Tíminn - 28.05.1978, Blaðsíða 6
6
Sunnudagur 28. mai 1978.
menn og málefni
Sigrum þá í
kosningunum
Mikil hætta vofir yfir þeim
flokkum, sem fara lengi meö öll
völd á sama staö. Þeir staöna,
margvislegar freistingar veröa
áleitnar i skjóli hins mikla valds
og þeir hlaöa upp i kring um sig
viöamiklu bákni sem aö lokum
fer sinu fram. Dæmi um þaö.til
hvers órofin valdaaöstaöa um
langan tima leiöir, má hvarvetna
sjá ef menn svipast um i kring um
sig.
Sjálfstæöisflokkurinn I Reykja-
vik er eitt dæmiö um þetta. Hann
hefur á löngum valdaferli hlaöiö 1
kring um sig hverju bákninu á
fætur ööru, unz stjórnkerfiö er
oröiö svo flókiö og þunglamalegt
aö þaö er beinlinis hemiil á eöli-
lega framþróun. Þetta þekkja
þeir bezt sem eitthvaö þurfa til
bæjarins að sækja.svo fremi sem
þeir eru ekki i þeirri flokksnáö aö
njóta þar svonefndrar „fyrir-
greiöslu” sem ekki er beinlinis
þekkileg hliö stjórnarfarsins. 1
þessu þunglamalega stjórnkerfi
eru svo aö segja allir æöstu em-
bættismenn borgarinnar flokks-
bundnir Sjálfstæðismenn,undan-
tekningarnar ekki nema tvær eöa
þrjár,og segir sig sjálft eftir hvers
konar reglum valið hefur veriö til
embættanna.
Flokksgæðingar
í fyrirrúmi
Þetta er Sjálfstæöishúsiö viö Skaftahllö. Hver sem lftur þaö augum minnist Armannsfellsmálsins. Þaö mun um langan aldur minna Reyk-
vlkinga á spillingu þá sem dafnaö hefur I skjóli hins gamalgróna Sjálf stæöismeirihluta I borgarstjórn Reykjavlkur. Þeir sem leggja fram fé
til flokksþarfa hafa fengiö „fyrirgreiöslu” hjá borgarstjórninni.
Kerfið gleypir
nær allar
tekjurnar
Sú yfirbygging sem þannig
hefur hlaðizt upp er oröin svo
mikil aö hún er aö sliga borgar-
sjóðinn. Aætlaðar tekjur Reykja-
vikurborgar á þessu ári eru
14.762.049 þús krónur. Af þessari
miklu fúlgu mun sem næst hálfur
þrettándi milljaröur fara i beinan
rekstrarkostnaö. fskyggilegast af
öllu er þó aö þetta hlutfall hefur
sifellt hækkaö meö hverju ári og
stefnir óðfluga aö þvi aö ekkert
veröi afgangs til framkvæmda,
svo aö innan skamms viröist reka
aö þvi aö nálega hverja krónu
sem til framkvæmda fer veröi aö
taka aö láni, svo fremi aö ekki
verður i taumana tekið.
Samt sem áöur er margvíslegri
þjónustu af hálfu borgarinnar
mjög áfátt og má þar nefna
strætisvagnaferöirnar- sem eru
alls ófullnægjandi og ekki aöeins
léleg þjónusta við þá,sem ekki
eiga bila eöa ekki aka bilum,
heldur leiðir beinlinis til aukins
slits á götum og meiri hættu á
slysum og bilaskemmdum og þar
meö hærri tryggingagjöldum en
ella þyrftu að vera. Þó aö byggt
hafi veriö eitt nýtt biðskýli,sem
sætt var færi að taka i notkun fá-
um dögum fyrir kosningar, kem-
ur það ekki nema að takmörkuðu
gagni, þegar bæöi fjöldi ferða og
afmarkaðar leiöir strætisvagn-
anna sjálfra eru ófullnægjandi.
Þvi fer lika viös fjarri svo aö
annaö dæmi sé nefnt að borgin
standi í stykkinu með lóöir undir
byggingar, er aftur leiðir til
brottflutnings fólks og fyrirtækja
i næstu byggöarlög, þar sem bet-
ur er i haginn búið.
