Tíminn - 02.06.1978, Side 13
Föstudagur 2. júnl 1978
13
Haraldur Arnason skólastjóri á Hólum:
Efling bænda-
skólans
á Hólum
— hugmyndir Hólanefndar
Hinn 27. ágúst 1976 skipaöi
landbúnaöarráöherra 7 manna
nefnd aö undangenginni ályktun
Alþingis þar aö lútandi. t
skipunarbréfi til nefndarmanna
segir að nefndin eigi að gera
áætlun um eflingu Bændaskólans
á Hólum i Hjaltadal og skyldi
áætlunin viö þaö miðuö aö meö
framkvæmd hennar yröi minnzt á
myndarlegan hátt aldarafmælis
skólans 1982.
I nefndina voru skipaðir þessir
menn: Haraldur Árnason, skóla-
stjóri á Hólum, formaöur, Hjalti
Pálsson framkvæmdastj.
Reykjavik, Björn Jónsson, bóndi
Bæ, Hjörtur E. bórarinssonbóndi
Tjörn, frú Sigrún Ingólfsdóttir
Reykjavik, Pálmi Jónsson alþm.
og Páll Pétursson alþm.
Nefndin hélt sinn fyrsta fund i
Arnarhvoli i Reykjavik hinn 13.
nóv. 1976. Þessber að geta að þaö
er eini fundurinn sem frú Sigrún
hefur setið en hún veiktist nokkru
siðar og sagöi sig þá frá nefndar-
störfum.
Tveir næstu fundir nefndarinn-
ar voru haldnir heima á Hólum
dagana 20. og 21. júli 1977 en þá
kynntu nefndarmen sér bygging-
ar á staðnum og gerðu sér þá þeg-
ar ljóst aö uppbygging á staðnum
þyrfti að verða mjög viötæk og
raunar nokkuö vandséö á hverju
væri hagkvæmast að byrja.
Aður en lengra er haldið frá-
sögn af störfum nefndarinnar vil
ég láta þess getiö aö ég var i
nokkur ár búinn aö óska eftir aö
fá að byggja ný f já rhús yfir a llt fé
skólabúsins, sem einnig hentuöu
vel tilraunastarfsemi þeirri (feld-
fjárræktun) sem fram fer á Hól-
um og staöiö hefur allmörg ár viö
fremur erfiöar aöstæöur. Féð er
nú hirt á þremur stööum, 1. á
beitarhúsum (Hagakoti) I ca. 4
km fjarlægð frá Hólum, 2. i hálf-
'um gömlu fjárhúsunum og 3. i
hluta af fjósinu (gemlingar). Sá
helmingur fjárhúsanna sem féö
er ekki i, hefur verið geröur aö
hesthúsum og eru þaö einu hest-
húsin á staönum, nema talin sé
meö ein básaröð i fjósinu og litiö
úthýsi við fjósið.
Hafði ég i nokkur ár sett lið á
fjárlagatillögur Bændaskólans
(en skólabúiö heyrir undirhann)
sem hét ný fjárhús. I fjárlögum
heitir allt sem flokkast undir f jár-
festingu gjaldfæröur stofn-
kostnaður og hefur sá liður ávallt
verið skorinn svo mjög niöur við
gerö fjárlaga aö litiö hefur enn
orðiö úr framkvæmdum viö nýju
fjárhúsin.
Fyrir 2-3 árum er ég var stadd-
ur I Reykjavik kom ég til
Búnaöarfélags Islands i Bænda-
höllinni. Þar hitti ég að máli dr.
Halldór Pálsson búnaöarmála-
stjóra. Tókum viö tal saman enda
gamalkunnugir frá þvl er viö vor-.
umbáðirráðunautar og unnum oft
saman á hrútasýningum i Skaga-
firöiograunar vlðar. Spuröi Hall-
dór mig almennra tiðinda af
Hólastaö og mun ég hafa greitt úr
þeim spurningum eftir beztu
getu. Aöspurðurum fyrirhugaðar
framkvæmdir á staönum lét ég
þess getið aö ég vonaöi aö brátt
mundi reynast unnt aö hefjast
handa um byggingu nýs fullkom-
ins fjárhúss, sem hýsa ætti allt fé
skólabúsins og ættu húsin aö vera
sérlega vel úr garöi gerð með til-
liti til núverandi og vaxandi til-
raunastarfsemi er snerti sauö-
fjárbúiö.
