Tíminn - 08.03.1978, Qupperneq 3
Miðvikudagur 8. marz 1978
3
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík:
Birgir ísleifur
efstur
— aörir taka að rása
FI — Röð borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins hefur breytzt
mjög eftir prófkjörið nú um helg-
ina að öðru leyti en því, að Birgir
tsl. Gunnarsson borgarstjöri
skipar enn efsta sætið. Mestu til-
flutningarnir eru hjá Davið Odd-
syni, sem fer úr 10. upp i 4. sæti,
Elinu Pálmadóttur og Ragnari
Júliussyni, sem bæði falla um
þrjú sæti. Elin er nú i 8. og Ragn-
ar i 10. sæti. Atkvæði greiddu
10.833 eða 40,2% sé miðað við at-
kvæðamagn flokksins I siðustu
borgarstjórnarkosningum. Auðir
seðlar og ógildir voru 198.
Orslitin urðu annars á þá leið,
að sjö frambjóðendur fengu yfir
50% atkvæða og hlutu þar með
bindandi kjör. Þeir voru, — i
réttriröö: Birgir ísl. Gunnarsson
borgarstjóri með 9.305 atkvæði
eða 85,9%. ólafur B. Thors
borgarfulltrUi með 7.755 atkvæði
eða 71,6%. Flyzt upp um eitt sæti.
Albert Guðmundsson borgarfull-
trúi með 7.559 atkvæði eða 69,8%.
Færist niöur um eitt sæti. Davíð
Oddsson borgarfulltrúi með 6.628
atkvæði eða 61,2%. Magnús L.
Sveinsson borgarfulltrúi með
5.884 atkvæði eða 54,3%. Flyzt
upp um eitt sæti. Páll Gislason
borgarfulltrúi með 5.881 atkvæði
eða 54,3%. Flyzt upp um þrjú.
Markús örn Antonsson borgar-
fulltrúi með 5.650 atkvæði eða
52,2%. Fellur um þrjú sæti.
Aðrir hlutu ekki bindandi kjör,
en Elin Pálmadóttir borgarfull-
trúi lenti i áttunda sæti eins og áð-
ur sagði, hlaut 4.690 atkvæði eða
43,3% og Sigurjón Fjeldsted
skólastjóri hreppti niunda sætiö
með 4.336 atkvaeðum eða 40,0%. í
tiunda sæti varð svo Ragnar
Júliusson borgarfulltrúi með
4.239 atkvæði eða 39.1%.
Birgir isleifur Gunnarsson
Sjálfstæðisflokks-
ins í Kópavogi:
Axel langefstur
FI — Úrslit prófkjörs Sjálfstæðis-
flokksins i Kópavogi til bæjar-
stjórnar fóru á þá leið, að Axel
Jónsson alþm. var langefstur
með 243 atkvæði i fyrsta sæti, 503
atkv. samtals og 58,9% atkvæða-
magn. Alls kusu 856 manns eða
tæplega 50% miðað við bæjar-
stjórnarkosningarnar siðustu, en
þá fékk Sjálfstæðisflokkurinn i
Kópavogi 1965 atkvæði. Kenna
menn ýmsu um svo dræma þátt-
töku, m.a. veðrinu.
1 öðru sæti varð Guðni Stefáns-
son járnsmiðameistari með 198
atkvæði i fyrsta sæti, 381 atkv.
samtals eða 44,6%. Bragi
Michaelsson frkstj. hlaut 262
atkvæði i þriðja sæti, 402 atkvæði
samt. eða 47,07%. Grétar
Norðfjörð flokksstj. varð i fjórða
sæti með 243 atkvæði, 345 samt.
eða 40,04%. Steinunn Sigurðar-
dóttir húsmóðir varð i fimmta
sæti með 259 atkvæði, 329 samt.
eða 38,52%. 1 sjötta sæti varö
Stefnir Helgason frkstj. með
samtals 298 atkvæði eða 34,8%.
Aðeins kjör Axels er bindandi.
