Tíminn - 14.03.1978, Side 10
10
Þri&judagur 14 mars 1978.
Ræða Olafs °
Jóhannessonar
Tómas Árnason, gjaldkeri Framsóknarflokksins, flytur skýrslu sfna á
flokksþinginu.
Skýrsla
gjaldkera
með timabundnum ráðstöfunum
og varanlegri úrræðum, er hafi
það markmið að treysta grund-
völl atvinnuveganna og tryggja
afkomu- og atvinnuskilyrði allra
landsmanna.
Eins og ég hef áður gert grein
fyrirhafa nokkur byrjunarskref i
þá átt verið stigin af núverandi
rikisstjórn. Sumum hættir við að
gera litið úr þeim og deila á rikis-
stjórnina og stjórnarflokkana
fyrir aðgerðaleysi i þeim efnum.
Ég held, að það sé ekki réttmætt
aðlita það of smáum augum, sem
gert hefur verið og vafasamt i
ljósi staðreynda, að nægur vilji
hefði verið fyrir hendi til stærri
átaka.
En ég fyrir mitt leyti legg á það
áherzlu eins og ég hef áður gert,
að mál þessi verði að taka fastari
tökum hér eftir en hingað til. Ég
held að til þess ættu að vera skil-
yrði, þar sem verðbólgan nú er
runnin meir af innlendri rót en
áður. Ég tel nauðsynlegt að
stefna að meiri stöðugleika i
efnahagslifinu. Þvi marki verður
ekki náð með þvi að hafa alla
enda lausa ef svo má segja. Það
verður að hafa einn fastan enda
sem menn verða að taka mið af
viðefnahagsákvarðnir verðlag og
kjarasamninga.
Ég held að stöðugt gengi sé
undirstaða trausts efnahagslífs.
Vitaskuld getur orðið óhjákvæmi-
legt að beygja sig fyrir verð-
sveiflum á útflutningsmarkaði.
Ég skal aöeins nefna örfá atriði
sem ég held að verði að taka til
skoðunar.
Ég held að taka þurfi visitölu-
fyrirkomulagið til endurskoðun-
ar. Ég teldi sanngjarnast að
byggja á visitölu sem miðaðist
við þjóðartekjur. Þætti slik
breyting of róttæk væri æskilegt
að ná samkomulagi um nokkrar
lagfæringar á visitöluútreikningi
og visitölugrundvelli. Þegar tillit
er tekið til þess m.a., hve neyzlu-
venjur hafa breytzt er einkenni-
legt ef ekki er hægt að fá menn til
að fallast á eðlilegar lagfæringar.
Ég held að mjög þurfi að skoða þá
skipan sem gildir i Danmörku að
hvorki óbeinir skattar né niður-
greiðslur séu inni i visitölu.
Þá verður að leggja áherzlu á
hallalausan rikisbúskap. Það er
eitt af frumskilyrðunum fyrir þvi
að hægt sé að hemla verðbólgu.
Hafa verður stjórn á fram-
kvæmdum og fjárfestingum. Þar
verður að sniða sér stakk eftir
vexti.bæði hvað snertir f járhags-
getu og vinnuafl. Þar verður
nokkuð að draga saman frá þvi,
sem verið hefur, og ekki taka of
mikiðfyrir af stórframkvæmdum
i einu.
Það þarf að koma upp og
styrkja jöfnunarsjóði fyrir at-
vinnuvegina til að mæta sveiflum
i verðlagi eða öðrum áföllum. En
þeir jöfnunarsjóðir mega ekki að-
eins vera nafnið — ekki tómir
sjóðir, sem notaðir eru til sjón-
hverfinga. Það eiga að vera raun-
verulegir sjóðir sem greitt er I,
þegar vel gengur, og gripið er til,
þegar á móti blæs. Þvi aðeins
geta þeir þjónað tilgangi sinum.
