Tíminn - 14.03.1978, Side 6

Tíminn - 14.03.1978, Side 6
6 Þriðjudagur 14. marz 1978. Aðdragandi að gerð og flutningi þessa frum- varps um embættis- gengi kennara og skóla- stjóra er orðinn nokkuð langur. Er hann rakinn ýtarlega i athugasemd- um við lagafrumvarp þetta. Verður sú saga ekki endurtekin hér, en geta vil ég um eftirfar- andi: „Hinn 9. desember 1970 skipaði þáverandi menntamálaráðherra nefnd til þess að semja, eins og þar stendur, ,,til- lögur i frumvarpsformi um ákvæði varðandi skilyrði, sem fullnægja þarf til þess að vera settur eða skipaður kennari við skyldu- námsskóla og fram- haldsskóla þ. á.m. menntaskóla og sér- skóla”. Þessi nefnd var allfjölmenn og áttu samtök kennara og svo Kennaraháskólinn og Háskóli Is- lands fulltrúa i nefndinni, einnig menntamálaráðuneytið. En Hörður Lárusson, þá sérfræðing- ur i skólarannsóknadeild, var for- maður þessarar nefndar. Um þessar mundir voru i smið- um frumvörp til laga um Kenn- araháskóla tslands, um skóla- kerfi og um grunnskóla. Frum- varpið um Kennaraháskólann varð að lögum á þinginu 1970- 1971, en hin frumvörpin hlutu ekki afgreiðslu á Alþingi fyrr en i mai 1974. Nefndin skilaði endanlegum til- lögum 1972, en þar sem frum- vörpin um skólakerfi og um grunnskóla höfðu ekki náð fram að ganga, mun ekki hafa þótt timabært að leggja fram frum- varp um embættisgengi kennara að svo stöddu. Málið var þvi lagt til hliðar um sinn. I lok ársins 1974 var aftur tekið til við málið. Þá var leitað til sömu aðila og upphaflega höfðu átt sæti i nefndinni og farið yfir frumvarpið með þeim og jafn- framt leitað umsagna hjá háskól- unum báðum. Þá fjallaði einn ig samstarfsnefnd menntaskóla- stigsins um frumvarpið, en það er nefnd, sem skipuð er rektorum og skólameisturum menntaskólanna og ráöuneytisstjóra og fleirum úr menntamálaráðuneytinu. Endur- skoðun þessi fæddi af sér nokkrar breytingartillögur. Og eftir að frumvarpinu hafði verið breytt i einstökum atriðum án þess þó að breyta meginstefnu þess, þá var það sent ýmsum samtökum skólafólks og fleirum til umsagn- ar. Enn bárust nokkrar umsagnir og athugasemdir. Var þaö allt yfirfarið vandlega og leitazt viö að samræma fram komin sjónar- mið, sum nokkuð mismunandi, og jafnframt voru höfð i huga ýmis raunhæf og aðkallandi vandamál, sem komið geta upp við ráðningu skólastjóra og kennara. Það er ljóst af þvi sem ég hef nú greint, að þetta má hefur fengiö mjög ýtarlegan undirbúning, enda er frumvarpið, eins og þaö er nú flutt, töluvert breytt frá upphaflegri gerð þess, enda þótt meginstofninn sé hinn sami eins og ég drap á áðan. Frumvarpinu er skipt i þrjá kafla og eru i hinum I. almenn ákvæði ýmisleg. Kennaranám metið i námseiningum 1 fyrstu grein er fjallað um nám kennara almennt og svo fyrir mælt, að það skuli metið i náms- einingum. Mat samkvæmt sllku einingakerfi skal staðfest af matsnefnd, sem menntamála- ráðuneyti skipar þannig að full- trúar komi frá Háskóla Islands og Kennaraháskólanum og loks þriðji nefndarmaðurinn frá ráðu- neytinu skipaður án tilnefningar. Kennarasamtökin hafa lagt á það áherzlu að eiga fulltrúa i nefndinni en eðlilegt þótt að þau væru fyrst og fremst samráðs- aðilar. I athugasemdum með frum- varpinu er þess getið, að tilgang- ur greinarinnar sé að stuðla að þvi, að allt kennaranám, hvort sem þaö fer fram á námskeiðum eða reglulegum skólum, verði metið á sama veg. 1 þessum I. kafla eru einnig ákvæði um það, að allir kennarar skuli ljúka lágmarksnámi i