Tíminn - 02.06.1978, Side 19
Föstudagur 2. júnl 1978
19
Macari
verður
miðherji
Skota
— ef Johnstone
og Jordan verða
ekki búnir að
ná sér eftir
smá meiðsli
— Ég hef trú á þvi að þeir
Derek Johnstone og Joe Jordan
veröi búnir aö ná sér fyrir leikinn
gegn Peru, sagöi Ally MacLeod,
einvaldur Skota i Cordoba i gær-
kvöldi, þegar ijöst var aö báöir
miöherjar Skota — Johnstone og
Jordan áttu viö meiösli aö striöa,
en Johnstone tognaöi litilsháttar
á ökla á æfingu, þegar hann mis-
steig sig. Jordan hefur veriö meö
smá strengi i fæti.
— Ef þeir veröa ekki biínir aö
ná sér á laugardaginn, þá mun
Lou Macari fara I fremstu
viglinu, en þá stööu lék hann á
keppnisferöalagi Skota um
S-Ameriku sl. sumar, þegar
Jordan var meiddur, sagði Mac-
Leod.
Skozki einvaldurinn mun að
öllum likindum láta þessa
leikmenn leika gegn Peru: —
Rough, Jardine, Forsyth, Burns,
Buchan, Masson, Hartford,
Rioch, Dalglish, Jordan og
Johnston.
Frábær
árangur
Schön’s
Heimut Schön, hinn 62 ára gamli
einvaldur y-þýzka landsliösins i
knattspyrnu, hefur stjórnaö
v-þýzka liöinu sl. 14 ár. Hann mun
láta af stjórninni eftir HM-keppn-
ina í Argentinu. Schön hefur náö
mjög góöum árangri meö liöiö,
sem varö i ööru sæti i HM-keppn-
inni i Englandi 1966, þriöja sæti i
Mexikó 197» og heimsmeistarar i
V-Þýzkalandi 1974. A þessu tíma-
bili hafa V-Þjóöverjar leikiö 134
iandsleiki — unniö 88 leiki og
tapaö aöeins 21 leik — og á þessu
sést hvaö frábært starf Schön
hefur unniö.
HM-keppnin
Þrir leikir veröa leiknir
HM-keppninni i knattspyrnu
kvöld, en þá mætast:
l.RIÐILL:
Ungverjaland — Argentlna
Frakkland — ítalia
Mexikó
2.RIÐILL:
íran
lOOOOOOO
Pólverjar voru ekki
á skotskónum...
— og heimsmeistararnir máttu hrósa happi að ná jafntefli gegn bar-
áttuglöðum Pólverjum — 0:0 í fyrsta leik HM-keppninnar í Argentínu
Pólverjar tryggöu sér jafntefli (0:0) gegn heims-
meisturunum frá V-Þýzkalandi, þegar þeir mættust á
River Plate-leikvellinum í Buenos Aires í gær í fyrsta
leik HM-keppninnar í knattspyrnu í Argentinu. Pólverjar
sýndu mjög góðan leik og var sóknarleikur þeirra beitt-
ur, þótt að þeim hafi ekki tekizt að skora — þeir sýndu
það að þeir verða sú Evrópuþjóö, sem mun veita S-Ame-
riku-þjóðunum Brasilíu og Argentinu, sem er spáð mikl-
um frama í keppninni, mikla keppni.
Pólverjar, meö sina sterku,
stóru og reyndu leikmenn, byrj-^
uðu vel og yfirspiluöu þeir V-
Þjóöverja, sem náöu aö rétta úr
kútnum I seinni hálfleik, en þá
voru þeir sterkari en Pólverjar,
sem voru þó nær að skora — fóru
iila með mörg góö marktækifæri.
Það var glampandi sól þegar
leikurinn hófst á River Plate-leik-
vellinum og höföu 80 þús. áhorf-
endur komið sér vel fyrir á áhorf-
endabekkjunum, en öflugt lög-
regluliö var inn á milli áhorfenda
— tilbúið til að skerast I leikinn, ef
eitthvaö óvænt myndi gerast.
Höfuðborg Argentinu, Buenos
Aires, var eins og dauös manns
gröf löngu fyrir leikinn — það sást
nær enginn á ferli i borginni, þeir
sem voru ekki á leikvellinum,
sátu fyrir framan sjónvarpstæki
sin og einu staöirnir sem voru
opnir, voru veitingastaöir, sem
höföu sjónvarpstæki — til aö
gestirnir gætu fylgzt meö leik V-
Þjóöverja og Pólverja.