Svar búnaðarmálastjóra viö
þessum upplýsingum mínum kom
mér nokkuö á óvart, ekki sizt þeg-
ar haft er i huga að hann var lengi
sauöfjárræktarráöunautur
Búnaöarfélags Islands og raunar
mikill áhugamaöur umsauöfé og
sauðfjárrækt. Hann sagöi eitt-
hvaö á þessa leiö: Þú átt ekki aö
byggja fjárhús strax, þú átt að
byrja á hesthúsi enda væri þaö
ekki vanzalaust fyrir Hrossakyn-
bótabú rikisins sem rekiö er á
Hólum, að eiga engin hesthús.
Þaö er orö aö sönnu aö ekki er
mikil reisn yfir eina hrossakyn-
bótabúi rikisins aö þurfa aö not-
ast viö lágreist loftvond 150 kinda
fjárhús sem byggð voru áriö 1927.
Hrossakynbótabúið á Hólum er
merk stofnun sem starfar eftir
reglugerö sem sett var áriö 1971
samkvæmt lögum nr. 21/1965.
Hross búsins eru nú um 100 og að
sjáiísögöu á öllum aldri. öll folöid
eru látin lifa og raunar er engum
hrossum fargað fyrr en þau eru
uppkomin og gengið hefur verið
úr skugga um aö þau henti ekki
ræktunarstarfinu. 011 eru hrossin
tamin og unghrossin eru mæld og
skoðuð vor og haust af hrossa-
ræktarráöunaut Búnaöarfélags
íslands, þar til þau hafa náö full-
um þroska. Tamninguna annast
þaulreyndir tamningamenn og
raunar mest sami maðurinn.
Þannig fæst raunhæfur saman-
burður á hrossin ár frá ári. Éger
löngu orðinn fyllilega sammála
búnaöarmáiastjóra um aö ófært
sé að láta hrossakynbótabúiö
vera lengur i svo þröngu húsnæöi
sem raun ber vitni. Búnaöarfélag
Islands greiðir árlega rekstrar-
framlag tilbúsinsoghlýtur þvi aö
hafa a.m.k. tillögurétt um
hvernig að gripunum sé búiö. Þá
eruíslenzkhrossum áraraðir bú-
in að vera útflutningsvara og fer
hlutur þeirra I útflutningi land-
búnaðarins vonandi vaxandi á
næstu árum. Hrossaútflutningur-
inn hefur mér vitanlega aldrei
notið neinna útflutningsbóta og
geta bændur þvi kinnroöalaust
boðið hross til útflutnings.
Margir erlendir ferðamenn
sem til Islands koma eru áhuga-
menn um hrossog hestamennsku.
Slikir menn leggja gjarnan leiö
sina þangaö sem þeir geta fengið
að sjá hross. Er þá i mörgum til-
fellum nærtækt að benda þeim á
Hrossakynbótabú rikisins enda
koma hingaö af og til útlendingar
til aðskoða hrossin og er það vel.
Hins vegar væri mikiö ánægju-
legra að sýna gestum hrossin ef
um leið væri hægt að sýna þeim
glæsilegasta hesthús landsins.
Haraldur Arnason.
Þegar Hólanefnd fór fyrir al-
vöru að ræða um hvaða fram-
kvæmdum hún ætti aö óska eftir
og i hvaöa röð þær skyldu koma
varð henni fljótlega ljóst aö
heppilegast myndi aö byrja á
uppbyggingu gripahúsanna.
Byggingum þeim sem nú eru á
Hólum og raunar lika þeim sem
koma skulu má skipta i þrjá
flokka og eru þeir þessir: bygg-
ingar skóla, starfsmannaibúðir
og byggingar skólabús. Þessir
þrlr flokkar bygginga standa nú i
höfuðdráttum aöskildir, þannig
aö hver flokkur fyrir sig er á sér
svæöi og gripur hvert svæöi ekki
inn á annað nema með einni und-
antekningu en hún er sú aö fjósiö
stendur raunverulega á svæöi
skólamannvirkja. Er f jósiö raun-
ar lengi búiö aö vera þyrnir I aug-
um fjölmargra og hefur oft veriö
á þaö minnzt að þaö ætti að vikja
og nýtt f jós að byggjast á öðrum
staö innan marka þess svæöis
sem ætlað veröur fyrir byggiMar
skólabúsins. Hugmynd IWla-
nefndar um þetta atriði er sú aö
fjósiö eigi aö fara og á þeim staö
sem þaö stendur nú á eigi að risa
nýtt heimavistarhús og mötu-
neyti. Mundi sú bygging ef vel
tekst til, auka mjög reisn staöar-
ins.
