Tíminn - 10.01.1978, Page 15

Tíminn - 10.01.1978, Page 15
Þriðjudagur 10. janúar 1978 15 boim leika Sellósónötu I e- moll op. 38 eftir Brahms. Búdapest-kvart- ettinn leikur Strengjakvar- tett nr. 16 I F-dúr op. 135 eftir Beethoven. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Er Reykjavik eina at- hvarfið? Þáttur um vanda- mál aldraðra og sjúkra. Ums: Ólafur Geirsson. 15.00 Miðdegistónleikar. Hljómsveit Tónlistarskól- ans i Paris leikur Spænska rapsódiu eftir Maurice Ravel; André Cluytens stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popp- 17.30 Litli barnatiminn. Asta Einarsdóttir sér um timann. 17.50 Að taflLGuðmundur Arn- laugsson flytur skákþátt. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 „Skuggar af skýjum’’ Thor Vilhjálmsson rithöf- undur les úr nýrri bók sinni. 20.00 Konsert fyrir tvö pianó og hljómsveit eftir Bohuslav Martinu.Franz Joseph Hirt, Gisela Ungerer og Filhar- mónlusveit hollenska út- varpsins leika; Jean Four- net stj. 20.30 Ctvarpssagan: „Silas Marner” eftir George Eliot. Þórunn Jonsdóttir þýddi. Dagný Kristjánsdóttir les sögulok (17). 21.00 Kvöldvaka: a. Einsöng- ur: Einar Markan syngur fslensk lög.Dr. Franz Mixa leikur á planó. b. Þórður sterki.Frásaga eftir Helgu Halldórsdóttur frá Dag- verðará. Björg Arnadóttir les fyrri hluta frásögunnar. c. Hugsaö heim.Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi fer með fimm frumort kvæði. d. Utanfarir önfirðinga og Dýrfirðinga. Jóhannes Dav- Iðsson I Neðri-Hjarðardal segir frá fólksflutningum til Amerlku og Afrlku fyrir og eftir aldamót. Baldur Pálmason les frásöguna. e. Kórsöngur: Karlakór Akur- eyrar syngur Islenzk lög. Söngstjóri: Guðmundur Jó- hannsson. 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Harmonikulög. Toradder- trlóiö frá Hallingdal leikur. 23.00 A hljóðbergi. Vangede Billeger. Peter Rasmussen lektor les úr samnefndri bók eftir Dan Turéll. 23.40 Fréttir. Dagskrárlok. sjónvarp Þriðjudagur 10. janúar 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Landnám I Slberlu Þýsk- ■ ir sjónvarpsmenn feröuðust um 8000 km veg um Siberfu. Þeir fylgdu farvegi Ob-fljóts sem á upptök sln I Altai-fjöllum I Suö- ur-SIberlu og rennur til norðurs. A þessum slóðum hefur á undanförnum ára- tugum risið fjöldi nýrra borga og stór héruö hafa byggst, þar sem þótti óbú- andi áður. Þýðandi Guð- brandur Glslason. Slðari hluti myndarinnar er á dag- skrá þriðjudaginn 17. janú- ar nk. 21.15 Sjónhending Erlendar myndir og málefni. Um- sjónarmaður Sonja Diego. 21.35 Sautján svipmyndir að vori Sovéskur njósna- myndaflokkur. 8. þáttur. Þýðandi Hallveig Thor- lacius. 22.45 Dagskrárlok. David Graham PhiHips: 110 SUSANNA LENOX að henni var liðið úr minni, hve undarlega hann brást við orðum hennar, hélt hún áfram að minnast þessarar „fullkomnu" konu —og rif ja upp fyrir sér hvert smáatr- iði í klæðaburði hennar. Við þróumstán þess að verða þess vör, og oftast á þró- unin rót sína að rekja til einhverra smáatvika, sem í fljótu bragði virðast harla ómerkileg. Eins og allir aðrir hafði Súsanna átt sér sína óskadrauma — en hingað til hafði henni ekki dottið í hug, að þeir gætu orðið að veru- leika. Það, sem f yrst hafði þokað henni í þá átt að breyta þessum draumum sínum úr óhlutlægum órum í