Tíminn - 14.03.1978, Side 2
2
Þriöjudagur 14. marz 1978.
Frakkaland:____
Sigur vinstri
manna naumur
París/Reuter. Frakkar skiptast
nú i tvær nær jafnar fylkingar,
hægri og vinstri eftir fyrri umferð
þingkosninganna. Kommúnistum
og sósialistum tókst ekki að fá
þann meirihluta atkvæða er þeim
hafði verið spáð i skoðana-
könnunum fyrir kosningrnar.
Þeir hlutu aðeins 1,1% fleiri at-
kvæða en hægri og miðflokkarnir,
sem nú sitja að völdum. Stjórn-
málaskýrendur telja þennanmun
of litinn til að hægt sé að búast við
þvi að vinstri flokkarnir sigri i
siðara hluta kosninganna er fram
fer næstkomandi sunnudag.
Mikið fjör færðist i fjármála-
viðskipti i Frakklandi er úrslit
urðu kunn og liklegt virtist að
hægri menn fari með sigur af
hólmi i kosningunum eftir viku.
Verðbréf hækkuðu um 9% og
frankinn steig um 15 sentimur
gagnvart Bandarikjadollar, og
öðrum gjaldmiðli.
Séu úrslitinathuguð og flokkum
skipt i' hægri og vinstri, að öllum
öfgahópum til hægri og vinstri
meðtöldum, kemur i ljós að hægri
og miðflokkar hafa hlotið 48,4%
atkvæða, en vinstri menn 49,5%
Hreyfingar umhverfisverndar-
manna hlutu 2,1%. Úrslitin sýna
að Gaullistar eru enn stærsti
stjórnmálaflokkurinn og hafa aö
baki stuðning 22,6 af hundraöi
kjósenda. Sósialistar fylgja fast á
eftir með stuðning 22,5% at-
kvæða.
Leiðtogar kommúnista, sósíal-
ista og smærri vinstrisinnaðra
flokka héldu með sér fund i gær
og hugðust reyna að ná samstöðu
um myndun kosningabandalags
sem mætt gæti kosningabanda-
lagi Gaullista, miðflokkanna og
repúbUkana. Vinstri flokkarnir
hafa ekki á undan förnum mánuð-
um geta komið sér saman um
hversu langt skuli gengið i félags-
legum og efnahagslegum breyt-
ingum kæmust þeir til valda. Tal-
ið er að andrúmsloftið á viðræðu-
fundum vinstri manna verði
nokkuö þvingað, þvi þeir kenna
hver öðrum um að þeim tókst
ekki að ná til sin þeim fjölda at-
kvæða er spáð hafði verið.
Þátttakan i frönsku kosningum
hefur aldrei verið meiri, en 83
prósentþeirraervoru á kjörskrá,
neyttu atkvæðisréttar sins. Opin-
berir talsmenn i Elysee höll sögðu
að sýnt væri að kjósendur hefðu
Valery Giscard d’Estaing. Kjósendur hlustuðu á forsetann.
fárið að ráðum forsetans og horf- lands með þvi að sýna vinstri
ið frá þvi að ógna efnahag Frakk- mönnum stuðning.
Begin:
„Höggvum af
hina illu hönd”
Jerúsalem/Reuter. Menachem
Begin forsætisráðherra sagði i
gær að Israelsmenn myndu
„höggva af hina illu hönd” frels-
ishreyfingar Palestinuaraba
PLO, en á laugardaginn gerðu
palestinskir skæruliðar mann-
skæðustu árás er gerð hefur verið
á Israelsriki. Begin lofaði því, að
„þeir sem úthella saklausu blóði
munu ekki njóta griða, við mun-
um verja borgarana, konurokkar
og börn.”
,,Við munum höggva af hina illu
hönd, og við munum koma í veg
fyrir að hennar verið lyft aftur til
að slá Gyðingakonu eða barn”,
sagði forsætisráðherrann. Begin
ræddi um árás skæruliöa, sem
varð 36 óbreyttum borgurum að
bana, auk þess sem 9 skæruliðar
féllu. Hann fordæmdi stuðning
Sovétmanna við PLO og sömu-
leiðis vestræn riki fyrir að þola
tilvist samtakanna. Begin lýsti
árásinni sem „hræðilegasta og
grim mdarlegasta grimmdar-
verki allra tima.” Hann kvað Ar-
abarikin ekki sýna neina iörun,
miklu frekar mætti ætla að leið-
togar Araba fögnuðu tiðindum
sem þessum.
Begin kvað ljóst að skæruliðar
PLO gerðu aldrei árásir á her-
menn, og tilgangur þeirra væri
einungis að drepa og særa sem
flesta óbreytta borgara. Hann
hvatti tsraelsmenn til að sýna
æðrulseysi og sagði meðal ann-
ars: „Grimmur óvinurinn mun
Dvöl geim-
faranna í
Salyut að
ljúka
Moskva/Reuter. Sovésku
geimfararnir Yuri Roman-
enko ogGrogory Grechko hófu
i dag að slökkva á ýmsum
tækjum i geimstöðinni Sal-
yut-6, og bendir það til þess að
þeir muni brátt snúa aftur til
jarðar. Tass fréttastofan sagði
einnig að geimfararnir
hefðu hafist handa um að
ganga frá tækjabúnaöi sem
ekki væri lengur þörf fyrir.
Þeir hafa verð út i geimnum
lengur en nokkrir aðrir, eða i
93 daga. Enn hefur ekki verð
tiltekið nákvæmlega hvenær
von er á Sovétmönnunum
aftur til jarðar, en
starfsmaður sovésku geim-
ferðastofnunarinnar sagði að
það yrði fljótlega.
ekki lama hugrekki okkar... við
erum forn þjóð sem orðið hefur að
liða miklar þjáningar.”
