Tíminn - 23.04.1978, Page 15
Sunnudagur 23. april 1978
15
Smíði einingahúsa
hafin
Vandamál okkar er að hafa
nægjanleg verkefni yfir vetrar-
mánuðina, sagði Þórður M.
Þórðarson, framkvæmdastjóri
Trésmiðju Austurlands, í viðtali
við Timann. Á ður fyrr var fyrir-
tækið mikið i skipasmiðum og
voru hér byggðir upp i 25 lesta
bátar. Nó er hins vegar litill
markaður orðinn fyrir þessa báta
og er nú aðalatvinnan i húsa-
smiði.
Við erum nú farnir út i að
byggja einingarhús. Við smiðum
grind i þrjú slik hús inni i vetur,
en reisum siðan húsin á steyptum
grunni i sumar. Ætlunin er að
selja þessar byggingar á þvi
byggingarstigi, sem væntanlegir
kaupendur helzt óska.
Þórður sagði, að stærsta verk
fyrirtækisins um þessar mundir
væri bygging barnaskólans á
Fáskrúðsfirði auk þess sem verið
væri að byggja verkamanna-
bústaði á Eskifirði.
Trésmiðja Austurlands er gam-
algróið fyrirtæki, sem byggt hef-
ur fjölmörg hús og smiöað marga
báta. Einar Sigurðsson i Odda
stofnaði þetta fyrirtæki og rak
það um margra ára skeið.
Aðdragandinn að stofnun
Trésmiðjunnar var sá að Einar
ætlaði að gerast bóndi. Hafði
hann ákveðna jörð i huga og hafði
falazt eftir henni. En meðan hann
beið svars smiðaði hann sér trillu,
enda nauðsyfilegt fyrir bónda við
Fáskrúðsfjörð að eiga slikan grip.
En svo fékk hann ekki jörðina og
seldi þvi trilluna og hóf þá að
smiða trillur og selja. Siðan þró-
aðist þessi starfsemi upp i að
verða öflugt trésmiðafyrirtæki.
Þórður M. Þóröarson nær á myndinni og Einar Sigurðsson fjær á
myndinni y*0 eina trillu, sem nú er verið að gera viö i Trésmiðju
Austurlands. Timamynd MÓ.
Hj úkr unar konan
veitir visst öryggi
— úr þvi læknir er ekki búsettur á staðnum
Læknirinn á Fáskrúðsfirði
þjónar einnig ibúum Stöðvar-
fjarðar. Þangað kemur hann að
jafnaði einu sinni i viku, en
hjúkrunarkona er starfandi á
Stöðvarfirði og hefur hún viðtals-
tima tvisvar i viku. Auk þessa er
að sjálfsögðu leitaö til hjúkrunar-
konu og læknis ef slys, óhöpp, eða
tilfallandi veikindi bera að hönd-
um.
Nina Björnsdóttir hjúkrunar-
kona hefur verið búsett á
Stöðvarfirði siðan 1975. Hún sagði
I samtali við Timann, að það
skapaði visst öryggi fyrir Ibúana
að hafa hjúkrunarkonu búsetta á
staðnum úrþvi þar væri ekki
læknir. 'Oft sparaði það lika að
sækja lækni um langan veg.
Ekki er sjúkrahús á Stöðvar-
firði eða Fáskrúðsfirði og sagði
Nina að alla legusjúklinga þyrfti
að senda til Norðfjarðar, Egils-
staða eða alla leið til Reykjavik-
ur. Konur frá Stöðvarfirði fara
einnig allar burtu til þess að fæða
börn. Hins vegar er nokkuð um
það á Fáskrúðsfirði að konur eigi
börn i heimahúsum, enda er bæði
læknir og ljósmóðir búsett þar á
staðnum.
MÓ.
Nlna Björnsdóttir.
Stórkostleg þróun
byggða á Austurlandi
A þessum áratug hefur átt sér
stað mjög athyglisverð upphygg-
ing hér I Austfirðingafjórðungi,
sagði Guðmundur Gislason,
kaupfélagsstjóri á Stöövarfirði, i
samtali við Timann. Hraðfrysti-
húsin hafa verið endurbyggð
samkvæmt hraðfrystihúsaáætl-
uninni og hingað hafa verið keypt
stórfengleg tæki, þar sem skut-
togararnir eru. Samhliða þessari
uppbyggingu hefur landhelgin
verið friðuð fyrir erlendri rán-
yrkju þannig að austfirzk
byggðalög hafa nú alla möguleika
á að eflast stórkostlega I náinni
framtið engu siður en á undan-
förnum árum.
Samhliða þessu hefur viðhorf
ibúanna til samgangna ger-
breytzt með tilkomu hringvegar-
ins. Einnig hafa átt sér stað mikl-
ar samgöngubætur milli fjarða.
Allt þetta mun stuðla að stórkost-
legri þróun byggðar á Austur-
landi á næstu árum.
Guðmundur hefur verið kaup-
félagsstjóri á Stöðvarfiröi i nokk-
ur ár. Hann sagöi að vissulega
væru ýmsir erfiðleikar við að
reka verzlunar og þjónustufyrir-
tæki á ekki stærri stað en Stöðv-
arfjörður er, en hitt væri lika jafn
ljóst, að ef þar væri ekki sam-
vinnuverzlun, væri ekki um þá al-
mennu þjónustu að ræða, sem
kaupfélagið reynir að inna af
hendi.
A siðari hluta fimmta áratugs-
ins var kaupfélagið virkur aðili i
uppbyggingu frystihúsanna á
Stöðvarfirði og Breiðdalsvik. Eft-
ir sildarárin komu siðan mikil
erfiðleikaár. Þá var farið út i að
reyna ýmsa útgerð og mörg
skakkaföll lentu á kaupfélaginu.
Sfðan þegar atvinnureksturinn á
Stöðvarfirði var endurskipulagð-
ur var skilið á milli verzlunar-
reksturs og fiskvinnslunnar.
Kaupfélagið er hins vegar stór
hluthafi i Hraðfrystihúsi Stöðvar-
fjarðar.
Kaupfélag Stöðfirðinga spann-
ar yfir Breiðdal, Stöðvarfjörð og
suðurbyggð Fáskrúðsfjarðar.
Verzlanir eru bæði á Stöðvarfirði
og á Breiðdal. Þá var nýtt slátur-
hús gert fokhelt á Breiðdal á sið-
asta ári og er áætlað aö taka það I
notkun næsta haust.
MÓ.
Guðmundur Glslason
Kjörskrá
Kjörskrár til alþingis- og sveitastjórna-
kosninga er fram eiga að fara 25. júni n.k.
liggja frammi almenningi til sýnis i
barnaskólanum frá 25. april tii 23. mai n.k.
Kærufrestur til sveitastjórnar rennur út 3.
júni n.k.
Oddviti Bessastaðahrepps.
^LARK II S -
rafsuðu
ny|u
endurbæth^\
sjóöa vír 1,5 — 4.00
mm.
Eru meö innbyggöu
öryggi til varnar yfir-
hitun.
Handhæg og ódýr.
Þyngd aðeins 18 kg.
Ennfremur fyrirliggj-
andi:
RafsuðukapaM, raf-
suðuhjálmar og tangir.
ARMULA
SIMI 84450
■J
Vörubifreiðastjórar
Sendið okkur
hjólbarða
og látið setja
VUL-CAP
kaldsólningar-
munstrið á
barðann.
t'liLLULLLTi
Smiðjuvegi 32-34 — Símar 4-39-88 £t 4-48-80 — Kópavogi