Tíminn - 16.02.1978, Side 2
2
Fimmtudagur 16. febrúar 1978
Verkfallsmenn andspænis rfkislögreglumönnum I Kentucky.
Bandaríkin:
Kolaframleiðendur
ræða við forsetann
Washington/Reuter Leiötogar
kolaframleiöenda ákváöu I gær
að verða við beiðni Carters for-
seta um að koma til viðræðna til
Hvita hússins til að binda endi á
lengsta verkfall námuverka-
manna i sögu Bandarikjanna.
Verkfallið hefur nú staðið i 72
daga, og er nú orðið litið um
eldsneyti i sumum rikjum
Bandarikjanna. Verkfall kola-
námumanna getur þvi orðið til
þess að vinna stöðvist innan
annarra iðngreina þegar orku-
skorturinn fer aö gera verulega
vart við sig.
Carter boðaði i gær fulltrúa
kolaframleiðenda og leiðtoga
verkfallsmanna til fundar i
Hvita húsinu. 1 bréfi sinu til
vinnumálaráðherra sagði leið-
togi kolaframleiðenda að „þjóð-
in eigi ekki að vera i gislingu hjá
þeim sem komið geta i veg fyrir
orkuframleiðsluna”. Kvað leið-
togi framleiðenda, Leisenring,
að forsetinn ætti að kalla verka-
menn til sin, þvi þeir ættu sök á
þvi hve hægt gengi i samningun-
um.
Um siðustu helgi höfnuðu
kolanámumenn samningum er
gilda áttu næstu þrjú árin, en
samningaumleitanir höðfu þá
staðið i fjóra mánuði. Staðan
sem nú hefur komið upp i verk-
fallsmálinu, er talin verða þess
valdandi að Carter verði að
gripa til róttækari aögerða.
Forsetinn hefur vald til að leita
eftir þvi, að dómstóll skipi
verkamönnunum að snúa aftur
til vinnu i 80 daga, en talið er að
forsetinn sé tregur til að beita
slikum aðgerðum.
I Ohio, Vestur-Virginiu og
Indiana hefurþegar verið
tilkynnt að gripið verði til raf-
magnsskömmtunar.
Begin óánægð
ur með vopna-
sölu til Araba
Egyptar þögulir um vopnasöluna
Jerúsalem, Kairó/Reuter. I gær
fordæmdi Begin forsætisráðherra
Israels harðlega þá ákvörðun
Bandarikjastjórnar að selja
Egyptum og Saudi-Aröbum her-
flugvélar. Begin sagði i þinginu
að þessi vopnasala væri „ógnun
við öryggi tsraels og friðarum-
leitanir”. Hann þakkaði Carter
forseta fyrir að bjóða tsraels-
mönnum 90 orustuþotur til kaups,
en gagnrýndi hliðstætt boð til
Saudi-Araba og Egypta. Begin
kvaðst vonast til að Bandarikja-
'menn seldu Israelsmönnum
meira af vopnum þar sem 90 flug-
vélar væri minna en óskað hefði
verið eftir. Varnarmálaráðherra
tsraels, Ezer Weizman, mun fara
/
Sadat og Carter skeggræða um
vopnaverzlun.
BEZTU KAUP ÁRSIIMS
Eigum fyrirliggjandi nokkra bíia af
gerðinni 160 Hardtop SSS árgerð
1977 á sérstak/ega góðu verði
til Bandarikjanna i marz og óskar
• þá væntanlega eftir frekari
vopnakaupum.
Egyptar telja að boð Banda-
rikjastjornar þess efnis að Egypt-
ar fái keyptar F-5 þotur sé fyrsta
merki þess að Carter styðji Sadat
i friðarumleitunum hans, jafnvel
þótt Sadat hafi kallað vélarnar
„tiunda flokks”. Engar opinberar
yfirlýsingar hafa þó verið gefnar
um málið i Kairó. Þetta er i fyrsta
skipti sem Bandarikjastjórn
hefur samþykkt að selja
Egyptum vopn, hingað til hafa
þeir einvörðungu fengið keyptar
birgðaflutningavélar i Bandarikj-
unum. Sadat bað um fullkomnar
orustuþotur er hann var i heim-
sókn i Bandarikjunum á dögun-
um, en Rússar hafa neitað að
selja Egyptum vopn siðan slettist
upp á vinskapinn 1972. Vance ut-
anrikisráðherra Bandarikjanna
hefur lýst þvi yfir að stjórnin telji
F-5 flugvélarnar fullnægja þörf-
um Egypta hvað vörnum viðkem-
ur.
Egyptar
flytja
vopn til
Sómalíu
- flutningavél
neydd til að
lenda í Nairobi
Bíllinn er einn af topp-bílum verksmiðjanna og hafa verið eftirsóttir
í Rally-keppnir — enda unnið í mörgum slíkum — undir
skráningunni DATSUN BL 710 —
Áætlað verð kr. 2.775.000 með ryðvörn, beltum og fleiru.
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 8-45-10 & 8-45-1 1
%!
SPARIÐ BENZÍN OG KAUPIÐ
Vbl
DATSUN
Nairobi/Reuter.Egypzk flugvél á
leið til Sómaliu með 244 sprengjur
var neydd til að lenda á flugvell-
inum iNairobi. Egypzk stórnvöld
höfðu sótt um leyfi til að fá að
fljúga i lofthelgi Kenya á leið til
Sómaliu en leyfið fékkst ekki,
Fréttastofa Kenya sagði, að siðan
sótt var um leyfið, hefðu þrjár
egypzkar Boeing 707 þotur flogið
yfir Kenya, ein á mánudag, og
tvær á þriðjudag. Talið er að flug-
vélarnar flytji vopn til Sómaliu-
hers.
Þegar fjórða flugvélin flaug i
lofthelgi Kenya i gær, neyddi loft-
her Kenya hana til að lenda á
Embakasi flugvelli i Nairobi.
Sendiherra Egypta i Kenya hafði
tilkynnt utanrikisráðuneytinu i
Nairobi að flutvélarnar flyttu
sjúkragögn til Sómaliu. Sómaliu-
menn hafa beðið margar þjóðir
um vopn eftir að þeir riftu vin-
áttusattmálanum við Moskvu, á
siðasta ári.
Á blaðamannafundi i fyrradag
sagði sendiherra Eþiópiu i Kenya
að Egyptar væru meðal þeirra
þjóða sem seldu Sómaliumönnum
vopn. Kvað sendiherrann, Meng-
iste Desta, Araba, íranbúa og
Vesturlandabúa hafa bundizt
samtökum um að veita Sómaliu
hecnaðaraðstoð. Eitt af áformun-
um sagði Desta vera að senda
5.000 egypzka hermenn til Ogaden
eyðimerkurinnar til að taka þátt i
bardögunum við Eþiópiumenn.
I fréttum fréttastofu Kenya
sag i, að þegar Kenyabúar áttu i
átökum við Sómaliumenn á sjö-
unda áratugnum, hefðu Egyptar
selt Sómaliumönnum vopn.
eriendar fréttir