Tíminn - 15.03.1978, Side 4
4
Miövikudagur 15. marz 1978
Hin unga norska óperusöngkona
Rannveig Eckhoff.
Norsk óperu-
söngkonai
Norræna
húsinu
Norska sópransöngkon-
an Rannveig Eckhoff syngur sem
gestur Norræna hússins á mið-
vikudagskvöld 15. marz. Undir-
leikari verður Guðrún Kristins-
dóttir. Rannveig Eckhoff er að-
eins 29 ára gömul, en hefur þegar
skipað sér meðal beztu óperu-
söngkvenna Norðmanna. Hún
söng hlutverk Kátu ekkjunnar i
Stokkhólmi 1974, en sú sýning var
sýnd 275 sinnum fyrir fullu húsi.
Rannveig Eckhoff starfar nú við
óperuna i Mannheim i V.Þýzka-
landi. Hér mun hún syngja ann-
ars vegar norsk verk, og hins
vegar franska söngva, sem sjald-
an eru fluttir hérlendis.
Blindrakvöld - sunnudaginn
19. marz i Templarahöllinni
Sunnudaginn 19. marz heldur
Framtiðin, ein af stúkum
Islenzkra ungtemplara, blindra-
kvöld. Blindrakvöld af þessu tagi,
eru haldin einu sinni ár hvert og
hafa jafnan ágætir listamenn
skemmt gestum með framlagi
sinu til kvöldsins. I vetur
skemmtu alþingismennirnir,
Helgi Seljan, KarvelPálmason og
Viihjálmur Hjálmarsson mennta-
málaráðherra, við góðar undir-
tektir og nú horfir einnig vel við.,
þar sem Sigurður Björnsson
óperusöngvari og frú hans, það
glæsilega söngpar, mun með und-
irleik Carl Billichs, skemmta
gestum með söng sinum. Allir
þeir listamenn sem lagt hafa
kvöldum þessum lið sitt, hafa
gert það endurgjaldslaust og ein-
ungis til þess að gleðja sjálfa sig
með þvi aö gleðja aðra. Vegna
þess að Sigurður Björnsson og
frú, ásamt Carl Billich skemmta
gestum á umræddu kvöldi, þá er
vel við hæfi að láta fylgja með
visur, sem einn gesturinn, þar
sem þau skemmtu, kastaði fram :
Breiddist hugljúft bros á kinn,
bjarmi á skugga svarta,
Sigurður þvi söng þar inn
sól i hvers manns hjarta.
öll við vorum unað södd
af þeim hljóma krafti.
Undir frúar fögru rödd
fullir héldu kjafti.
Allir Billich hörpuhljómar
hrundu létt i' takt með þeim
þremenningalistin ljómar.
Lýsti okkur veginn heim.
Allir eru velkomnir á meðan
húsrúm leyfir, en skemmtunin er
haldin iTemplarahöllinni og hefst
hún kl. 20.00
Hljómsveit Templarahallar-
innar leikur fyrir dansinum.
Fjörmikill leikur
á fjölunum
AS!-Mælifelli 13.3. Leikfélag
Skagfirðinga hefur að undanförnu
sýnt sakamálagamanleikinn fr.ú
Alvis eftir Popplewell, bæöi i
Varmahlið og á nokkrum stöðum
öðrum ogmun i ráði að fara i leik-
för norður i Eyjafjörð á næstunni.
Hefur leiknum veriö vel tekið
og leikstjórn frú Ragnhildar
Steingrímsdótturog frammistaöa
leikenda rómuð. Með aðalhlut-
verk fara Guðrún Oddsdóttir frá
Flatartungu og Knútur ölafsson i
Varmahlíð, en þau eru bæði góð-
kunn leikhúsgestum i Skagafirði,
svo og sem þau hafa sýnt mikil
tilþrif og fjörugan leik. Með stór
hlutverk fara einnig með prýði
Kristján Sigurpálsson og Ey-
þór Arnason, sem sló i gegn á
siðastliðnum vetri i hlutverki
Litla Kláusar. Starfsemi Leikfé-
lags Skagfirðinga er hin blómleg-
asta og ávallt eitt til tvö verk sýnd
á hverjum vetri, en frú Alvis er
niunda viðfangsefni félagsins.
Eitt atriði úr Grátsöngvaranum.
„Grátsöngvarinn”
sunnan Skarðsheiðar
Leikflokkurinn sunnan Skarðs-
heiðar sýnir gamanleikritið Grát-
söngvarinn eftir Vernon Sylvine i
þýðingu Ragnars Jóhannessonar
fyrrverandi skólastjóra. Leikritið
er sett upp i hópvinnu. Frumsýn-
ing var 3. marz i félagsheimilinu
Heiðarborg Leirársveit. Fullt hús
áhorfenda var og sýningunni
mjög vel tekið. Næstu sýningar
verða á laugardag og sunnudag.
Sýningum verður haldið áfram
fram undir páska. Leikfélagið
telur 55 meðlimi, allt mjög
áhugasamt og ósérhlifið fólk.
Formaður er Brynja Kjerúlf.
Kynning á eldvarnartækjum
í Breiðholti
Timanum hefur borizt fréttatil-
kynning frá Junior Chamber þess
efnis að félagið sé um þessar
mundir að hefja kynningu og sölu
á eldvarnartæljum i Breiðholts-
hverfum. Astæðan fyrir þvi' að
félagið hefur ráðizt i þetta verk-
efni, er fyrst og fremst hinir tiðu
brunar, sem orðið hafa i hverfun-
um.
En að áliti félagsins er ekki ndg
að selja eldvarnartæki til aðila
sem kannski kunna ekki með þau
að fara, og þess vegna hefur
félagiðgengizt fyrir þvi að haldn-
ar verði eldvarnarsýningar og
kennsla í þvi hvernig eigi að
slökkva mismunandi elda.
Sýningar verða sem hér segir:
Fyrir Breiðholt I við Breiðholts-
skóla fimmtud. 16.3. kl. 20.00.
Fyrir Breiðholt III við Fellaskóla,
fimmtudaginn 30.3. kl. 20.00.
Fyrir Breiðholt II við Alaska,
fimmtudaginn 13.4. kl.
20.00.
með morgunkaffinu
— Þú hefur ckki aðeins kramið hjarta mitt og lagt
lif mitt i rúst þú hefur lika eyðilagt kvöldið fyrir
mér.
HVELL-GEIRI
I" ?kkrer H r Eg hef lengi óttazt
aft þaÖ félli i ykkar hlut) haida okkur sem
heppnast! \
Viö munum
finna leiö aftur
upp á yfir -
boröiö!
DREKI
SVALUR