V-Þjóöverjar byrjuöu leikinn
meö þvi að leika 4-4-2 og voru aö-
eins þeir Rudi Abranczik og
Klaus Fischer I fremstu viglinu
og áttu þeir ekki möguleika gegn
sterkum varnarmönnum Pól-
verja, sem léku aftur á móti meö
þrjá menn I fremstu viglinu — þá
Lato, Szarmach og Lubanski.
Pólski landsliöseinvaldurinn
Jacek Gmoch sagöi fyrir leikinn,
að Pólverjar væru tilbúnir til aö
leggja V-Þjóöverja aö velli, og
var hann þess minnugur aö V-
Þjóöverjar unnu sigur (1:0) yfir
Pólverjum i undanúrslitunum i
HM-keppninni i V-Þýzkalandi
1974, þegar þjóbirnar mættust i
Frankfurt.
Pólverjar, meö sina sterku og
stóru leikmenn, byrjuöuleikinn af
fullum krafti — þeir voru fljótari
á boltann og náöu góöum tökum á
leiknum, en annars voru leik-
menn liðanna mjög taugaóstyrkir
i byrjun og ljót mistök sáust
fyrstu 10 min. leiksins. Siðan náöu
Pólverjar góöum tökum á miöj-
unni og þeir áttu fyrsta hættulega
tækifærið — Bohdan Masztaler
átti þá hættulegt skot, sem sleikti
þverslána á marki V-Þjóöverja
og var greinilegt aö Sepp Maier,
markvörður V-Þjóöverja, heföi
ekki getað variö skotiö, ef þaö
heföi veriö aðeins neöar. Þá átti
Lubanski skot utan af velli aö
marki V-Þjóöverja, en þaö rataöi
ekki rétta leiö.
Deyna, fyrirliði Pólverja tók
aukaspyrnu á 30 min. af 20 m.
færi og sendi hann knöttinn aö
marki V-Þjóöverja, þar sem Sepp
Maier, markvöröur, stökk upp
meö Szarmac og náöi aö bjarga
meistaralega i horn.
Rétt fyrir leikhlé þeystu fjórir
Pólverjar fram völlinn og voru
aöeins þrir V-Þjóöverjar til aö
stööva þá — en sókn Pólverjanna
rann út i sandinn.
Jan Tomaszewski, markvöröur
Pólverja, haföi frekar litiö að
SZARMACH...þrumuskot rétt
fram hjá marki V-Þjóðverja.
gera i fyrri hálfleik, en I sánni
hálfleik fékk hann meira að snú-
;ast, en þá voru V-Þjóðverjar mun
jhættulegri en Pólverjar og átti
Rainer Bonhof gott skot að marki
Póllands, en þvi var bjargaö i
horn á síðustu stundu.
Þótt aö V-Þjóöverjar væru
sterkari I seinni hálfleiknum,
voru Pólverjar nær til að skona.
Maier var heppinn að verja skot
frá Deyna — meö leggnum, eftir
aö Lubanski hafði sent knöttinn til
Deyna. Þá fékk Lato tvö góö færi,
sem hann misnotaöi.
Þremur min. eftir aö Maier
haföi varið skot Deyna, sluppu V-
Þjóöverjar heldur betur með
„skrekkinn”. Lato tók þá auka-
spyrnu fyrir utan vitateig V-Þjóð-
verja og sendi knöttinn fyrir
markiö — þar sem Szarmach tók
viö honum og lét þrumuskot riöa
af, en skotiö strauk stöngina á v-
þýzka markinu.
V-Þjóöverjar máttu hrósa
happi meö aö sleppa meö jafntefli
gegn hinum baráttuglööu Pól-
verjum, sem sýndu þaö, aö þeir
eiga eftir aö láta mikið aö sér
kveöa i HM-keppninni.
MAIER...var heppinn að verja
skot frá Deyna.
Liðin, sem léku I gærkvöldi,
voru skipuö þessum leikmönn-
um:
PÓLLAND: — Jan Tomas-
zewski, Maculewicz, Szyma-
nowski, Nawalka, Gorgon,
Zmuda, Masztaler (Kasperczak),
Deyna, Lato, Szarmach og Lu-
banski (Boniek).
V-ÞÝZKALAND: Maier, Vogts,
Russmann, Kaltz, Bonhof,
Abramczik, Zimmermann,
Fischer, Flohe, Flohe, Beer og H.
