Tíminn - 16.02.1978, Side 6

Tíminn - 16.02.1978, Side 6
6 Fimmtiidagur 16. febrúar 1978 UPPLYSINGASKYLDA ALMANNASTOFNANNA Lagt var fram á Al- þingi i gær frumvarp til laga um aðgang að upp- lýsingum hjá almanna- stofnunum. Er frum- varpið samið af nefnd sem ólafur Jóhannesson dómsmáiaráðherra skipaði i september 1976. Frumvarpið um al- menna aðgang að upp- lýsingum er svohljóð- andi: I. kafli. Um almennan aögang aö upplýsingum. X. gr. Lög þessi taka til almanna- stofnana hvort sem þær eru á vegum rikis eöa sveitarfélaga, þar á meöal til Alþingis og dóm- stóla aö löggjafar- og dómstörf- um þó frátöldum. Ennfremur taka þau til fyrir- tækja sem eru algerlega í eigu rikis eöa sveitarfélaga. 2. gr. öllum er heimilt aö kynna sér skjöl í málum, sem eru eöa hafa veriö til meöferöar hjá stofnun- um, sem nefndar eru í 1. gr., nema á annan veg sé mælt i þess- um lögum eöa öörum. Almenn þagnarskylduákvæöi hegningarlaga og laga um skyldur og réttindi starfsmanna rikisins takmarka ekki skyldu til aö láta i té upplýsingar sam- kvæmt lögum þessum. 1 beiöni skal tilgreina málið sem skjöl varða, er hlutaöeigandi óskar aö kynna sér. 3. gr. Heimiídin i 2. gr. nær ekki til skjala er hafa aö geyma upp- lýsingar um eftirtalin atriöi nema sá er i hlut á samþykki aö skjöl séu birt: 1) Einkahagi og fjármál ein- staklings. 2) Tækni, rekstur eða viðskipta- aöstööu einstaklings eða fyrir- tækis ef það varðar hlutaöeig- anda miklu fjárhagslega aö beiðni sé synjaö. 4. gr. Þegar mikilvægir almanna- hagsmunir krefjast er heimilt aö undanþiggja ákvæöum 2. gr. skjöl sem hafa að geyma upplýsingar um: 1) öryggi rikisins og varnir landsins. 2) Samskipti viö erlend ríki og fjölþjóöastofnanir. 3) Ráöstafanir stjórnvaldshafa eöa stjórnvaldsstofnunar tileftir- lits þar til einstökum aögeröum er lokiö. 4) Mál sem til rannsókna eru, þar sem ætla má aö lögbrot hafi verið framiö. 5) Fyrirhugaöa hagræðingu eöa breytingu i rekstri þeirra stofn- ana og fyrirtækja sem getur i 1. gr. 6) Fyrirhugaðar ráðstafanir i fjármálum rikis og sveitarfélaga þar á meöal i gjaldeyrismálum, peningamálum, skattamálum, tollamálum og til annarrar tekju- öflunar svo og i kjaramálum starfsmanna þeirra stofnana og fyrirtækja sem 1. grein tekur til. 7) Viðskiptamál fyrirtækja rikis og sveitarfélaga til verndar rekstrar- og samkeppnisaöstöðu þeirra. 8) Hvers konar prófraunir sem fyrirhugaöar eru á vegum rikis og sveitarfélaga. 5. gr. Ef ákvæöi 3.-4. gr. taka ein- ungis til hluta skjals er mönnum heimilt að kynna sér annaö efni skjalsins. Ráðherra sá er hlut á aö máli getur ákveöiö að einstakir mála- flokkar og tilteknar tegundir skjala skuli vera undanþegnar ákvæöum 2. gr., enda séu skjölin þess eðlis aö þau féllu almennt undir ákvæöi 3.-4. gr., þannig aö beiðni samkvæmt 2. gr. yrði synjað. 6. gr. Heimild sii sem veitt er i 2. gr., nær til eftirtalinna gagna: t) Allra skjala sem snerta mál það er upplýsinga er óskað um þar á meðal afrita útsendra skjala þegar ætla má aö þau hafi borizt viötakanda. 2) Dagbókarfærslna er lúta aö skjölum málsins,efnisútdrátta úr þeim og hvers konar skráningar þeirra. 7. gr. Nú eru veittar munnlegar upp- lýsingar sem mikilvægar má telja fyrir úrslitmálsog ber þá að skrá efni þeirra og leggja þaö sem skráöhefur veriö meö öörum gögnum málsins. 8.gr. Eftirtalin gögn er þó heimilt aö undanþiggja ákvæðum 6. gr.: 1) Fundargeröir ráöherrafunda. 