íbæjarstjórnKópavogs sitja nú
fjórir menn fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn, Axel, Bragi, Richard
Björgvinsson, sem ekki gaf kost á
sér i prófkjörið, og Stefnir. Fall
Stefnis niður i sjötta sæti er sagt
eðlilegt, þar sem hann hafi ekki
stefnt hærra að þessu sinni.
Kjarvalsstaðir
ljósmyndari og Aðalsteinn
Ingólfsson flytja þá.Ennfremur
er á döfinni aö hafa kvikmynda-
sýningar, þ.a.m. þrjár kvik-
myndir um Kjarval.
Þá sagði Aðalsteinn að einna
stærstu tiðindi frá Kjarvalsstöö-
um væruþau,aðkaup hefðu verið
fest á nvium Steinway flygli, en
hljóðfæri af þvi tagi hafi lengi
stort á staðnum. Hljóðfæriö mun
væntanlega vigt á hljómleikum þ.
4. april, en þá standa Kjarvals-
staðirfyrir tónleikum sænsk-ung-
versku söngkonunnar Ilona Mar-
os.
Aðalsteinn sagði að ýmsir
örðugleikar hefðu komið upp
varðandi starfsemi hússins.
Væru þeir m.a. vegna fjárskorts
ogsvotilómögulegtværiað halda
uppi alhliða lista og menningar-
starfsemi i húsinu á þvi framlagi,
sem borgin úthlutaði þvi. A sið-
asta ári voru þaö ein og hálf
milljón króna, oghefur sú upphæð
ekki hækkað i ár. Sagði Aðal-
steinn að hann stórefaðist um að
Dagskrá Kjarvals-
staða kynnt
Fjárskortur háir starf seminni
JB— „Dagskráin er heldur seinná
á ferðinni nú en oft áður og er or-
sök þess sú, að samningstimabil
þess listráðs, sem nú situr, rann
út um áramót og i stað þess aö
gera nýja samninga voru þeir
eldri framlengdir til fyrsta júlir
og urðum við að biða eftir sam-
þykki borgarráðs áður en við gát-
um látið til skarar skriða, — sagði
Aðalsteinn Ingólfsson fram-
kvæmdastjóri Kjarvalsstaða, á
fundi með fréttamönnum, þar
sem hann kynnti dagskrá hússins
sem hófst fyrsta marz og stendur
til októberbyrjunar.
Að þvi er Aðalsteinn sagði hafa
seglin verið dregin nokkuð saman
hvað starfsemi hússins varðar,
miðaðvið fyrra ár. En dagskráin
nú er þó fjölbreytt og kennir þar
margra grasa. Það verður um aö
ræða hefðbundnar einkasýningar,
erlendar sýningaraf ýmsu tagi og
margt fleira.
Sú nýjúng verður i starfsemi
Kjarvaisstaða að þessu sinni að
Þjóðleikhúsið verður þar með
leiksýningar, og kom þetta að
sögn Aðalsteins til eiginlega fyrir
tilviljun.
Þannig var að. við fórum
með áformaða sýningu en hún
datt upp fyrir sig og fréttum
við þá að Þjóðleikhúsið væri á
höttunum eftir húsnæði fyrir sýn-
ingar. Það mun verða hér meö
átta til tiu sýningar. Erró verður
ísafjörður
Lögregla í eltingarleik við
dauðadrukkinn ökumann
ESE —Ekki er ofsögum sagt af
glöggskyggni ýmissa lögreglu-
manna. Á aðfaranótt s.l. sunnu-
dags, voru lögreglumenn frá Bol-
ungarvik á ferðinni i Óshlíð, á leið
frá Isafirði til Bolungarvikur. Er
þeir áttu skamman spöl ófarinn,
mættu þeir fólksbifreið af rúss-
neskri gerð, sem ekki er óalgengt
þar vestra, en hitt var þaö sem
lögrelguþjónunum fannst merki-
legra eftir að þeir höfðu ekið
nokkurn tima eftir slóð bilsins,
sem þeir höfðu nýlega mætt og
var þá þó nokkuð langt að baki.
