Tíminn - 23.04.1978, Page 26
26
Sunnudagur 23. april 1978
Nútíminn ★ ★ ★
Jazz:
Tríó NHOP
með hlj ómleika
annað kvöld
bezti bassaleikari heims?
Annaö kvöld kl. 21.15 gefst is-
lenzkum jazz áhugamönnum
gott tækifæn til þess að hlýða á
jazz eins og hann gerist beztur,
þvi' að þá kemur Trió
Niels-Henning örsted Pedersen
fram á hljómleikum i Háskóla-
biói á vegum Jazzvakningar.
Niels-Henning örsted Peder-
sen ætti að era óþarft að kynna
fyrir islenzkum jazzáhuga-
mönnum.en hljómleikar hans i
Norræna húsinu i fyrra sýndu
glögglega að þar er maður i
fremstu röð og verðugur þeirra
viðurkenninga sem hann hefur
hlotið, en NHÖP hefur m.a.
verið kosinn bezti jazzbassa-
leikari heims af lesendum
Meiody Maker.
Asamt NHöP skipa trióið þeir
Philip Catherine gitar, og Billy
Hart en hann leikur á trommur.
Hérá eftir verður ferili NHÖP
rakinn að litlu leyti, en áður en
það er gert er rétt að minnast
nánar á meðspilara hans.
Philip Catherine, sem nefndur
hefur verið hinn ungi Django, er
vel þekktur innan jazz og rokk-
heiminum. Catherine, sem er
belgiskur, hefur áður leikið i
hollenzku hljómsveitinni Focus,
en hún er vel þekkt hér á landi.
Þegar Catherine gekk til liðs við
Focus, leysti hann Jan Akker-
man af hólmi og tók við hlut-
verki hans innan hljómsveitar-
innar. Catherine hefur einnig
leikið með franska jazz- rokk-
liöluleíkaranum Jean Luc
Ponty, en sá hefur undanfarin
ár skipað sér á bekk með fær-
ustu hljómlistarmönnum
heimsins.
Philip Catherine hefur áður
unnið með NHÖP, þ.e.a.s. áður
en hann hóf leik með trióinu, þvi
að hann aðstoðaði NHÖP á
fyrstu hljómplötu hans „Jay-
walking”.
Þó að Catherine leiki nú með
Trió NHÖP, er ekki þar með
sagtaðþaðsambandsé komið á
fastan grundvöll og óvist er um
framhald triósins, en á meðan'
svo er, er Catherine viðloöandi
hóp hljómlistarmanna, sem
starfa með bandariska jazz
gitarleikaranum Larry Croyell.
Billy Hart er bandariskur
blökkumaður, sem gert hefur
garðinn frægan með trommu-
leik sinum viða um veröld. Hart
leikur að staðaldri með saxófón-
leikaranum Stan Getz, en eins
og Catherine tekur hann þátt i
þessu tilraunatrioi HNÖP.
Ástæðan fyrir þvi að Hart er
með i þessu er sú, að náin og góð
kynni tókust með honum og
NHÖP þegar hann var á ferð-
inni meðStan Getz i Danmörku i
janúar s.l. Auk þess að hafa
leikið með Getz, hefur Hart
leikið með hinum heimsfræga
jazz pianista Herbie Hancock,
en það var á meðan hann lék
með sextett hans að Hart hlaut
fyrst verulegan frama.
Báðir eru þeir Catherine og
Hart likir HNÖP i tónhugsun, og
er sagt um þá að Catherine sé
jafnvigur á bæði rafmagnaðan
og órafmagnaðan gitar, en Hart
sé jafnnæmur á hvort sem um
er að ræða hin smæstu rythma-
brigði eða hinn öflugasta storm-
þyt sveiflunnar.
Niels-Henning örsted Pedersen.
Niels-Henning örsted
Pedersen
Niels-Henning örsted Peder-
sen er fæddur 27.05.1946 i Osted i
Danmörku. NHÖP lærði fyrst á
pianó, en á það lék hann i sex ár,
áður en hann helgaði sig bass-
anum og stundaði nám i
klassiskum bassaleik i fimm ár.
