Tíminn - 02.06.1978, Side 10

Tíminn - 02.06.1978, Side 10
10 Föstudagur 2, júní 1978 ailiJlMí MÁLEFNI LÁNASJÓÐS ÍSLENZKRA NÁMSMANNA Aö undanförnu hafa nokkrar umræöur oröiö í fjölmiölum um málefni Lánasjóös islenzkra námsmanna i tilefni þess aö dómur féll i undirrétti i máli sem höföað var á hendur sjóðnum og ráðuneyti vegna úthlutunar- reglna sjóösins. Þar sem ekki voru tök á að birta i blaöinu aðsent efni um þetta mál vegna sveitarstjórna- kosninganna er þaö birt hér nú i einu lagi. 1 fyrsta lagi er yfir- lýsing formanns sjóösstjórna^ sem meirihluti stjórnar Lána- sjóðs islenzkra námsmanna, þeir Stefán Pálsson, Arni Ólafur Lárusson og Jón Sigurösson, létu færa sem bókun á stjórnarfundi. í ööru lagi er fréttatilkynning námsmannasamtaka meö bókun námsmannafulltrúa á sjóðs- stjórnarfundi, og i þriðja lagi er bréf þeirra til menntamálaráð- herra i þessu tilefni. „Aöalatriði þessa máls er þaö tillit sem i úthlutunarreglum Lánasjóös islenzkra námsmanna er tekiö til framfærslu barna námsmanns. Dómurinn staöfestir skýringar sjóösins á þessu aðal- atriöi málsins, nefnilega aö tillit erf reglunum tekiö til framfærslu barna. Mikilvægasta og ákafasta gagnrýnisatriöi námsmanna- samtaka á undanförnum árum, aö svo sé ekki, er þannig visað á bug. Er þess aö vænta aö meö þessusé misskilningi, rangtúlkun og úlfúð um þetta efni rutt úr vegi. Hins vegar kemst undirréttar- dómurinn að óvæntri niöurstöðu um annað og miklu veigaminna atriði málsins. Hann telur, aö maka eða sambýlismanni náms- manns eigi jafnan að vera frjálst að velja á milli þess aö njóta láns úr sjóðnum eða afla sér tekna meö öörum hætti, hvort sem hann er sjálfur viö nám eöa ekki. Má ljóst vera hviiikar byrðar slikt myndi leggja á sjóðinn umfram þá skyldu aö veita námsaðstoö, ef þaö eitt að lifa f sambúö viö námsmann telst veita rétt á opin- berri framfærslu. Sjónarmið sjóösins er aftur á móti það,aö aðstoð beri aö veita til náms og vegna náms, í tilefni náms og~á námstima, en önnur atriði hljóti aö lúta þessu megin- markmiöi eftir þvi sem fjárhagur sjóösins leyfir. Um það er ekki deilt að fjárhagur sjóösins hefur verið þröngur og sett allri starf- semi og fyrirgreiöslu skorður. Ef niöurstöðu undirréttardómarans um þetta efni yrði fylgt, hlytist af þvi markverð almenn skerðing námsaðstoðar,sem kæmi niður á öllum námsmönnum. Sjóðurinn hefur talið sér kleift og skylt að veita þeim náms- mönnum sérstaka styrki, um> fram veitt námslán, sem lifa við verulega skertan fjárhag, m.a. vegna f jölskylduaðstæðna. Námsmaðurinn, sem höfðaði þetta mál,sótti um slikan styrk, en sýndi ekkifram á að hann lifði viö slikar aðstæður að kæmu I veg fyrir frekaranám. Varhonum þvi synjað um styrkinn með atkvæð- um fjögurra stjórnarmanna i sjóðsstjórn. Maki þessa náms- manns, en fjárhagur hans var aukaforsenda málshöfðunar, hefði enn fremur getað sótt um námslán á grundvelli svo nefndr- ar 20-ára-reglu, en notfærði sér af einhverjum ástæðum ekki þennan rétt sinn. Má vera að fulltrúar námsmanna hafilátið undir höfuð leggjast að gera honum ljósan þennan rétt. Lánasjóður