2) Vinnuskjöl starfsmanna þeirra stofnana og fyrirtækja sem um getur I 1. gr. svo sem minnis- greinar, frásagnir, skýrslur, upp- köst, tillögur og áætlanir. 3) Bréfaskipti almannastofnana og fyrirtækja viö sérfræöinga til afnota i dómsmálum eöa til ákvöröunar um þaö hvort mál skuli höföa. alþingi 4) Skjöl sem lúta aö hvers konar lagasetningu þar til frumvarp hefur veriö lagt fram á Alþingi. Il.kafli. Um aögang málsaöila aö upplýsingum. 9. gr. Aðilum máls er heimilt aö kynna sér skjöl sem 2. gr. nær til þrátt fyrir ákvæði 3.-4. gr. Þetta er þó ekki heimilt ef hagsmunir aðila af þvi aö notfæra sér vitneskju úr skjölum málsins þykja eiga aö vikja f yrir rikari al- manna- eöa einkahagsmunum. Nú á þetta aðeins við um hluta skjala og á aðili þá rétt á aö kynna sér þaö aö öðru leyti. Akvæöi laga um þagnarskyldu takmarka ekki skyldu til aö veita málsaöilum upplýsingar sbr. þó 1. mgr. Nú varðarþaö aðila miklu að fá afrit eða ljósrit af málskjölum til þess aö gæta hagsmuna sinna og skal þá orðið við beiðni hans aö svo miklu leyti sem þaö sam- rýmist 1. mgr. 10. gr. Nú fer aöili máls fram á aö fá aö kynna sér skjöl meðan mál er til meðferöar og skal þá af- greiðslu þess frestaö unz aðili hefur kynnt sér skjölin enda beri lögum samkvæmt aö veröa viö beiöni hans. Afgreiðslu máls skal þó ekki frestaö ef sérstakir almanna- eöa einkahagsmunir mæla gegn þvi. 11. gr. Ef þvi verður viö komiö skal stjórnvaldshafi sá er mál hefur meö höndum, vekja athygli aöila á þvi, að mál hans sé til umfjöll- unar hjá stjórnvaldsstofnun, nema ljóst sé aö hann hafi fengið vitneskju um þaö fyrirfram. Aöili getur hvenær sem er krafizt þess aö afgreiöslu máls sé frestaö unz hann hefur gertgrein fyrir afstööu sinni. Heimilt er aö setja aöila ákveðinn frest til að láta umsögn sina i té. Ákvæði 2. mgr. 10. gr. gilda þó eftir þvi sem við á. III. kafli. Almenn ákvæöi. 12. gr. Forstööumaöur almannastofn- unar eða fyrirtækis tekur ákvöröun um þaö hvort upp- lýsingar skuli veittar samkvæmt lögum þessum. Forstööumaður metur hvort orðið skuli viö beiöni þegar i stað eöa siðar og hvort þeim sem beiönina ber fram skuli heimilaö að kynna sér skjölin á staönum eöa hvort honum skuli látiö i té eftir eöa ljósrit af þeim. Avallt skal stefnt aö þvi aö beiöni sé af- greidd eins fljótt og veröa má. 13. gr. Sá, sem einhverra hagsmuna hefur að gæta, getur skotiö ákvörðun samkvæmt 1. mgr. 12. gr. beint til þess ráöherra, eða sveitarstjórnar, sem stofnun eöa fyrirtæki lýtur. Úrskuröi sveitar- stjórnar má skjóta til félags- málaráðherra. Ráðherra er skylt aö leita álits sérstakrar nefndar, áður en kæra samkvæmt 1. mgr. er tekin til úr- skurðar. t nefnd þessari eiga sæti fimm menn, en aöeins þrir þeirra taka þátt i afgreiöslu hvers máls. Hæstiréttur skipar oddamann og varamann hans, en sameinað Al- þingi kýs aöra nefndarmenn. Nefndarmenn skulu skipaöir eöa kosnir til fjögurra ára. Oddamaöur tilnefnir hverju sinni meö sér tvo menn úr hópi hinnakjörnu nefndarmanna til að taka þátt í aígreiöslu mals er nefndinni berast. Alit nefndarinn- ar er aðeins til leiöbeiningar, en ekki bindandi fyrir ráðherra. I4.gr. Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1979. Útdráttur úr greinargerö er fylgdi frumvarpinu. Lengi hefur verið taliö nauö- synlegt, aö landstjórnarmenn gerðu almenningi grein fyrir geröum sinum og hag landsins. Ef miðað er viö þriskiptingu rikisvalds, má segja aö bæöi lög- gjafarvald og dómsvald hafi starfaö aö mestu fyrir opnum tjöldum og birt geröir sinar, en meiri leynd hvilt yfir störfum framkvæmdavalds. Á Alþingi 19. mai 1972 var sam- þykkt svolátandi þingsályktun: „Alþingi ályktar aö fela rikis- stjórninni að láta undirbúa og leggja fyrir næsta þing frumvarp tillaga um, hver sé skylda stjórn- valda og rikisstofnana til að skýra opinberlega frá störfum sínum og ákvöröunum og hvenær beri aö veita þeim, sem þess óska, aögang aö reikningum og skjölum, sem almenning varöa.” Tillögunni var á Alþingi visaö til nefndar, sem lagöi til að hún yrði samþykkt meö smávægilegum breytingum. A Alþingi uröu litlar umræöur um tillöguna áöur en hún var samþykkt mótatkvæba- laust. Frumvarp til laga um upplýs- ingaskyldu stjórnvalda var siöan lagt fyrir Alþingi i febrúar 1973. Frumvarpið var samiö aö beiðni dóms- og kirkjumálaráöuneytis- ins. Var það ekki útrætt og siðan lagt fyrir að nýju haustið 1973. Fékk það dræmar undirtektir og varð ekki heldur útrætt. Með bréfi dagsettu 16. sept. 1976 fól Ólafur Jóhannesson, dóms- málaráðherra, Baldri Möller, ráöuneytisstjóra, Einari Karli Haraldssyni, fréttastjóra og Sig- urði Líndal, prófessor, aö endur- skoða frumvarpiö eða semja nýtt frumvarp um þetta efni. Valdi nefndin þann kostinn aö semja al- gerlega nýtt frumvarp og liggur þaðhér fýrir. Ritari nefndarinnar hefur verið Eirikur Tómasson, aöstoðarmaður dómsmálaráö- herra. Kaupgj aldsbaráttan anfarinna ára oi í kjörklefann Ríkisstjórnin virkur aðili í um kaup og kjör Nýlega hafa alþingismennirnir Gunnar Sveinsson og Ingvar Gislason lagt fram á Alþingi til- lögu til þingsályktunar um aö rik- iö sé virkur aöili aö kjara- samningum vinnumarkaðarins. Tillagan er svohljóöandi: Alþingi ályktar að fela félags- málaráðherra aö undirbúa i sam- ráöi við aðila vinnumarkaöarins frumvarp til laga er feli I sér aö rikisstjórnir séu á hverjum tima virkur aöili aö heildarkjara- samningi um kaup og kjör i land- inu ásamt aðilum vinnu- markaðarins. Meö tillögunni fylgir eftirfar- andi greinargerö: Ollum hugsandi mönnum hlýt- ur aö vera það mikið áhyggjuefni hvernig veröbólgan hefur tröll- riöiö islenzku þjóöfélagi I mörg ár, þó sjaldan hafi verið eins og nú. Til þessa ástands eru margar samverkandi orsakir svo sem stjórn peningamála og fjár- festingarmála, út- og inn- flutningsverzlunar, ásamt kaup- gjalds- og verölagsmálum sem eru liklega stærsta atriöiö af þeim sem hér hafa verið upp taiin. Sú þingsályktunartillaga sem hér er flutt felur I sér aö rikis- valdið gerist beinn þátttakandi I gerð kjarasamninga og taki þannig fulla ábyrgö á fram- kvæmd þeirra á svipaðan hátt og um eigin starfsmenn væri aö ræða. Nokkrar tillögur hafa komið fram á þessu þingi er snerta kjör hins almenna launþega fluttar af þingmönnum Alþýðubandalags- ins svo sem tillaga um hámarks- laun og tillaga um aö rikið semji beint viö Stéttarsamband bænda. Tillaga um þaö mál er einnig væntanleg frá rikisstjórninni. Aöur hefur Alþingi nokkrum sinnum sett lög er snerta kjör launþega i landinu. Er þar skemmst aö minnast laga sem vinstri stjórnin setti 1971 um styttingu vinnuvikunnar og leng- ingu orlofs. Umræöur um aö bændur semji samningum beint viö rikisstjórnina hafa fariö fram nokkur ár. Um þaö mál hefur veriö nokkuö góð samstaöa meðal bænda en deilur um fram- kvæmd hafa veriö miklar og hindraö framgang málsins. Nú viröist samstaða