Tíminn - 15.03.1978, Side 11
Miövikudagur 15. marz 1978
Fimmtudags
leikritið
n
Ný hús frystihússins á Húsavik. Þarna veröur komiö fyrir sjókælingu á óslægöum fiski, en frá þvi hefur veriö greint i Tlmanum áöur.
Meö þvi aö kæla fiskinn niöur fyrir 4 0,5 gráöur, eöa nánar til tekiö halda honum i 4 0.8 gráðum getur hann geynist óslægöur I allt aö 13
daga h iskinum er siöan „blásið” með þrýstilofti I færiband, sem veiðir hann upp úr sjókælda tankinum.
Þetta er algjör nýjung hér á landi, hefur gefiö góöa raun erlendis.
— Þessu hafa menn velt
nokkuð fyrir sér. Þarna er sjálf-
sagt um marga samverkandi
þætti að ræða, en trilluútgerðin
hefur samt nokkra sérstöðu frá
Húsavik, ef boriö er saman við
marga aðra staði, en það er sú
staðreynd, að úthaldstími op-
inna skipa er hér lengri en við-
ast hvar annars staðar. Grá-
sleppan kemur hér svo
snemma, að i byrjun marz fer
hér að veiðast rauðmagi, siðan
hefst grásleppuveiðin svona 3-4
vikum siðar. Þá eru þessir bát-
ar komnir i gang, það er að
segja hjá þeim, sem hafa á-
huga.
Siðan taka handfæraveiðar
við, þegar grásleppuvertiðinni
er lokið. en hún stendur fram i
miðjan september.
Af þessu sést að úthaldstim-
inn er talsvert langur. a.m.k.
miðað við marga aðra staði.
— Hver verkar grásleppuna?
— Við verkum fyrir þá hrogn-
in. yfirleitt. Við tökum við
hrognunum og söltum þau og
göngum frá þeim. Siðan er gert
upp i lok hverrar vertiðar á þvi
verði sem fæst og Fiskiðjusam-
lagið fær greidd ákveðin
vinnslulaun og útgerðin fær sitt.
Við höfum ekki sömu umráð yfir
hrognunum og t.d. fiski, sem við
kaupum.
— Er þetta ábatasöm útgerð?
— Afkoman hefur verið þol-
anleg. Annars hefur verð á grá-
sleppuhrognum ekki hækkað
til samræmis við annaö fiskverð
á heimsmarkaði. Tilkostnaður
hefur á hinn bóginn hækkað
mikið, vegna oliukreppunnar.
Eldsneyti og veiðarfæri hafa
hækkað, en afurðin ekki, þannig
að veiðarnar eru ekki eins á-
batasamar og þær vors á sinum
tima.
— Nú er aftur byrjað að veiöa
sild, að visu ekki fyrir Norður-
landi. Húsavik var sildarbær á
sinum tima. Hafa menn gleymt
sildinni?
— Við höfum ekki fengið
neina sild hingað árum saman.
Við höfum á hinn bóginn ekki
gleymt sildinni alveg, og ég er
viss um, að ef sildveiðar hefjast
aftur fyrir Norðurlandi, þá
munu Húsvikingar nýta hana
eins og þeir áður gerðu.
Rekstrarstöðvun
ekki fyrirhuguð
á Húsavík i bráð
— Nú er talsvert mikið gert
úr vanda fiskvinnslunnar og þá
einkum frystihúsanna. Er
rekstrarstöðvun i nánd á Húsa-
vik?
— Ekki á næstunni að
minnsta kosti. Þó er stakkurinn
þrengra skorinn nú en oft áður.
Þvi er ekki að neita.
Frystihúsiöer vel búiö vélum og tækjum. Hér sjáum viö roöflettivél og flökunarvél, ásamt ööru
JG. Unniö viö snyrtingu
Konungsefnin
eftir Henrik
Ibsen
Fimmtudaginn 16. marz kl.