Goðsögnin
um f jár-
málastjórnina
Sjálfstæöismenn hafa reynt ab
búa til þá goösögn aö þeir séu
öörum hæfari til þess aö sýsla við
fjármál. Hinn ofboðslegi og sl-
hækkandi rekstrarkostnaður á
vegum Reykjavikurborgar mælir
gegn þeirri kenningu. En þaö er
margt fleira sem varpar skugga á
þá óskamynd. Arið 1974 var kom-
ið i slikt óefni meö fjárhag
Reykjavfkur, að allar fram-
kvæmdir stöövuðust á miöju
sumri, örskömmu eftir siöustu
bæjarstjórnarkosningar. Yfir-
dráttarskuld bæjarins i Lands-
bankanum nem oröið sjö hundruð
milljónum króna sem aö sjálf-
sögöu var miklu geigvænlegri
fjárhæö en sú tala væri nú. I
reynd riöaöi borgin á barmi
gjaldþrots undir handleiöslu fjár-
málasnillinganna.
Til þess óyndisúrræðis varð aö
gripa aö taka erlent lán sem
stööugt hefur svo hækkaö aö inn-
lendri krónutölu vegna gengis-
fellinga og gengissigs. Nú er svo
komið skuldum Reykjavikur-
borgar að afborganir og vextir af
þeim nema 550milljónum króna á
þessu ári.
Hafnarbúðir eru eitt dæmi en
ekki heldur nema eitt dæmi af
mörgum sem varpa ljósi á ráð-
deild, framsýni og framkvæmda-
dug Sjálfstæðismeirihlutans i
borgarstjórn Reykjavikur. Fyrir
þremur árum var ákveðið að
breyta Hafnarbúöum i sjúkra-
stoínun meö tuttugu og fimm
sjúkrarúmum. Það var aö visu
undarlega sett sjúkrastofnun. En
látum þaö liggja á milli hluta.
Hitt er sögulegra að þetta átti aö
kosta þrjátiu milljónir króna og
taka sex mánuöi. A daginn kom
að 'við þetta var baukaö á þribja
ár og kostnaðurinn varð 176
milljónir króna.
Einhvers staöar hefur tals-
verðu skeikaö i áætlunum hjá
fjármálasnillingunum og eitthvaö
fariö úrskeiðis hjá framkvæmda-
görpunum.
Grundvallar-
atvinnuvegir
vanræktir
Ein af höfuðsyndum Sjálf-
stæðismeirihlutans i Reykjavik
er það undarlega tómlæti sem
hann hefur sýnt arögæfum grund-
vallaratvinnuvegum eins og
sjávarútvegi, fiskvinnslu og
iðnaði. Hann viröist loka augun-
um fyrir þvi aö heill og afkoma
sérhvers bæjarfélags er undir þvi
komiö,aö sæmilega sé hlynnt aö
slíkum atvinnuvegum sem i
reynd eru það,er allt annaö hvilir
á. Bæjarútgerð Revkjavikur
hefur veriöolnbogabarnenda þótt
Reykjavikurtogararnir væru á
sinum tima skirðir hinum stoltu
nöfnum Sjálfstæðisforingjanna,
þegar borgarstjórnarmeirihlut-
inn lét loks undan kröfum ann-
arra flokka um bæjarútgerð. 1
seinni tið hefur keyrt um þverbak
um aðbúnað að bæjarútgerðinni
og fiskiðjuverinu, þótt nú alveg
nýlega hafi verið klórað ofurlitið i
bakkann af ótta viö siharðnandi
gagnrýni. A sama hátt hefur rikt
skeytingarleysi um það hvernig
iönaöi i bænum vegnaði, eins og
fyrirtækjaflóttinn er órækast
vitni um.
Þessi blinda borgarstjórnar-
meirihluta Sjálfstæöisflokksins,
hefur leitt til þess að meðal-
brúttótekjur Reykvikinga eru
komnar niður fyrir meöaltal i
landinu og hundruð þúsunda á ári
, niður fyrir meðaltal i bæjarfélög-
um, þar sem vel hefur verið að
verki staöið,enda þótt i Reykjavík
séu miklu fleiri rikislaunaöir
menn og fólk á launum hjá opin-
berum eöa hálfopinberum stofn-
unum eins og bönkum, heldur en
nokkurs staöar annars staöar.
Þessi blinda og sinnuleysi
borgarstjórnarmeirihlutans
hefur líka dregið þann dilk_á.eftir
sér, aö Reykjavik liggxir undir
endalausum samanburöi um þaö
að hún leggi hlutfallslega miklu
minna i þjóöarbúið af gjaldeyri
eða gjaldeyrissparandi fram-
leiöslu en önnur byggöarlög.
Þetta er ekki sök borgarbúa
sjálfra. Þetta er sök þeirra sem
stjórnað hafa málefnum þeirra og
ekki hirt um velferð þeirra at-
vinnuvega sem eru grundvöllur
góðrar afkomu.