Slóðin var nefnilega skrykkjótt i
meira lagi, en hún sást mjög
greinilega i nýföllnum snjónum.
Lögregumennirnir höfðu þegar
hér var komiö sögu,samband við
kollega sina á Isafirði og báðu þá
um að kanna ferðir umrædds öku-
tækis og athuga ástand öku-
manns. Lögreglan á ísafiröi brá
skjótt við enda er um gott sam-
starf að ræða milli þessara ná-
grannabæja i löggæzlumálum.
Ekki höfðu isfirzku lögregluþjón-
arnir leitað lengi er þeir uröu var-
ir við bilinn, og gáfu ökumanni
hans stöðvunrmerki, en það virti
hann i engu heldur jók hraöann og
stefndi á meira en 100 km fe'rð i
áttina tU Isafjarðar og það við hin
verstu akstursskilyrði. Eftir
langan eltingarleik tðkst lög-
reglumönnunum að stöðva bUinn
og reyndist ökumaður hans vera
dauðadrukkinn. Ekki olli hann
neinu tjóni með þessari glæfra-
keyrslu, en oft munaði mjóu að
hann færi út af flughálum vegin-
um, og eins og einn lögreglu-
þjónninn á ísafirði sagði i viðtali
við blaðið ,,þá keyrði hann á yztu
nöf”.
Búnaðarþing
andvígt tillögu
Eyjólfs Konráðs
HEI —Eitt af þeim málum, sem
Búnaðarþing hefur haft til um-
fjöllunar, var að taka afstöðu til
þingsályktunartillögu er Eyjólfur
Konráð Jónsson alþingismaöur
hefir borið fram á Alþingi, um
breytingará greiðslu rekstrar- og
afurðalána. Tillagan gengur út á
að bændur fái afurðalánin greidd
beint frá bankastofnunum.
Búnaðarþing ályktaði að mæla
gegn samþykkt tillögunnar.
Höfuðrökstuðningur á þinginu
gegn tillögunni var, að um yrði að
ræða mjög aukna skriffinnsku i
sambandi við lánVeitingarnar og
stóraukinn kostnað lántaka vegna
stimpilkostnaðar og þinglýsinga.
Varðandi rekstrarlánin eru þau
aðhluta til eingöngu vegna fram-
leiðslu sauðfjárafurða en að hluta
til njóta mjólkurframleiðendur
þeirra einnig i formi fóður-
birgðalána sem ná til hluta
landsins og lána er fara til
Áburðarverksmiðju rikisins sem
endurlánar bændum vegna
áburðakaupa.
Þá má benda á að ekki hafa
komið fram neinar ákveðnar ósk-
ir um breytt fyrirkomulag á
greiðslu lánanna og að breyting
sú er lögð er til i frumvarpinu
muni siöur en svo stuöla aö um-
bótum i lánamálum landbúnaðar-
ins að mati Búnaðarþings.
hér með sýningu á Listahátiðinni,
en það eru um þrettán ár frá þvi
hann sýndi hér síðast. Viö erum
að stila upp á erlenda sýningu
seinni part júni til júli og eru það
fjórir ungir framúrstefnumenn
sem þá munu sýna verksín. Þessi
sýning veltur þó á fjárstyrk
Norræna menninga rs jóðs-
ins.Listráð verður með sýningu i
ágúst og verður þá liklega ein-
hver eintem islenzk sýning, t.d. á
portrett myndum frá upphafi,”
sagði Aðalsteinn.
