Tíminn - 15.03.1978, Side 7
!11.! 11 !l‘11
Miövikudagur 15. marz 1978
Útgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Jón SigurOsson. Auglýsingastjóri: Stein-
grimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda-
stjórn og auglýsingar SÍOumúla 15. Simi 86300.
Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:.
86387. Verð i lausasölu kr. 90.00 Áskriftargjaid kr. 1700 á
mánuöi. ... . ...
Blaöaprent h.f.
Meginviðfangsefni
í ræðu þeirri, sem ólafur Jóhannesson, formaður
Framsóknarflokksins, flutti við setningu flokks-
þingsins á sunnudaginn var, drap hann á mörg þau
mál, sem efst eru á baugi. Um framtiðarviðfangs-
efni sagði hann meðal annars:
,,Eins og jafnan endranær verða þau viðfangsefni
þjóðfélagsins og þarfir fólks þar og hér, sem kalla á
úrlausn á næsta kjörtimabili váfalaust mörg og
margvisleg. Sum, sem þegar eru fyrirsjáanleg,
önnur, sem koma án þess að gera boð á undan sér.
Ég tel, að efnahagsmálin, og þá ekki hvað sizt
verðlagsþróunin og verðbólgan, hljóti að verða
meginviðfangsefni alþingis og rikisstjórnar, hver
svo sem hún verður á næsta kjörtimabili, svo og það
að tryggja rekstrargrundvöll atvinnuveganna. Ég
held, að á næstunni verði að leggja aðaláherzlu á
lausn þeirra mála, bæði með timabundnum ráð-
stöfunum og varanlegri úrræðum...”
Siðan vék hann að þeim byrjunarskrefum, sem
stigin hafa verið og sumir vilja gera litið úr, þótt
hann teldi ekki réttmætt að lita það of smáum aug-
um, er þegar hefur verið gert. Siðan hélt hann
áfram:
„En ég fyrir mitt leyti legg á það áherzlu, eins og
ég hef áður gert, að mál þessi verði tekin fastari
tökum hér eftir en hingað til. Ég held, að til þess
ættu að vera skilyrði, þar sem verðbólgan nú er
runnin meir af innlendri rót en áður. Ég tel nauð-
synlegt að stefna að meiri stöðugleika i efnahagslif-
inu. Þvi marki verður ekki náð með þvi að hafa alla
enda lausa, ef svo má segja....Ég held, að stöðugt
gengi sé undirstaða trausts efnahagslifs. Vitaskuld
getur orðið óhjákvæmilegt að beygja sig fyrir verð-
sveiflum á útflutningsmarkaði.”
Þessu næst vék hann að þvi, að sanngjarnast virt-
ist að byggja á visitölu, sem miðaðist við þjóðar-
tekjur. Þætti sú breyting of róttæk, væri æskilegt að
ná samkomulagi um nokkrar lagfæringar á visi-
töluútreikningi og visitölugrundvelli, enda ætti það
við þau rök að styðjast, að neyzluvenjur hafa stór-
lega breytzt. Taldi hann rétt að huga að þeirri skip-
an, sem gilti i Danmörku, þar sem hvorki óbeinir
skattar né niðurgreiðslur hafa áhrif á visitölu.
Siðan sagði hann:
,,Þá verður að leggja áherzlu á hallalausan rikis-
búskap. Það er eitt af frumskilyrðunum fyrir þvi,
að hægt sé að hemla verðbólgu. Hafa verður stjórn
á framkvæmdum og fjárfestingu. Þar verður að
sniða stakk eftir vexti, bæði hvað snertir fjárhags-
getu og vinnuafl. Þar verður að draga nokkuð sam-
an frá þvi, sem verið hefur, og ekki taka of mikið
fyrir af stórframkvæmdum i einu.
Það þarf að koma upp og styrkja jöfnunarsjóði
fyrir atvinnuvegina til að mæta sveiflum i verðlagi
og öðrum áföllum. En þeir jöfnunarsjóðir mega
ekki aðeins vera nafnið — ekki tómir sjóðir, sem
notaðir eru til sjónhverfinga. Það eiga að vera
raunverulegir sjóðir, sem greitt er i, þegar vel
gengur, en gripið er til, þegar á móti blæs. Þvi að-
eins geta þeir þjónað tilgangi sinum.
