Tíminn - 15.03.1978, Blaðsíða 14
Miövikudagur 15. marz 1978
14 •
Júlíus Rósinkransson
Þeir hljóta
listamannalaun
F. 5. júli 1892
D. 4. marz 1978
Július Rósinkransson lézt aö
heimilisinu aö kvöldi 4. marzs.l.
Æviröðull hans var að visu
genginn i vesturátt, en ekki kom
mér til hugar, er ég átti tal vib
hann siðast, glaðan og hressan,
að svo örstutt væri til sólarlags.
Július fæddist að Tröð i
önundarfirði 5. júli 1892. Foreldr-
ar hans voru Guðrún Guðmunds-
dóttir Jónssonar, bónda aö
Grafargili i Valþjófsdal i
önundarfirði og Rósinkrans A.
Rósinkransson, bóndi i Tröð.
Systkini hans voru: Anna, gift
Jens Hólmgeirssyni, fulltrúa.
Hún lézt i blóma lifsins. Guðlaug-
ur, fyrrv. þjóðleikhússtjóri, er
lézts.l. haust, og Jón, er andaðist
á æskuskeiði. t Tröð ólst JUlius
upp i foreldrahúsum og vann þar
öll venjuleg búskaparstörf, en
stundaði jafnframt nokkuð sjó-
sókn, svo sem algengt var um
unga menn vestra á þeim timum.
Tvo vetur var Július við nám í
unglingaskólanum að Núpi i
Dýrafiröi, en v'eturinn 1918-1919
var hann i Samvinnuskólanum i
Reykjavik. Skömmu siðar varð
hann starfemaður hjá Kaupfélagi
önfirðinga á Flateyri. Var hann
þar i nær sjö ár og um tima fram-
kvæmdastjóri félagsins. 1926
geröist Július bókari hjá Kaupfé-
lagi Stykkishólms og var það til
1946, er hann varð starfcmaður á
Vegamálaskrifstofunni i Reykja-
vik og var fulltrúi þar til 1962, er
hann lét af störfum að mestu fyrir
aldurs sakir.
Arið 1926kvæntist Július Sigriði
Jónatansdóttur frá Hóli i
önundarfirði, ágætri konu, og
V.
—
Þökkum innilega öllum.er sýndu okkur samúð og vináttu
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu.
Sigurlaugar Margrétar Sigurðardóttur
Hörgslandskoti, Siðu.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki á Vifilstaðaspitala og
Hrafnistu fyrir frábæra hjúkrun og umönnun.
Sigurður Lárusson,
Steingrimur Lárusson, Anna H. Arnadóttir,
Magnús Lárusson, Svanhildur Gunnarsdóttir
og sonardætur.
Anna Guðrún Guðmundsdóttir
Njálsgötu 74
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 16.
marz, kl. 13.30.
Vandamenn.
Innilegar þakkir viljum við færa þeim sem sýndu okkur
hlýju og vinarhug við andlát og jarðarför sonar okkar og
bróður
Árna Guðjónssonar
Hvolsskóla
Guðbjörg Gunnlaugsdóttir, Guðjón Arnason,
Sigurður Einar Guðjónsson.
Kveðjuathöfn eftir.
Karl Kristjánsson
fyrrverandi alþingismann
fer fram i Fossvogskirkju i dag miðvikudaginn 15. marz
1978 klukkan 3 e.h.
Jarðarför hans verður gerð frá Húsavikurkirkju laugar-
dag 18. marz, klukkan 2 e.h.
Pálina Jóhannesdóttir
börn og tengdabörn.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Ilelga Jóhannessonar
Kirkjuvegi 1, ólafsfiröi
Pálina Jóhannsdóttir,
börn og tengdabörn.
Eiginmaður minn, faöir, tengdafaðir og afi
Július Rósinkransson
fyrrum fulltrúi, Eskihlið 12B,
sem lézt að heimili sinu hinn 4. marz, verður jarðsunginn
frá P’ossvogskirkju, miðvikudaginn 15. marz, kl. 13,30.
Sigriður Jónatansdóttir,
Anna Júliusdóttir Smári, Bergþór Smári,
Jón Júlíusson, Signý Una Sen,
og barnabörn.
voru þau búin að vera i 52 ár i ást-
riku hjónabandi, er yfir lauk.
Þau hjónin eignuðust tvö börn:
Jón, fyrrv. yfirkennara við
Menntaskólann i Reykjavik, nú
framkvæmdastjóra hjá Flugleið-
um. Jón er kvæntur Signýju Sen,
lögfræðingi, og önnu, sem gift er
þeim, er þetta ritar.
Ég kynntist Júh'usi fyrst, er
hann var orðinn roskinn maður,
rúmlega sextugur.