Hólar I Hjaltadal
Ég vil nú meö nokkrum oröum
gera grein fyrir þeim frumtillög-
um, sem Hólanefnd hefur orðiö
sammála og raunar alveg ein-
huga um. Ég legg þunga áherzlu
á aö tillögur nefndarinnar mynda
einaheild en þýöir aö hún telur aö
allar þær byggingar og aörar
framkvæmdir sem tillögurnar
fela I sér veröi aö fylgja fast hver
á eftir annarri og megi fram-
kvæmdahraöinn ekkert skeröast
ef vel á aö vera.
1 greinargerö meö frumtillög-
um nefndarinnar sem afhentar
voru landbúnaöarráöherra segir
svo:
„Nefndin gengur útfrá þvl I til-
lögugerð sinni að frumvarp til
laga um búnaöarfræöslu veröi
lögfest.
Taliö er æskilegt að stærö
bændaskóla sé . á bilinu 50-100
nemendur. Nefndin miðar tillög-
ur sinar viö að á Hólum veröi 60
nemenda skóli I þrem bekkjar-
deildum. Tilraunir og kennsla
markist af tengslum viö hrossa-
ræktarbúið aöstööu sem skapa
veröur til sauöfjárkynbótabús en
það er ekkert til á Norðurlandi og
ennfremur aöstööu til fiskiræktar
og fiskibús sem staðsett yrði á
Hólum fengist nægjanlegt heitt
vatn.
Verkaskipting skólanna á Hól-
um og Hvanneyri á jaröræktar-
sviöi gæti markazt af norölenzk-
um aöstæðum t.d. jarövegs- og
veöurfars m.a. hvað aröar
endurræktun túna og hagnýtingu
búfjáráburöar o.fl. Afram veröi
lögð sérstök áherzla á góöa
smiðakennslu á Hólum.
Gamla skólahúsiö á Hólum er
fallegt og stilhreint hús, sem
sjálfsagt er ab varðveita og nota
áfram I þágu bændaskólans.
Nefndin telur að kennslustofur
séu bezt komnar þar framvegis
sem hingað til og raunar megi
fjölga þeim. Aö ööru leyti veröi
húsið hagnýtt fyrir söfn,kennara-
stofur, kennaralbúði aöstööu til
félags- og tómstundastarfa,
geymslur o.fl.
A Hólum þarf að vera alhliöa
búskapur ekki endilega mjög stór
I sniðum en fyrirmyndarbú-
skapur til kennslu, tilrauna og
staðnum til virðingarauka.
Hrossabúið hefur sérstööu vegna
þess ræktunarstarfs sem þar fer
fram á vegum rikisins lögum
samkvæmt. Engin skepnuhús
sem nú eru á Hólum, hæfa
framanskráðuhlutverki enda eru
þau mjög gömul aö stofni til,frá
þvi um og fyrir 1930. Þvi leggur
nefndin til að þau byggist öll upp
á svæðinu sunnan við brekkuna,
þar sem nú eru fjárhúsin. Nefndin
telur mjög æskilegt að stofna
ogstarfrækja fiskibú á Hólum (til
uppeldis sleppiseiða og slátur-
silungs) og telur hugsanlegt aö
koma þvl fyrir i núv. fjárhúsum.
Fiskibúið sé jafnframt kennslu-
stofnun og veröi sérgrein Hóla-
skóla.
Þvi leyfir nefndin sér að leggja
fram eftirfarandi drög aö fram-
kvæmdaáætlun 1978-1982.
1978.
1. Borað veröi eftir heitu vatni á
Reykjum. Veröi árangur góöur
veröi þegar i sumar hafizt
handa við framkvæmdir viö að-
veituæð til Hóla.
2. Byggt veröi hesthús og hlaba.
Stærö hússins miöist viö aö þaö
rúmi hross kynbótabúsins auk
um 30 hrossa er nemendur fá aö
hafa á tamninganámskeiði aö
vetrinum. Þá verði I og við hús-
ið aðstaða til tamningakennslu.
og tilrauna á vegum Rann-
sóknastofnunar landbúnaðar-
ins. Hesthúsiö veröi þannig úr
garði gert aö veröugtmegi telj-
ast kynbótábúi'Tíkisins og’"aÖ"
þvi stefnt að á Hólum verði i
framtlðinni höfuöból hrossa-
ræktar og hestamennsku.
