Tíminn - 25.06.1978, Blaðsíða 1
Einar Ag’ústsson:
Fylgjum
sókninni
eftir
Undanfarna daga höfum við Fram-
sóknarmenn í Reykjavík orðið áþreifanlega
varir við það, hvaö stefna okkar á sterk ítök
i hugum fólksins.
Þetta sýnir okkur m.a. hin mikla þátttaka
i baráttufundi okkar á fimmtudaginn var
og þau mörgu samtöl viðsamherja okkar að
undanförnu. Um leið og ég þakka þeim
fjölmörgu sem hafa veitt okkur öflugt lið-
sinni að undanförnu, fyrir ómetanlegan
áhuga og fórnfúst starf vil ég ennþá einu
sinni ítreka, að lokaátakið fer fram í dag.
Nú, á sjálfan kjördaginn, er tækifærið til
að sýna, að við verðum ekki með orðum
vegnir.
Þvert á móti skulum við láfa pólitíska
andstæðinga okkar vita af þvi einu sinni
enn, að samstaða okkar verður þeim mun
þéttari eftir þvi sem fastar er að okkur
sótt.
Svo er fyrir að þakka, að heilbrigð skyn-
semi er enn svo rik í hugum manna, að þeir ,
gera sér grein fyrir því aö áhrif Framsókn-
arflokksins i íslenzkum þjóðmálum mega
ekki minnka, þá er vá fyrir dyrum.
öfgaöflin til hægri og vinstri hafa vissu-
lega haft hátt að undanförnu og í kosninga-
hita er svo einkar auðvelt að beita slagorð-
um og kröfugerð.
Við slíkar aðstæður á hógvær og má lefna-
leg framsetning oft erfitt uppdráttar og
um skeið gat svo virzt sem málflutningur
okkar Framsóknarmanna drukknaði í
moldviðrinu.
Ég hef oft sagt áður og segi enn, að ég hef
löngum haft tröllatrú á dómgreind Is-
lendinga og mér til óblandinnar ánægju
virðist mér nú allt benda til þess, að þessi
trú sé enn á rökum reist.
Fólk áttar sig nefnilega á því þrátt fyrir
allt, að yfirborð og loforðaglamur leysa
engan vanda. Það eru verkin sem skipta
máli.
Eftir kosningar taka við margir rúmhelg-
ir dagar, hver með sín vandamál, sem verð-
ur að leysa með hag þjóðarinnar allrar —
ekki flokka eða einstaklinga — fyrir aug-
um.
Framsóknarf lokkurinn býður fram
krafta sína til þátttöku í því starfi og skor-
ast ekki undan ábyrgð fremur en fyrr.
En það skulum við gera okkur alveg Ijóst,
Framsóknarmenn, að til þess að svo geti
orðið, verðum við að mæta sterkir til leiks
að kosningum loknum.
Því megum við ekki slaka á núna. I dag er
það vinnan sem gildir. Við erum vön að
vinna fyrir þvi, sem okkur fellur í skaut.
Okkur bregður ekkert við að leggja að okk-
ur.
Ég skora á velunnara Framsóknar-
flokksins aö hafa samband við vini og
kunningja, hvetja þá til að neyta kosninga-
réttarins og ráðstafa atkvæði sínu að vel
yfirlögðu ráði. Hvert einasta atkvæði skipt-
ir máli.
Þá mun enn sannast, að dómgreindin er
enn á sínum stað og Framsóknarf lokkurinn
kvíðir þar engu.
Kjörorð okkar er: Atvinnuöryggi framar
öllu.
Atvinnuöryggi hefur verið hér í landi síð-
an Framsóknarf lokkurinn tók við stjórnar-
forustu árið 1974.
Hver vill ekki eiga sinn þátt í því að
tryggja áframhald þess?
Sameinumst um sigur B-listans.
Með baráttukveðju,
Einar Ágústsson.
ATVINNU ÖRYGGIÐ
FRAMAR
ÖLLU
Þessi mynd er táknræn fyrir íslandssöguna á áttunda ára-
tug þessarar aldar. Hún sýnir uppbygginguna framtakið og
bjartsýnina. Hún sýnir hvernig verkefnin blasa hvarvetna
við. Smiðurinn hefur ekki fremur en aðrir orðið að búa við at-
vinnuleysi og bjargarskort á þessum Framsóknarárum
meðan milljónir stéttarbræðra og jafnaldra i nágranna-
löndunum ganga um atvinnulausir.
Undir forystu Framsóknarmanna hefur uppbyggingin
orðið meiri en nokkru sinni áður hér á landi um-leið og sigur
hefur unnizt i landhelgismálinu.
Atvinnuöryggið uppbygging, framfarir og launajöfnun eru
meðal helztu kjörorða Framsóknarmanna i kosningunum.
Undir merkjum þessarar stefnu hefur ekki komið til at-
vinnuleysis eða byggðaröskunar á ísiandi allt frá árinu 1971
þegar Framsóknarmenn komu aftur til rikisstjórnar. Hér
hefur hver hönd haft nóg að starfa landi og þjóð til heilla.