Ég álit þá hugmynd, sem sett er fram i hinu viða-
mikla verðbólgunefndaráliti um stofnun fastrar
samvinnunefndar stjórnvalda og aðila vinnu-
markaðarins undir forsæti ráðherra, góðra gjalda
verða og gagnlega. Sú samvinnunefnd má þó ekki
vera svo fjölmenn, að hún sé óstarfhæf...
Siðast en ekki sizt ber að leggja áherzlu á aukna
framleiðni og framleiðslu, og þá ekki sizt full-
vinnslu og fjölbreyttari framleiðslu.”
— JH
Dönsk blöð um
sveitarstj órnarkosningarnar i Danmörku:
Deilur um
borgar s tj óraem-
bættið á Friðriksbergi
Leikkonan Helle Virkner komst
á hvers manns varir
Friðriksberg.sem reyndar er
aðeins hluti Kaupmannahafn-
ar og raunar ekki ýkjafjarri
miðborginni, hefur fram á
þennan dag verið sérstakt
sveitarfélag. Þar býr afar-
margt fólk, sem nákomið er
dönskum fjármálaumsvifum
og frá upphafi vega hefur
Friðriksberg verið einn fárra
staða.þar sem ihaldsflokkur-
inn hefur haft töglin og
hagldirnar. 1 sveitarstjórnar-
kosningunum, sem haldnar
voru fyrir skömmu i Dan-
mörku gerðust þau övæntu
tíðindi að ihaldsflokkurinn
missti meirihluta sinn. Svipað
gerðist viðar, þar sem hann
hefur haft meira fylgi en ger-
ist yfirleitt i Danmörku. Einn
slikra staða var til dæmis
Tástrup, þar sem Ihalds-
flokkurinn hefur rikt i sextán
ár en tapaði nú. Að visu hafði
hann ekki veriö þar einráður.
1 Tastrup hafa valdaskiptin
gengið greitt. Þar hefur þegar
verið fastmælum bundið að
jafnaðarmaður taki við störf-
um borgarstjóra 1. april. Hinn
nýi meirihluti er að visu nokk-
uð sundurleitur. Hann skipa
sem sé átta jafnaðarmenn og
fulltrúar af listum róttækra
óháðra borgara, kommúnista
og Glistrupsflokksins.einn frá
hverjum. Varaborgarstjóri
verður fulltrúi óháða borgara-
listans, sem áður var I
sósialska þjóðarflokknum.
A Friðriksbergi hefur reynzt
meiri vandkvæðum bundið að
skipa nýjan meirihluta. Þar
var hugmyndin.að jafnaðar-
menn mynduðu meirihluta
með róttækum vinstri sósial-
istum, sósialska þjóðarflokkn-
um og kommúnistum.
Borgarstjórnarfulltrúar á
Friðriksbergi eru alls tuttugu
og fimm. Hlutu jafnaðarmenn
nfu,róttækir einn, ihaldsmenn
ellefu, sósialski þjóðar-
flokkurinn einn, kommúnistar
einn, vinstri sósialistar einn
og Glistrupflokkur einn.
Staðan er þvi sú að ihalds-
flokkurinn og Glipstrupsfull-
trúinn geta myndað meiri-
hluta ef þeir fá einn mann til
viðbótar til liðs við sig.
Fyrir kosningarnar og enda
á sjálfa kosninganóttina hafði
verið látið i það skina að
leikarinn Helle Virkner yrði
borgarstjóraefnið ef svo færi
að ihaldsflokkurinn lyti i
lægra haldi. í kosningunum
fékk Helle Virkner 5.236 per-
sónulegatkvæðirsemþykir góð
traustsyfirlýsing en annar
jafnaðarmaður Kristian Al-
bertsen fékk á áttunda þúsund
persónuleg atkvæði. 1 krafú
þess gerði hann kröfu úl
borgarstjóraembættisins, en
leikkonan dró sig i hlé.
Við þettá hefur komið babb i
bátinn. Fulltrúi róttækra,
Hanne Helveg Petersen, sem
er eiginkona þekkts þing-
mans, Niels Helvegs Peter-
sen, neitar að styðja Kristian
Albertsen sem borgarstjóri
enda þótt hún neiti einnig að
hafa neitt saman við hinn
gamla borgarstjóra að sælda.
A hinn bóginn hefur hún sagt
að hún væri fús til þess að
styöja annan jafnaðarmann
en Kristian Albertsen og
einnig annan ihaldsmann en
gamla borgarstjórann.