upp- eldis-og kennslufræðum óháð þvi skölastigi sem þeir ætla að kenna á. Er hér bæði átt við fræðilegt nám i nefndum greinum og svo hagnýtt atriði, sem snerta kennsluaðferðir og kennslutækni. Þá er i kaflanum ákvæði, það er i 3. grein, sem ætlað er að hvetja kennara til að afla sér aukinnar menntunar, m.a. að þvi er varðar nýjungar i námsefni og kennslu- aðferðum. En í þessari grein seg- ir, að kennarar, sem auka við menntun sina á einhvern hátt, fái þá viðbótarmenntun viður- kennda, ef fullnægt er tilteknum skilyrðum. I frumvarpinu ersvofyrirmælt að menntamálaráðuneytið eða fram þá kröfu að fóstrur skyldu aðeins starfa undir eftirliti kenn- ara. En hæpið er að binda slikt i lögum. 1III. kafla frumvarpsins er svo loks fjallað um framhaldsskóla- stigið. En til þess að verða skip- aður kennari i bókl. greinum við framhaldsskólastigið veröur umsækjandi að hafa lokið námi á háskólastigi er jafngildi tiltekn- um námseiningafjölda ásamt fullgildum prófum, og þar af skal tiltekinn f jöldi eininga vera nám I uppeldis- og kennslufræðum eða þá i sérgrein, ef um það er að ræða. I umsögnum frá Háskóla Is- lands og Félagi menntaskóla- alþingi ákvæði gildandi laga eru óljós i þessu efni. Þegar gengið var frá frumvarpinu i ráðuneytinu, þótti óeðlilegt að geta þessara skóla (eða námsbrauta) að engu, en jafnillt að setja inn einhver ákvæði sem væru óraunhæf. Varð þvi að ráði að kveða svo á að hlut- aðeigandi kennarar þyrftu að hafa lokið kennaraprófi sem menntamálaráðuneytið viðurkenndi (sjá 15. gr. f- og g-lið og 16. gr. e-lið). I raun er hér ekki um að ræða neina breytingu á þeim venjum og reglum sem mið- að hefur verið við þegar kennarar hafa verið ráðnir að þessum skól- um. Af þessum sökum þótti ekki brýn ástæða til að hafa samráð við hlutaðeigandi skóla. Vera má að siðar verði ástæða til að breyta þessum ákvæðum og kveða skýrar á um réttindi og menntun þessara kennara, t.d. ef aðstæður skipast til að mennta þá hérlendis. Allt er þetta ýtarlega rakið i frumvarpinu ^og fylgja allná- kvæmar útskyringar við hverja einstaka grein. Mun eg ekki rekja einstaka þætti nánar, en visa til frumvarpsins og athugasemd- anna sem þvi fylgja. Það gefur nokkra visbendingu Vilhjálmur Hjálmarsson: Heildarlöggj öf um embættis- gengi kennara — framsöguræöa menntamálaráöherra, örlitiö stytt ráðherra setji og skipi yfirkenn- ara og skólastóra við grunnskóla og framhaldsskóla alla. En igild- andi lögum eru þess dæmi, þó að ekki sé það almenn regla, að for- seti íslands skipi skólastjóra við framhaldsskóla. Félag mennta- skólakennara hefur gert athuga- semd við þetta. Virðist þó eðli- legt, að samræma þessi ákvæði og sama regla gildi um alla skóla i þessu efni. I þessum I. kafla frumvarpsins er að finna ákvæði þar sem bent er á nokkur þau atriði, sem miða skal við, þegar gert er upp á milli umsækjenda, og mælt er fyrir um það, að allir umsækjendur um stöðu, sem fullnægja þeim kröfum sem gerðar eru, komi til álita við veitingu. Haldið er þeim ákvæðum nú- gildandi laga, að starf sem skipað er kennara án fyllstu réttinda, skuli auglýsa árlega. Skilyrði fyrir kennara- skipun II. kafli laganna fjallar um grunnskólastigið og er þar kveðiö á um, hvað þurfi sérstaklega til að vera skipaður kennari við grunnskóla. Almenna skilyrðið er að sjálfsögöu það aö hafa lokið námi við Kennaraháskola Islands og svo fullgildum prófum þar og eins kennaranámi á háskólastigi ásamt fullgildum prófum, sem miöast við kennslu i