Ég álít þá hugmynd sem sett er
fram i hinu viðamikla verðbólgu-
nefndaráliti um stofnun fastrar
samvinnunefndar stjórnvalda og
aðila vinnumarkaðarins undir
forsæti ráðherra góðra gjalda
verða og gagnlega. SU samvinnu-
nefnd má þó ekki vera svo fjöl-
menn að hún sé óstarfhæf. Það
þarf þvi að vanda vel til reglna
um skipun hennar og starfsháttu.
Það er ekkert fengið með þvi að
setja á fót málfundaklúbb. Þessa
hugmynd þarfþvivelað kanna og
gera samvinnunefndina þannig
úr garði að gagn veröi að henni en
ekki misheppnuð sýndar-
mennska.
f skattamálum verur að fram-
kvæma þær breytingar, sem þeg-
ar hafa verið ákveðnar. Jafn-
framt er þörf ýmkssa fleiri
breytinga.
Siðast en ekki sizt ber að leggja
áherzlu á aukna framleiðni og
framleiðslu og þá ekki hvaðsizt á
fullvinnslu og fjölbreyttari fram-
leiðslu. Við það markmiö verður
fyrst og fremst að miða opinber
fjárframlög og lánastefnu. Það er
grundvöllur bættra lifskjara.
Marga
málaflokka
um að fjalla
Ég hef hér á undan aðallega
fjallað um viðfangsefni, sem
varða efnahagsmál og eins og ég
hef þegar sagt er ekki að efa að
þeir málaþættir verða i brenni-
punkti á næstunni.
En hér hefði vitaskuld verið
ástæða til að nefna marga aðra
málaflokka, gera grein fyrir þvi
hvernig að þeim hefur verið unnið
á þessu kjörtimabili að hvaða
markmiðum þar skuli stefnt á
næstunni, á hvaða atriði skuli
lögðmest áherzla o.s.frv. Má sem
dæmi um slika málaflokka nefna
dómsmálin og umbætur á þvi
sviði^menningarmálin, félags-
málin, heilbrigðisþjónustuna og
úrbætur i' þeim efnum, sam-
göngumálin og siðast en ekki sizt
málefni hinna ýmsu atvinnuvega.
Þetta flokksþing mun fjalla um
þauog ýmis önnur, sem ekki voru
nefnd og gera um þau ályktanir.
En það er engin leið i inngangs-
orðum sem þessum að gera þeim
hverjuogeinu,nokkur viðhlitandi
skil. Það væri i bezta falli unnt að
vikja aðeins að þeim með örfáum
almennum orðum.
Það er þvi að minum dómi
heppilegra að um þau sé fjallað i
nefndum og umræðuhópum hér á
þinginu, og svo auðvitað i hinum
almennu umræðum hér á eftir, að
svo miklu leytisem þau kann þar
að bera á góma. í nefndum og
umræðuhópum verða ræddar og
undirbúnar ályktanir um þau efni
sem iögðverða fyrirflokksþingið.
Ég ætla þvi ekki að orðlengja um
þau frekar að sinni.
Ú rslit
kosninganna
mikilvæg
Eins og öllum er kunnugt fara
fram tvennar kosningar hér á
landi á sumri komanda — al-
þingiskosningar og sveitar-
stjórnarkosningar. Þarf ekki að
fjölyrða um hversu úrslit þeirra
geta orðið örlagarik fyrir þjóðina
i heild og einstök byggðarlög.
Ég veit að ekki þarf að eggja
þá, sem hér eru staddir, til að
leggja sig alla fram. Okkur er
sjálfsagt öllum jafnljóst hve
miklu skiptir fyrir Framsóknar-
flokkinn að ná góðum kosninga-
úrsiitum. Það varðar miklu að
hann fái þá lykilaðstöðu að fram
hjá honum veröi ekki gengið þeg-
ar til stjórna'rmyndunar kemur
að kosningum loknum. Stjórnar-
aðild veitir flokknum meiri
áhrifaaðstöðu en ella. Og Fram-
sóknarflokkurinn mun eigi frek-
ar en endranær skorast undan þvi
að axla þá ábyrgð er stjórnar-
þátttöku fylgir. Málefni munu
ráða þvi með hverjum hann vinn-
ur ef til kemur.
