Tíminn - 08.03.1978, Qupperneq 14
14
Miðvikudagur 8. marz 1978
Verkalýðsmálahópur Kauðsokkahreyfingarinnar á fundi I gær, þar sem unnið var að
undirbúningi dagskrárinnar.
Alþjódlegur baráttu-
dagur kvenna
GV — 8. marz er alþjóðlegur
baráttudagur verkakvenna og
hefur verið það frá árinu 1921,
en þann dag árið 1917 gengu
verkakonur um götur Péturs-
borgar til áréttingar kröfum
sinum. bessum degi hefur litill
gaumur verið gefinn til þessa
hérlendis en i dag verður sam-
felld dagskrá i Félagsstofnun
stúdenta i tilefni dagsins. Að
baki dagskránni i Félagsstofn-
uninni standa Rauðsokka-
hreyfingin, Kvenfélag sösialista
og Menningar- og friðarsamtök
islenzkra kvenna.
1 dagskránni er fjallað um
baráttu verkakvenna fyrr og nú
i máli og söng. Húsið verður
opnað kl. 8.30.
Slæmt ástand sam-
göngumála á Bíldudal
Hreppsnefnd Suðurf jarðar-
hrepps, Bildudal samþykkti á
fundi sinum 28. febrúar 1978 eftir-
farandi bókun: „Hreppsnefnd
Suðurfjarðarhrepps, Bildudal,
ályktar að algert vandræða-
ástand hafi skapazt i samgöngu-
málum byggðarlagsins. Með
breyttri áætlun Skipaútgerðar
rikisins hefur ástand vöruflutn-
inga breytzt þannig, að aðeins
annað strandferðaskipið kemur
við á Bildudal, — á suðurleið á 14
daga fresti, en þetta er eini mögu-
leikinn fyrir vöruflutninga til og
frá byggðarlaginu, stærsta hluta
ársins. Hreppsnefndin vitir þess-
ar ábyrgðarlausu breytingar. Þá
er algerlega óviðunandi ástand i
vegasamgöngum milli Bildudals
og Patreksfjarðar, en sú leið er
oft lokuð dögum saman, enda þótt
ibúar byggðarlagsins þurfi að
sækja læknisþjónustu, og fá mjólk
frá Patreksfirði, auk annarrar
þjónustu. Er þvi oft mjólkur-
skortur af þessum ástæðum. Þá
er óþolandi hvernig póstflutningi
er fyrir komið. Póstur milli
Bfldudals og Reykjavikur er ein-
göngu sendur með áætlunarflugi,
sem er milli Reykjavikur og Pat-
reksfjarðar, og kemur þvi oft fyr-
ir að póstur er viku til tiu daga á
leiðinni milli Bildudals og
Reykjavikur sökum ófærðar þrátt
fyrir það, að beint áætlunarflug
sé til Bildudals frá Reykjavik
tvisvar i viku, auk annarra ferða.
Lýsir hreppsnefndin furðu sinni á
að þessar ferðir skulu ekki vera
notaðar til póstflutninga. Skorar
hreppsnefnd Suðurfjarðarhrepps
á stjórnvöld, að bæta úr þessu
óþolandi ástandi hið bráðasta.”
Ávarp í tilefni
8. marz alþjóð-
legs kvennadags
Jb — Alþjóðlegur kvennadagur
er i dag, áttunda marz og i til-
efni þess iiefur Alþjóðasamband
lýðræöissinnaðra kvenna samið
ávarp og sent frá sér. Þar eru
sendar heillaóskir og samstöðu-
kveðjur til allra kvenna sem berj-
ast fyrir rétti sinum, fyrir velferð
fjölskyldna sinna og hamingju
barna sinna. Fagnað er staðfestu
þeirra sem verja málstað lifsins
og friðarins og krefjast þess að
bann sé lagt á framleiðslu og
notkun gereyðingarvopna, svo og
þeirra sem stuðla að framgangi
mannréttinda, félagslegs réttlæt-
is, þróunar og þjóðfrelsis.