grunnskóla. En auk þess eru ýmis önnur skilyrði, þegar um er að ræða kennslu við sérstakar stofnanir, t.d. stofnanir vegna afbrigðilegra barna, og til þess að kenna til- teknar greinar, handmennt, tón- mennt, iþróttir, o.fl. Skulu þau ákvæöi ekki rekin nánar hér. Þó vil ég geta þess, að sérstaklega er tekiö fram, að heimilt sé að ráða að forskóla fóstrur eða aöra starfsmenn með menntun, sem menntamálaráðuneytið viður- kennir. Akvæöið um fóstrur er sam- hljóða ákvæði i grunnskólalögum um sama efni. S.t.B. hefur sett Vilhjálmur Hjálmarsson. kennara var talið hæfilegt að miðaö við 150-180 einingar (5-6 ára nám i háskóla) i stað 120. Ef farið er að tillögum þessum er liklegt aðþaö stuöli að stéttarlegu misræmi innan skóla, t.d. fjöl- brautarskólanna, og er þá haft i huga hvaða menntunar aðrir kennarar en háskólanámskenn- arareigavöl. (Liklegterað atrið- ið valdi deilum). Siðan er I þessum kafia fjallað nánar um nauösynleg skilyrði til þess að öðlast stöðu við ýmsa sér- skóla á framhaldsskólastigi eins og tþróttakennaraskóla Islands og verkmennta og listaskóla, iðnskóla, skóla fyrir afbrigðilega eða þroskahefta nemendur o.sl.frv. Sérkennaranám erlend- is Nefndin skilaði ekki tillögum um menntun kennara við þessa skóla: Fósturskólann, Hjúkrun- arskólann, húsmæöraskólánn og Húsmæðrakennaraskóla Islands, en hún taldi sig ekki hafa forsend- ur til þess. Kennarar við þessa skóla hafa sótt menntun sina til annarra landa og er þar af leið- andi nokkur mismunur á menntun einstakra kennara, en um þörfina fyrir löggjöf af þvi tagi, sem þetta frumvarp fjallar um, að með þvi, ef að lögum verður, veröa felld úr gildi eigi færri en 16 tilgreind lög eða ein- stakar greinar úr lögum um ein- stakar skólastofnanir. Verður þvf stórum hagfelldara að vinna aö ráðningum kennara og skóla- stjóra eftir en áður. Kennarar án fullra rétt- inda geti aflað þeirra I ákvæði til bráðabirgða segir svo í 19. gr.: „Þeir sem viö gildistöku þess- ara laga hafa starfað sem settir kennarar viö skyldunámsskóla 6 ár eða lengur, en fullnægja ekki skilyrðum laganna til að hljóta skipun i stöðu, skulu eiga kost á að ljúka námi á vegum Kennara- háskóla tslands til að öölast slik réttindi. Um tilhögun námsins og mat á fyrri menntun og starfs- reynslu skal setja ákvæöi i reglu- gerð.” Þetta ákvæðivarðarhina marg- unmtöluðu réttindalausu kenn- ara. Samhljóða ákvæði er i frum- varpi til laga um Kennaraháskóla Islands. Þessari grein, 19. gr. fyigja svohíj'óöand'i athugasemd- ir: ,,A undanförnum árum hefur orðið að setja til kennarastarfa allmargt manna, sem ekki hafa full kennsluréttindi samkvæmt gildandi lögum og geta þvi ekki hlotið skipun I kennarastöður. I umræðum um þessi mál hefur verið bent á, að æskilegasta lausnin á vanda þessara kennara sé að greiða þeim leið til að afla sér fullra réttinda með viðbótar námi. I þessari grein er gert ráð fyrir sérstöku átaki við gildistöku laga um embættisgengi kennara á þann veg, að þeim sem þáhafa starfað sem settir kennarar við skyldunámsskola sex ár eða leng- ur, verði gefinn kostur á að ljúka á vegum Kennaraháskólans rétt- indanámi, er verði sérstaklega skipulagt i þvi skyni. Er þá haft i huga, að m.a. gæti orðið um að ræða sumarnámskeið og bréfa- skóla”. Ég vil benda á það sérstaklega, að hér muni i framkvæmd verða tekið ful.lt tillit til þess náms, sem þessir kennarar hafa stundað hvort sem heldur er við sókn á fasta skóla ellegar á námskeið- um, og að einnig verður tekið mikið