islenzkra náms- manna gerir með öðrum orðum ráð fyrir þvi i reglum sinum að tillit verði tekið til sérstaklega erfiðra fjárhagsaðstæðna, sem m.a. kunna að hljótast af tekju- leysi maka eða sambýlismanns námsmanns. Liggur þetta grund- vallaratriði ljóst fyrir eins og er um tillit til framfærsiu barna, enda þótt ágreiningur hafi veriö um aðferðir og upphæðir. Niðurstaða undirréttardómar- ans virðist vera sú að tillit til fjár- hagsaöstæöna námsmanns, sem hljótast af tekjuleysi maka eða sambýlismanns, skuli felasti i regl um um almenn námslán fremur en ákvæðum um sérstaka viö- bótaraöstoð. Verður ekki séð að slik tiltekin túlkun á einstökum framkvæmdaratriðum verði lesin af almennum ákvæðum laga og reglugerðar. I dóminum og for- sendum hans kemur reyndar ekki fram að það skipti máli hvor að- ferðin kunni að leiða til betri fyrirgreiöslu við námsmann og fjölskyldu hans^eða að einu kunni að gilda i reynd. Þetta mál snertir aðeins nokkur ákvæði einnar greinar út- hlutunarreglna, en ekki reglurnar iheild. Það er þvi rangt, sem haft hefur verið eftir lögmanni stefn- anda málsins i blaðaviðtali, að niðurstaða undirréttardómarans sýni að úthlutunarreglurnar sem slikar „standist ekki”. Mun þetta samdóma álit sjóðsstjórna^ enda þótt menn greini á um einstök ákvæði, einkum hversu langt skuli ganga i nokkrum atriöum. Úrslit þess máls, þegar fyrir liggja, munu þvi ekki sjálfkrafa véfengja úthlutunarreglur Lána- sjóðs islenzkra námsmanna i heild. I ljósi þess sem hér hefur verið rakið vekja ummæli undirréttar- dómarans um svo nefnd „mis- tök” sjóðsstjórnar furðu. Er ein- sýnt að málinu verður tafarlaust áfrýjað að þvi er tekur til þess aukaatriðis málsins sem hér hef- ur verið gert að umtalsefni.” Fréttatilkynning námsmannasamtaka „f fjölmiðlum hafa birzt næsta undarlegar túlkanir á dómi bæjarþings Reykjavikur i máli námsmanns gegn stjórn Lána- sjóðs islenzkra námsmanna. Hér er aö sjálfsögðu átt við þá túlkun Jóns Sigurðssonar, formanns LIN, sem bókuð var á stjórnar- fundi sjóðsins 23. mai s.l.. Sér- staklega hefur fréttaflutningur verið dapurlegur i Timanum, þar sem þessar annarlegu túlkanir hafa átt upp á pallboröið, en á þeim bæ er fyrrnefndur Jón rit- stjornarfulltrúi. Þessar rakaiausu túlkanir Jóns ganga út á það.að dómurinn hafi staðfest að eðlilegt tillit hafi verið tekið tii framfærslu barna i út- hlutunarreglum LfN. Þetta er al- rangt. Þvi létu fulltrúar náms- manna i stjórn Lánasjóðsins bóka eftirfarandi m.a.: Bókun meirihluta sjóðsstjórnar „Það eina i dómnum, sem hugsanlega gæfi tilefni til slikrar röksemdafærslu er4 aö þar er áréttaðað tekið hafi verið tillit til þess að stefnandi hafi barn á framfæri sinu að því leytiað um- framtekjur hans eru miðaðar við 25% hærri upphæð en ella (bls. 341). Rétt er að leggja á það áherzlu að um þetta var enginn ágreiningur ' á milli stefnanda ogstefndu. Eins og fram kemur i dómnum lýsti lögmaður stefn- anda þvi yfir að þessu sé „ekki andmælt á nokkurn hátt”. Þetta er þvi algjört aukaatriði i málinu. í raun snýst málið um það hvort úthlutunarreglur séu i samræmi við