Tíminn - 07.06.1978, Qupperneq 12
12
Miðvikudagur 7. júni 1978
HUGSANIR LENÍNS
Lenin i Smolnyi stofnuninni, eftir Brodský.
Smolnyi var kvennaskóli fyrir byltinguna, en
varð höfuðstöðvar Petrograd-boisevikkanna
árið 1917.
Sinfóniuhljómsveitin
hélt 16. og siðustu
tónleika vetrarins i
Háskólabiói 16. mai s.l.
Karsten Andersen
stjórnaði, en Emil
Gilels lék einleik. Tvö
verk voru á
efnisskránni, 12.
sinfónia Sjostakóvitsj
— „Arið 1917”, og
pianókonsert Griegs i
a-moll óp. 16.
Sjostakóvitsj helgaði 12.
sinfóniuna minningu Lenins.
hún var frumflutt viö opnun 22.
flokksþingsins árið 1961, og
kaflarnir fjórir heita nöfnum
sem minna á atburði i upphafi
byltingarinnar: „Uppreisn i
Petrograd” „Razliv”, þar sem
Lenln leyndist, og er kaflinn
sagður lýsa hugsunum hans i
fylgsninu, „Aurora”, nafn
herskipsins sem skotið var úr á
Vetrarhöllina, og „Dögun
mannkyns”, eins og segir i
Völuspá eftir Ragnarök: Munu
tónlist
ósánir/akrar vaxa,/böls mun
alls batna,/Baldur mun koma.
Mér þykir þetta skemmtileg
sinfónia, og gott að loks skyldi
eitthvert gagn verða að hugsun-
um Lenins þótt sá kafli sé raun-
ar hinn daufasti. Margir þeir,
sem fylgzt hafa með svokölluð-
um „fræöilegum umræðum” i
Þjóöviljanum undanfarin miss-
eri eru áhyggjufullir út af þvi,
að „vinstri hugsun” sé kannski
beinlfnis óholl — ég hef heyrt þvi
fleygt, aö jafnframt þvi sem
hvörf i heilanum valdi hugsun,
geti hugsunin haft áhrif á heil-
ann.skv. öðrulögmáliNewtons.
Og ýmis þau deilumál, sem
ofarlega hafa verið á baugi
meöal fræðimanna — t.d.
tippamarxismi og eignarfalls-
sýki- benda til þess að einhverj-
ar breytingar hafi orðið,
sambærilegar t.d. við þá mýk-
ingu sem verður á eistum karl-
manna vegna eituráhrifa of-
drykkju. Nú er spurningin hvort
breytingarnarséu genetlskar og
erfist — úr þvi mun framtiöin
skera.
Furðuleg þótti mér sú ráðstöf-
un að fá einn mesta pianista
veraldar til að spila
Grieg-konsertinn, jafnvel þótt
Karsten Andersen sé norskur.
En hvað skeði! Emil Gilels lék
hann þannig að hann var nær
þvi óþekkjanlegur — stórkost-
legur og áhrifamikill. Gilels er
62 ára, fæddur I Odessa áriö
1916. Hann kom ekki til Vestur-
landa fyrr en árið 1955, en þá
vakti hann þegar heimsathygli,
og hefur verið með frægustu
pianistum siðan. Þegar fréttist
af Gilels árið 1955 oghonum var
tekið með kostum og kynjum,
sagði hann: Biðið þangað til
Richter kemur — ég er bara
fyrirrennarinn. EnGilels er allt
ööru visi pianisti en Richter,
stöðugur sem klettur og Ihugull,
og ekki fæ ég séð hvernig hægt
væri að spila þennan konsert
betur en hann gerði. Eins og
mestu einleikara er vandi
innblés hann Sinfóniuhljóm-
sveitina, sem fór á kostum i
báðum verkunum. Mér finnst i
svipinn þrir einleikarar hafa
borið af hér, með tónlist sinni og
persónu: Gilels, Carmirelli og
McCaw.
Að vertlðarlokum sakar ekki
að geta þess, að prófarkalestur
á tónleikaskránni hefur verið
neðan við allar hellur i vetur —
einungis Morgunblaðið er verr
prófarkalesið alls þess sem hér
er gefið út mér vitanlega. Þetta
verða forráðamenn hennar að
leiðrétta næsta vetur.
Og talandi um næsta vetur,
ber hæst hjá hljómsveitinni
merka áætlun að flytja allar
sinfóniur og konserta Beet-
hovens, og almennt séð virðist
næsti vetur ætla aö verða
merkisár I sögu hljómsveitar-
innar.