Arangur flokksins i komandi
kosningum er auðvitað fyrst og
fremst undir þvi kominn að
stefnuskrá hans höfði til kjósenda
— sú stefnuskrá sem þetta flokks-
þing semur. í öðru lagi hljóta
störf hans að verða vegin og met-
in. Um þau kveða kjósendur upp
sinn dóm. Þann dóm veit að visu
enginn fyrir fram, en ég held að
af ýmsum ástæðum getum við
verið bjartsýn. í þriðja lag ráöast
úrslitin mjög af þvi hversu
vandað er til máflutnings okkar i
málgögnum okkar og á málþing-
um. Siðast en ekki sizt er það
vinnan — sjálf kosningavinnan —
sem lagt getur lóðið á vogar-
skálina. Enginn má liggja á liði
sinu. Enginn má láta neitt tæki-
færi ónotað.
Ef við göngum til kosninganna
sameinuð full af áhuga og eld-
móði munum við engu þurfa að
kviða. I kosningaátökum verða
menn að þjappa sér saman og
leggja til hliðar minniháttar
ágreining sem alltaf getur komið
upp þó að innan sama flokks sé.
Ég treysti hverjum Framsóknar-
mannitú að gera sitt bezta i þeim
kosningum sem i hönd fara.
Islenzkt þjóðfélag hefur tekið
miklum stakkaskiptum á undan-
förnum árum og áratugum. Það
hefur verið i mikilli framför þrátt
fyrir ýmis vixlspor. 1 þjóðfélags-
framförunum eiga ýmsar félags-
málahreyfingar eins og t.d.
verkalýðshreyfing og samvinnu-
félög merkan þátt. En ég hygg þó
að umbóta- og framfarasinnuð
stjórnmálaöfl eigi hér drýgstan
hlut. — Já, stjórnmálaflokkar.
Mér finnst ástæða til að undir-
strika þá staðreynd einmitt nú,
þegar það er i tizku að kasta
steinum aðstjórnmálaflokkum og
kappkostað er af sumu fólki að
varpa rýrð á starfsemi þeirra. Ég
held að þeir sem það gera séu á
villigötum og geri sér naumast
grein fyrir þvi hvert óheillastarf
þeir geta unnið. Með þessum
orðum er ekki amazt við mál-
efnalegri gagnrýni á stjórnmála-
flokka eða stjórnmálamenn. Hún
er sjálfsögð og nauðsynleg.
Hér á landi munu lifskjör jafn-
ari og launamunur minni en við-
ast hvar annars staðar. Samt er
að minum dómi þörf meiri launa-
jöfnunar. islenzkt þjóðfélag er
ekki byggt upp af fáeinum stór-
eignamönnum. Það er ekki þjóð-
félag neinna stórkapitalista.
öreigar hér á landi eru sem betur
fer fáirnú átimum. Hérá landi er
ekki nein öreigasveit. Hinu skal
ekki neitað að hér séu láglauna-
menn.
Að langmestu ley-ti er islenzkt
þjóðfélag byggt upp af bjargálna
miðstéttarfólki. Það setur svip
sinn á islenzkt þjóðfélag og þjóð-
lif. Það er um þessa þjóðfélags-
mynd, sem Framsóknarflokkur-
inn vili standa vörð.
Nýtt blað í
Skagafirði
AF-Mælifelli 13/3. Fyrir nokkru
hóf göngu sina nýtt blað i Skaga-
firði. Heitir það Vettvangur og er
blað frjálsra skoðanaskipta. Hafa
ýmsir ritað um hin ólikustuefni i
þau þrjútölublöð sem út eru kom-
in. Gert er ráð fyrir að Vettvang-
ur komi út á þriggja vikna fresti
fyrst um sinn.