lög óg reglugerð sem kveða skýrt á um að tekið sé tillit til fjöl- skyldustærðar. Niðurstaða dóms- ins er ótviræð að þessu leyti: út- hlutunarreglurnar eru i andstöðu við ákvæði 3. gr. laganna og 11. gr. reglugerðarinnar. Rétt er að i rökstuðningi þessarar niðurstööu er höfuðáherzla lögð á það að ekkert tillit hafi verið tekið til maka námsmanns og þeirrar staöreyndar að hún haföi mjög litlar tekjur. Þetta er ástæðan til þess að aðeins stuttlega er vikið að þvi á hvern hátt tekið er tillit til barns á framfæri námsmanns, sem er ekki ágreiningur um að því leyti að umframtekjur námsmanns reiknast við 25% hærri upphæð en ella. Þetta merkir auðvitaö ekki að niður- staða dómsins sé á þá leið að eðli- legt tillit sé tekið til framfærslu barna þar sem ljóst má vera að sé námsmaður með barn á framfæri tekjuiaus eða tekjulitill, þ.e. hafi minni tekjur en marktekjur, er ekkert tillit tekið tii framfærslu barnsins (barna).Rétt er að taka fram að það er einmitt barnafólk sem hefur skerta möguleika á að afla sér umframtekna. Af þessu má ljóst vera að eina raunhæfa leiðin til að taka tillit til fram- færslubarns (barna) er að reikna framfærslu þess beint inn i fram- færslukostnað námsmanns. Af ofangreindu leiðir að dómur- inn gefur alls ekki til kynna að eðlilegt tillit sé tekið til fram- færslu barna i úthlutunarreglum LIN. Þvert á móti liggur hið gagnstæða i augum uppi. I dómn- um er margitrekað að lög og reglugerð kveði skýrt á um að veita beri lán með tilliti til fjölda þeirra er lánþegi hefur á fram- færi sinu. Dómari sér jafnvel ástæðu til að taka það fram svo þaöfari ekki á milli mála að bæði er átt við maka og barn (börn). Og i dómsorði er kveðið á um að endurskoðun lánaúthlutunar til Egils beriað framkvæma meðtil- liti til fjölskyldustærðar en ekki aðeins maka námsmanns. A eng- an hátt er þvi hægt að túlka dóm- inn þannig að úthlutunarreglurn- ar taki eðlilegttillit til framfærslu barna. 1 máli Egils var að visu tekið tillit til. þess að hann hafði barná framfæri enaöeins að litlu leyti og aöeins vegna þess að Egill hafði þær tekjur að 25% hærra umframtekjumark kom honum til góða. En það er ljóst aö það er stór hópur tekjulitilla námsmanna sem hafa barn (börn) á framfæri sinu sem ekk- ert tillit er tekið til vegna ólög- legra úthlutunarreglna.” Bréf Stúdentaráðs til menntamálaráðherra „Með þessu bréfi beinir stjórn Stúdentaráðs Háskóla fslands þeirri áskorun til yðar, að þér ógildið skipun núverandi fúlltrúa ráðuneytis yðar i stjórn Lána- sjóðs islenzkra námsmanna. Eftirfarandi ástæður liggja þess- ari áskorun til grundvallar: Hinn 26. april s.l. var 1 bæjar- þingi Reykjavikur felldur dómur i máli Egils M. Guðmundssonar námsmanns gegn Lánasjóði is- lenzkra námsmanna, mennta- málaráðherra og fjármálaráð- herra f.h. rikissjóðs. Samkvæmt dómi þessum eruýmis veigamikil atriði núverandi úthlutunar- reglna um námslán i andstöðu við gildandi lög og reglugerð um námslán og námsstyrki. Þrátt fyrir þsssa ótviræðu niðurstöðu hafa fulltrúar yðar i stjórn Lána- sjóðs isl. námsmanna lagt fram tillögur við hina