Tíminn - 14.03.1978, Qupperneq 18

Tíminn - 14.03.1978, Qupperneq 18
18 Þri&judagur 14. marz 1978. Andrés Kristjánsson skrifar um ræður og ritgerðir Eysteins Jónssonar Orð sem koma erindi sínu til skila Ræður.ritger&ir og blaðagrein- ar orðskörunga eru ekki mjög tið bókarefni hér á landi, og mun kveða minna að sliku en i mörg- um nágrannalöndum. Ef til vill er ekki um það að sakast.þvi aö það er mála sannast að oft ráða vali i slikar útgáfur aðrar ástæður en strangt gildismat og erindi við samtiðina til fróðleiks, skemmt- unar og menntunar. Oft mun það lika svo aö þeir menn sem best eru vfgir með orðsins brandi og mestur lærdómur er að i þeirri iþróttog lýsa bezt inn i málefna- baráttu daganna séu manna tóm látastir um að safna orðræöum sinum i bækur.og ásókn útgefenda og annarra sem vita hver fengur þetta er, ekki nógu harðfylgið til þess að sigrast á þessu tregðulög- máli. Málefni þjóðarinnar.framvinda og félagslegar umbætur, eiga sér raunar tvenns konar sögu. Saga þess, sem fram hefur náð að ganga er stundum myndarlega sögð við fimmtiu ára áfanga eða svo og þá miðað við birtingardag þeirra i' þjóöfélagskerfinu. En oft fer þá minna fyrir forsögunni, baráttunni fyrir málefninu, fóstursögunni og fæðingarhriðun- um,en sú saga er lýðfrjálsri þjóö liklega mikilvægasta veganesti og lærdómsefni og hún veröur varla sögð betur eða með árangursrikari hætti en oröum þeirra s jálfraysem i eldinum stóöu og háðu hugsjónabaráttu sina og samfylkismanna sinna, nótt og nýtan dag,langa ævi. A siðustu áratugum hefur mér til að mynda oft orðið hugsað til þess hve lærdómsrik innsýn það gæti orðiö i' málefnasókn félags- hyggjumanna hér á landi siðustu hálfa öldina að fá 1 hendur sæmi- legt úrval úr ræðum,ritgerðum og blaðagreinum Eysteins Jónsson- ar fyrrverandi alþingismanns og ráðherra. Hins vegar taldi ég nokkurn vafa á þvi,að þaö mundi verða aö sinni og bar einkum tvennt til. Ég vissi aö þetta hafði oftveriðboriði mál viðEystein af samherjum hans og öðrum, en hann jafnan svarað þvi til aö það mundi vera vafasamt fyrirtæki og jafnvel ekki hættulaust. Og fjarri er þaö skapi hans að vilja gera meira úr þessu en aðrir glöggir menn telja efni til. Það lyftist þvl á mér brúnin þegar ég sá út komna myndar- lega bók hjá Almenna bókafélag- inu nefnda 1 sókn og vörnog hafði að geyma brot af ræðum og rit- geröum Eysteins Jónssonar. Og sú von mín staðfestist viö nánari skoðun að vel hefði til tekizt á flesta lund 1 umsjá hins gleggsta og smekkvlsasta manns, Jóns Helgasonar, ritstjóra. Það fer vart á milli mála að siðasta hálfa öldin er mesta og sto'rstigasta sóknarskeið félags- hyggju I islenzku þjóðlifi og að minu áliti hefur sú sókn fært okk- ur mikilvægasta skerf íslands- sögunnar til virkari samvinnu, mennilegri sambúðarhátta og samábyrgara mannfélags. Suma áfanga má ef til vill telja sjálf- virka framvindu timans, sem hefði átt sér stað, þótt allir heföu sofið en meira og fleira er hitt, sem er árangur hugsjónabaráttu, og ber fyrst og fremst að þakka brjóstvikingum félagshyggjunn- ar. Hvern þar ber hæst er vand- séð eftir liöinn daginn,en I minum huga stendur þar fár eða enginn framar Eysteini Jónssyni. Hann var hægri hönd sterkustu leiðtoga i fyrstu atlögu félags- hyggjumanna þegar þeir brutust fram að áliðnum þriöja tugi aldarinnar og þegar á eftir var hann valinn til forystu I fylkingarbrjóst og barðist þar i nærfellt hálfa öld sem þing- maður, f lokksforingi og sam- vinnuleiðtogi og sem ráðherra lengur en nokkur annar ts- lendingur til þessa. Siðustu árin hefur hann helgað sig félags- hyggju landverndarinnar og sambúðarhátta þjóöarinnar við landiö. Á þessu langa baráttuskeiði hefur Eysteinn Jónsson haldið ræðureða ritaö greinar um lang- flest meginmál þjóðlegrar félags- hyggju hérá landi,þegar þau voru á baráttustigi eða skotiö skildi fyrir félagshyggjusjónarmiðin þegar þau áttu i vök aö ver jast I umræðu dagsins. 