Tíminn - 23.04.1978, Blaðsíða 5
Sunnudágur 23. april 197$
5
Vaka og víma
Ljósi bletturinn í áfengismálum
Minnihluti allsherjarnefndar
sameinaðs þings hefur lagt til
að samþykkt verði tillaga um að
fram fari þjóðaratkvæða-
greiðsla um það hvort selja
skuli áfengt öl hér á landi.
Það er nú sér á blaði að þessi
nefndarhluti skilar áliti sinu án
þess að hafa spurt um álit á-
fengisvarnaráðs, sem lögum
samkvæmt á að vera þingi og
stjórn til ráðuneytis i áfengis-
málum. Þaðferekki velá þvi að
nefndir sjálfs Alþingis sniðgangi
slika stofnun. Þessi tillaga var
búin að liggja það lengi hjá
allsherjarnefnd að álit ráðsins
hefði verið löngu komið til henn-
ar ef því hefði verið send tillag-
an fljótlega eftir að henni var
visað til nefndar.
Einn af allsherjarnefndar-
mönnum hefur bent á það i
blaðaviðtali að ekki sé hægt að
kasta máli undirbúningslaust
undir þjóðaratkvæði. Menn
verða að vita um hvað er að
ræða. Hversu áfengt á ölið að
vera? Hvaða reglur skulu gilda
um sölu þess og veitingar?
Ég hef heyrt merkan lækni
segja, að þrátt fyrir allt væri
brennivinsdrykkja Islendina
skárri en látlaust þamb léttari
tegunda — öls og vina eíns og
tiðkast með þjóðum þar sem
lifrarskemmdir af áfengis-
neyzlu væru i tölu algengustu
dauðameina. Ekki kann ég að
meta slikt, enda finnst mer það
ekki aðalatriði. Hvorugt þarf að
kjósa. Hafna skal hvoru
tveggja.
Einer ljósglæta i áfengismál-
um tslendinga. Menn vilja ekki
drekka við vinnu sina. Almenn-
ingsálitið er á móti þvf að
áfengis sé néytt á vinnustað og i
vinnutima. Frávik kunna
að finnast en þau njóta ekki
samúðar.
Hins vegar tiðkast það i öllum
bjórlöndum að öl sé drukkið við
vinnu. Slikt myndi fljótlega ger-
ast á íslandi lika ef þess væri
kostur. Jarmurinn um bjórinn
sannar það. öðruhvoru heyrist i
fólki sem segir að naumast eða
ekki megi kalla hann áfengi.
Aðrir segja að bjo'rkrár séu
nauðsyn til að skj ótast inn i að
hafa af sér leiðindi. En eins og
læknirinn frá Freeport sagði, þá
er bjórglasið jafn mikið og jafn
hættulegt áfengi og wiský
staupið.
Þar sem bjórinn hefur numið
land þykir það viða ekki tiltöku-
mál þó áfengis sé neytt i vinnu-
tima. Þvi var nú verið að
hreinsa til i lögregluliði
Vestur-Þýzkalands i fyrra og
setja því nýjar reglur um að
drekka ekki öl i vinnutima.
Það ersannarlega nóg, að fólk
telji við hæfi að byrja drykkj-
una siðdegis á föstudegi og
halda áfram tilsunnudags, þó að
hinir dagarnir bætist ekki við.
En það var einmitt það sem
gerðist i Finnlandi þegar ölið
kom frjálst á markað og brenni-
vinsneyzlan óx um h.u.. b. 50%
á einu ári.
H.Kr.
Hey
til
eyja
1 nýjustu Sambandsfréttum er
frá þvi sagt, að nú i byrjun april
hefðu farið frá Reyðarfirði 17
tonn af heyi sem selt hefði verið
til Færeyja á vegum Sambands-
ins. Verðið var 43 isl. kr. hvert
kiló fob., sem er um helmingi
hærra en annars staðar hefur
fengist. Þá var þess einnig getiö
að hjá Búvörudeild yrði áfram-
haldandi unnið að þvi að vinna
markað fyrir hey erlendis, eftir
þvi sem þess gerðist þörf.
Siærri - Kraftmeiri - Betri 1978
Undrabíliinn
SUBARU 1600
er til
afgreiðslu
strax.
aaon
Allur
endurbættur
Breiðari,
stærri'
vél,
rýmra milli
sæta,
minni snún-
ingsradíus/
gjörbreytt
mælaborð/
nýir litir
o. fl. o. fl.
Það er ekki
hægt að
lýsa Subaru
þú verður að
sjá hann
og reyna
•TmhkeilIfe letter mark is an exlra cost option.
Sýningarbilar
á staðnum
Greiðsluskilmálar þeir
hagstæðustu sem
völ er á í dag
Kaupið bí/inn strax í dag því þá
getið þér sparað a/it að 5-10 þús.
á viku, þvi gengið sígur svo ört.
INGVAR HELGASON
Vonarlondi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1
Eyjólfur Ágústsson, bóndi, Hvammi,
Landssveit, segir í viðtali um Subaru:
,,Ég fékk einn af fyrstu Subaru-bilunum og
hefur hann reynst i alla staði vel og tel ég þá
henta sérstaklega vel til allra starfa við bú-
skapinn. Ég hef farið á honum inn um allar
óbyggðir og yfirleitt allt, sem ég áður fór á
jeppa. Subaru er góður i hálku, duglegur i
vatni og sparneytinn—og nú er ég að fá mér
1978 árgerðina.”