NHÖP þótti strax gifurlega
efnilegur vassaleikari og
fjórtán ára hóf hann atvinnu-
ferii sinn sem tónlistarmaður og
lék þá strax með bestu jazz
hljómsveitum Dana. Arið
1962 lék NHÖP með Bud Powell,
en með honum er talið að NHÖP
hafi gert sinar fyrstu hljóðritan-
ir.
Orðstir NHÖP fór um þetta
leyti óðum vaxandi, og var það
mál manna að hann væri bezti
bassaleikarinn sem Evrópa
hefði upp á að bjóða i sam-
keppninni við Bandarikjamenn.
Um þetta leyti vann NHÖP
mikið i Montmartre Jazzhus í
Kaupmannahöfn en þar kynnt-
ist hann mörgum af þeim frægu
gestum serh þarléku, mönnum
eins og Dexter Gordon o.fl., og
allt hafði þetta mikil áhrif á þró-
un hans sem tónlistarmanns.
Arið eftir, þ.e. 1964, var NHÖP
kosinn bezti danski jazz leikar-
inn, en þá vann hanneinmitt að
hljóðritunum og hljóðfæraleik
meðRoland Kirk. Sama ár hófst
svo langt og farsælt samstarf
hans og Kenny Drew, en þeir
léku saman á Montmartre og
hijómleikum viða um veröld um
nokkurra ára skeið.
1965 fór NHÖP i hljómleika-
ferð um Evrópu með Sonny
Rollins og Triói Bill Evans. 1
Framhald á bls. 35
Exodus. Baráttusöngvarnir eru
nær horfnir og trúarbragða-
sönglið í lágmarki en i staðinn
er komin léttari laglina sem
höfðar meira til vinsældalista
en áður en allt er þetta þó fram-
kvæmt án þess að gamlar hefðir
glatist.
Lögin á Kaya eru mismun-
andi að gæðum en bezta lagið er
án alls vafa ,,Is this Love?” en
það hefur nú um nokkurt skeið
verið á vinsældalistum erlendis
og er það örugglega eitt al-
fallegasta lag sem Marley hefur
samið fyrr og siðar.
Fyrir þá sem ekki þekkja Bob
Marley & The Wailers er Kaya
ágæt til þess að afla þeim vin-
sælda og fyrir þá sem á Bob
Marley & The Wailers trúa er
hún ágæt til þess að viðhalda og
auka við vinsældir.
—ESE
Go To — Stomu
Yamashta
ARISTA ÍC 064-99
228/FáIkimi
Tónlistin á þessari plötu
Stomu Y'amashta er undir
mjög blönduðum áhrifum, þó
mest svertingjatónlistar. Sem
sagt, japönsksverlingatónlist.
i alvöru er hcr á ferð mjög góð
plata, nokkuð léttari á sinn
hátt, en annars er venja
Stomu Yamashta og útkoman
kannski hinn guilni meðal-
vegur þyngsla og afþreyingar,
þ.e.a.s. eitthvað sem felur i
sér hvoru tveggja, alvöru og
ánægju. Meðspilarar Stomu
eru heldur ekki af verri end-
anum, en siðan Go kom út
heful- þó Stevie Winwood
horfið. Ég held ég megi full- /
yrða að þetta sé hin sjöunda
opinbera plata Stomu, og þar
er engin eins og önnur. Stomu
Yamashta er með betur
menntuðum „poppurum”.
Fæddur i Kyoto i Japan árið
1947, sonur stjórnanda filhar-
moniunnar þar i borg og
stundaði músiknám frá blautu
barnsbeini. Go To er held ég
örugglega fimm stjörnu virði.
