Tíminn - 14.03.1978, Side 14

Tíminn - 14.03.1978, Side 14
14 Þriðjudagur 14. marz 1978. Spur’s áttu í basli —með Charlton, en Bolton vann góöan sigur Tottcnham og Bolton unnu bæði sina leiki um helgina og halda þvi enn öruggri forystu. Tottenham átti i talsverðu basli með Charlton á White Hart Lane, það var Charlton sem haföi 1-0 forystu i hálfleik með marki frá Robinson, sem er fyrrum lcikmaður Tottenham. t upphafi seinni hálfleiks var dæmd vitaspyrna á Charlton, en Wood i markinu gerði sér lítið fyrir og varði spyrnu Pratts. Skömmu siðar var aftur dæmd vitaspyrna á Charlton, og nú tókst Hoddle að skora. Pratt skoraði svo sigurmarkið fyrir Spurs er nokkrar minútur voru til leiksloka. Bolton vann góðan sigur yfir Mansfield á útivelli, með marki sem bakvörðurinn Ritsonskor- aði i seinni hálfleik. Southamp- ton vann 2-0 sigur yfir Crystal Palace með mörkum sem vara- maðurinn Tony Funnellskoraði. Blackburn tapaði óvænt á heimavelli fyrir Bristol Rovers og gerði hinn ungi en mjög efni- legi Randall markið. Potts og Sayerskoruðu fyrir Brighton á móti Stoke.en Richardsonsvar- aði fyrir Stoke. Burnley vann öruggan sigur yfir Sheffield Utd, Cochrane skoraði tvivegis fyrir Burnley, en þeir Noble og Inghamskoruðu eittmark hvor. Mark Sheffield United gerði' Stainrod. Ó.O. Enska knattspyrnan Forest fékk skell á The Hawthorns — þar sem W.B.A. reyndist vera allt of erfið hindrun og sigraði örugglega 2:0 A laugardaginn beindist athygli manna i Englandi að bikarkeppn- inni, en þá fóru fram lcikir i átta liða úrslitum enska bikarins. Tveir leikir voru sérstaklega I sviðsljósinu, cn það voru leikir WBA — Nottingham og Wrexhain — Arsenal. Lið Nottingham átti ennþá möguleika á að vinna alla bikara, sem keppt er um i Eng- landi, deild, bikar og deildarbik- ar, en liö WBA á The Hawthorns I West Bromwich reyndist vera allt of erfið hindrun. Nottingham átti i raun og veru aldrei möguleika á móti ákveðnu WBA liði, og verða nú að láta sér nægja sigurmögu- leika i deild og deildabikar. Úr- slitaleikurinn i deildarbikarnum er annars um næstu helgi á Wem- bley og andstæðingur Nottingham er hið keppnisreynda lið Liver- pool. Lið WBA mætti greinilega til leiks með þvi hugarfari að aðeins sigur kæmi til greina. Sóknarlot- urnar buldu á vörn Nottingham, en hún stóðst allar atlögur þar til um miðjan fyrri hálfl., er WBA fékk frispark á miðjum vallar- helmingi Nottingham. Statham lyfti háum bolta inn i vitateiginn, og þar var Mick Martin til staðar og skoraði hann með lúmsku vippuskoti yfir Shilton i markinu. Það sem eftir var til hálfl. sótti Forest mjög, en þeim tókst ekki að jafna metin, þó að þeir hafi oft fengið góð tækifæri til þess. Strax i upphafi seinni hálfleiks kom svo Höfum fyrirliggjcmdi Farangursgrindur og bindingar ó allar stœrðir fólksbíla, Broncojeppa og fleiri bíla. Einnig skíðaboga Bílavörubúðin FjöÓrin h.f. Skeifan 2, simi 82944. annað mark WBA og skoraði það Cyrille Regiseftir að hafa hlaupið vörn Nottingham af sér. En leik- menn Nottingham gáfust ekki upp og sóttu stift allan hálfleik- inn, en leiðin i mark WBA var tor- fundin, og varð Nottingham að láta i minni pokann i þetta skipt- ið, fyrsta tap liðsins frá 19. nóvember var staðreynd. Leikur Wrexham og Arsenal á The Racecourse i Wrexham þótti einn af bezt leiknu bikarleikjum um þetta keppnistimabil. Arsenal hafði undirtökin i leiknum fram- an af, og eftir um hálftima leik skoraði MacDonald. Þannig var staðan i hálfleik, 1-0 Arsenal i vil. En leikmenn Wrexham mættu ákveðnir til leiks i seinni hálfleik og fyrr en varði hafði Dixie McNeiljafnað metin. En Arsenal svaraði fljótt og vel fyrir sig, tvö mörk á tiu minútum frá þeim Sunderland og Youngkomu stöð- unni i 3-1 Arsenal i vil. Eftir þetta jókst sókn Wrexham og þegar um tiu minútur voru til leiksloka minnkaði Whittle muninn i 2-3. Siðustu tiu minúturnar voru afar spennandi, en Arsenal tókst að halda sinu og komast i undanúr- slit. Til mikilla óláta kom hjá áhorf- endum i leik Millwall og Ipswich á The Den i London, og varð