Pólitísk
aðhlynning
Annað er það, sem borgar-
stjórnarmeirihlutinn hefur ekki
setið sig úr færi með. Eitt dæmi
þess hefur þegar verið nefnt:
Kerfisbundin skipun samflokks-
manna í allar æðstu stööur i
bákninu.
En slik dæmi eru mörg. Fyrir-
tækið ArmannsfelLsem þekkt er
að örlæti viö flokkssjóð Sjálf-
stæöismanna, hefur fengiö nota-
lega fyrirgreiðslu við arövænlega
úthlutun lóöa undir stórbyggingar,
enda þótt fyrirtæki sem byggt
hafa ibúðarblokkir öörum ódýr-
ar. svo sem Einhamar,hafi væg-
ast sagt átt undir högg aö sækja.
Úthlutaö hefur veriö lóöum undir
blokkir, þar sem félagsskirteini
frá Heimdalli átti að vera eitt
fyrsta plaggiö sem fram skyldi
lagt, og raunar lykill ungs fólks
aö heimild til þess aö geta eignazt
ibúð i þessum blokkum.
Eftir svipuðu lögmáli gengur
þaö.að bezt veröur séð, þegar út-
hlutaö er verzlunaraöstöðu og
ööru sliku, er hefur i för með sér
gróöavon og mætti þar margt til
nefna ef rúm væri til i þessari
siðu. Sjálft þekkir fólk án efa
ýmis þvilik dæmi og er einfært
um að draga af þeim réttar
ályktanir.
Hnekkjum
íhaldinu
Og i dag eru borgarstjórnar-
kosningar. 1 dag er stundin til
þess að gera upp reikningana.
Sjálfstæðismeirihlutinn getur lit-
iðhrósað sér af stjórn borgarmál-
anna og hjá honum er þaö megin-
atriðið i kosningaáróörinum, aö
enginn geti verið borgarstjóri
nema Birgir ísleifur Gunnarsson,
sem hefur sagt þaö i sjónvarp aö
honum finnist ekkert athugavert
viö það,þó aö reykvisk fyrirtæki
flytji sig um set í önnur byggöar-
lög. Þetta er bágborinn kosninga-
áróöur, og mikiö veikleikamerki,
og auk þess fáránlegur. í mörg-
um kaupstöðum landsins hafa
ungir bæjarstjórar stýrt málefn-
um sveitarfélaga, þar sem áöur
var gamalgróinn og einráöur
ihaldsmeirihluti. Þeir hafa gert
það með ágætum, þótt þeir hafi
haft aö bakhjarli bæjarstjórnar-
fulltrúa úr fleiri en einum flokki.
Enginn vábrestur hefur oröiö viö
þá breytingu,fáir sakna gamla
timans, enda orðið umskipti til
hins betra viö breytinguna —
sums staðar meira aö segja meiri
framfarir en nokkru sinni áöur.
Efsta sætið á B-listanum i
Reykjavik er skipað þrautreynd-
um og farsælum manni.sem lengi
hefur starfað að borgarmálum,
Kristjáni Benediktssyni. Næstu
þrjú sætin eru skipuð ungu og
áhugasömu fólki — ungri konu
sem lengi hefur tekið þátt i marg-
vislegum félagsmálum, Gerði
Steinþórsdóttur, ungum lög-
fræðingi, Eiriki Tómassyni —
yngsta manninum, sem hugsan-
lega getur orðið borgarfulltrúi, er
þó hefur þegar getiö sér orð fyrir
atorku og ungum verkfræöingi
Valdimar K. Jónssyni, sem staöið
hafa allar dyr opnar til frama og
forsjár i háskólum i mestu tækni-
löndum heims, en vill helga landi
sinu og þjóö þekkingu sina og
starfsorku.
Þessu fólki teflir B-listinn fram
gegn stöðnuðum, sérgóðum og
raunar einnig sundurþykkum
meirihluta Sjálfstæöisflokksins.
Ef ykkur, lesendur góðir, sýnist
ráð aö leggja B-listanum liö, þá
geriö þið það i dag, svo aö um
muni. Gangið fram fyrir skjöldu
og látið að ykkur kveða i kosning-
unni. Berjizt til verulegs sigurs
gegn þeim sem eiga sök á stöön-
uninni i Reykjavik og látið renna
upp nýtt timabil i sögu þess
staðar sem er heimkynni okkar —
borgarinnar okkar og trúlega
einnig niðja okkar.
—JH
Hafnarbúöir—dæmi um fjármálasnilld og framkvæmdadug. Þeini átti aö breyta I sjúkrastofnun á sex
mánuöum fyrir þrjátlu milljónir. MiIIjónirnar uröu 176og timinn, sem breytingin tók,á þriöja ár.