Tíminn - 25.06.1978, Blaðsíða 26

Tíminn - 25.06.1978, Blaðsíða 26
26 Mímvm Sunnudagur 25. júnl 1978 *..... íslendingar í Vínarborg: Minntust 60 ára fullveldis íslands — með kynningu, sýningu listmuna, kvikmynda og tónleikum 1 Austurrlki er starfandi félag íslendinga, eins og reyndar i flestum löndum Evröpu. Islend- ingar, sem búa erlendis i iengri eöa skemmri tima hafa alltaf fundiö hjá sér þörf aö finna og umgangast landann.semdvelur i sömu borg eöa i sama landi. Sllkt félagslyndi er einkenni Islend- inga erlendis, einhvers konar þjóöareinkenni, sem þjóöfélags- fræöingar geta sjálfsagt útskýrt. Islendingum i Vínarborg þótti nauösyn aö stofna félag, sem heföi þann tilgang aö efla kynni og sinna hagsmunum þeirra i Austurriki. Fannst sumum i of mikiö ráöizt, aö stofna félag meö öllu þvi fargani, sem slikri stofn- un fylgir. Oörum þótti timi til kominn. Kom á daginn aö þörfin var brýn og Félag Islendinga i Austurriki var stofnaö 1971, stækkaöi og efldist I starfsemi sinni. 1 dag eru félagar um 40 talsins. Meiri hlutinn eru náms- menn búsettir i Vinarborg. Fé- lagiö heldur reglulegar sam- komur tvisvar i mánuöi, þar sem nýlendubúar skiptast á fréttum og ræöa málin I sátt og samlyndi. Auövitaö eru 1. des. og 17. júni haldnir hátiölegir meö veglegum veizlum. Þorri er blótaöur I fe- brúar og er þá fenginn Islenzkur þorramatur aö heiman. Kætast menn þá óspart, syngja ættjarö- arsöngva og öllum veröur ósjáif- rátt hlýlega hugsaö „upp á Klaka”. Auk þessara föstu skemmtana gengst félagiö fyrir gönguferöum og skiöaferöum og siöur er aö halda eina tónleika á ári. Meöal námsfólks hér eru margir tónlistarnemar og þvi hæg heimatökin. Minntust fullveldisins Nú er nýafstaöin kynning á Is- landi i tilefni 60 ára fullveldis þjóöarinnar. Kynningin fólst einkum í sýningu íslenzkra list- muna og kvikmyndasýningum, og stóö í þrjá daga, 2. til 4. júni. Þetta er eitt mesta framtak sem Félag Islendinga hefur staöiö fyr- ir hingaö til. Siöasta Islandssýn- ingi'Vinarborg var fyrir 50 árum, áriö 1930 á 1000 ára alþingishátiö og var aö mestu leyti sýning á ýmsum Islandsm álverku m Austurrfkismannsins Prof. Theo Henning. A sýningunni i ár, sem var haldin i Klosterneuburg, út- borg Vinar, voru einnig nokkur málverk eftir þennan ágæta lista- mann. Aö mestu leyti voru sýn- ingarmunir alislenzkir, geröir af islenzku listafólki. Skal þar fyrst- >. JTV v % Gestir skoöa Islenzka muni á sýningunni, Guörún Hallgrlmsdóttir starfsmaöur Sameinuöu þjóöanna i Vfn lengst til hægri. an nefna Guöbjart Guölaugsson listmálara, sem hefur veriö bú- settur I Vinarborg i fjöldamörg ár. Mikla athygli vöktu keramik- hlutir Ellsabetar Haraldsdóttur. Lauk hún námi frá listaháskólan- um I Vin 1976 og á aö öllum likind- um eftir aö láta töluvert aö sér kveöa i islenzkri leirmunagerö. Einnig voru á sýningunni vefn- aöur eftir Barböru Arnason og Ingibjörgu Haraldsdóttur, sem stundar hérnámi þeirri listgrein. Auövitaö prýddu islenzkar topa- vorur sýninguna, peysur, sokkar og vettlingar. Eitt horn sýningarsalarins var helgaö baráttu islenzkra kvenna fyrir jafnréttismálum sinum. Staldraöi mörg austurrisk konan viö I þvi horni. Dáöust sumar aö starfsorku kynsystra sinna á Is- landi og sannarlega eru konur hér ekki jafn vakandi um sin hags- munamál og þær heima. Aösókn aö