flokkur islenska fyrir útlendinga, enska 1., 2., 3., 4., 5., 6., 7. flokkur enska málfræði og stflagerö, verslunarenska, þýzka 1., 2., 3. og byrjendaflokkur, franska 1., 2. og byrjendaflokkur. italska 1., 2., 3., 4. og byrjendaflokkur spænska 1., 2., 3. 4. og byrjendaflokkur latina, rússneska, færeyska, danska 1., 2., 3. og 4, flokkur sænska 1. og 2. flokkur. norska 1. og 2. flokkur. VERKLEGAR barnafatasaumur, GREINAR kjólasaumur (sniðar og saumar) postulinsmálning, myndvefnaður, hnýtingar, batik. ANNAÐ vélritun. bókfærsla ættfræði, stærðfræði. TóNLIST guitarkennsla, pianókennsla og harmoniku- kennsla. INNRITUN MILLI KL. 19. TIL 21. I MIÐBÆJARSKÓLA 1 lfter af kem. hreinsuðu rafg. vatni. fylgir til .áfyllingar hverjum rafgeymi sem keyptur er hjá okkur. RAFGEYMAR Þekkt merki Fjölbreytt úrval 6 og 12! volta fyrir bíla, bæði gamla og nýja, dráttarvélar og vinnuvélar, báta, skip o.fl. Ennfremur: Rafgeymasam'b'ónd — Startkaplar' og pólskór. Einnig: Kemiskt lu-einsaö rafgeymavatn til áfylling- or á rafdpvma Auglýsingadeild Tímans Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla STÓRKOSTLEGT URVAL Velúrbútar, jóladúkar dagatöl og fl. mildll afslá Gauggatjaldadeild KJORGARÐIÍT2-22-06 « gl

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.