raun- veruleika, var frásögn Rodericks um líf leikaranna, kvöldið sem hann reiddi hana fyrir framan sig niður að fIjótinu. Þá hafði henni fundizt, að eina lífið, sem henni stæði til boða, þar sem litið yrði á hana sem manneskju — ekki kynveru einvörðungu — væri á vettvangi leik- listarinnar. Og óskir hennar og girndir tóku á sig nýja og formfastari mynd upp frá þeim degi, að hún sá þessa konu við sýningargluggann. En Roderick fannst hrifning hennar aðeins sönnun þess, að hún þráði í hjarta sínu að verða rík, til þess að hún gæti leyft sér munað og eyðslu. Hún þráði soll. Hann leit konurnar smáum augum. Þær voru í vitund hans orðnar kynverur eingöngu, og fyrirlitning hans á anda þeirra og sál jókst að sama skapi. Hann gerði sér varla lengur það ómak að dylja þetta með síðustu leif unum af almennri kurteisi. Dag nokkurn um miðsumarleytið brá Súsanna sér af tilviljun inn í Astor-gistihúsið til þess að kaupa timarit. Hún hafði ekki komið þangað fyrr, og þess vegna villtist hún inn í veitingasalina. Þar sá hún Roderick sitja inni i einu horninu bak við storan pálma og hjá honum mjög friða stúlku, sem í útliti, klæðaburði og háttum minnti mjög á leikkonu. Hún laut að honum yfir borðið, snart hönd hans og horfði á hann af svo ódulinni ástleitni, að reyndum manni hefði f logið í hug, að það byggi eitthvað viðsjált á bak við það og kannski væri vissara að hafa auga á hverjum fingri — og buddunni líka. Ef til vill hef ur af brýðisemi átt þátt í því, að hún felldi svo skjótan dóm um þessa konu. Að minnsta kosti hef ur afbrýðisemin ýtt undir hana. Hún sneri við í flýti og komst út óséð. Henni kom ekki einu sinni til hugar að njósna um gerðir hans. Hún blygðast sín meira að segja fyrir að hafa séð þau. I stað þess, aðjsvona atvik hefði vakið ofsareiði hégómagjarnrar konu, hvort sem henni hef ði þótt vænt um mann sinn eða ekki, f annst henni hún haf a verið sárlega auðmýkt. Hún hafði ekki verið honum nóg, hún hafði ekki getað gefið honum allt, sem hann girntist. Hann mátti ekki komast að þessu— mátti það ekki. Ef hann fengi vitneskju um það, myndi hann ef til vill alls ekki þola návist hennar og yfirgefa hana. Hún þorði ekki að hugsa um það, hvaða líf biði hennar án hans, eina mannsins, sem hún gat lagt lag sitt við og djúpið staðfest á milli snapþekkingar og andlegra hæfi- leika og álits og eiginleika. Súsönnu gazt vel að honum, því að hann var svo margfróður. Henni var meðfædd löngun til þess að menntast, og hún hafði þroskað hana. Hún vildi vita allt um allt. Hann sagði henni, hvað hún skyldi lesa, kenndi henni, hvernig hún ætti að lesa bækur — list, sem hann hafði ekki nema að litlu leyti náð að til- einka sér sjálfur. Hann vissi, hvaða sagnfræðibækur og ævisögur voru skemmtilegastar, áreiðanlegastar og gagnorðastar. Hann sagði henni skil á helztu leikrita- skáldum og skáldsagnahöfundum og Ijóðskáldum og skýrði fyrir henni með orðum kunnra gagnrýnenda, er hann lét eins og kæmu frá hans sjálfs brjósti, í hverju meginþýðing þeirra var fólgin. Hann leiðbeindi henni einnig um það, hvaða vísindarit hún ætti að lesa — sem sagt ekki þau leiðinlegu og ekki þau, sem fólu hin ein- földu og dásamlegu rök tilverunnar i þvælu hálærðrar, torskilinnar mærðar. Fyrst í stað hafði hann aðeins komið