Tíminn - 14.03.1978, Side 1
SÍMI 2 88 66
■-
FÆRIBANDAREIMAR
I METRATALI
LANDVÉLAR HF.
Smiðjuvegi 66. Sími: 76600.
_______________-
Flokksþing Framsóknarmanna:
Flokksþing Framsóknarmanna
17.flokksþing Framsóknarmanna er mjög fjölmennt og einkennist af miklum sóknarhug. A myndinni má sjá nokkurn hluta þingfull-
trúanna við setningu þingsins á sunnudagsmorgun.
FJÖLMENNI OG
SÓKNABHUGUR
17. flokksþing Framsóknar-
manna, sem sett var sl. sunnu-
dagsmorgun i salarkynnum
Útgarðs i Reykjavfk, er mjög
fjölmennt og einkennist af mikl-
um áhuga, fjörugum umraéðum
og sóknarhug. Á sunnudag
fluttu formaður Framsóknar-
flokksins, Ólafur Jóhannesson,
ritari flokksins, Steingrimur
Hermannsson, og gjarldkeri,
Tómas Árnason, skýrslur sinar
um störf flokksins, þróunina frá
siðasta flokksþingi Framsókn-
armanna og horfurnar fram-
undan.
Eftir hádegið voru siðan al-
mennar umræður, og tóku þá
margir til máls og bar flest mai-
efni þjóðmálanna og
flokksmálanna á góma.
Fundarsalurinn i Úgarði i
Glæsibæ i Reykjavik var þétt-
setinn fulltrúum og gestum
þingsins, og urðu menn að
standa frammi við dyr þvi að
ekki komust allir fyrir i sætum.
Munu þingfulltrúar og gestir
hafa verið nær 500 talsins.
t gærmorgun voru nefnda-
fundir i salarkynnum Hótel
Sögu i Reykjavik. Voru þá að
störfum flokksmálanefnd,
stjórnmálanefnd, atvinnumála-
nefnd og mennta- og félags-
málanefnd. Fyrir nefndunum
lágu mjög ýtarlega unnin og
rækileg drög að ályktunum og
minnisatriði til umræðu og
ábendingar.
Eftir hádegið i gær störfuðu
umræðauhópar og undirnefndir
i hinum ýmsu málefnaflokkum.
I gærkveldi héldu almennar
umræður siðan áfram.
I dag, þriðjudag, er stefnt að
þvi að ljúka þessu fjölmenna
flokksþingimeðafgreiðslu mála
og kosningu miðstjórnar, en
miðstjórnarfundur verður hald-
inn á morgun.
Loðnuveiðar:
Góður
vikuafli
— heildaraflinn
um 88 þús.
lestum minni
en í fyrra
GV—Samkvæmt skýrslum Fiski-
félags íslands er vitað um 75 skip
er fengið höfðu loðnuafla sl. laug-
ardagskvöld á vertiðinni. Viku-
aflinn var samtals 377.292 lestir.
Á sama tima i fyrra var heildar-
aflinn samtals 465.078 lestir og þá
höfðu 81 skip fengið einhvern aíia.
Loðnu hefur verið landað á 22
stöðum i landi, auk bræðsluskips-
ins Norglobal, og mestu hefur
verið landað á Seyðisfirði, sam-
tals 54.830 lestum, Neskaupstað
48.486, Norglobal 44.136 lestum og
Eskifirði 43.621 lest.
Aflahæsta skipið á vertiðinni nú
er Börkur NK með 13.829 lestir .
Engin
loðnuveiði
eftir hádegi
í gær
GV — Á sunnudag aflaðist mjög
vel á loðnuniiðum og tilkynntu þá
alls 37 skip um 16 þúsund lesta
afla til loðnunefndar, en siðdegis I
gær höfðu 16 skip tilkynnt um
6.400 lesta afla og lá veiði niðri
eftir hádegi þar sem loðnan stóð
það djúpt. Að sögn fiskifræðinga
er nú stutt i hrygningu, loðnan
hreyfir sig mjög litið og er það
óvenjulegt að hún fari ekki vestur
fyrir Ingólfshöfða áður en hún
hrygnir, þó að það hafi áður
gerzt.
1 febrúar urðu leitarskip vör við
tvær minni göngur á eftir aðal-
göngunni, og hefur r/s Arni
Friðriksson nú verið i leiðangri i
leit að þessum göngum, en i gær,
þar sem hann var staddur á móts
við Reyðarfjörð hafði hann ekki
hafterindi sem erfiði. Þróarrými
er nú ekkert i Vestmannaeyjum
eða á Austfjarðahöfnum, og ef
veiði gæfi nú, bærist aflinn á land
við Faxaflóa, en litið sem ekkert
af loðnu hefur verið brætt i verk-
smiðjum við Faxaflóa á þessari
vertið og hefur það valdið verk-
smiðjueigendum við Faxaflóa
þungum áhyggjum.
Ekki
tómir
sjoðir
„Það þarf að koma upp og
styrkja jöfnunarsjóð fyrir at-
vinnuvegina, til að mæta
sveiflum i verðlagi eða öðrum
áföllum. En þeir jöfnunarsjóð-
ir mega ekki vera nafnið eitt
— ekki tómir sjóðir notaðir til
sjónhverfinga. Það eiga að
vera raunverulegir sjóðir sem
greitt er i þegar vel gengur og
gripið til er á móti blæs,”
sagði Ólafur Jóhannesson,
ráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, m.a. i ræöu
við upphaf flokksþings Fram-
sóknarflokksins i fyrradag.
Ræða hans er birt f blaðinu i
dag á bls. 8-9.
Sýkna í
Alviðru-
málinu
FI — Dómur i Aviðrumálinu svo-
nefnda er fallinn og á þá leið, að
Landvernd og Árnessýsla voru
sýknaðar i málinu. Málskostnað-
ur féll niöur, en stefndu höfðu
gjafvarnarieyfi frá dómsmála-
ráðuneytinu. Ekki tókst að fá
ljósrit af dómnum i gær og for-
sendur verða þvi að biöa betri
tima, jafnvel allt fram yfir næstu
helgi, að sögn Friðgeirs Björns-
sonar lögfræðings, en Friðgeir
var setudómari i málinu.
Kröfurnar i málinu voru þær, til
upprifjunar, að Magnús
Jóhannesson fyrrv. eigandi
Alviðru i Árnessýslu fór fram á
ógildingu gjafabréfs sins til
Landverndar og Árnessýslu eða
riftingu á grundvelli brostinna
forsendna, m.a. þeirrar að
búskapurinn i Alviðru samræmd-
ist ekki ákvæðum gjafabréfsins.