Tíminn - 14.03.1978, Side 24

Tíminn - 14.03.1978, Side 24
--- " * 9kuhm ÞriAjudagur 14. marz 1978. I 3» 18-300 Auglýsingadeild Tímans. Ökukennsla Greiðslukjör Gunnar Jónasson Sími 40-694 HU TRÉSMIDJAN MEIDUR SÍÐUMÚLA 30 - SÍMI: 86822 Nýtt lagafrumvarp um stjórnmálaflokka — samið af milliþinganefnd sem nú hefur lokið störfum KEJ— Milliþinganefnd, kosin af Alþingi i mai 1976 til að undirbúa frumvarp tillaga um réttindi og skyldu stjórnmálaflokka hefur nú lokið störfum og orðið sammála um frumvarp til laga i 9 greinum. 1 nefnd þessari áttu sæti 7 menn, þar af 5 alþingismenn. Formaður nefndarinnar var Ell- ert B. Schram, en aðrir Benedikt Gröndal, Ingvar Gislason, Kristján Benediktsson, Magnús Torfi Ólafsson, Ragnar Arnalds og Sigurður Hafstein. Hefur nefndin haldið fjölmarga fundi, aflað upplýsinga um lagareglur um stjórnmálaflokka erlendis, og hefur i henni verið fjallað um flest þau mál sem snerta lög og starf- semi stjórnmálaflokka. Frumvarpi milliþinganefndar verður siðar gert skil i þingfrétt- um Timans, en hér aðeins tilfærð lokaorð greinargerðar sem fylgir frumvarpi nefndarinnar: „Frumvarp það, sem hér er lagt fram og kynnt, ber þetta meginsjónarmið með sér”. (Þ.e. að hafa lögin sem stytzt, setja ramma um starfsemi stjórn- málaflokka, réttindi þeirra og skyldur, en forðast ýtarlega lög- gjöf). „Þar er kveðið á um þau grundvallarréttindi manna að stofna stjórnmálaflokk, að þeir skuli opnir öllum, sem starfa með lýðræðislegum hætti og að i lögum hvers flokks séu ákvæði um stöðu meðlima, réttindi þeirra og skyldur, valdsvið og stjórnskipan. Hverjum flokki fyr- ir sig er látið eftir að ákveða þess- ar reglur innan þess ramma, sem lögin setja. Sett eru skilyrði um að flokkar skuli skráðir og hvaða lágmarks- kröfum þurfi að fullnægja til að flokkur sé fyrir hendi. Nöfn flokka eru vernduð og reikningar stjórnmálaflokkanna skulu send- ir ráðuneyti og látnir i té þeim sem þess óska. Þá er ákvæði um úthlutun styrkja, ef Alþingi ákveður að veita fé til flokkanna i fjárlögum, sbr. það sem áður getur. Að lokum er ákvæði um viður- lög ef flokkar verða uppvisir að óleyfilegum ‘kosningaáróðri eða kosningasp jöllum. ’ ’ Nýr fræðslu- fulltrúi SÍS GV — Nýlega var Guðmundur Guðmundsson félagsfræðikennari Samvinnuskólans að Bifröst i Borgarfirði ráðinn fræðslu- og fé lagsmálafulltrúi Sambands is- lenzkra samvinnufélaga, og felst starf hans m.a. i þvi að hafa yfir- umsjón með fræðslu i kaupfélög- unum um samvinnumál og fé- lagsmálastarfi innan kaupfélag- anna. Guðmundur Guðmundsson er fæddur i Vorsabæjarhjáleigu i Gaulverjabæjarhreppi 3. júni 1945, sonur Guðmunds Guð- mundssonar bónda og Annýjar Guðjónsdóttur ljósmóður. Hann útskrifaðist úr Kennaraskóla Is- lands árið 1973 og úr Fritids lederudbildning Göteborgsfolk- högskola i Sviþjóð árið 1977. Guðmundur var framkvæmda- stjóri innan ungmennafélags- hreyfingarinnar i um 6 ár, t.d. hjá Ungmennasambandi Kjalarness, Héraðssambandi Snæfellsness- og Hnappadalssýslu og Héraðs- sambandinu Skarphéðinn. A ár- unum 1973-1975 kenndi Guðmund- ur við barnaskólann á Selfossi en hóf kennslu að Bifröst i septem- ber 1977 og kennir þar félags- fræði. ísaf jörður og nágrenni: Batt reiðskjót ann við hurðar- hun og.. — gífurleg ölvun ESE — Gifurlega mikil ölvun var á tsafirði um siðustu helgi og hafði lögreglan i mörgu að snúast. A föstudagskvöldið voru haldnir tveir dansleikir, en eftir þá voru 3 menn teknir grunaðir um ölvun við akstur. Sá fyrsti sem tekinn var, náðist ekki fyrr en eftir mikinn eltingarleik eftir Hnifsdalsvegi og um Isafjörð sjálfan, og lauk eltingarleiknum með þvi að hann keyrði á hús- vegg i bænum, en maðurinn mun hafa slasazt furðulega litið. Stuttu eftir þetta var annar öku- maður gripinn og reyndist hann ölvaður, sem og sá fyrri. Siðan var það undir