1979
1. Hitaveita veröi fullgerð.
2. Byggt veröi 25-30 kúa fjós meö
hlööu og öllum búnaði. Stærð
fjóssins miðist viö að þar sé aö-
staöa til kennslu fremur en aö
rekinn sé stórbúskapur. Vel sé
séð fyrir tæknibúnaði.
1980
1. Byggt veröi heimavistarhús
bændaskólans (á þeim staö
sem fjósiö er nú). Stærð miöist
viö að á Hólum veröi 60 nem-
enda skóli.
1981.
1. Byggt verði fullkomið fjárhús
yfir 4-500 fjár, hannaö meö
hliðsjón af þörfum tilrauna-,
fjárræktar og kennslubús.
2. Undirbúin veröi stofnun fiski-
bús sem e.t.v. hafi aösetur i
gömluf járhúsunum. Stofnun og
rekstur búsins veltur á þvi
hvortheitt vatn fæst frá Reykj-
um og hvort tekst aö afla nægi-
legs magns af köldu vatni
(neyzluvatni).
3. Núverandi skólahús veröi
endurbætt meö þarfir kennslu-
húsnæöis fyrir augum. Þar
veröi og sköpuö aöstaða til
félags- og tómstundastarfa.
1982.
Gengið veröi frá framkvæmd-
um. Staðurinn snyrtur vand-
lega. Sögustaöir merktir,
undirbúið hátiöarsvæöi og
haldin myndarleg afmælis-
hátið.”
Tillögur þessar eru viö þaö
miðaðar aö landbúnaðarráöherra
hafi verið full alvara, þegar hann
skipaöi nefndina og hafi raun-
verulega ætlazt til aö sú svelti-
stefna sem fjárveitingavaldiö
hefur löngum fylgt um málefni
Hóla, yröi rofin. Vonar nefndin að
framvegis veröi veitt svo riflegu
fjármagni til Hóla aö fram-
kvæmdahraði sá sem hún gerir
ráð fyrir og raunar er mjög æski-
legur, verði ekki minnkaður.
Alþingi þaö sem lauk störfum
fyrir skömmu, samþykkti ný lög
um búnaöamám.þarsem m.a. er
gert ráð fyrir lengingu búnaöar-
námsins úr einum vetri 1 tvo svo
og verulegri aukningu á verklegu
námi við skólana sjálfa og utan
þeirra. Hafa skólarnir 4 ára að-
lögunartima aö þessum breyttu
aðstæðum.
Hólanefndgerðisérfrá UR)hafi
Ijóst aö taka þyrfti tiflit til þeirra
breytinga sem nýju búnaöar-
fræöslulögin mundu hafa I för
meö sér fyrir Bændaskólann á
Hólum. M.a. þess vegna leggur
húnsvo rika áherzluá að aöstaöa
til verknáms viö skólann veröi
stórbætt hiö fyrsta eins og tillögur
hennar bera meö sér.
Þab má meö sanni segja aö
bændaskólarnir standi nú á tlma-
mótum. Enginn veit meö vissu
hvaöa áhrif lenging námsins kann
aö hafa á aösókn aö skólunum og
kemur það varla I ljós fyrr en aö
þvl kemur.
Ofthefurveriö fundið að þvi að
búnaöarnámiö veiti mönnum
engin réttindi (atvinnuréttindi)
og er það rétt. Allmikið hefur þó
veriö rætt um hvernig úr þessu
megi bæta. Helzt hefur komið til
oröa aö búfræðingar sem hefja
vilja búskap eigi greiðari leiö aö
fyrirgreiöslu hjá lánastofnunum
landbúnaðarins, eöa jafnvel aö
búfræðipróf verði gert aö skilyrði
fyrir slikum lánum. Fari svo um
lánamálin liggur I augum uppi ab
bændaskólarnir veröa aö búa sig
undir aö taka á móti auknum
fjölda nemenda. Tillögur Hóla-
nefndar miöa markvisst aö þvi aö
efla Bændaskólann á Hólum á öll-
um sviöum, bæði hvaö snertir aö-
stööuhjá skólabúinu til aukins og
bætts verknáms og tilrauna svo
og bætta aöstöðu til bóklegrar
kennslu og allan aöbúnaö aö
væntanlegum nemendum i skóla
og heimavist.
Ég vona aö landsmönnum sé
öllum fyllilega ljóst aö þeir eru
ávallt velkomnir heim aö Hólum.
Ritaö I mai 1978