Tíminn - 23.04.1978, Qupperneq 6

Tíminn - 23.04.1978, Qupperneq 6
6 Sunnudagur 23. april 1978 menn og málefni Þetta er mitt mál Aldo Moro. Mynd þessa, sem talin er föisuö, fékk lögreglan senda frá aðiium, sem sögðust hafa Moro f haldi. Um þessar mundir er á al- þjóðavettvangi um fátt meira rætt og ritað en hin hörmulepu tiðindi sem orðið hafa á Italiu, rániðá Aldo Morofyrrum forsæt- isráðherra ttala og formanni stærsta stjórnmálaflokks lands- ins. Þegar þetta er ritað er ekki vitað um afdrif hans, en hugsan- legt að hann hafi verið myrtur á svivirðilegan hátt. Þessir válegu atburðir boða timamót i þeirri sorgarsögu sem pólitisk ódæði eru i þjóðlifi Vest- urlandamanna nú um stundir. Steinblindir ofstækismenn i hópi glæpalýðs hafa ráðiztað einstakl- ingi og gert hann enn einu sinni persónulega ábyrgan fyrir þvi sem þeir hafa á hornum sér. Sið- an er ránið, misþyrmingarnar og morðið kallað „réttarfar” fyrir höndalþýðunnar. Ogsvo mikið er ofstækið og ógæfan að þessir leppalúðar lyga, rána og morða blaka eyrum við þeirri augljósu staðreynd að engir hafa meiri skömm á þeim en einmitt hin vinnandi alþýða, hvar svo sem einstaklingar úrhennar hópi hafa skipað sér i pólitiska fylkingu. Að tilefni örlaga Aldos Moros er timabærtaðrilja þaðuppað hann var maður sátta, samstarfs og málamiðlunar i stjórnmálastörf- um sinum. Hann beitti sér manna mest fyrir þeirri þjóðlegu sam- stöðu um meginmál sem hverju þjóðriki er nauðsynleg ef það á að standast til farsældar. Það var, enginn annar en Aldo Moro sem vann að þvi árum saman að gera, af hálfu Kristilega lýð- ræðisflokksins, hina svo nefndu „sögulegu nauðsyn” á samvinnu hægrimanna og vinstriafla og verkalýðsflokka að raunveru- leika i stjórnarframkvæmd. Blindingjar Hryðjuverkamenn af þvi tagi sem hér getur lifa i heimi sem al- menningur hér þekkir sem betur fer aðeins af afspurn eða úr kvik- myndum. Þeir eru blindir á það grundvallaratyiði allra athafna að manneskjan, lif hennar og lif s- björg setur öllum hugsjónum, skoöunum og viðleitni tiltekin og algjör takmörk. Manneskjan er grundvöllurinn en ekki einhverj- ar bábiljur eða hindurvitni sem numin hafa verið af misjöfnum bókum eða heilaspuna. Þetta ógæfufólk er i uppreist gegn menningu og siöum Vestur- landa. Það er þvi ef til vill tákn- rænt að uppreist þess, svo lág- kúruleg, vesöl og viðurstyggileg sem hún er, skuli einmitt beinast gegn þeirri mannúðarhyggju sem er þráttfyrir allt torleiði, mistök og afvegu grundvöllur vestrænn- ar siðmenningar og samfélags. Orð Max Gallo Fyrir nokkru ritaði evrópskur rithöfundur og menntamaður, Max Gallo, grein um þessi efni og atburðina á ítaliu i franska viku- ritið L’Express. Grein hans er áriðandi áminning, og birtist hún þvi hér í lauslegri þýðingu. Max Gallo segir: „Það sem er að gerast á Italiu kemur okkur við. Liðsmenn Rauðu sveitanna sem rændu Aldo Moro vildu, að eigin sögn, „koma höggi á æðstu stjórn landsins”. Og það tókst. Þeir eru einfaldlega liðsmenn hers sem virðir engar hömlur, viilimannlegs hers sem hafnar