Aö þvi er kom fram á fund-
inum, er leitazt við að hafa
stöðugar sýningar annars staðar i
húsinu. T.d. stendur nú yfir sýn-
ing á bókum og plaggötum frá
danska útgefandanum Hans
Jörgen Bröndum. A næstunni er
áætlað að setja upp sýningu i
skápum á listgripum Magnúsar
Tómassonar myndlistamanns, og
seinni hluta marz verður sýning á
ameriskum teppum (quilts) á
göngum Kjarvalsstaða, en þau
eru gerð af ameriskri listakonu,
Lindu Schaepper. í sambandi við
sýninguna er áformað að halda
stutt námskeið i gerð slikra
teppa. Þá mun listráð standa fyr-
ir fyrirlestraröð um nokkrar list-
greinarog munu Gestur Ólafsson
arkitekt, Guðmundur Ingólfsson
það hrykki til i ár. Einnig sagði
hann, að lögun hússins gerði
mjög erfitt fyrir um sýningarnar
og hefði reynzt öllum erfið er
reynt hafi að starfa þar. Enn-
fremur hefðifyrirkomulagið, sem
nú er á stjórn hússins, reynzt
slæmt og þyrfti að breytast.
Kvaðst hann sjálfur ætla að
hætta, þegar starfstimi þessa nú-
verandi listráðs rennur út.
Aðsókn hefur verið með minna
móti á þessu ári og seinni hluta
árs i fyrra. Það er einhvers konar
tregða þrátt fyrir að um góða at-
burðiséaðræðahér.Það er alltaf
möguleiki á aö lifga upp og fá
meiriaðsókn.en til þess þarf bæði
meiri peninga og starfsfólk, sagði
Aðalsteinn. Annars veröur dag-
skráin sem hér segir: I
Vestur-sal., marz 1-15. Þjóöleik-
húsið: „Grænjaxlar” marz 16-28.
Styrktarfélag vangefinna, sögu-
sýning. mar.29.-apr.ll.— Kjartan
Guðjónsson. apr.12-25 — Vil-
hjálmur Bergsson. apr.26-mai 9.
— Ragnar Páll. mai 10-23. —
Sigurður örlygsson/Hörður
Karlsson. Mai.24-jún.27. — Lista-
hátið i Rvk. (Erró). Jún.
28.-júl.25. — Erlend sýning vænt-
anleg. Júl.26.-ág.8. — Steingrim-
ur Eyfjörð/Margrét Reykdal.
Ag.9.-22. — Sýning á vegum List-
ráðs. Sept.6-9. — Veturliði
Gunnarsson. Sept.20-okt.3 —
Agúst Petersen. I Austursal hefst
Kjarvalssýning fyrsta marz.
Erró verður einnig i þeim sal á
listahátiðinni og siðan veröur
Sumarsýning á verkum Kjarvals.
Frönsk nútimalithogi afia er
nú til sýnis i franska bóka-
safninu að Laufásvegi 12.
Fimmtiu og eitt verk eru á
sýningunni eftir jafnmarga
listamenn. Þarna innan um
má finna mjög fræg nöfn eins
og Miro, Vasarely og Buffet,
og eins og sést á þessari upp-
talningu eru hér ekki eingöngu
á ferðinni franskir listamenn.
heldur allra þjóða og allt til
Kina. Listamennirnir eiga það
sameiginlegt að hafa unnið
verk sin að mestu á franskri
grund og fengið innblástur
sinn þar.
Sýningin er opin frá kl.
17—22 dag hvern aö undan-
skildum 9. marz.
Tímamynd: Róbert
Verður slegizt um
ísl. fiskinn í Hull?
SSt — Það má fastlega búast við
þvi að fiskkaupmenn úr öðrum
fiskimannaborgum leggi leið sina
til Hull, þegar fiskur af tslands-
miðum fer að berast þangað aftur
sagði Kristján Ragnarsson for-
maður LtO, en hann kom til
landsins i gær frá Englandi, þar
sem samþykkt var yfirlýsing þess
efnis að löndunarbanni Islenzkra
fiskiskipa yrði aflétt i Hull frá og
með 6. marz. Sú yfirlýsing verður
svo endurskoðuð að ári að feng-
inni reynslu.
Vafalaust verður áhugi útvegs-
manna hér heima á að landa fiski
i Hull nokkuð misjafn. Það fer
mikið eftir þvi hvort þeir hafa
umtalsverða fiskvinnslu hérna og
hvort fiskverðið i Hull verður
gott, sagði Kristján Ragnarsson
ennfremur.