sýningunni fór fram úr björt- ustu vonum, enda fékkst góöur sýnigarsalur I ráöhúsi borgarinn- ar. Tónleikar islenzks lista- fólks I sambandi viö þessa Islands- daga voru haldnir tónleikar þ. 3. júiii i konsertsal ráöhússins i Klo- sterneuburg.Einsog veraber var þjóösöngurinn fluttur i upphafi, en siöan bauö ræöismaöur Islands viöstadda velkomna. Flutt var tónlist úrýmsum áttum. Islenzku verkin voru „Rlmur af Roland”, eftir Þorkel Sigurbjörnsson, þjóö- lög íútsetningu Smára Olasonar, ogeftir Dr. Victor Urbancic, sem Islendingum er aö góöu kunnur var flutt Caprice mignonuber ein Kinderlied. Aö auki voru flutt verkeftir Bach, Mozart og tvö nú- timaverk eftir Helmut Neumann. Flytjendur voru nær eingöngu Is- lenzkir tónlistarnemari Vinar- borg.Tónleikarn ir voru ágætlega sóttir og flytjendum klappaö lof i lófa. Aögangur aö tónleikunum og sýningunni var ókeypis, en þó var mönnum gefinn kostur á aö láta eitthvaö af hendi rakna i svo- nefndan Hjálparsjóö Islendinga I Austurríki. Þessi sjóöur var stofnaöur af ágætum ræöismanni okkar, Alfred Schubrig. Hlutverk sjóösins er aöaöstoöa Islendinga i neyöartilfellum ýmsum og hefúr hann bjargaö mörgum I neyö sinni, greitt sjúkrahúsvist þeirra, sem I þvi óláni hafa lent og b jarg- aö vesölum námsmönnum frá al- varlegur matarskorti. Oll aöstoö skal endurgreidd sjóönum eftir vissum reglum, sem sjóösstjórn setur hverju sinni. Allt þetta umstang kostaöi mikla fyrirhöfn og nokkra fjár- muni. Hæpiö er aö sýningin heföi oröiö aö veruleika án dyggrar aö- stoöar ræöismannsins og Helmut Neumanns. Helmut útvegaöi alla nauösynlega hluti til sýningarinn- ar, sal, o.fl. Skal honum og ekki siöur konu hans, Marinu Gisla- dóttur, þakkað fyrir einstakan hlýhugog fórnfýsi 1 garö okkarls- lendingaf Vinarborg. Aö loknum tónleikum hélt' ræðismaöur Islendinga og öðru merkú fólki veigamikiö hóf þar sem menn glöddust eftir vel heppnaöa sýningu og tónleika. Aösókn aö sýningunni var framar vonum Félagsráðgjafastaða viö sérfræöideild öskjuhliöarskóla er laus til umsóknar. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist menntamáiaráöuneytinu fyrir 1. ágúst 1978. Upplýsingar um starfiö veita skólastjóri og deildarstjóri Kjarvaishúss. Menntamálaráðuneytið 22. júni 1978. Sveinn Björnsson skipaður forstjóri Iðn- tæknistofnunar Fyrsti fundur nýskipaörar íslands var haldinn hinn 19. þ.m. innar var aö gera tillögu um skip- stjórnar Iðntæknistofnunar Meöal fyrstu verkefna stjórnar- un forstjóra stofnunarinnar. Samkvæmt samhljóða tillögu stjórnarinnar hefur iðanarráð- herra, dr. Gunnar Thoroddsen, skipað Svein Björnsson verk- fræðing forstjóra stofnunarinnar til næstu fjögurra ára. Samkvæmt lögum stofnunar- innar, sem samþykkt voru á siðasta Alþingi, er hlutverk henn- ar að vinna að tækniþróun og auk- inni framleiðni i islenzkum iðn- aði, meö þvi aö veita iönaðinum sérhæföa þjónustu á sviöi tækni og stjórnunarmála og stuöla aö hagkvæmri nýtingu islenzkra auölinda til iönaöar. Hjúkrunarfræðingar Stöður lausar fyrir hjúkrunarkonur sem vilja vinna á skurðstofu. Mun þeim gefast kostur á að fara i árs fri til náms i skurð- hjúkrun næst þegar námskeið hefst. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i sima 19600. Reykjavik 24. júni 1978. St. Jósefsspitali.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.