lýðræðissamf élaginu, drepur og þekkir engin lög önnur en hnefaréttinn: Sá sem er sterk- astur drepur, sá sterkasti sigrar. Þessi lög eru lög harðstjórnar og alræðis, og gildir einu hverju glamri hermdarverkamennirnir hjúpa sig. Þessi lög boða endalok þeirrar hóglegu, mjúkhentu að- lögunar sem fylgir siðmenning- unni. Þau stefna að upplausn „borgaralegs félags”, og að þvi að setja i þess stað veldi nakins ofbeldis. Slikt sem þetta ber aö- eins nafnið: Harðstjórn og vilii- mennska. Hverju svo serti hermdarverkamennirnir lýsa yf- ir sem markmiðum sinum hegða þeir sér i' athöfnum eins og böðlar alræðisrikjanna. Og lærdómur tuttugustu aldarinnar er sá að stjórnmálastefnu á ekki að dæma eftir þvi markmiði sem keppt er eftir, heldur eftir þeim aðferðum sem gripið er til. Morðingjargeta meðengumóti talizt lýðræðissinnar, né heldur verður þvi trúað að þeir reynist virða lýðræðisreglur i framtið- inni. Þeir geta ekki boðað neitt annaðen blóðbað, af sama tagi og þekkistfrá Þriðja rikinu og Rúss- landi Staii'ns og nú á dögum i nokkrum löndum Suð- ur-Ameriku. Þetta kemur okkur við. Astæð- an ersú aðséþað nauðsynlegt að beita hermdarverkamennina valdi laganna — einvörðungu lag- anna, en án undanþágu — þá verður jafnframt að koma á þá óafmáanlegri siðferðilegri for- dæmingu. Þið haldið ef til vill að það sé til einskis. En hugið betur að. Hermdarverkamaðurinn i lýð- frjálsu landi verður að geta verið eins ogheima hjá sér, að minnsta kosti i einhverjum samfélagshóp- um eða sviðum samfélagsins. Það verður að loka þessum svið- um fyrir honum. Svo vill til að fyrir nokkrum mánuðum var dreift i Paris yfir- lýsingu, sem sögð var frá „frönskum menntamönnum”, þar sem athygli var beint að þeim hættum sem steðja að „andófs- mönnum” á italiu: námsfólki, rithöfundum, lögmönnum sem taka að sér vörn andófsmanna, þeim sem andvigir eru hinni „sögulegri nauðsyn” á samstarfi verklýðsflokka við stjórnvöldin ogeru fórnarlömb þeirrar kúgun- ar sem italskir kommúnistar og Kristilegi lýðræðisflokkurinn standa fyrir. Gott og vel. Það á ekki að rugla saman andófsmönnum og morðingjum. En i þessari yfirlýs- ingu var ekki eitt einasta orð um illskunasem felsti hermdarverk- um, um nauðsyn lýðfrjáls rikis til þess að berjast gegn þessu krabbameini sem stefnir að niðurrifi þess, eöa um skyldu lýð- ræðisrikisins til þess að loka þeim gagnvegum sem finnast kunna milli stjórnarandstöðu ,,á göt- unni’ og þeirra svæða þar sem morðingjar hafa haslað sér völl. Þegar menntafólkið safnast saman og vekur athygli á „hinni alvarlegu þróun sem nú á sér stað á ítaliu”, þá gætu mennhaldið að átt værivið hermdarverk ogpóli- tisk ódæði. En það er nú eitthvað annað! Menntafólkið er að tala um „kerfisbundna kúgun sem beinist að verkalýðsstéttinni og ungum öreigum...” Hver sem er má hugsa hvað sem honum lizt um sögulega nauðsyn á samstarfi vinstriflokk- anna við hægriöflin. Það er hægt að rökræða endalaust um hinar djúpstæðu ástæður hermdar- verkastarfseminnar, hvort sem eru félagslegar, efnahagslegar, stjórnmálalegar