hafa náöst um máliö og á þessu þingi mun rikis- stjórnin bera fram frumvarp er felur i sér aö bændur semji beint við rikisstjórnina um kaup og kjör og er ekki aö efa aö þaö verður samþykkt. Nýlega hafa verið geröir samningar viö opinbera starfs- menn um kaup og kjör og þeir fengið takmarkaðan verkfalls- rétt. Rikiö semur þar við 14% launþega I landinu i flestöllum stéttum þjóðfélagsins. Fiskverö er ákveðið i flestum tilfellum af yrirnefnd þar sem rikið skipar oddamann. Má þvi með nokkrum sanni segja aö ar sé rikið viðsemjandi á svipaöan hátt og hjá bændum. Þaö er því augljóst aö nú þegar semur stór hluti af launafólki i landinu beint viö rlkisvaldið og ef við litum til samningageröa und- anfarinna ára er um óbeina samningagerö aö ræöa gagnvart miklu fleiri aðilum. Eins og flest- um mun kunnugt hefur veriö stillt upp tveim stórum samninga- nefndum frá aöiium vinnu- markaöarins til samningsgeröa meö ærnum tilkostnabi. Þó hafa þessar samninganefndir raun- verulega veriö getu- og úrræöa- lausar til samninga. Atvinnurek- endur hafa vitaö i flestum tilfell- um aö þeim var um megn aö greiða þaö kaup er um var verið að semja en hafa i trausti þess aö rikisvaldið gripi i taumana meö aðstoð samiö langt umfram þaö sem þeir gátu staðið viö meö auðsæjum veröbólguáhrifum. Meö almennri þátttöku rikis- valdsins i samningagerö og raun- Ihæfum áhrifum þess mundi vinn- ,ast m.a. samræming launataxta, isem er mjög stórt atriði i allri- isamningsgerö. En eins og flestum er kunnugt rikir mikiö ósamræmi imilli samninga rikisvaldsins og atvinnurekenda og milli þeirra siöarnefndu innbyrðis. Má nefna I ]þvi sambandi aö eftir heildar- :5amninga ASl við atvinnurek- endur á s.l. ári komu samningar írikisins við opinbera starfsmenn. Var þar miðað við að leiðrétting fengist á kjörum þeirra til sam- ræmis viö þá er áöur voru búnir aö semja. En þegar upp var staðið voru samningar opinberra starfsmanna mun hagstæöari en Itiinir fyrrnefndu, fyrir utan ýmis friöindi, sem opinberir starfs- menn hafa. Þetta skapar nú þeg- ar ósamræmi sem hægt heföi ver- íð aö komast hjá. Staðreynd er aö þjónusta og umsvif rikisins eru oröin þaö mikil hér á landi að segja má aö launaskrá rikisins spanni flesta þætti þjóölifsins. Það er þvi ekki stór vandi fyrir rikisvaldiö að finna flestum Starfsmönnum staö i sinni launa- skrá en meö þvi mundi skapast heildarsamræming á öllum laun- um i landinu þó aö þvi tilskildu að gott samstarf og samvinna tækist meö rikisvaldinu og launþega- samtökum og öörum aöilum vinnumarkaöarins. Annar kostur við aö rikiö sé virkur aðili aö heildarsamningum eru skarpari mörk en nú eru um hvaö er verið aö semja og viö hverja er veriö að semja. 1 mörgum undánförnum samningum milli aöila vinnu- markaðarins hafa þessi mörk ekki komiö nógu skýrt fram. For- usta launþegasamtakanna hefur túlkaö viösemjendur sina sem hina raunverulegu viðsemjendur er sætu yfir þvi fjármagni að þeir gætu auöveldlega greitt hærra kaup ekki aöeins i krónum, heldur hærri rauntekjum. Hækkaö kaup heföi ekki áhrif til hækkunar verölags og þar með verö- bólguaukningu. Raunveruleikinn er allt annar. Atyinnurekendur hafa ekki getaö samiö án þess aö sú kauphækkun færi út I verðlagiö. Þeir hafa þvi samið upp á fyrirgreiöslu rikis- valdsins meö gengisfellingu eöa hækkaöa skatta i huga. Afleiðing- Framhald á bls. 19.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.