Fram undir þetta hefúr
Kristian Albertsen neitað að
draga sig i hlé. Það gerði aftur
á móú gamli borgarstjórinn,er
hann sá hvers kyns var en þó
með þeim ummælum, að
kannski ætti hann fýrir hönd-
um lengri setu i borgarstjóra-
embætti þegar til kastanna
kæmi. Eigi að siður hefur
ihaldsflokkurinn á Friöriks-
bergi valið sér nýtt borgar-
stjóraefni til þess að þóknast
fulltrúa róttækra.
Enn er ekki séð fyrir endann
á þessari togstreitu og má vel
vera,að Kristian Albertsen láti
undan siga á siðustu stundu,ef
Hanne Helveg Petersen
reynist ósveigjanleg.
— Það er dæmafátt, segir
hann að lýðræðisflokkur eins
og róttæki vinstri flokkurinn
er, skuli ekki virða úrskurð
kjósenda. Ég er ekki neinn
sjálfkjörinn fursti,heldur voru
það kjósendur, fólkið á
Friðriksbergi/Sem vottaði mér
meira traust en öllum öðrum i
þessum kosningum. Þess
vegna getur Hanne Helveg
Petersen ekki komið og sagt:
Ég vil þig ekki, ég vil annan.
Viljihúntaka þann kostinn að
lofa ihaldsmönnum aö ráðska
áfram með Friöriksberg og
verða auk þess að þóknast
Glistrupog hans mönnum, þá
segi ég: Gerðu svo vel.
— Með einþykkni sinni og
þvermóðsku getur Kristian
Albertsenneyttmig til þess að
styðja íhaldsmenn til forystu á
Friðriksbergi, segir aftur á
móti Hanne Helveg Petersen
enda þóttég i hjarta minu vilji
heldur unna jafnaðarmönnum
þess.
Þrátt fyrir hörð ummæli
getur þó svo farið að upp komi
á siðustu stundu hlutur leik-
konunnar Helle Virkner. Hún
þreifaöi fyrst fyrir sér i borg-
arstjórnarmálum fyrir fjórum
árum.en þótti þá nokkuð hik-
andi og ekki likleg til mikils
pólitisks frama. En að þessu
sinni sótti hún i sig veðriö og
siðustu daga hefur ekki verið
meira um aðra talað en hana i
dönskum blöðum.
Hún var stödd i ABC-leik-
húsinu i þann veginn að ganga
fram á sviðið er henni bárust
fregnir af þvi að Krisúan Al-
bertsen stæði á þvi fastara en
fótum, að honum bæri borgar-
stjóraembættið.
— Mér sárnaði sagði hún, ég
skal játa það og þá ekki sizt,
að maðurinn hafði ekki látið
svo litið að nefna þetta við
mig. Ég viðurkenni lika að
mér hefði ekki verið á móti
skapi að spreyta mig i borgar-
stjóraembætti, þótt það yröi
að ganga út yfirfrænku Char-
lesar og fleira gott fólk á leik-
sviðinu. En ég bregzt Albert-
sen samt ekki.ef hann á þess
kost að hreppa borgarstjóra-
embættið.
Annars segja blöðinumHelle
Virkner,að hún eigi kjósenda-
hylli sina nú mest þvi að
þakka,hve blessunarlega laus
hún sé við leikaraskap, þegar
hún snýr að málefnum al-
mennings, gangi hreint til
verks, temji sér litt þaö orða-
far sem flestir stjórnmála-
menn iðka og hiröi litiö um að
sigla milli skers og báru eða
bjarga sér með undan-
brögðum og vifilengjum. Hún
þykir ekki um skör fram
þvinguð af flokksaganum og
ekki sokkin i diplómatiska
taflmennsku enda þótt hún
hafi dansað bæði við Krúsév
og Johnson,einsog rifjað hefur
verið upp.
Liklega er sannleikurinn sá
að meðal almennings á
Friðriksbergi yrði þvi vel tek-
ið að hún y rði borgarstjóri þar
en hið gróna flokksfylgi er
hliðhollara Albert Kristian-
sen.
Helle Virkner eftir borgarstjórnarkosningarnar — hún getur hallaö sér að frænku
Charlesar, ef hún verður ekki borgarstjóri I Friðriksbergi.