morgun að til- kynnt var um bil sem farið hafði út af Hnifsdalsvegi. Lögreglan brá skjótt við og fór á staðinn. Er komið var að bilnum, sem hékk á snjóhengju utan i vegin- um, varökumaðureinn i bilnum og reyndist hann ofurölvi, sem og hinir tveir, sem teknir voru um helgina fyrr um nóttina. Að sögn lög- reglunnar mátti litlu muna að illa færi i siðasta tilvikinu og varð að hafa hraðar hendur við að bjarga bilnum, sem var nýr Volvo, upp á veginn aftur, þvi að svo hratt þiðnaði snjórinn i þið- unni undan bilnum, að minnstu munaði að hann hafnaði niðri i fjöru. Fangageymslur lögreglunnar voru að sjálfsögðu fullar að- faranótt laugardagsins, og má segja að þær hafi verið tvisetn- ar. Á laugardagskvöld var svo mun rólegra i bænum að þvi undanskildu að 15 rúður voru brotnar i litlu samkomuhúsi, þar sem aðkomufólk hafðist við i mesta grandaleysi. Það var svo ekki fyrr en á að- faranótt mánudags, að lögregl- an á Isaíirði þurfti að bregða skjótt við. Laust upp úr mið- nætti hafði lögreglan á Flateyri Framhald á bls. 23 Erum reiðubúnir til viðræðna JB— Viöræöufundur 10 manna nefndar ASÍ og fulltrúa Vinnu- veitendasambands íslands og Vinnumálasambands samvinnu- félaganna hófst um kl. 14 i gær og stóð á þriðja tima. A fundinum lýstu vinnuveitendur sig reiðu- búna til viðræðna um allar hugs- anlegar leiðir til að auka kaup- mátt launa og draga úr verðbólgu að þvi tilskyldu að þær væru jafn- framt til þess fallnar að styrkja stöðu atvinnuvega og draga úr hættu á atvinnuleysi. I yfirlýsingu sem fulltriiar vinnu- veitenda lögðu fram segir m.a.: „Efnahagsráðstöfunum stjórn- valda að undanförnu var ætlað að reynaað koma i veg fyrir stöðvun atvinnuvega og atvinnuleysi. Auk þess er það allra hagur að reynt sé að draga úr verðbolgunni. Astand atvinnuveganna verður æ alvarlegra, sbr. nu síðast afla- brest á vetrarvertið og minni loðnuveiði og lakari nýtingu hennar en vonir stóöu til . Það er ekki fremur hagur launþega en atvinnurekenda aö knýja fram hærra kaup en atvinnuvegirnir standa undir. Vakin er athygli á þvi að þrátt fyrir ákvæði 1. nr. 3/1978 munu laun að meðaltali verða um 40% hærri 1978 en 1977. Viðræður þær, sem framundan eru milli aðila vinnumarkaðarins um kaupliöi kjarasamninga, verða þvi, að dómi vinnuveit- enda, að taka mið af þeim stað- reyndum.” Barði Friðriksson, formaður Vinnuveitendasambandsins, sagði i gær eftir fundinn, að hann áliti heldur til bóta að þessar við- ræður skyldu fara fram og á þeim grundvelli er þær voru. Fulltrúar vinnuveitenda og verkaiýðs mættir til leiks. VSÍ og VMSS: Tlmamynd Róbert. Nokkrir fulltrúar úr 10 manna nefnd ASt fyrir fundinn með vinnuveitendum i gærdag. . Tímamynd Róbert. ASI: Viljum halda þvi sem um var samið JB — Á fundinum með Vinnuveit- endasambandi íslands og Vinnu- málasambandi samvinnufelag- anna i gær, lagði 10 manna nefnd ASl fram kröfugerð sína vegna kjaraskerðingarlaga rikisstjórn- arinnar. t frétt ASt af fundinum segir: „1 upphafi fundarins mótmælti Snorri Jónsson varaforseti ASt útgefnum kaupskrám VSl og VMSS, þar sem slík kauptaxtaút- gáfa væribrot á samningum aðila vinnumarkaðarins frá 22. júni sl„ og ekki einu sinni i samræmi við skjaraskerðingarlögin. Þá var borin fram sú krafa, að launþegum yrði bætt sú kjara- skerðing sem þeir verða fyrir, vegna kjaraskerðingarlaganna, þannig, að kaupmáttur launa haldist óskertur, eins og um var samið milli aðila.” Bentufulltrúar ASlá, að i raun- inni væri ekki um að ræða eigin- legar samningaviðræður, heldur væri verið að reyna að tryggja launafólki þau kjör, sem um hafi verið samið í siðustu kjarasamn- ingum, þannig aö kaupmáttur sá er um var samið héldist óskertur. Næsti fundur meö fulltrúum ASl og vinnuveitendum hefur veriðákveðinn nk. fimmtudag kl. 14.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.