dóm- arinn að stöðva leikinn i kortér og taka leikmennina af velli meðan lögreglan var að koma ró á mannskapinn. Leikur þessi var jafn framan af.en eftir um 25 min- útna leik skoraði George Burley fyrir Ipswich. Þetta mark skildi liðin að þar til um miðjan seinni hálfleik, en leikreynsla fyrsta deildarliðsins fór að segja til sin. Aður en varði hafði Ipswich bætt PAUL MARINER... skoraði ,,Hat-trick” fyrir Ipswich. við fimm mörkum, þrjú skoruð af Mariner, en eitt hvor gerðu þeir Wark og Talbot. Mark Millwall gerði Mehmet. Þessi leikur gæti orðið liði Millwall dýrkeyptur, þar sem búast má við að liðinu verði refsað harðlega vegna framkomu áhorfenda. Þá er eftir að geta um leik fyrstu deildarliðsins Middles- brough við Orient úr annarri deild á Ayresome Park i Middles- brough. ,,Boro” komst ekkert áliðis gegn ellefu manna vörn Lúndúnaliðsins, og verða liðin þvi að reyna að nýju með sér á Bris- bane Road i London i kvöld. Ó.O. Everton notfærði sér frídag City — og skauzt upp i annað saétið i I. deild með góðum útisigri yfir Bristol City Everton notfærði sér fridag Manchester City I deildinni til að skjótast 1 annað sætið eftir góðan útisigur yfir BristolCity. Everton er nú fjórum stigum á eftir liði Nottingham, en Nottingham á tvo leiki til góða. Mark Everton á laugardaginn á móti Bristol City gerði Trevor Ross i fyrri hálfleik. Liverpool og Leeds spiluðu hörkuleik á Anfield i Liverpool. Leikmenn beggja liða áttu góð tækifæri til að gera út um leikinn fyrir lið sitt, en markverðir sýndu markvörzlu á heimsmælikvaröa. Það var Skotinn Kenny Dalglish sem skoraði sigurmark Liver- pool, er nokkuð var liðið á siðari hálfleik. West Hamog Wolves léku sam- au á Upton Park i London, i leik þar sem harkan sat i fyrirrúmi i seinni hálfleik. Þá var þeim De- rek Hales úr liði West Ham og Derek Parkin úr liði Úlfanna vis- að af leikvelli. 1 upphafi seinni Enska knattspyrnan hálfleiks náði Wolves tveggja marka forystu eftir markalausan fyrri hálfleik. Mörkin gerðu þeir Carrog Rafferty. Hales minnkaði muninn fýrir West Ham er um korter var til leiksloka, en var vikið af leikvelli skömmu siðar. Coventry átti i miklum erfið- leikum með lið Leicester á Hig- field Road i Coventry, en tókst þó að skora eitt mark i fyrri hálfleik leiksins. Var þar Nardiello að verki og gaf þetta mark hans Coventry bæði stigin. Norwich vann sinn fyrsta sigur frá þvi 26. desember er liðiö vann sigur á Aston Villa á Carrow Road 2-1. Mörk Norwich i leikn- um gerðu þeir Reevesog ryan, en Gregory skoraði eina mark Aston Villa. Newcastle náði jafntefli á móti Manchester United, þegar Burns skoraði úr vitaspyrnu er fimm minútur voru til leiksloka. Aöur hafði McGeefært Newcastle for- ystuna I leiknum, en mörk frá þeim Joe Jordan.hans fyrsta fyr- ir United, og Gordon Hill færðu Manchester United 2-1 forystu i hálfleik. í seinni hálfleik var svo aðeins skorað eitt mark, Burnsúr viti, þannig að lokastaðan varð 2-2. Derby og Chelsea gerðu 1-1 jafntefli á The Baseball Ground i Derby. Peter Daniel gerði mark Derby, en Clive Walker skoraði fyrir Chelsea. . ó.O. Úrslitin i Englandi á laugar- daginn urðu þessi: Bikarkeppnin, 6. umferð Middlesbrough —Orient. 0-0 Millwall — Ipswich 1-6 WBA —Nott.For 2-0 Wrexham — Arsenal 2-3 1. deild BristolC. —Everton 0-1 Coven tr y — L eicester .... 1-0 Liverpool — Leeds 1-0 Newcastle —Man. Utd. .. 2-2 Norwich — Aston Villa ... 2-1 West Ham —Wolves 1-2 Derby — Chelsea 1-1 2. deild Blackburn —BristolR .... .... 0-1 Blackpool —Hull .... 3-0 Brighton —Stoke ... .2-1 Bur nley — Sheff. Utd .... 4-1 Mansfield —Bolton .. ..0-1 Notts. — Oldham .... 0-1 Southampton — C. Palace. .... 2-0 Tottenham — Charlton.... .... 2-1 ‘ Fulham —Luton .... 1-0 Senn fer að snjóa Enginn þarf lengur að skriða undir bilinn, tjakka hann upp eða færa úr stað til þess að koma á keðjum ,,Snjógríp er lausnin" Eitt handtak, síðan ekur þú brosandi af stað, án átaka og erfiðis Bílavörubúðin Fjöðrin h.f. Skeifan 2, simi 82944.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.