Muller. — SOS
Jongbloed
meiddist
Jan Jongbioed, markvöröur Hol-
iendinga, meiddist á æfingu I
gærkvöldi — sneri sig á ökla. —
Viö munum sjá til þess aö
Jongbloed veröi tiibúinn aö leika
gegn tran á iaugardaginn, sagöi
Franz Kessel, læknir Hollend-
inga, en hann mun annast þennan
snjalla markvörö fram aö leikn-
um gegn íran.
LATO...fór flla meö tvö upplögð
tækifæri.
Rossi leikur
með ítölum
„Maier bj argaði
V-I>j óðverj um...
Vinna Frakkar sinn fyrsta sigur
yfir ítölum í 58 ár?
Poaio Rossi, hinn 21 árs snjalli
sóknarmaöur ttala hefur veriö
vaiinn til aö leika nteö ttölum
gegn Frökkum, þegar þjóöirnar
mætast i HM-keppninni i kvöld.
Rossi hefur veriö I sviösljósinu aö
undanförnu, þvi aö taliö var aö
, .klikuskapur” i herbúöum ttala,
kæmii i veg fyrir aö hann myndi
leika meö ttölum, en Rossi var
markhæstur á italiuá nýafstöönu
keppnistimabili — 24 mörk.
Búizt er viö aö Rossi og
Roberto Bettega, hinn snjalli
sóknarleikmaöur Juventus, eigi
eftir að gera Frökkum lifið leitt —
með skothörku sinni. Frakkar
hafa á aö skipa mjög sterkri vörn
—og miðvallarspil þeirra er m jög
gott. Þá er hinn snjalli miðherji
þeirra Michel Platini, sem er tal-
inn einn bezti knattspyrnumaöur
heims, gifurlega hættulegur. —
Viö veröum að hafa góöar gætur á
Platini, sagði Dino Zoff, hinn
gamalkunni markvöröur Itala.
0 Ef Frakkar vinna sigur yfir
itölum — verður þaö fyrsti
sigur þeirrayfir ttölum i 58 ár.
0 8 ieikmenn frá Juventus
leika I ítalska iiöinu gegn
Frökkum.
frá tapi”, sagði Gmoch, þjálfari Pólverja og Schön
var mjög óhress með sína menn
„Lélegur leikur”, sagði Pele
— Srákarnir léku mjög illa
gegn Pólverjum og því veröur aö
breyta fyrir næstu leiki, sagði
Helmut Schön, einvaldur v-þýzka
iandsliösins i gærkvöidi, eftir aö
V-Þjóöverjar urðu að sætia sig
viö jafntefli gegn Pólverjum. —
Ég veröaö játa aö þetta var mjög
fátæklegur leikur, sagöi hann.
Gunther Netzer, fyrrum
HM-stjarna V-Þjóöverja, sagði aö
v-þýzka liðið hafi leikiö hryllilega
— og leikmennirnir heföu ekki
náö saman. Ég skil ekki hvernig
strákarnir gátu leikiö eins illa og
þetta, sagöi Netzer.
Jacek Gmoch, þjálfari Pól-
verja, sagöi aö Pólverjar heföu
átt svo sannarlega skiliö aö sigra
— það var aðeins Sepp Maier,
markvörður, sem bjargaöi
V-Þjóðverjum frá stórtapi, meö
góörimarkvörslu. Maier bjargaöi
nokkrum sinnum meistaralega,
sagði hann.
Helmut Schön.sagöi aö V-Þjóð-
verjar gætu aðeins glaöst yfir
einu — þaö er aö jafnteflið gefur
þeim góöa möguleika á aö komast
I 8-liöa úrslitin. Hann sagöi aö
taugastriöið i sambandi viö aö
leika fyrsta leikinn i HM-keppn-
inni, hefði óneitanlega haft áhrif á
sina menn.
Netzer sagöi aö V-Þjóðverjar
ættu litla möguleika á aö verja
heimsmeistaratitilinn. — Ég er
ekki viss um að þeir geti leikiö
betur en gegn Pólverjum, sagöi
hann.
— Brasiliumenn þurfa ekki aö
óttast V-Þjóöverja og Pólverja, ef
þeir leika áfram eins og þeir léku,
sagði knattspyrnusnillingurinn
Pele.— Þeir eru án vafa betri en
V-Þjóðverjar og Pólverjar. Leik-
urinngefurekkirétta mynd af þvi
sem koma skal i HM-keppninni,
þvi að óneitanlega voru leikmenn
þjóöanna taugaóstyrkir. Pólverj-
ar voru óneitanlega nær þvi aö
sigra, sagöi Pele. —SOS