Tíminn - 25.06.1978, Blaðsíða 34

Tíminn - 25.06.1978, Blaðsíða 34
34 {*{{[*{ i{{'{\ Sunnudagur 25. júnl 1978 * ................. Björn Haraldsson: U ndanbrögð og yfirklór --------------------------1 Vegna mánaðar fjarveru frá heimaslóðum og heimildum hefur dregizt fyrir mér að svara „Tveimur yfirlýsinguan”, sem birtust í Timanum 14. april s.l. en I Morgunblaöinu nokkrum dögum áöur að sögn. Af tilviljun bar þessar yfirlýsingar fyrir augu mér i' Reykjavik. Báðar eru þær hinn furðulegasti samsetningur og látalæti og er helzt að skilja, að samning þeirra hafi staðið yfir i fulla sex mánuði, þó dagsetningar bendi til styttri meðgöngutima. Tilefni yfirlýsinganna er Opið bréf til byggingarnefndar dvalar- heimilis aldraðra á Húsavik undirritað Steypustöðin Bjarg h/f Húsavik, sem birtist samdægurs i Timanum og Morgunblaðinu 30. sept. 1977. Höfundar „Tveggja yfirlýs- inga” eru, hinnar fyrri Stefán Óskarsson þáverandi formaður steypustöövarinnar Bjarg h/f, en siðariyfirlýsinguna undirrita for- maður byggingarnefndar áður- nefnds dvalarheimilis, Egill 01- geirsson og framkvæmdastjóri byggingarinnar, Jón Armann Arnason. Það eru sem sagt höf- undar opna bréfsins annars vegar og viðtakendur hins vegar, sem eru höfuðpersónur leiksins. I orði kveðnu sættast þeirá málin, hæla hvorir öörum fyrir drengskap og vöndugheit en eru þó með óþægi- legar grunsemdir þrátt fyrir það, hvorir i annars garð. A bak við ritsmíöar þessar er flókinn felu- leikur, sem ekki verður komist hjá að upplýsa, þvi skal nú segja söguna eins og hún gerðist. Föstudaginn 15. júli 1977 bar að garði hjá mér tvo menn, mér að góðu einu kunna, Stefán óskars- son áðurnefndan formann Bjargs h/f og Aðalstein Jónasson tré- smiðameistara. Auðfundið var, að þeim var nokkuð niðri fyrir. Þeir báðu mig um viðtal. Þaö var fúslega veitt. Umræðuefni þeirra var höfnun byggingarnefndar dvalarheimilisins á tilboði Bjargs h/f i steypugerð fyrir dvalar- heimilið viö fyrirhugaðan fyrsta áfanga þess og hins vegar sam- þykkt nefndarinnar á tilboöi steypustöðvarinnar Varöa h/f á Húsavik, en bæði þessi fyrirtæki, Bjarg og Varði, höfðu samkvæmt útboði nefndarinnar gert tilboð i umrætt verk. Var tilboð Bjargs h/f að upphæð kr. 12.985.000 en Varða h/f kr. 13.675.400, mismun- ur kr. 690.400 Bjargi h/f i vil. Auk þess hafði verkfræðiskrifstofa Norðurlands, ráðgjafaraöili byggingarnefndar, að athuguðum tilboðum beggja aðila og ástæð- um þeirra til að standa við þau, mælt með tilboði Bjargs h/f. Byggingarnefndin hafði hins vegar þann háttinn á aö hafna báðum tilboðunum, en ganga fá- um dögum siðar að tilboði Varða h/f óbreyttu. Þetta gramdist þeim Bjargsmönnum, sem von- legt var. Rétterað taka fram, að báðar þessar steypustöðvar voru vel þekktar, höfðu tekið að sér og skilað með sóma stórum verkefn- um. Röksemdir byggingarnefndar fyrir þvf tvennuað taka hærratil- boðinu og ganga á snið viö fyrir- mæli þess ráðgjafaraðila, sem nefndinni hafði verið settur og i þriðja lagi að grípa til frávisunar sem skálkaskjóls, voru næsta veigalitlar, sem sé þær að múrarameistari byggingarinnar fulltreysti þeim starfsmönnum Varða, sem hagræddu steypu i mótum. Hann var fyrrum sam- starfsmaður þeirra, en þá sem verkiðynnu hjá Bjargi h/f þekkti hann ekki og gæti þvi ekki treyst þeim. Var þetta nánast barnaleg viðbára. Stefán Oskarsson fór fram á þaö við mig, að ég skrifaöi blaða- grein um viðskipti byggingar- nefndar dvalarheimilisins og Bjargs h/f. Hann hafði meðferðis gögn, sem virtust sanna sögu þeirra. Aðalsteinn studdi ein- dregið ósk Stefáns. Ég benti þeim á, að þó ég gæti ekki betur séð en þeirra málstaður væri betri en nefndarinnar, mundi grein um viðureignina ekki svara neinum tilgangi, þvi yrði ekki kippt til baka, að Varði h/f væri kominn langt inn í verkið og ég væri ekki spenntur fyrir árangurslausum