1 ávarpinu segir m.a.: „Við
fögnum dugnaði kvennanna i Miö
austurlöndum sem berjast fyrir
viðurkenningu á sjálfsákvörðun-
arrétti Dalestinsku bióðarinnar.
Við heilsum þeim þúsundum
kvenna i Chile og öörum rikjum
rómönsku Ameriku, Indónesiu,
Suður-Kóreu, Norður-lrlandi og
viðar sem taka þátt i baráttu
þjóðar sinnar gegn afturhaldi og
fasisma.”
Og siðar segir: „Viö heilsum
konum i sósialisku rikjunum, sem
taka nú rikari þátt i efnahags-
legu, pólitisku og menningarlegu
lifi þjóða sinna og stuðla þannig
að þróun þeirra. Samstaða þeirra
og sá árangur sem þær hafa náð
bæði lagalega og i reynd eru okk-
ur hvati og fordæmi.
Þá er í ávarpinu lýst yfir nauö-
syn og gildi þess að konur standi
saman, pólitiskt, siðferðlilega og
efnahagslega séð, og lýst yfir
þeirri ákvörðun sambandsins að
vinna áfram aö þvi að efla skiln-
ing og samstarf með þjóöum
heims.
Bókfærsla 2. stig
— eftir Porstein Magnússon
Almenna bókafélagið hefur sent
frá sér kennslubókina Bókfærsla
2. stig. Bókfærsla 1. stig kom út i
fyrra. A kápu bókarinnar segir
svo:
„Námsefni i bókfærslubókum
Þorsteins Magnússonar er i fjór-
um stigum, og er ein bók fyrir
hvert stig, 40—60 kennslustundir.
Námsefnið er miðað við náms-
skrá menntamálaráðuneytisins
fyrir bókfærsu i grunnskólum og
framhaldsskólum, og öll fjögur
stigin miðast við verzlunarpróf.
Kennsluaðferðir bókanna eru i
ýmsu ólikar eldri aðferðum við
bókfærslukennslu og hafa mótazt
við tilraunakennslu i Verzlunar-
skóla Islands og fleiri skólum i tiu
ár. Þær skirskota umfram allt til
rökhyggju og ályktunarhæfni
nemendanna, en ekki til utanbók-
arlærdæms. Þessar aðferðir hafa
nú þegar beint eða óbeint verið
teknar upp i flestum stærstu skól-
um landsins, þar sem bókfærsla
er kennd, og hafa haft áhrif á ým-
is nýjustu fræöirit i greininni.”
Bókfærsla 2. stig er 243 bls. að
stærð — pappirskilja, Bókin er
unnin i Prentstofu G. Benedikts-
sonar, Offsetmyndun og Félags-
bókbandinu.
Ödipús konungur
Mál og menning hefur gefið út
leikritið ödipús konungur
eftir Sófókles i þýðingu Helga
Hálfdánarsonar.~ödipús konung-
ur er meðal þekktustu harmleikja
þessa mikla griska skálds. Hann
er fyrstur i timaröð af svonefnd-
um Þebuleikjum. Hinir eru ödi-
pús i Kólónos og Antigóna, sem
þegar hefur verið gefin út i þýð-
ingu Helga Hálfdánarsonar og
með inngangi eftir Friðrik
Þórðarson. Bókinni fylgja
skýringar og athugasemdir, sem
þýðandinnhefur tekið saman i til-
efni útgáfunnar.
Leikrita- og ljóðaþýðingar
Helga Hálfdanarsonar hafa hlotið
mikið og verðskuldað lof gagn-
rýnenda. Þýðingin á ödipúsi kon-
ungi, sem er i fornlegum ljóðstil,
var gerð fyrir Þjóðleikhúsið og
bókin kom út sama dag og leikrit-
ið var frumsýnt. Prentsmiöjan
Oddi hf. prentaði.
Umhyggja borgarfulltrúa
Alþýðubandalagsins fyrir
reykviskum atvinnufyrir-
tækjum meiri i orði en á borði
Deilur i borgarstjórn um tilboð i ljósastaura
Allharðar deilur uröu á sið-
asta fundi borgarstjórnar vegna
tilboða, sem fyrir lágu i fram-
leiðslu á ljósastaruum fyrir
rafmagnsveituna. Aðeins tvö
fyrirtæki komu til greina, þar
sem þau eru ein fyrirtækja hér á
landi með svonefnda heithúðun,
Sandblástur og málmhúðun á
Akureyri og Stálver hf. i
Reykjavik.