í fylgd með Spenser. Þegar fram í sótti, tók Spenser upp á þvi að senda hann heim til þess að snæða með Súsönnu og vera henni til skemmtunar á kvöldin, þegar hann varð sjálf ur að vera annars staðar — eða vildi vera annars staðar. Hann þóttist viss um það, að hún væri þó ekki að „iðka gamlar listir", þegar Drumley var hjá henni. Drumley varð strax hrifinn af henni, en hann gerði sér ekki minnstu von um, að sér mætti takast að ná ástum henn- ar, sem þó er bráðnauðsynl. hverjum þeim, er ætlar sér að f leka konu vinar síns, því að reynslan hafði sannfært hann um það, að konurnar voru bæði kaldgeðja og karl- mönnum f rábitnar. Ef Drumley heyrði talað um, að ein- hver kona færi laus á kostunum, andmælti hann jafnan harðlega, eins og slíkt væri sár móðgun við hið dyggða- ríka kvenkyn, svofremi sem ekki átti hlut að máli hrein og bein götudrós. Væru þá færð fram óhrekjandi rök, brást hann reiður við og jós yf ir hlutaðeigandi mann öll- um þeim verstu svívirðingum, sem öfundsjúkur maður getur haft á takteinum handa þeim, sem betur hefur vegnað. Auðvitað voru til þær konur, sem leitað höfðu lags við hann, því að hann var í fastri og þægilegri stöðu og hafði önglað talsvert saman. En þær, sem höfðu gert það til þess að eignast heimili, höfðu ekki f reistað hans, og hvaðsnerti hinar, sem laglegri voru og skemmtilegri og höfðu einkum í huga að krækja í dálitla aukafúlgu sér til f ramdráttar, þá voru veiðibrellur þeirra mjög óhyggi- legar, svo að hann fann strax, eftir hverju þær voru að slægjast. Um það bil, sem Spenser hafði unnið eitt ár hjá Herald — það var snemma sumars — tók að sækja á hann svo mikið og langvinnt mislyndi, að Súsanna var ekki í rónni. Hún var því að vísu vön, að hann fengi þessi amaköst, sem oft ásækja vanstillta og sjúklega tilfinninganæma menn og endurtaka sig með stuttu millibili, ef lifað er óreglusömu og taumlausu lífi. En nú tók hann að iðka þrásetur heima og virtist jafnvel orðinn jafn of urhrif inn og hann hafði verið fyrstu ástardaga þeirra. Stundum hjúfraði hann sig upp að henni af ástríðufullri ákefð, sem fékk mjög á hana. Þegar þessu hafði farið fram á annan mánuð, afréð hún loks að reyna að komast eftir því hjá Drumley, hvað olli þessum umskiptum. Vera mátti, að hún gæti hughreyst hann, ef hún vissi bara, af hverju þetta stafaði. Kvöld eitt í júnímánuði kom Drumley og bauð henni að snæða með sér. Þau ætluðu að borða á veitingastað í lystigarði borgar- innar. Þau tóku sér sæti undir laufhvolfi trjánna. Til beggja handa uxu fögur blóm. Drumley bað um mat, sem henni þótti sérstaklega góður, eina flösku af kampavíni og eina flösku af Búrgundarvíni. Það var hans uppáhaldsdrykkur— helmingur af hvoru, kampa- víni og Búrgundarvíni. Hann var með allan hugann við skáldskap þetta kvöld og vitnaði til skiptis í Keats og Swinburne. Eftir dálitla stund tók hann að þylja kvæði ef tir Dowson. —,, Ég rakst á það í dag. Það er eina kvæð- ið eftir hann, sem nokkurs er vert, held ég — og það er svo fallegt, að Swinburne hlýtur að hafa öf undað hann af því, þegar hann las það. Boðskapur þess er svo sem ekki mikils virði, en það er svo fallegt, að ég ætla að leyfa mér að fara með það f yrir þig. Hlustaðu bara á":

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.