blaðaskrifum, sem leitt gætu til óvildar. Ég neitaði þó ekki beiðni þeirra að sinni, lofaði að athuga málið I næöi og láta fljótlega frá mér heyra. Ástæðan fyrir þvi að ég var beðinn aö hefna fyrir þennan órétt, vissi ég að var sú, að marg- ir litu svo á, að ég hefði meö endurteknum skrifum um mál dvalarheimilisins i blaðinu Degi nokkru áður, brýningum til bæjarst jórnar Húsavlkur og þeirra sveitarfélaga sem eðlilegt gat talizt, að vildu verða fjár- hagslega ábyrgir aöilar að Dvalarheimiliá Húsavik, hefði ég flýtt fyrir þvi, að dvalarheim- ilismálið kom loks niður á jörð- ina. Þegar gestir minir urðu að viðurkenna, að þeirhefðumeð þvi að hika fyrir óréttinum, tapað réttinum endanlega, brugðu þeir á annað hjal. Þeir töldu óviðeig- andi að framkvæmdastjórinn gerðist sjálfur stærsti verktakinn við bygginguna. Trésmiðaverk- stæði hans væri nú falið timbur- verkið án þess það væri boðið út. ítrekaöar tilraunir hefðu verið gerðar til að fá það upplýst, hvort fyrirfram samningur hefði verið gerður við framkvæmdastjórann, eða hvort hann fengi greiðslur eftir reikningi sömdum og sam- þykktum af honum sjáifum eftirá ásamt formanni byggingarnefnd- ar. Þá gátu þeir um sögusagnir manna millum, að fyrirtæki á Húsavik, sem verzlaði með raf- magnsvörur — og formaður byggingarnefndar væri tækni- legur forsvarsmaður fyrir — mundi vera búið að fá loforð fyrir þvi að selja til byggingarinnar allar rafmagnsvörur, sem til þyrfti einnig án útboðs. Ég gat ekki neitað þvi að hafa heyrt þessar sögusagnir siðustu mán- uðina I ýmsum útgáfum, sérstak- lega á Húsavlk, enálitið, að byggt mundi vera á traustum samning- um. Ég endurtók það loforð að ihuga málið I næði og láta frá mér heyra, með það fóru þeir. Ég komst að þeirri niöurstöðu, að byggingarnefnd dvalarheim- ilisins hefði mistekizt valið milli steypustöövanna. Hins vegar væru sögur um það að fyrirliðar byggingarnefndar hefðu valið hvorn annan sem stórverktaka ósannaðar, og að þó svo væri, kæmi til mála, að ekkert væri ámælisvert. Ég komst að þeirri niðurstöðu, að umrædd gagnrýni værimálefninuog þeim mönnum, sem kallaöir hefðu verið til for- ystu fyrir dvalarheimilið, það meinleg, að þeim væri greiði gerður með þvi aö gefa þeim tækifæri til að koma með sinar skýringar. Ég hafði ekki áhuga fyrir þvi að blanda mér persónu- lega inn I málið, en tók það ráð að semja uppkast að grein um málið I anda hjálparbeiðenda. Það atriðið, sem þeir Bjargsmenn lögðu þyngsta áherzlu á var þeirra eigið mál, gat naumast tal- izt varða almenning. Kröfur Stefáns Óskarssonar bygginga- meistara og oddvita Reykja- hrepps um vitneskju um verk- takaaðild framkvæmdastjóra og formanns byggingarnefndar komu fram svo afdráttariausar, að hann var að minu áliti manna bezt fallinn til að bera þær fram. Formaður steypustöðvarinnar Bjargs h/f var rétti maðurinn. Næst þegar ég átti ferð til Húsavikur 26. júlí afhenti ég félaga Stefáns Óskarssonar, Aðalsteini Jónassyni, uppkastið meðþeim skilaboðum til Stefáns, að hann mætti nota það að öllu leyti eða að hluta eftir þvi, sem honum hentaði. Þessari orðsend- ingu kveðst Aöalsteinn hafa skil- að greinilega til Stefáns ásamt uppkastinu. Svo vel hafði mér tekizt að ná anda Stefáns Óskars- sonar hinn 15. júli, að uppkastið kom að mér virðist óbreytt fram i „Opnu bréfi til byggingarnefnd- ar” eins og áður er getið. Mér kom þvi ekki til hugar, að hér gætu leynzt maðkar i mysunni. Það eru bráðum 58 ár liðin, siðan min fyrsta blaðagrein var prentuð og flest þessi ár hef ég eitthvað skrifað i blöð og timarit og mörg árin nokkrar greinar. Nafn mitt hef ég sett undir þær allar án tillits til þess, hvortþær mundu verða vinsælar eða ekki. Sú ásökun i' siðari yfirlýsingunni að ég feli nafn mitt finnst mér þvi út i hött. Ég hef eins og flestir menn löngun til að gera bón þeirra, sem til