Tíminn - 15.01.1978, Qupperneq 2
2
mmm
Sunnudagur 15. janúar 1978
„...Koma bændum
öllum á mölina en
hefja um leið stór-
felldan innflutning
landbúnaðarafurða
í þjóðmálaumræðu hér á
landi hefuroft verið hart vegið
að bændum.en þó sjaldan eins
og nú. Þeir, sem lengst ganga í
árásum þessum telja bændur
landsins og allt þeirra hyski
óalandi og óferjandi og sé nú
brýnust framkvæmd í okkar
litla þjóðfélagi að koma bænd-
um öllum á mölina, en hefja
um leið stórfelldan innf lutning
landbúnaðarafurða. Þeir, sem
skemur ganga í áróðrinum
hliðra sér hjá beinum árásum
á bændur sjálfa,en eru þeim
mun hatramari í skrifum sin-
um um stofnanir og félög,sem
tengd eru bændum, þar með
talin samvinnufélögin. Eru
félög þessi stimpluð sem
gróðafélög og auðhringir og
ekkert til sparað að gera
starfsmenn þeirra og stjórn-
endur tortryggilega í augum
almennings.
Allur hnígur áróður þessi í
þá átt að telja almenningi trú
um, að bændur séu í rauninni
hin óþarfa stétt. Þarna striti
þeir allt árið við að framleiða
of lítið af of dýrum afurðum
sem hægt sé hvenær sem er að
kaupa fyrir spott-prís í útland-
inu: svo sé vitleysan kórónuð
með því að halda uppi viða-
miklu og dýru söluapparati.
því að dreifingar- og sölu-
kostnaður landbúnaðarafurða
sé hér með því lægsta sem
þekkist í vestrænum löndum.
Enda þótt rök þessi séu illa
hrekjanleg er haldið áfram að
fullyrða hið gagnstæða senni-
lega í þeirri trú að enn eigi við
það sem dr. Göbbels hafði
fyrir satt: sé lygin endurtekin
nógu oft verði hún um siðir að
sannleika.
Dagslátta Drottins
Víkjum nú aftur að kenningu
óvina landbúnaðarins um hina
óþörf u stétt. Það vekur athygli
að hvössustu skeytin koma úr
þeim hópi er stendur að tveim-
ur siðdegisblöðum í Reykja-
vík. Þessi tvö blöð eru aftur
nátengd annarri stétt, nefni-
lega stétt innflytjenda og
heildsala. Meðan bændur
landsins erja lönd sín hörðum
höndum, þá annast heildsala-
stéttin líka sína dagsláttu: sú
dagslátta er helguð þeim
drottni, sem ræður f yrir valútu
og erlendum bankareikning-
um.
Inntakið í kenningu Jónasar
Kristjánssonar og hans nóta er
i rauninni það, að islenzkir
bændur og allt þeirra athæf i sé
efnahagslegtog þjóðfélagslegt
fyrirbæri þess eðlis að þar
þurf i hið allra f yrsta enda á að
binda. Sú hugsun hlýtur að
læðast að manni, að þessari
kenningu sé f ram haldið i þeim
tilgangi að leiða athygli lands-
manna frá þeirri einni stétt í
landinu sem telja verður al-
gjört sérf yrirbæri í vestrænum
þjóðfélögum samtímans. Hér
er átt við hina afar f jölmennu
stétt innf lytjenda og heildsala.
Hinn hraöskrifandi leigupenni
heildsalanna
Jónas Kristjánsson vill láta
flytja íslenzka bændur á möl-
ina og láta í staðinn koma stór-
felldan innflutning land-
búnaðarafurða. Jónasi
Kristjánssyni hefur fram að
þessu sést yf ir þá staðreynd að
hægt er að leggja niður 75 til
90% af íslenzkri heildsalastétt,
án þess nokkuð komi í staðinn.
Þau 10 til 25% fyrirtækjanna
sem þá yrðu eftir myndu anna
verkefninu þægilega og til-
kostnaður landsmanna af
starfsemi þessari myndi án
efa lækka stórlega við svo
verulega fækkun þeirra fjöl-
skyldna, sem íslenzkir neyt-
endur hafa nú á framfæri
sinu.
Svarthöfði Vísis hinn hrað-
skrifandi leigupenni heildsal-
anna segir, að íslenzkir bændur
standi undir f lota af forstjóra-
bílum hjá Sambandinu. Sá sem
hér heldur á penna, veit ekki
hvort hér undir kynni að f lokk-
ast hálf ur bíll,einn eða í hæsta
lagi tveir. Hitt veit hann, að
bílafloti innf lytjendaliðsins
mundi vera hin þokkalegasta
áhöfn fyrir allar bifreiða-
stöðvar í Reykjavík. Og það er
litill vandi að leiða rök að því
að sá hluti rekstrarkostnaðar
þessara bifreiða sem ekki er
greiddur af íslenzkum neyt-
endum í formi óþarflega mik-
ils tilkostnaðar við innflutta
vöru,er lagður á mjóar herðar
hins almenna íslenzka skatt-
borgara.
Um hlutverk og framlag allra
stétta
íslenzkir bændur eru ekki
líklegir til þess að standa fyrir
órökstuddum árásum á aðrar
stéttir og er það vel. En vel
mættu þeir svara grófum ár-
ásum á stétt sína með því að
efna til umræðu um hlutverk
og framlag allra stétta þjóð-
félagsins. Sú umræða yrði ekki
til einskis ef hún mætti opna
augu manna fyrir annarlegum
ofvexti i stétt innflytjenda og
heildsala — ofvexti.sem naum-
ast verður dregið úr nema til
komi róttækar breytingar á
framkvæmd gjaldeyris- og
skattamála. Ef til vill kemur
það í hlut íslenzkra bænda að
veita stjórnvöldum nauðsyn-
legt aðhald í því efni. c. .
HIN ÓÞARFA STÉTT
Það hafði dr. Göbbels fyrir
satt
Að jafnaði er umræða þessi
á hærra plani en svo, að verið
sé að elta ólar við nokkuð sem
heitir tölulegar rökstuðningur.
Á þetta t.d. við um staðhæf ing-
ar sem lúta að dreifingar- og
sölukostnaði. Fulltrúar bænda
og samvinnufélaganna hafa
hvað eftir annað leitt rök að
Ný námskeið hefjast
mánudaginn 6. febrúar og standa til 12.
mai 1978.
I. Teiknun og málun fyrir börn
og unglinga
II. Teiknun og málun fyrir fullorðna
III. Bókband
IV. Almennur vefnaður
Innritun fer fram daglega kl. 10-12 og 14-17
á skrifstofu skólans Skipholti 1.
Námskeiðsgjöld greiðist við innritun áður
en kennsla hefst.
Skólastjóri
Skipholti 1 Reykjavik sími: 19821
GAL-ofninn
Panelofn í sérflokki hvað
GÆÐI — VERÐ OG ÚTLIT
snertir
Stuttur afgreiðslufrestur
Gerum tilboð
"S.
HF. OFNASMIPJAN
Háteigsveg 7 — Sími 2-12-20