Ritstjóri blaðsins er Hreinn
Sigurðsson prentari og er blaðið
prentað i Myndprenti á Sauðár-
króki. Ekkert annað blað kemur
út i Skagafirði.
Vaknið
og
syngið
Gv —A laugardagskvöldið frum-
sýndi Leikfélag Kópavogs leikrit
Clifford Odets, Vaknið og syngið i
þýðingu Asgeirs Hjartarsonar,
undir leikstjórn Hauks Jóns
Gunnarssonar. önnur sýning
sjónleiksins verður i kvöld.
Leikurinn gerist á heimili
Berger f jölskyldunnar i
Bronx-hverfi i New York. í leik-
ritinu er skýrt frá lif i og örlögum
þessarar innflytjendafjölskyldu, i
þvi umhverfi sem höfundurinn
þekkti hvað gerst i æsku. Haukur
Jón Gunnarsson leikhúsfræöingur
leikstýrir verkinu, og með helztu
hlutverk fara Guðbrandur Valdi-
marsson, Guðriður Guöbjörns-
dóttir, Leifur Ivarsson, Svanhild-
ur Jóhannesdóttir og Viðar Egg-
ertsson.
VERÐLAUNAGRIPIR
OG FÉLAGSMERKI
Framleiðí alls lconar verðlaunagripi og
félagsmerki. Hefi ávallf fyrirliggjandi ýmsar
stærðir verðlaunabikara og verðlauna-
perringa einnig sfyttur fyrir flestar
greinar íþrótta.
Leitið upplýsinga.
Magnús E. Baldvinsson
Laugavegi 8 - Reykjavík - Sími 22804
Tómas Arnason, gjaldkeri
Framsóknarflokksins, gerði i
skýrslu sinni grein fyrir fjármál-
um flokksins og þeim fram-
kvæmdum sem hann hefur staðið
fyrir frá þvi að siðasta flokks-
þingi Framsóknarmanna lauk.
Gerði hann grein fyrir tekjum og
gjöldum flokksins á timabilinu,
skuldum hans og eignum eins og
þær eru nú, og þeim viðfangsefn-
um sem nú er unnið að og eru
framundan.
1 skýrslunni rakti Tómas enn-
fremur fjármál húsbyggingar-
sjóðs Framsóknarflokksins, en
hann á og rekur sem kunnugt er
húseignina að Rauðarárstig 18 i
Reykjavik. Þar eru skrifstofur
Framsóknarflokksins, en enn-
fremur er i húsakynnunum rekið
gistihúsið Hótel Hekla.
Tómas gerði grein fyrir starf-
semi Happdrættis Framsókngr-
flokksins siðustu ár og lýsti reikn-
ingum Timans fyrir siðastliðið ár.
Sinfóniuh/jómsveit Is/ands
Óperutónleikar
i Háskólabiói fimmtudaginn 16. marz kl.
20.30
Stjórnandi WILHELM BRUCKNER-
RUGGEBERG
Einsöngvarar ASTRID SCHIRMER,
sópran
HERIBERT STEINBACH tenór
ásamt KARLAKÓR REYKJAVÍKUR
Flutt verða óperuverk eftir BEETHOVEN og WAGNER
Tónleikarnir verða endurteknir laugardag
18. marz kl. 15.00.
Aðgöngumiðar að báðum tónleikum i bókabúð Lárusar
Blöndal og Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar. Hækkaö
verð.
Til Askrifenda: Athugið dagsetningu áskriftartónleik-
anna, sem er 16. marzen ekki 15. marz eins og stendur i
tónleikaskrá.
Rafvörur og verkfæri
Byggingavörur
S*SAMV1RKI
VERZLUN
Þverholti í Mosfellssveit Sími 6-66-90