Tíminn - 14.03.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 14.03.1978, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 14. marz 1978. 3 Suðureyri: Hita veitan bilaöi ánýjan leik ESE — Eins og kunnugt er bilaði hitaveitan á Suðureyri við Súg- andafjörð fyrir rúmlega viku með þeim afleiðingum að hiti fór af öllum bænum og tengja varð gömul oliukyndingartæki við miðstöðvar húsa eða þá að raf- magnsofnar, sem fengnir voru frá tsafirði héldu á mönnum hita. Nú, aðeins nokkrum dögum eftir að viðgerð lauk er hitaveitan biluð á nýjan leik, en rétt vika er siðan hún bilaði fyrra sinni. Er Timinn hafði samband við Kristján Pálsson sveitarstjóra á Suðureyri laust eftir hádegið i gær var ekki vitað hvað olli bilun- inni. Kristján sagði að það hefði verið búið að koma dælunni sem bilaði fyrir á sinum stað á um 100 metra dýpi i borholunni og fyrst i stað hefði öll starfsemi verið með eðlilegum hætti. Siðan hefðu af- köst hitaveitunnar minnkað stór- lega og ljóst væri að dælan hefði bilað á nýjan leik. Kristján sagði að engar hugmyndir væru uppi um hvað hefði valdið biluninni að þessu sinni, en þegar hefði verið hafizt handa við að ná dælunni upp á nýjan leik og var búizt viö að þvi verki yrði lokið seint i gær- kvöldi. Kristján sagði að oliukyndingin hefði undireins verið tekin i notkun á nýjan leik og hefði að- eins tekið um tvo klukkutima að tengja hana að þessu sinni. Kristján sagði ennfremur að vegasambandslaust hefði verið við Suðureyri um þriggja vikna skeið, en það hefði þó verið lán i óláni þvi að kraninn sem fenginn varfrá Bolungarvik og þeir menn sem unnið hefðu viö viðgerð á hitaveitunni hefðu ekki komizt frá Suðureyri þannig að nota mætti krafta þeirra á nýjan leik. Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráðherra, Gerður Steinþórsdóttir, kennari, Haukur Ingibergsson, skólastjóri i Bifrost, Þor- steinn Eiríksson, yfirkennari, og Pétur Orri Jónsson, háskólancmi, voru meðal nefndarmanna i mennta- og félagsmálanefnd á flokks- þinginu í gær. Staðurinn kemur eflaust mörgum kunnugiega fyrir sjónir, en það er Mimisbar á Hótel Sögu. 1 glösin fengu menn þo ekkert nema blávatn og undu þvi hiö bezta, þó það sé nú heldur sjaldgæft á stað sem þessum. Það er ánægjuleg þróun, aö þeim konum fjölgar ár frá ári, sem taka virkan þátt i flokksstarfinu, ekki einungis til að sjá og heyra, heldur til að koma skoðúnum sinum einarölega á framfæri. Þegar flokksþingið skiptist i starfsnefndir i gærmorgun, völdu þessar kon- ur ásamt fleirum, sér sæti i stjórnmálanefndinni og létu ekki sinn hlut eftir liggja i þeim umræðum sem þar fóru fram. Afsönnuðu þær rækilega þá gömiu trú að konur séu aðeins til skrauts i stjórn málaflokkunum. Um þessar mundir stendur yfir á Mokka við Skólavöröustlg fyrsta einkasýning ungrar listakonu, Þorbjargar Sigrúnar Harðardóttur. Þorbjörg sýnir þarna 26 myndir i kol, krit oe vatnslitum, og er megin- uppistaðan i myndunum gömul hús eða blóm. Þorbjörg Sigrún er Reykvikingur og sjáifmenntuð i listinni. Hún tók þátt I samsýningu með Hilmi J. Haukssyni i haust. Ljósmyndari Timans, Róbert, sinellti þessari mynd af Þorbjörgu á Mokka. tveir vill starfsfólk Unglingaheimilis- ins taka það