Það var i raun og veru ekki
neitt áhlaupaverk að kynnast
Júliusi náið, þvi að hann varmjög
dulur og hlédrægur, þrátt fyrir
mikla hlýju og elskulegt viðmót,
en hann var allra manna trygg-
astur og ættræknastur Július var
bráðvelgefinn maður, með af-
brigðum minnugur og ættfróður
svo af bar og hélt sálargáfum sin-
um til hinztu stundar. Skapgerðin
var óvenjulega heilsteypt, hann
var samvizkusamur og nákvæm-
ur, og aldrei heyrði ég hann hall-
mæla nokkrum manni, en svo
sannarlega hafði hann sinar
ákveðnuskoðanir á málefnum, og
það var ekki heiglum hent að
hrófla við þeim, þvi að hann gat
verið einbeittur maður, ef þörf
vará.þótthannflikaði þviekki aö
óþörfú. Prúðmennska Júliusar og
grandvör framkoma var einstök.
Þær eru ekki fáar ferðirnar,
sem viö höfum farið og notið is-
lenzkrar náttúru, mér til mikillar
ánægju, og ég þori að segja, hon-
um til ánægju lika, og þær eru
margar og ógleymanlegar stund-
ir, sem við höfum átt saman á
heimilum okkar, og það var
einstaklega ljúft að vera i návist
hans.
Július var gæfumaður: Hann
hlaut ágæta eiginleika i vöggu-
gjöf, gott uppeldi, sem hefur átt
mikinn þátt i að þroska persónu-
leika hans, hann eignaðist ágæta
konu, sem var honum samtaka i
að skapa yndislegt og friðsælt
heimili, hann var fundvis á þau
gæði, sem mölur og ryð fá ei
grandaö og hélt áhugamálum sin-
um til hinztu stundar. Hann naut
góðrar heilsu til elliára og hafði
viröingu ogtraust allra, sem hon-
um kynntust. Um hann á ég ein-
ungis góðar minningar.
Löngu og fögru lifi er lokið. Eft-
ir stendur minningin um góðan og
göfugan mann.
BergþórSmári
*
Oskilahross
Rauð hryssa — ómörk-
uð, tveggja til þriggja
vetra, í óskilum í Gaul-
verjabæjarhreppi.
Hreppstjórinn.
Eins og sagt var frá i blaöinu
fyrir nokkru var nýlega úthlutað
listamannalaunum. Arið 1978
hljóta 144 listamannalaun og fer
hér á eftir listi yfir nöfn þeirra.
750 þúsund krónur hver:
Asmundur Sveinsson
Finnur Jónsson
Guðmundur Danielsson
Guðmundur G. Hagalin
Halldór Laxness
Indriði G. Þorsteinsson
Kristmann Guðmundsson
Maria Markan
Snorri Hjartarson
Tómas Guðmundsson
Valur Gislason
Þorvaldur Skúlason
270 þúsund krónur:
Agnar Þórðarson
Atli Heimir Sveinsson
Agúst Petersen
Armann Kr. Einarsson
Arni Kristjánsson
Benedikt Gunnarsson
Björn J. Blöndal
Björn Ölafsson
Bragi Asgeirsson
Eirikur Smith
Eyjólfur Eyfells
Gisli Halldórsson
Guðbergur Bergsson
Guðmunda Andrésdóttir
Guðmundur L. Friðfinnsson
Guðmundur Frimann
Guðmundur Ingi Kristjánsson
Guðrún Á. Simonar
Gunnar M. Magnúss
Halldór Stefánsson
Hallgrimur Helgason
Hannes Pétursson
Hannes Sigfússon
Heiðrekur Guðmundsson
Hringur Jóhannesson
Jakobina Sigurðardóttir.
Jóhann Briem
Jóhann Hjálmarsson
Jóhannes Geir
Jóhannes Jóhannesson
Jón Asgeirsson
Jón Björnsson.