árlegu endur- skoðun á úthlutunarreglunum sem nústenduryfir, þar sem ekk- ert tillit er tekiö til niðurstaðna hins nýgengna dóms. Af þvi má ljóst vera að fulltrúar yðar hafa ekki i hyggju að falla frá þeirri túlkun sem bæjarþing Reykjavik- ur hefur talið ólögmæta, heldur halda áfram lögbrotum sinum. Af þeirri ástæðu telur stjórn Stú- dentaráðs þá vanhæfa til áfram- haldandi setu i stjorn Lin, og beinir þeirri eindregnu áskorun til yðar að þér skipið nýja fulltrúa I þeirra stað.” Myndhöggvarar á Listahátíð: FI —Sunnudaginn 4. júni opnar Myndhöggvarafélagið I Reykja- vik samsýningu í Asmundarsal á Skólavörðuhoiti. A sýningunni eru 27 skúlptúrar, unnir i marg- visleg efni: tré, járn, gips, kopar og epoxy. Undanfarnar Listahátiöir hefur M yndhöggvarafélagiö sýnt i Austurstræti, en vegna skemmdaráráttu vegfarenda var ákveðið að breyta til og hafa innisýningu. Hins vegar ber þess að geta að þrjú listaverk eru á svölum Asmundarsalar og tvö verða úti i garði. Þrettán myndhöggvarar taka þátt i sýningu félagsins. Þeir eru HallsteinnSigurðsson, Helgi Gislason, fvar Valgarðsson, Nieis Hafstein, Jón Gunnar Arnason, Magnús A. Arnason, Magnús Pálsson, Ragnar Kjartansson, Rúri, Sigfús Thorarensen, Sigurður Steins- son og Sverrir Ólafsson. Gestur sýningarinnar er Sigurjón Ólafsson. Sýningin verður opin daglega frá kl. 16—22 á meöan Listahátið stendur. Ctisýning Myndhöggvarafélags islands fer nú fram á svölum Asmundarsalar og úti i garði. A svölunum eru þrjú verk. Þau eru t.f.v. á myndinni: Steinbogar (gips) eftir Hallstein Sigurðsson, Tónn (járn) eftir Sigurð Steinsson og Náttúru- hlutur (kopar) eftir Sverri Ólafsson. Með á myndinni er Hallsteinn Sigurðsson. TimamyndTryggvi. Sýna inni af ótta við spellvirki Ct er komin hjá Almenna bóka- félaginu bókin Frjálshyggja og alræöishyggjaeftir Ólaf Björns- son, prófessor. Aftan á bókar- kápu segir, aö bókin sé hlutlæg skilgreining á tveimur megin- stefnum. stjórnmálanna fyrr og siðar— annars vegar hvort ein- staklingurinri eigi að ákveða sjálfur markritið sin, orð og at- hafnir, eða hvort rikisvald og stjórnendur eigi að ákveða það fyrir hann. „Gerð er grein fyrir fræðilegum grundvelli þessara andstæðu stefna og hvaða þjóð- félagslegum forsendum þær hljóta að byggja á hvor fyrir sig. Að lokum er gerð nokkur úttekt á islenzku þjóðfélagi á dögum á grundvelli þeirra niðurstaðna, sem komizt er aö I bókinni”. 1 formálsorðum fyrir bókinni segir höfundurinn m.a.: „Það er vitanlega aldrei hægt að komást aö neinni þeirri riiður- stöðu i þessum efnum, sem allir geta orðiö sammála um. En bókin er skrifuð I þeirri von, að þau sjónarmið, sem þar eru sett fram, geti stuðlað að málefna- legri umræðum um þau grund- vallaratriði efnahags- og félags- mála en nú tiökast á vettvangi Islenzkra stjórnmála”. Ólafur Björnsson Bókin er pappirskilja 259 bls. aö stærö. Hún er unnin I Prent- smiðju Arna Valdimarssonar og Bókbandsstofunni örkinni. Káupteikning er gerð i Mynda- mótum hf. af Sigurþór Jakobs- syni. Ný bók Ólafs Björnssonar: ”—ja og

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.