eða alþjóðlegar og liggja að baki þessum þjóð- félagssjúkdómi. En ef það er nauðsynlegt að semja og undirrita þessar yfirlýs- ingar, erþá ekki enn þá nauðsyn- legra, miklu brýnna, að fordæma morðingja? Og er þá ekki tima- bært að spyrja þessara spurn- inga: Hvortstöndum við meðeða móti afturför i stjórnmálum? Hvortstöndum við með eða móti lögum lýðræðisins? Þau eru vissulega ófullkomin, — en vildi þá ekki einhver sýna okkur fram á eitthvað betra! Það er ekki óhugsandi að dag nokkurn megum við ekki lengur spyrja okkur þessara spurninga hér, iFrakklandi. Viðskulum þvi, og i' tilefni þess sem gerzt hefur á italiu, forðast að leika okkur að eldinum með lýðskrumi, á- byrgðarleysi, vanþekkingu á for- tiðinni eða einfaldlega með sýndarmennsku. Þetta eru tveir kostir: það er að segja að mót- mæla kúguninni, alræðinu og fangabúðaþjóðfélaginu annars vegar og hins vegar að verja þá sem stefna að þessu marki nú þegar á meðal okkar. Við ættum að hæ.tta að þykjast öskra gegn villimennskunni með þvi að verja villimennina.” Ábyrgðin Þessi orð eru vissulega i tima töluð. Það á ekki að rugla saman andófsmönnum og morðingjum. A þeim er ekki aðeins stigsmunur heldur eðlis. Hins vegar hvilir ábyrgð á þeim hugsuðum, rithöf- undum og menntamönnum sem sifellt eru að mæla villimennsk- una upp i veiklunduðum og draumlyndum sálum ungmenna sem hlotið hafa hraflkennda mennt án þess að hin siðlega und- irstaða mannúðar og mannkær- leika hafi verið nægilega brýnd fyrir þeim. Og eins og það sem gerzt hefur á Italiu kemur okkur við, þá er þessi ábyrgð engu siður alþjóðleg. „Tua res agitur”, sagði Horatius: Það er þitt mál þegar hús nágranna þins brennur. Vald heilaspunans Af þessum atburðum má enn einu sinni læra þann sigilda lær- dóm hvert vald hugtaksins, heila- spunans og kennisetninganna getur leitt fólk þegar það missir með öllu fótanna á veruleikanum en hverfur inn i algleymi hugar- fóstursog alhæfinga. Slikt þykir þvi miður bera vitni um visinda- lega hugsun þar sem raunhlitar skoðanir, mannúðarhyggja og mannkærleikur eru talin bera óskýrri hugsun vitni. En sé svo, gef okkur þá nógu óskýra hugsun og nógu litið af visindalegri ná kvæmni! Við skulum minnast þess að útrýmingarbúðir nazist- anna voru skipulagðar af mikilli verkfræðilegri snilli, gasið var meistarastykki fjölmargra efna- fræðinga og i óhugnaðinn var lögð mikil visindaleg nákvæmni og fræðileg skynsemi. Hugmyndir hermdarverka- manna um „verkalýðsstétt”, „al- þýðu”, „kúgun”, „arðrán” —’0g „ábyrgö” Aldos Moros, eru af sama toga spunnar, ættaðar úr „skipulegum og skynsamlegum” hugarheimi Hegels, Marx og Marcuse, og skulu þeir þó ekki dregnir til ábyrgðar, blessaðir mennirnir, á þvisem gerzt hefur, þótt hin andlegu afkvæmi séu skilgetin. En innst og dýpst i þessum hugarheimi er nefnilega tóm. Hann hvilir á forsendu af- neitunar á þeim sem lifið gaf og gefur og getur einn tekið það aft- ur til sin, þeim sem er uppspretta alls mannkærleika og mannúðar- hýggju. JS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.