Fyrirhugað var að Begin færi
til Bandarikjanna í gær, en þeirri
Menachem Begin.
ferð hefur verið frestaö til 21
marz.
S-Mólúkk-
ar taka 50
manns í
gíslingu
Assen, Hollandi/Reuter. Skæru-
liðar frá Suður-Mólúkkaeyjum
réðust með vélbyssuskothrið inn i
opinbera byggingu i Assen og
tóku fleiri en 50 manns i gislingu
og kröfðust þess að fá yfirráð yfir
flugvél til undankomu. Þetta er
siðasti atburðurinn af mörgum,
sem stuðla eiga að þvi að Hol-
lendingar styðji Mólúkka, sem
berjást fyrir þvi að hljóta sjálf-
stæði en Suður-Mólúkkaeyjar eru
undir yfirráðum Indónesiu-
manna.
' 40.000 Mólúkkar búa i Hollandi,
en nærvera þeirra eru leifar þess
erlendar fréttir
að Mólúkkaeyjar voru eitt sinn
nýlenda Hollendinga. Hollending-
ar samþykkja þó ákvarðanir
Indónesiustjórnar, en hún neitar
með öllu að láta Mólúkkum sjálf-
stæði i té. Sukarno lét berja niður
byltingu Mólúkka árið 1950, eða
skömmu eftir að Indónesia hlaut
sjálfstæði. 4.000 Mólúkkar komu
til Hollands i kjölfar byltingatil-
raunarinnar. Þeim var komið
fyrir i tómum herbúðum og allt
frá þvi að þessi kjarni kom til Hol
lands hefur fjöldi Mólúkka þar tí-
faldazt. Mólúkkarnir eru nú
margir hverjir orðnir vonlitlir um
að sjá nokkurn tima ættland sitt
aftur og yngri kynslóðirnar
þekkja það aðeins af afspurn. ör-
vænting þeirra brauzt fyrst ut
1975 i lestarráni og innrás i indó-
nesfska sendiráðið i Amsterdam,
en siðan hafa lestrrán og taka
gisla fylgt i kjölfarið.
f 1 " 1 *
Ný
stjórn
tekin við
völdum
á ítaliu
Róm/Reuter Hin nýja stjórn
Kristilegra demókrataá tta-
h’u sór embættiseið i gær, og
þar með lauk átta vikna
stjórnmálakreppu I landinu.
Kommúnistar hlutu nú opin-
bera aðild að stjórn i landinu
i fyrsta skipti i 31 ár. Giulio
Andreotti forsætiisráðherra
gegndi áður sama embætti
og aðeins tveir af tuttugu
ráðherrum nýju stjórnarinn-
ar áttuekki sæti i fyrristjórn
Andreottisersat að völdum i
17 mánuði. Kommúnistar
hafa formlega heitið nýju
stjórninni stuðningi sinum á
þingi.
-
Norrænt
lögfræð-
ingaþing
sumarið
1978
28. norræna lögfræðingaþingið
verður haldið i Kaupmannahöfn
dagana 23.-25. ágúst 1978. A
þinginu verða rædd ýmis mark-
verð lögfræðileg verkefni, svo
sem titt er á slikum þingum, en
þau hafa verið haldin reglulega á
þriggja ára fresti siðan 1872 að
undanskildum styrjaldartimum.
Meðal umræðuefna þessu sinni
eru lögfræðileg álitamál, er
tengjast jafnstöðu karla og
kvenna, þar sem frú Guðrún
Erlendsdóttir, lektor, er aðal-
framsögumaður og vandamál i
sambandi við verðbólgu og samn-
inga, þar sem annar framsögu-
maður er Benedikt Sigurjónsson
hæstaréttardómari. Rætt verður
einnig m.a. um stöðu og verkefni
saksóknara og verjanda i opin-
berum málum, vernd einkalifs og
tölvur, hlut refsivistar meðal við-
urlaga i refsirétti framtiðarinnar,
um skaðabætur og tryggingar og
um efnið: Réttaröryggi barna.
Meðal framsögumanna eru
margir mjög kunnir lögfræðingar
á Norðurlöndum.
Tilkynningar um þátttöku Isl.
lögfræðinga i þinginu skulu hafa
borizt fulltrúa stjórnar Islands-
deildar norrænu lögfræðinga-
þinganna, Björns Helgasonar
hæstaréttarritara, eigi siðar en
30. marz n.k. Þann dag kl. 16-18
verður opin skrifstofa á vegum
stjórnarinnar i dómhúsi Hæsta-
réttar, neðstu hæð.
Formaður stjórnar tslands-
deildarinnar er dr. Armann
Snævarr, forseti Hæstaréttar.
(Stjórn tslandsdeildar norrænu
lögfræðingaþinganna.)
• •
Onnur
aflasala
í Hull
GV — Togarinn Dagný SI frá
Siglufirði seldi 112lestaafla i Hull
i gærmorgun, og er Dagný annað
islenzkra skipa sem selt hefur i
Hull eftir að löndunarbanni þar
var aflétt. Andvirði aflans er 55
þúsund sterlingspund og var
meðalverð aflans 238 kr. kilóið.
Að þvi er Ágúst Einarsson hag-
fræðingur Landssambands is-
lenzkra útvegsmanna sagði, var
ekki von á öðrum sölum islenzkra
skipa. i útlöndum i þessari viku.