Jón Helgason, prófessor
Jón Helgason ritstjóri
Jón Nordal
Jón Óskar
Jón Þórarinsson
Jón úr Vör
Jórunn Viðar
Jökull Jakobsson
Karl Kvaran
Kristján Daviðsson
Kristján frá Djúpalæk
Leifur Þórarinsson
Matthias Jóhannessen
Oddur Björnsson
Ólafur Jóh. Sigurðsson
Ólöf Pálsdóttir
Pétur Friðrik
Róbert Arnfinnsson
Rögnvaldur Sigurjónsson
Sigurður Sigurðsson
Sigurjón Ólafsson
Stefán Hörður Grimsson
Stefán íslandi
Steinþór Sigurðsson
Svavar Guðnason
Sverrir Haraldsson
Thor Vilhjálmsson
Tryggvi Emilsson
Valtýr Pétursson
Veturliði Gunnarsson
Þorkell Sigurbjörnsson
Þorsteinn frá Hamri
Þorsteinn ö. Stephensen
Þórarinn Guðmundsson
Þorleifur Bjarnason
Þóroddur Guðmundsson
135 þúsund krónur:
Alfreð Flóki
Auður Bjarnadóttir
Árni Björnsson
Arni Tryggvason
Birgir Sigurðsson
Björg Þorsteinsdóttir
Edda Þórarinsdóttir
Eggert Guðmundsson
Einar Baldvinsson
Einar Hákonarson
Einar Þorláksson
Eyþór Stefánsson
Filippia Kristjánsdóttir
(Hugrún)
Gisli Magnússon
Gréta Sigfúsdóttir
Guðlaugur Arason
Guðmundur Eliasson
Guðmundur Steinsson
Guðrún Tómasdóttir
Gunnar Dal
Hafsteinn Austmann
Hallsteinn Sigprðsson
Haraldur Guðbergsson
Haukur Guðlaugsson
Hrólfur Sigurðsson
Ingimar Erlendur Sigurösson
Jakob Jónasson
Jóhannes Helgi
Jón Dan
Jónas Guðmundsson
Kári Tryggvason
Kjartan Ragnarsson
Kristinn Pétursson
Kristin Magnús Guðbjartsdóttir
Magnús A. Árnason
Magnús Bl. Jóhannsson
Magnús Tómasson
Matthea Jónsdóttir
Nina Björk Arnadóttir
ölöf Jónsdóttir
Óskar Aðalsteinn
Óskar Magnússon
Ragnar Kjartansson
Ragnar Þorsteinsson
Ragnheiður Jónsdóttir
Ragnhildur Steingrimsdóttir
Rut L. Magnússon
Rúrik Haraldsson
Sigfús Daðason
Sigfús Halldórsson
Skúli Halldórsson
Snorri Sveinn Friöriksson
Stefán Júliusson
Steingerður Guðmundsdóttir.
Steingrimur Sigurðsson
Sveinn Björnsson
Tryggvi Ólafsson
Valgeir Guðjónsson
Vésteinn Lúðviksson
Vilhjálmur Bergsson
Þorbjörg Höskuldsdóttir
Þorsteinn Stefánsson
Þóra Jónsdóttir
örlygur Sigurðsson
Bókasafn Kópavogs 65 ára
Safnið að flytjast í nýtt húsnæði
JB — Bókasafn Kópavogs var
stofnað þ.15. marz 1953 og er þvi
25árasl. miðvikudag. Bókasafnið
var stofnað að frumkvæði Fram-
farafélags Kópavogs á sinum
tima, en Jón úr Vör var einn af
aðalhvatamönnum að stofnun
þess. Hefur hann lengst af verið
forstöðumaður þess. En i árs-
byrjun 1977 tók Hrafn Harðarson
bókasafnsfræðingur við forstöður
safnsins.
Fyrstu árin var safnið til húsa i
Kópavogsskóla með heimlánum á
kvöldin. Siðar var stofnað útibú i
Kársnesskóla. Arið 1964 var aðal-
safnið flutt i núverandi húsnæði i
Félagsheimili Kópavogs, um 150
ferm. á annarri hæð. Með tilkomu
skólasafns i Kársnesskóla var
útibúinu þar lokað i janúar 1976.
Starfsemi Bókasafnsins hefur
aukizt jafnt og þétt og er nú svo
komið að húsakynnin I Félags-
heimilinu eru orðin allt of h'til.
Hefur nú verið ákveðið að safnið
fái inni ihúsnæði i eigu kaupstað-
arins að Fannborg 3 - 5 og verður
Jón úr Vör var um árabil bóka-
safnsvörður við Bókasafn Kópa-
vogs.
það flutt þangað á þessu ári. Er
þar um að ræða um 300 ferm. á
jarðhæð og verður öll aðstaða þar
mun betri. Hér er þó um bráða-
birgðalausn á húsnæðisvanda
safnsins að ræða, þar til byggt
verður safnahús i Kópavogi.
Bókakostur safnsins hefur
vaxið ört hin siðari ár og mun
verða i lok þessa árs um 30.000
bindi.ð Heimlánum hefur
fjölgað mjög hin siðustu ár, en
auk venjulegra heimlána i safn-
inu sjálfu eru rúmlega 500 bækur
að láni að Hamraborg 1, þar sem
Félagsmálastofnun sér um lán til
aldraðra bæjarbúa. A döfinni er
að auka þjónustu saínsins enn
frekar.
I bókasafnsstjórn, sem kosin er
af bæjarstjórn eiga nú sæti:
Magnús Bjarnfreðsson, formað-
ur, Guðmundur Gislason, Guðrún
Gisladóttir, Guðrún H. Jóns-
dóttir, Helgi Tryggvason. Starfs-
menn við safnið eru nú 9.