1 þessari sókn og vörn hefur hann I senn túlkaö eigin sjónarmið og flokksálit samherja. Ekki fór þvi milli mála að vildi menn draga saman i bók heimildir um baráttuna fyrir samábyrgri og þjóðlegri félags- hyggju á vettvangi þjóðmála á mesta sóknarskeiði hennar i sögu þjóðarinnar, þessa siðustu hálfa öld,var vænlegra að leita til Ey- steins Jónssonar en annarra manna. Það hefur nú verið gert með bókinni t sókn og vörnog þvl er hún feginsfengur,sem ætti að geta orðiö nýrri baráttukynslóð góður reynsluskóli og gull i lófa. Jón Helgason ritar skilgóðan yfirlitsformála um Eystein. Siðan er ræðuköflunum og greinunum skipað i sextán kafla eftir efnis- þáttum en ekki aldri og er það ko st ur, þa r s em h eilda rviðho rf og samfeldni þess kemur glöggt i Ijós. Hins vegar má vera að mönnum finnist á stöku stað sem um endurtekningar sé að ræða, af þvi að menn gæta þess ekki sem skyldi að langt timabil er á milli hliðstæðra greina um svipað eða sama efni og ræöumaður rifjar.að einhverju leyti, eða endurtekur með svipuöum hætti fyrir rök. Þetta er ofur eðlilegt og oftast nauðsynlegt I umræðu.og þetta stingur engan fyrr en slíkar ræöur,haldnar með löngu millibili stiga yfir árin og gerast sam- býlingar á sömu bókarörkinni. Fyrsti kaflinn fjallar um lýðveldisstofnunina og stjórnar- skrána,annar um fullveldiö. Siöan koma kaflar um utanrikismál, landhelgismál,alþingi,fjármál og efnahagsmál ,fyrir og eftir strið, striðsgróðann og stóriðjuna i höndum erlendra manna. Þá er kafli um „hina leiðina” en nafn- gift þeirrar stefnuboðunar er gott dæmi um það,hve Eysteini var lagið aö hitta beint i mark á liðandi stund með einföldum og vafningalausum hætti. Loks eru kaflar með ræðum og greinum um Framsóknarflokkinn og stefnu hans, hringveginn, um- hverfismál og náttúruvernd,sam- vinnuhreyfinguna og svo greinar um menn og ýmis málefni. Jón Helgason fylgir hverjum kafla úrhlaði með stuttri leiðsögn um hlut Eysteins að viðkomandi málum og stuttum skýringum um þætti þá,sem birtir eru og hverj- um þeirra fylgir dagsetning og birtingarstaður. Allt er þetta til góðrar glöggvunar,ef menn vilja skyggnast I fyllri gerð. Segja má að viðhorf félags- hyggjumannsins sé allsráöandi á svo að segja hverri einustu blað- siðu bókar. Þegar þaö hefur ekki beinlinis öll tögl og hagldir,sem oftast er, má alls staöar finna þennan undirstraum. Aðalsmerki á ræðum og grein- um Eysteins er skýrleiki, sem birtist i' leit að kjarnanum. Hann forðast umfram allt langsóttar skýringar eða upphafnar liking- ^r. Hann leitar sifellt að ljósum orðum með skýra merkingu I eyr- um hvers venjulegs manns. Oft teksthonum með þessum,hættitil að mynda,I umfjöllun efnahags- mála að birta mönnum kjarna flókins máls með einföldum orðum og beinskeyttum setning- um án allra vafninga og fræði- oröa.sem eru ær og kýr ábúöar- mikilla fræðinga. Eysteinn Jónsson var harö- skeyttur i sókn og vörn, eins og samherjar hans gátu bezt á kosið, og þeir voru oftast sammála um, að hverju máli væri bezt borgiö 1 höndum hans, þegar mest reyndi á 1 baráttunni. Má þaö raunar kynlegt og óvenjulegt kalla um mann, sem 1 menntun og starfi helgaði sig fyrst og fremst efna- hagsmálum og hagfræði, og varð siðan á háskeiði ævinnar að glíma á þingi og i ráðherrastóli viö ær- inn þjóðarvanda jafnt i hörðustu kreppu sem hættulegu fjár- streymi. Ýmsum mundi hafa far- ið svo að lykjast inni i þessum hringogverða tæplega vigfær ut- an hans. En það var öðru nær um Eystein Jónsson, svo sem þetta ræðusafn ber ljóst vitni. Ahuga- mál hans og yfirsýn eru ótrúlega viðfeðm, og hygg ég, að bókin sanni það glöggt, enda virðist val- ið gert öðrum þræði til þess að leiða þetta i ljós. Hin margþættu efnisföng bókarinnar sýna vel, að það voru ekki aðeins þjóðmálin i þrengsta skilningi, þingmálin, sem knúðu hann orða, heldur hvers konar hræringar i þjóðlifinu aðrar, sem höfðuðu til félagshyggju hans eða stugguðu við henni. 1 bókinni birt- ist skemmtilegt og skýrt svar við spurningunni: „hvernig verða menn bezt búnir undir þing- mennsku”. Þar sést vel hverjar kröfur hann gerir til sjálfs sin og annarra i viðleitni til þessarar þjónustu, og maður getur vart varizt þeirri hugsun, að lýsingin eigibýsnavel við hann sjálfan, og hann hafi ekki vikið sér undan þeirri þjálfun, sem hann telur þingmönnum nauðsynlega. Þar segir m.a.: „Lifsnauðsyn er þeim, sem þjóðmálum vilja sinna, hvað þá þingmennsku, að taka öflugan þátt i' félagsstarfi ýmiss konar og flokksstarfi og þjálfa sig vel i þeim efnum. Tileinka sér ræki- lega lýðræðislega starfsháttu, temja sig i meðferð mála i sam- starfi við aðra menn. Læra að taka sigrum og ósigrumogæðrast ekki við ósigra. Læra að taka tillit til annarra, æfa sig i þvi að efna til málamiðlunar, þegar nauðsyn krefur, og berjast af þrautseigju Eysteinn Jónsson.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.