4.6. Sigurður Stcinþórsson
10 milljón kr.
Rall-Skódi
fluttur til
landsins
GEK — Ahugiá bilaiþróttum fer siðustu viku kom til landsins
mjög vaxandi hér á landi. í sérsmiðaður Rall-Skódi, en slik-
Skóda 130 RS, sams konar bíll og sá sem kominn er tii landsins. Skódinn varð nr 2 I RAC-Rallinu
i Englandi en sú keppni er meö þekktustu rall-keppnum I heimi.
ir bllar hafa getið sér gott orð I
rall-keppnum erlendis.
Bíllinn sem hingað kom, er af
gerðinni Skóda 130 RS 1978, en
hann kostar á götuna kominn
um 10 milljónir króna.
Billinn er knúinn 120 hestafla
vél sem ætti að duga til að koma
honum á góöa ferð, þvl hann er
aðeins 753 kg. að þyngd. í þvi
skyni aö gera bilinn sem
léttastan hafa verksmiðjurnar
gripið til þess ráös að hafa yfir-
bygginguna eingöngu úr áli og
flber-gleri.
Eigandi Rall-Skódans er
Sverrir Ólafsson, en hann hefur
áður ekiö Ford Escort I þeim
Keppnum sem naldnar hafa ver-
iðtilþessa.
Næsta Rall keppni verður
haldin á Húsavik 8. júli næst
komandi, og verða eknir um 400
km i þeirri keppni. Siðan er ætl-
unin að 2ja sólarhringa Rall
yerði i ágúst n.k. og er undir-
búningur þegar hafinn.
Myndasögupólitík
Nú er Visir búinn að losa sig
við sfðasta bilinn og menn velta
vöngum yfir hverju umboðs-
kóngarnir, eigendur Visis að
segja.finna upp á næst.
Þetta er annars búinn að vera
einstæöur vetur i blaðamennsk-
unni. Siðdegisblööin frægu sem
státað geta af rannsóknarblaða-
mennsku og að þvi er aðstand-
endunum sjálfum finnst, fyrir-
myndar fréttamennsku hafa
varib hverri forsiðunni af ann-
arri til litmyndauppsláttar af
söluvarningi sinum, þ.e.a.s. bil-
um og hnattreisum i stað frétta.
Fréttamennskan á siðdegis-
blöðunum er annars ekkert til
að hrópa húrra fyrir og helzt
fólgin i uppsiætti. Dagblaðið
getur hins vegar státaö af þvf að
fá utanaðkomandi menn til að
fylla blaöið fyrir lítib og bæði
blöðin eru tiltölulega opin les-
endum sinum með ýmiskonar
smávægilegt kvabb og rell. Um
það er ekki nema gott að segja.
Þá verður Dagblaðinu og VIsi
fundið það til hróss að fara vel
með pólitik og leyna henni með
ágætum I fréttum, skoðana-
könnunum og þegar bezt lætur i
myndasögum. Við á Timanum
ættum aö taka til ærlegrar at-
hugunar að fela Dreka og Hvell-
Geira pólitisku skrifin. KEJ
þetta
{/vSKRIPT
tVISIS!
Klukkan álján i a#r var Simcan þriftfi blll-
inn f á*kr*(«nda®etráún Vlsii. dreaid út, og
kóm upp úr *!kv*ð»ka<Mnuro wéill Pál*
H. KolbBÍft**onar. Mj|fei>Í|i|||||||A|
... ________JHNR... Oljútrasoll 10*
Reykfavik, Þcgár hlnum hoppno *ákrt(-
attda hafðl veríé filkymtf vm úrslifin kváö*t
hann koma aA vftrmu sporl 09 vitia vfnn-
Síá boksiðú.
inflíins.
Oe*t*4Mttr, «t»rltu*Sur VUI.,<lrf|«r b(t
•Pf ttUl r»l« II. K«tkr(K<*wi«r U*kk»* t* f*wr. «6
\i?i,i<Ht<tu:i, luUtru* U<r«.H*|n» L4lv» Kinll
K»»krr iltnj.i l.v,I,«| ImMkvrmáittjtram VtksN
U. tit* Hfkmil StA<mt««|»( «C S«Kttlfc*«.
VKW«i)«4: J»«*
Páll H. Kottteintson eestur tmdir stýri á SimevnnL t«m hann etgnaðlkt t p«rkvðWI.
SIMCAH
FÓR í
BREIDHQLT
Fimmdálkur af forsIBu Vfsis á föstudaginn.
1