fram, að verkfalls- dagana 1. og 2. marz mættu að- eins tveir af nitján manna starfs- liði, auk eins uppeldisfulltrúa, sem ákveðið var að hafa á neyð- arvakt. Aðeins mættu JB Starfsfólk Unglingaheimilis rikisins i Kópavogi hefur sent blaðinu eftirfarandi fréttatil- kynningu: Að gefnu tilefni og þar sem fyrri yfirlýsingar okkar virðast hafa farið fram hjá fjölmiðlum, 3. þing Landssambands iðnverkafólks haldið um helgina GV — Þriðja þing Landssam- bands iðnverkafólks var haldið á Hótel Loftleiðum dagana 11.-12. marz s.l. og sátu 38 fulltrúar þing- ið frá 4 félögum. Á þinginu var kosin stjórn landssambandsins til næstu tveggja ára og var Guð- mundur Þ. Jónsson kosinn for- maður þess, en hann tekur við< af Birni Bjarnasyni, sem verið hefur formaður sambandsins i fjölda ára. Guðmundur Þ. Jóns- son er jafnframt varaformaður Iðju i Reykjavik og starfar jafnt á skrifstofu Iðju og skrifstofu Landssambands iðnverkafólks. A þinginu voru m.a. samþykkt- ar ályktanir um kjaramál, iðnað- armál og fræðslumál. 1 ályktun þingsins um kjaramál segir m.a. að þingið mótmæli eindregið þeim tilefnislausu árásum á samnings- rétt og lifskjör alls launafólks i landinu sem felast i lögunum um ráðstafanir i efnahagsmálum. í ályktuninni segir að með þessum lögum séu hundruð milljóna króna tekin úr vösum launafólks og fengin atvinnurekendum, auk þess sem nýgerðir kjarasamning- ar eru felldir úr gildi án þess að sá grundvöllur, sem þeir voru byggðir á, hafi i nokkru raskazt til hins verra. Þá fagnaði 3. þing Landssambands iðnverkafólks þeirri viðtæku samstöðu sem náð- ist i fyrsta áfanga mótmælaað- gerðanna gegn kjara- og réttinda- skerðingaraðgerða rikisvaldsins og lýsir þeirri skoðun sinni, að þessa samstöðu beri umfram allt að efla, ef takast á að hrinda fyr- irætlunum afturhaldsaflanna um viðtæka kjara- og réttindaskerð- ingu verkalýðssamtakanna. Lokaorð ályktunar þingsins um kjaramál eru þessi: ,,Næsta verkefnið er að knýja rikisvaldið og atvinnurekendur til að viðurkenna samningana eða íaungildi þeirra. Stefna ber að þvi að iðnverka- fólk hafi ekki lakari tekjur en beztar gerast i sambærilegum störfum.” Mælir með frumvarpi um nýja iðnlöggjöf I ályktun þingsins um iðnaðar- mál segir m.a. orðrétt: Þingið lit- ur svo á að það sé höfuðnauðsyn að bæta svo aðstöðu iðnaöarins að hann verði fyllilega samkeppnis- fær við aðrar starfsgreinar um vinnuafl, þvi án góðs starfsfólks byggjum við ekki upp lifvænlegan iðnað i þessu landi. Þingið litur svo á að frumvarp það sem nú liggur fyrir Alþingi um nýja iðnlöggjöf stefni i rétta átt og mælir með þvi að það veröi samþykkt. Guöinundur Þ. Jónsson, nýkjör- inn formaður Landssambands iðnverkafólks. 1 ályktun um fræðslumál segir m.a. að nauðsyn beri til að iðn- verkafólk fái tækifæri til að afla sér menntunar og viðbótarþekk- ingar og njóti launa á meðan á námi stendur, og sé það ekki sið- ur nauðsynlegt þar eð miklar framfarir eiga sér stað i iðnaði, sem leitt hafa til umfangsmikilla breytinga á framleiðsluháttum þjóðarinnar. Ályktanir þingsins verða birtar i heild siðar i blað- inu, en þvi miður reyndist það ekki hægt i dag vegna rúmleysis.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.