20.10 verður flutt leikritið „Kon-
ungsefnin” eftir Henrik Ibsen
fyrri hlutí. Siöari hluti leiksins
verður fluttur viku siöar, fimmtu-
daginn 23. marz. Þýðandi er Þor-
steinn Gislason, en Gisli Hali-
dórsson annast leikstjórn. Hlut-
verk eru mörg en meö þau helztu
þeirra fara Rúrik Haraldsson,
Róbert Arnfinnsson, Guðbjörg
Þorbjarnardóttír og Þorsteinn ö.
Stephensen.
Leikritið var áður flutt á jólun-
um 1967 en er nú endurflutt vegna
150 ára afmælis Ibsens sem er
þann 20. marz n.k. Þetta er eitt af
veigamestu leikverkum Ibsens og
þótti tilhlyðilegt að velja það til
flutnings á þessum merku tima-
mótum. Og Ibsen verður betur
kynntur i útvarpinu þvi að
laugardaginn 18. mai, kl. 19.35
mun Þorsteinn ö. Stephensen
fyrrverandi leiklistarstjóri flytja
erindi um skáldið.
„Konungsefnin” gerast i
Noregi á fyrri hluta 13. aldar og
lýsa valdabaráttu Hákonar Há-
konarsonar og Skúla jarls, sem
báðir telja sig eiga tilkall til kon-
ungstignar. Nikulás biskup i Ösló
ber kápuna á báðum öxlum og
eggjar Skúla til opinbers fjand-
skapar við Hákon þvi að i raun-
inni vill hann losna við þá báða.
Liklegt er aö Ibsen hafi notaö
islenzkar heimildir við samningu
leiksins, sennilega bæði Hákonar-
sögu Sturlu Þórðarsonar og
Heimskringlu Snorra. Annars er
talið að verkið endurspegli þá
innri baráttu sem skáldið háði á
árunum eftir 1860 og lauk með þvi
aðhannfóri „sjálfviljuga útlegð”
vorið 1864 aðeins nokkrum
mánuðum eftir frumsýningu
„Konungsefnanna”.
Henrik Johan Ibsen fæddist i
Skien i Suður-Noregi sonur
kaupmanns sem varð gjaldþrota
en sá atburður hafði mikil áhrif á
piltinn. Ibsen var lyfsalalærling-
ur i' Grimstad i 6 ár en kom til
Kristjaniu (Oslo) rúmlega tvitug-
ur. Arin 1851-57 var hann starfs-
maður við leikhús i Bergen og
fékk þá dypri skilning á eðli og
áhrifum leiksviðsins. Hnnn hvarí
aftur tii Krústjaniu 1857 cn næstu
árin urðu einhver þau erfiðustu i
ævi hans. Loks fluttihann ur landi
1864 og kom ekki aftur heim ai-
kominn fyrr en 1891. Hann lézt
árið 1906.
Verk Ibsens voru nokkuð
snemma þýdd á islenzku. Matt-
hlas Jochumsson þýddi „Brand”
og Einar Benediktsson „Pétur
Gaut”. Leikfélag Reykjavlkur
sýndi fyrsta Ibsen-leikrit sitt
„Vikingana á Hálogalandi” áriö
1903. „Brúöuheimiliö” (1952) var
fyrsta leikrit Ibsens sem sýnt var
i Þjóðleikhúsinu.
í útvarpinu hafa eftirtalin leik-
rit Ibsens veriö flutt, auk „Kon-
ungsefnanna”: „Afturgöngur”,
„Brúðuheimilið” og „Veizlan á
Sólhaugum”, öll 1934, „Þjóð-
niðingurinn” 1937 (i nýrri leik-
gerö 1961) „Vikingarnir á „Há-
logalandi” 1939. „Pétur Gautur”
1945 (og aftur 1975) „Brandur”
1953” „John Gabriel Borkman”
1960 „Þegar dauðir upp risa”,
1962 „Máttarstólpar þjóðfélags-
ins” 1963 „Sólness bygginga-
meistari” 1966 og „Rosmers-
hólmur” 1976.'
m&tiíL
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiösla
í&gjjjQj
Auglýsingadeild Tímans