tillit til starfsreynslu við- komandi kennara, sem margir hverjir hafa kennt um langa hrið. Þetta er nymæli. Tilsvarandi ákvæði hefur ekki verið að vinna i islenzkri löggjöf að þvi er ég bezt veit. Það hefur mikið verið rætt og ritaðum aðstöðu hinna svonefndu réttindalausu kennara, og er það að vonum. I mörgun tilvikum eru þetta menn, sem starfað hafa ár- um saman við ágætan orðstir og beinlinis bjargað við barna- og unglingafræðsiunni i sinum byggðarlögum. Um skeið var nokkuð rætt um það að hafa ákvæðii frumvarpinu um heimild til að skipa til starfa slika menn eftir að þeir höfðu kennt I tiltek- inn árafjölda, en horfið var frá þessu, enda er það almennur vilji kennara að auka við menntun sina og engin tregða á þvi að hjá hinum réttindalausu nema siður sé. En vert er að benda á það, að nám þeirra styttist verulega við langan starfstíma. Ég vil vekja sérstaka athygli á töfluyfir menntun starfandi kenn ara á yfirstandandi skólaári, en hún er prentuð i athugasemdum með þessu frumvarpi. I þessari skýrslu kemur glöggt fram, að starfandi eru margir kennarar án þessaðhafa full réttindi til þeirra starfa. Ég hef áður haldið þvi fram, að orsakir kennaraskorts- ins sé m.a. óánægja með launa- kjör, að kennaramenntun nýt- ist mjög vel til fleiri starfa en kennslu, almenn tregða fólks i sumum starfsgreinum að fara út á land, en kennarastöður eru ein- mitt mjög margar, þvi að stéttin er fjölmenn. Auk þess eru skólar úti á landi stundum styttri og laun þá lægri af þeim sökum og eykur það tregðu manna að taka störf að sér undir þeim kringumstæð- um. Enn tel ég, að ónógir mögu- leikar fyrir eldri kennara, rétt- indalausa, að afla sér viðbót- armenntunar og fullra réttinda valdi hér nokkru um og svo tima- bundin fækkun brautskráninga úr Kennaraháskóla tslands. Það er talið, að um þessar mundir sé aðeins um 55.5% starfandi af þeim kennurum, sem útskrifazt hafa siðustu 10 árin úr kennara- skóla, svo að margt kennara- menntað fólk er raunar til i land- inu. En það er skylt að geta þess jafnframt, að miklu hærra hlut- fall er i kennslu af siðustu ár- göngunum úr Kennaraháskólan- um. Þar er hlutfallið mjög hátt. Og einnig má i þessu sambandi minna á það, að aðsóknin að Kennaraháskólanum hefur vaxið gifurlega nú siðustu árin. Sérmenntaðir kennarar án fullra réttinda. Ég vil nota tækifæríð að benda á varöandi hæfni kennara án fullra réttinda, að liölega 9% eru sérmenntaðirf kennslugrein sinni en skortir próf i uppeldis- og kennslufræði. Sem dæmi,má nefna háskólapróf i tungumalum og fleiri greinum, próf frá tækni- skólum og iðnskólum, listaskól- um, verzlunarskólum og fleira. Ætla má, að þetta fólk sé allvel I stakk búið til aö kenna sin sér- stöku fög. Þess ber einnig að geta, að fullur helmingur þeirra 90 kennara, sem aðeins hafa lokið landsprófi eða gagnfræðaprófi, hefur kennt i fimm ár eða lengur og þar af 25 i meira en 10 ár. Reynsla þessara manna ásamt viðbótarfræðslu á námskeiðum, sem flestir þeirra hafa aflað sér, hjálpar auðvitað mikið til að gera þá hæfa til kennslustarfa. Mér fannst ástæða til að rifja þetta upp, þóíþetta er mikilsvert, þeg- ar rætt er um hæfni hinna rétt- indalausu. En markmiðið er auð- vitaö, aðallirkennarar hafi hlotið tilskilda menntun. Ég hef gerzt svo fjölorður um réttindalausu kennarana vegna þess hvað kennaraskorturinn hefur verið mikið i sviðsljósi aö undanförnu. Ég bið háttvirta Framhald á bls. 23

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.