Tíminn - 23.04.1978, Síða 11

Tíminn - 23.04.1978, Síða 11
Sunnudagur 23. april 1978 barna skuli heimilt að vinna skemmri vinnudag en aörir. En siöasta lagabreytingin, sem gerö var i jafnréttisátt i Noregi, var sú, aö nú hefur elzta dóttir óðalsrétt jafnt og elzti sonur, en áður gengu óðalsjarö- ir i arf til elzta sonar. Konur i herskyldu Ég held að konur og karlar i Noregi séu nú jöfn aö lögum i öllum atriðum, nema hvaö snertir herskyldu. Stúlkur eru ekki skyldugar til aö gegna her- þjónustu eins og piltar, en þeim er heimilt að gefa sig fram til herþjónustu, og sumar stúlkur gera þaö. Þegar ég hóf afskipti af fé- lags- og stjórnmálum var fátitt að konur tækju þátt I þeim. Smám saman hefur hlutdeild kvenna orðiö meiri, en okkur, sem aö þessum málum vinnum finnst þó aö of fáar konur vinni að félags- og stjórnmálum. — Hverjar eru minnisverö- ustu framkvæmdirnar frá yöar tiö sem samgönguráöherra? — Það voru byggöir flugvellir á Finnmörk, byggðar brýr og lagðir vegir. Einnig var aukin áherzla lögö á öryggi i umferö- inni og byrjað að leggja sérstak- ar brautir fyrir fótgangandi og hjólreiöamenn utan sjálfra ak- brautanna. Astandiö var oröiö þannig aö viða þoröi fólk ekki að senda börnin ein i skólann vegna hættu á umferðarslysum. Hvers konar þjóðfélag viljum við? — Kemur aukin þátttaka kvenna i stjórnmálum til meö að breyta gangi þjóðmála? — Ég tel hún muni hafa áhrif á hvers konar verkefni, sem verða talin mikilvægari en önn- ur. Með aukinni þátttöku kvenna veröur meiri áherzla lögð á börnin i þjóðfélaginu. Harðar verður gengiö eftir að kröfum um jafnstööu kvenna og karla verði framfylgt. — Munu karlar og konur, sem hyggja á frama I atvinnulifi eða stjórnmálum, nota sér réttindi eins og styttan vinnudag eða lengt orlof vegna barnsfæðing- ar? (Barnsburðarorlof i Noregi er nú átján vikur, foreldrar geta skipt þvi með sér og heimilt er að taka eins árs leyfi án launa). — Hér er um það að ræða hvers konar þjóðfélag við vilj- um hafa. Mér finnst að fólk eigi að geta valið. Það á við bæði um konur og karla, að þau lenda oft i þeirri aöstöðu aö eiga ekkert val, og það á i rikari mæli við um konur. Hvernig fólk nýtir sér slik réttindi sem þessi er einstaklingsbundiö. Nýi ambassadorinn frá Nor- egi er rétt manneskja á réttum staö hér á Islandi. Annemarie Lorentzen á ekki bll, kýs heldur að ganga, og hún er þegar farin að stunda sundlaugar. Annemarie Lorentzen er ekkja, en þrjú börn hennar eru búsett I Noregi. — Þau koma áreiðanlega I heimsókn meöan ég verö hér. Vikur fyrir næstu kynslóð — Táknar það að þér hafið hætt afskiptum af stjórnmálum, að þér hafið tekiö við starfi ambassadors? — Já. Ég hef starfað það lengi að stjórnmálum, að mér finnst timi til kominn að vikja fyrir næstu kynslóö. Það merk- ir þó ekki að ég sé orðin leið á þeim. SJ. Alla daga vikunnar Alla daga vikunnar kemur Flugfrakt að austan og vestan. Að morgni næsta vinnudags eru pappírarnir tilbúnir. Sem sagt: Með Flugfrakt alla daga vikunnar. frakt LOFMIDIR ÍSLAJVDS Sunnuda Mánudai Þriðjudaj Miðvikui Fimmtut Föstm Laugardagur Húsgögn fyrir fólk á öllum aldri nvjnjaTinui 111. Verö mjög hagstætt rautarholti 2 — Símar 11940 -12691 ALLIR Einnig ávaiit fyririiggjandi flestar stærðir hjóibarða - sólaðir og nýir hjólbarð Hjólbarðasala og ÖH hjólbarða- þjónusta Fljót og góð þjónusta POSTSENDUM UM LAND ALLT VINNU STOFAN Skipholt 35 105 REYKJAVÍK sími 31055

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.