Tíminn - 28.05.1978, Page 20
20
Sunnudagur 28. mai 1978.
Stjörnuliljur 16/5 1978
Geitatoppar Hrafnagilsstræti 36 Akureyri 13/8 1978
Sorphreinsun I Akurgerbi 206,1977
Ingólfur Davíðsson:
RÆTT
UM
BLÓM
OG
RUNNA
Margir hafa oröib fyrir þvi aö
innijurtir þeirra þrifast illa
nýkomnar úr gróöurhúsi. Oft er
ekki viö ööru aö búast þvi aö
vaxtarkjörin i gróöurhúsi og
stofu eru næsta ólik. Einnig er
alls ekki sama á hvaöa árstima
pottajurtir eru keyptar. Ahuga-
samur ungur maöur vildi prýöa
heimili sitt, fór i stóra blómabúö
og keypti háu veröi meterhátt,
vöxtulegt gúmmitré (Cicus) á
miöjum vetri. Blómakona i ná-
grenninu hæddi manninn fyrir
tiltækiö. „Ertu vitlaus aö kaupa
svona plöntu i skammdeginu”,
sagöi hún, miöstöövarhitinn og
myrkriö gera út af viö hana.
Hann haföi spurt um meöferö i
búöinni. Þaö veröur aö vera
hæfilega bjart á henni, var
svariö, og hvorki má vökva of
mikiö né of litiö. Maöurinn
reyndi aö fara eftir þessum
ráöum, en eftir nokkurn tima
tók jurtin aö fella blöö, unz hún
stóö blaöfá og rýröarleg eftir.
Nei, stórar blaöjurtir er hentugt
aö kaupa þegar dagur er oröinn
langur, birta nægileg og svo
hlýtt aö ekki þarf aö kappkynda
miöstööina Sá timi fer nú i
hönd. I ööru lagi þarf helzt aö
heröa jurtirnar, þ.e. venja þær
dálitið viö breytinguna frá
gróðurhúsi i stofu, eöa úr
gróðurhúsi og sólreit úti i garð.
Hvernig eru vaxtarskilyröin i
góðu gróöurhúsi? Þar er bjart,
hlýtt og loftraki mikill. Þetta er
mjög ólikt þurru „eyðimerkur-
loftslagi” miðstöövarkapp-
kyntrar stofu, aö vetrinum sér-
staklega. Munur minni á sumr-
in, en þó talsverður.
Hyggjum aftur aö potta-
jurtunum. 1 gróðurhúsinu hlýju
og röku er úöaö yfir jurtirnar,
kannski oft á dag. Þær vaxa i
lausri loftmikilli mold, stundum
i næringarlitilli torfjörö, en fá
þá næringu meö stööugri
vökvun eöa hæfilegri áburðar-
gjöf. Enda vaxa þær oft ört i
gróöurhúsinu, einkum blað-
jurtir. Sums staöar standa
jurtapottarnir á þéttu boröi eöa
i eins konar rennu, sem vatn
streymir stööugt eftir, svo jurt-
irnar fái vökvann aö neöan.
Þegar pottjurt er tekin af sliku
„vatnsboröi” fær hún enga
næringu meö vatnsstraumnum
lengur, og pottamoldin sjálf er
oft heldur næringarsnauö.
Viöbrigöin aö koma i þurrt, oft
skuggasælt stofuloftið eru of
mikil. Mörg jurtin veslast upp
viö hina snöggu breytingu,
einkum aö vetrinum. A sumrin
þurfa flestar stofujurtir áburð,
kannski áburöarlög eöa sér-
staka næringarblöndu, og þá á
viku- eöa hálfsmánaöarfresti,
eftir ástæöum. Pottajurtir ættu
menn aöeins aö útvega sér á
sumrin, ef þær eiga aö endast
lengi. Sérstöðu hafa jurtir sem
bera blóm um jólaleytiö, t.d.
jólakaktus, jólastjarna og jóla-
begóniua. Þeirra markaöur er
fyrir jólin, og sumar þeirra t.d.
jólastjarna blómgast varla
nema einu sinni i heimahúsum,
en getur dugaö áfram sem
bjaöjurt.
A sumrin þurfa flestar blaö-
jurtir góöa birtu, en þola þó illa
sterkt sólskin. Vatnsúöa ööru
hverju hafa þær gott af. Algeng-
ast er aö vökva ofan frá, en oft
er hentugt aö hella lika vatni i
undirskálina þvi rætur sumra
ná langt niður, og þaö eru
fingeröu yztu og neöstu rótar-
greinarnar, sem aöallega sjúga
i sig vatn og næringu. En ekki
má vatn standa i undirskálinni
nema stutt i einu. Þaö sem ræt
urnar hafa ekki sogið i sig eftir
svo sem hálftima, er um of, þvi
skal hellt burt. Langvarandi of-
vökvun gerir moldina klessu-
blauta, loftlitla og súra, en
þannig má hún ekki veröa, þvi
aö þá vanþrifast jurtirnar.
Einstaka jurt, t.a.m. alparós
(asalea), þarf súra mold, en alls
ekki loftlausa og klessublauta.
Jurtir sem ræktaöar eru vegna
blómanna, þurfa langflestar
góöa birtu. Jurtir sem þola
skugga geta þrifizt i noröur-
glugga eöa langt inni i stofu, eru
t.a.m. burknar, kóngavinviöur,
bergflétta, mánagull, (scindap-
sus) dilarrunni (Dieffen-
bachia), bjarmalauf (kroton)
mariulauf (aspidistra), rökkur-
lauf (aukuba) og indiánafjöður
(öðru nafni tannhvöss tengda-
móöir). Sú siöastnefnda er
raunar sólarjurt, sem þrifst
allra bezt i sólarglugga, jafnvel
rétt viö miðstöðvarofn. En hún
þolir lika skugga þó furðulegt
sé. Bæta má i hópinn rifblöðku
(monstera) o.fl. skógarjurtum
suörænna landa.
Þegar hlýnar i veöri og ekki
er lengur hætta á pæturfrostum,
fara margir aö gróðursetja kál-
jurtir i garöana. Munið aö þær
þurfa aö vera „hertar” þ.e.
vandar viö umskiptin úr sólreit
eöa gróöurhúsi út i garö — ekki
siöur en innijurtirnar. Ella
hættir þeim viö aö tréna,
„hlaupa i njóla” eöa veslast
upp, ef svaltveröurúti. Blómkál,
hvitkál og gulrófur eru öll
fremur næm fyrir þessu. Þaö
hefur m.a. leitt til þess aö hér
eru nú nær eingöngu ræktaðar
rófur, sem reynslan sýnir að
standast vorkulda sæmilega.
Svipaö er reynt viö káltegundir
— þ.e. aö velja hentuga stofna
eða afbrigði. Sizt má gleyma
grænkálinu, þaö er bæöi fjör-
efnarikast og langharðgerðast
allra káltegunda. Smáblöð af
þvi má byrja að nota snemma —
og þaö stendur grænt langt fram
á haust og þolir talsvert frost.
gróður og garðar
Almgeröi Tjarnargötu 24 (Eeykjavfk)
3