Um var að ræða tilboö i 7 mis-
munandi gerðir staura, samtals
að upphæð rúmar 30 millj.
króna. Við opnun tilboða hjá
Innkaupaátofnuninni kom i ljós,
að Akureyrarfyrirtækið var
með lægsta boð i allar staura-
geröirnar. Var munurinn á þvi
og Stálveri hf. frá 1.72% og upp I
18.23%.
Meirihluti stjórnar Innkaupa-
stofnunarinnar lagði til aö verk-
inu yrði skipt þannig að samið
yröi við Stálver hf. um fjórar
gerðir þar sem munur tilboða
var frá 1.72% til 7.44% en við
Akureyrarfyrirtækið um þrjár
gerðirnar. A þetta sjónarmið
féllst meirihluti borgarráðs,
tveir sjálfstæðismenn og
Kristján Benediktsson.
Sigurjón Pétursson lagði hins
vegar til, að samið yrði viö
Akureyrarfyrirtækið um allt
verkið og Albert Guðmundsson
aðStálverhf.fengialltverkið til
sin. Þannig stóð málið, þegar
það kom til borgarstjórnar sl.
fimmtudag. Þar lögðu borgar-
fulltrúar Alþýöubandalagsins til
að samið yrði við Akureyrarfyr-
irtækið. Vakti það athygli, hve
Sigurjón Pétursson sótti mál
þetta af miklu kappi. Virtist það
engin áhrif hafa á hann þótt
hann ,væri minntur á nýleg
ummæli sjálfs sin þessefnis, að
reykviskt atvinnulif stæði höll-
um fæti og að þvi þyrfti að hlúa.
Kristján Benediktsson sagöist
álita sanngjarnt að skipta verk-
inu eins og meirihluti borgar-
ráös hafði lagt til. I þvi fælist
engin stefnubreyting af sinni
hálfu varðandi útboð almennt.
Stundum yröi hins vegar að
meta aðstæður og taka tillit til
fleiri þátta en prósentutölunnar
einnar. Hann benti á, aö hjá
Stálver hf ynnu að jafnaði 50-60
manns. Mun minna lægi nú fyrir
af verkpöntunum hjá fyrirtæk-
inu en á sama árstima undan-
farin ár. Nokkrum mönnum
hefði þegar verið sagt upp af
þeim sökum. „Mér finnst ekki
sanngjarnt að visa þessum
mönnum norður til Akureyrar
eins og reyndar felst I tillögu
Alþýðubandalagsins”, sagði
Kristján.
Þá benti Kristján á, að launa-
greiðslur Stálvers hf. heföu ver-
ið á annað hundrað milljónir sl.
ár og til rafmagnsveitunnar
heföi fyrirtækið greitt tæpar 7
milljónir auk aðstöðugjalds til
borgarstjóðs.
„Til þessara þátta og þó eink-
um minnkandi verkefna hér
syöra i járniðnaði, verðum við
borgarfulltrúar að taka tillit, ef
við meinum eitthvað með öllu
talinu um að efla hér undir-
stöðugreinar atvinnulifsins”,
sagði Kristján einnig.
Það er lika heppilegra i fram-
tiðinni að hafa i landinu tvö fyr-
irtæki meðfullkomna aðstöðu til
heithúðunar.
Auk þeirra, sem þegar er get-
ið, töluðu i þessu máli Birgir
ísleifur Gunnarsson, borgar-
stjóri, Albert Guðmundsson,
Valgarð Briem og Björgvin
Guðmundsson.
Tillaga Alþýðubandalags-
manna fékk aðeins 3 atkvæði
þeirra sjálfra en aðrir borgar-
fulltrúar samþykktu tillögu
meirihluta borgarráðs um aö
skipta verkinu milli þessara
tveggja fyrirtækja.
Kristján Benediktsson