KEJ
Variations — Andrew
Lloyd Webber
MCA — MCF
2824/Fálkinn
Andrew Lloyd Webbcr ætti að
vera óþarft að kynna, um það
hafa „Jesus Christ Superstar”
og „Evita” séð.Nú er Webber
aftur á ferðinni, og að þessu
sinni hefur hann tekizt á við að
færa „Varíasjónir” fiðlusnill-
ingsins Niccolos Paganinis i
niitímalegri búning með
Jazz-rokk útsetningu. Webber
útsetur verkið með bróður
sinn Julian Lloyd Webber i
huga, en hann er mjög fær
sellóleikari og leikur á selló á
plötunni. Aðrir sem koma við
sögu eru hljómborðsleikarinn
Rod Argent, hljómsveit Jon
Hiseman, Colosseum II, Bar-
bara Thompson, sem sér um
hláslurshIjóðfæri. t aukahlut-
verkum eru mcnn cins og Phil
Collins, trom muleikari
Genesis, og Herbie Flowers,
sem leikur á bassa.
A.L.Webber sér sjálfur um
„synthesiser” ieik og ferst hon
um það vel úr hendi, Um
Variations er annars það að
segja, að allur hljóðfæraleikur
er frábær. Útsetningar ertr
¥**** +
Kaya — Bob Marley &
The Wailers
Island ILPS 9517
Fálkinn
Kaya hin nýja plata Bob Marley
& The Wailers sú sjöunda i röð-
inni frá upphafi af viðurkennd-
um hljóðritunum þeirra er eins
og hinar fyrri hreint alveg frá-
bær. Kaya er ekki eins góð og
Exodus (næst siðasta) en hún er
góð engu að siður. Kaya er
hljóðrituð um likt leyti og
Exodus og þeir sem leggja hönd
áplóginn eru þeir sömu i báðum
tilvikum. A plötunni er fylgt
sömu stefriu og mörkuð var á
góðar og margar hverjar
mjög fallegar, Aðalkostur
plötunnar er samt sá, að hún
er jafnt fyrir þá sem gefnir
eru fyrir klassik og þá sem eru
hrifnir af Jazz-rokki, án þess
að það komi niður á verkinu i
heild. Sem sagt, Variations er
mjög góð plata, hvernig sent
litið cr á hana, og á sinu sviði
er hún frábær.
10 cc — Nýr
liðsmaður og
ný plata í haust
Hljómsveitinni 10 cc hefur
bætzt góður liðsauki, þvi að
Duncan Mackay fyrrum
hljómborðsleikari Cockney
Rebel og tónlistarlegur for-
sjármaður Steve Harleys hef-
ur gengið til liös við hljóm-
sveitina.
Duncan Mackay hafði áður
neitað boði Rod Stewart um að
gerast meðlimur hljómsveitar
hans.
Mackay er útskrifaður úr
Háskólanum i Leeds með próf
i tónmenntum og tónlist en
einnig hefur hann lagt stund á
fiðlunám i hinum konunglega
tónlistarskóla.
Hlutverk Mackays i 10 cc
verður hljómborðsleikur, auk
þess sem hann mun sem ja lög
fyrir hljómsveitina. En hann
er ekki allur þar sem hann er
séður, þvi að jafnframt mun
hann vinna að sólóferli sinum
ogfylgja eftir litilli plötu sinni
Sirius sem kemur út á
næstunni
10 cc vinna nú að hljóðritun-
um á nýrriplötusinni i Straw-
berry hljóðritunum i Stock-
port en sú plata á að koma á
markað i haust.
Sala á siðustu plötu 10 cc
hefur gengið mjög vel og i
Bretlandi hefur hún selzt fyrir
andvirði 300 þúsund sterlings-
punda.
Vafalaust verður koma
Mackays til þess að hressa
upp á 10 cc i framtiðinni en
þeir hafa aldrei náð sér al-
mennilega ástrik eftir að þeir
Godley og Creame hættu i
hljómsveitinni og tóku til við
að finna upp gitarhljóðfærið
Gismo.
Duncan Mackay kemur i
stað Tony O’Malley sem er
hættur en að öðru leyti er 10 cc
skipuð eftirfarandi mönnum:
Eric Stewart, Graham Gould-
man, Paul Burgess, Rick
Fenn og Stewart Tosh.