min leita. Hvað ritmennsku viðkemur hafa ekki veriðsvo litil brögö að slikri hjálp gegn um árin. Ég hef hjálpað fólkibæði við að semjaræður, rit- gerðir og fleira, og undantekning- arlaust hlotið þakkir fyrir. Sams konar hjálpar hef ég oft notið hjá öðrum. Þetta eru jákvæð sam- skápti, sem örva til þroska og dáða. Þeim sem hjálpina veitir berað þegja yfir henni. Þiggjand- inn er sjálfráður um hvað hann gerir. Auðvitað kom mér ekki til hug- ar, að uppkast handa Stefáni Óskarssyni yrði leyndarmál. Það mundi visast koma fyrir augu allra félaganna i Bjargi h/f, slikt var sjálfsagt frá minni hálfu. Yfirlýsing Stefáns óskarssonar i Timanum 14. april s.l. hefet á þessa leið: „1 dagblöðum ykkar birtist grein þann 30. sept. s.l. með undirskriftinni „Steypustöð- in Bjarg h/f Húsavik”. Þar sem ég er nú i forsvari fyrir félag þetta tel ég mig tilneyddan að bæta ögn við hana og svara henni að nokkru leyti”. Hann kinokar sér við að nefna heiti greinarinn- ar. Ósjálfrátt dettur manni I hug ær, sem finnur og þekkir undan- slikt lamb sitt en vill ekki kannast við það. Hins vegar áræðir hann að minnast á undirskriftina sem ókunnugt fyrirbæri, þó sjálfur hafi valið og gengið frá henni. Hvað hefur komið fyrir Stefán? Hann talar eins og sú ritsmið, sem hann bað mig að semja, tók við og undirritaði, komi honum á óvart. Hann sjálfur valdi henni þó fyrirsögn, beindi henni til tveggja fjölmiðla, lét sér ekki minna nægja en stærstu dagblöðin fyrir ritsmiðina. Jú, það kemur i ljós, fyrir hverju hann er að vinna. 1 yfirlýsingu foringja byggingar- nefndar þakka þeir fyrir þann drengskap Stefáns við sig að snúast við opna bréfinu eins og hann gerir. En það viðhorf eins og þeir segja orðrétt: „undirstrikar það álit okkar, að hann sé ekki höfundur greinarinnar frá 30. september s.l.” Þó má hamingj- an vita, þeir eru ekki vissir. En Stefán gerir miklu meira fyrir þá heldur en þó hann hefði afneitað Opnu bréfi. Hann veitist gegn sinu eigin félagi Bjargi h/f, þvær hendur sinar af allri aðild að til- boöi þess i steypuverk dvalar- heimilisins. Segist þá ekki hafa verið kominn i stjórn félagsins þegar það var gert. Er ekki ljóst, hvað þaðkemur málinu við. Hon- um finnst sitthvað stangast á i sambandi við tilboðið en segist láta öðrum eftir að komast til botns I þeim málum. Ókunnugir eru engu nær. En hann lætur liggja að þvi, að hefði hann verið i sporum ráðamanna dvalarheim- iúsins, þegar þeir urðu að velja um tilboð Bjargs og Varða, þá hefði hann valið eins og þeir gerðu. Er naumast hægt að bregðast greinilegar sinu félagi en Stefán gerir. Hvort samband er á milli yfirlýsingar Stefáns og þess, að eftir stuttan spöl hefur hann verið leystur frá for- mennsku hjá Bjargi h/f, skal ósagt látið. Óneitanlega hefur Stefán Óskarsson látið undan siga frá þvi sem var 15. júli i fyrra sumar. Samt sem áöurerhannekki alveg af baki dottinn. Hann upplýsir i sinni yfirlýsingu, hverjir séu verktakar hjá dvalarheimilinu. Og það stendur heima, timbur- verkið er á hendi framkvæmda- stjóra og rafverktaki er skjól- xS xS xS xS xS xS xS xS xS xS xS xS STJÓRNMÁLAFLOKKURINN ALMENNAR UPPLÝSINGAR: Upplýsingar um kjörstaði og kjörskrá S: 29641 — 29642 — 42611 Beint samband við frambjóðendur S: 10590 — 42611 Bilasimi S: 22775 SKRIFSTOFUR STJÓRNMÁLAFLOKKSINS: Laugarveg84, Reykjavik. S: 14300 — 29641—29642 Frakkastig 13 Reykjavik. S: 10590 — 10550 Hraunbær 112, Reykjavik. S: 75369 Lindargata 34, Reykjavik S: 22775 Hamraborg 1. Kópavogi. S: 42611 Miðvangi 6 Hafnarfirði. S: 52969 Suðurgata 42 Keflavik S: 92-1293 Vikurbraut 22 Grindavik. S: 92-8037 xS xS xS xS xS xS xS xS xS xS xS xS Utankjörstaða- kosning í dag Kosning fer fram í Miðbœjarskólanum kl, 14-18 í dag, Úti á landi má kjósa hjá: Sýslumönnum Bœjarfógetum Hreppstjórum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.