Tíminn - 25.06.1978, Blaðsíða 31
Sunnudagur 25. júni 1978
31
Led Zeppelin
Hljómplötudómar - Jazz
Dee Dee Bridgewater -
Just Family Elektra
6E - 119 /Fálkinn
Söngkonan Dee Dee Bridgewater mun ekki vera
mjög þekkt hérlendis og er þaö synd, því aö þar er
á feröinni söngkona á heimsmælikvaröa.
Lögin sem Bridgewater Syngur á Just Family
eru úr ýmsum áttum og meöal annars er á plöt-
unni aö finna lag Eiton Johns og Bernie Taupin,
„Sorry seems to be the hardest”, sem Bridge-
water gerir frábær skil. Annars flokkast meöferö
hennar á þeim lögum sem á plötunni eru undir
„léttan jazz”. Rödd Bridgewater er mjög
skemmtileg og minnir oft á tföum á Cleo Laine, en
þó er hún mýkri i alia staði.
Svo aö vikiö sé nánar aö lögunum sem á plötunni
eru, þá eru tvö þeirra eftir eiginmann Bridge-
water, Gilbert Moses, en auk þess á hann flesta
textana á piötunni. önnur lög eru ýmist eftir þá
sem aöstoöa viö undirleik á plötunni, eöa aöra
jazzista, en fyrst minnzt er á þá sem tii aðstoöar
eru, þá er rétt aö geta þess aö þar eru engir auk-
visar á ferö, þvi aö viö nöfn eins og Stanley
Ciarke, Chick Corea, Ray Gomes, Alphonso John-
son og Airto Moreira kannast víst flestir jazzunn-
endur.
Að lokum má geta þess aö Bridgewater til-
einkar manni sinum, dóttur og ófæddu barni
þeirra hjóna þessa plötu, en þegar hún var hljóö-
rituð var Bridgewater komin á steypirinn og eru
þvi gæöi plötunnar enn merkilegri en ella.
-ESE
Chick Corea - The mad
hatter Polydor
0798 /Fálkinn
Chick Corea rétt eins og Stanley Ciarke hefur
sér til aöstoöar úrvalssveit hljóöfæraleikara, m.a.
Steve Gadd og Herbie Hancock, og þaö skortir
ekki á aö hljóöfæraleikurinn er I alla staöi frábær.
Þó get ég ekki annað sagt, enda þótt ég hafi
kunnað vel aö meta þaö sem ég hef heyrt meö
Corea, en aö veikir punktar eru allnokkrir á
þessari plötu og þá i tónsmiðunum sjálfum. 1
fyrsta lagi finn ég ekkert lffrænt samband milli
tónlistarinnar og brjálaöa hattarans eöa undra-
landslisu, sem hún á þó aö f jalla um meö nánari til
visun. í ööru lagi eru hér lög eöa þættir sem aö
minu mati fylla ekki þær gæðakröfur sem maöur
gerir til Chick Corea. f þriöja lagi mætti Corea
fara að fitja upp á einhverju nýju i tónlist sinni.
Þessi ummæli eru tilkomin vegna þess aö undir-
ritaöur gerir kröfur til Corea og þrátt fyrir þau er
„The mad hatter” hin áheyrilegasta plata og lögin
„Dear Alice” og „Mad hatter rhapsody” meö
hinum ágætari tónsmiöum Chick Corea.
Stanley Clarke - Modern
Man JZ 35303 /Fálkinn
Stanley Clarke er enn á feröinni meö athyglis-
verða plötu: „Modern Man”. Einkum er fyrri hliö
þessarar plötu af bezta taginu en hin siöari sam-
tindari. Aberandi er léttleiki þessara laga og
kannski nafn plötunnar standi i einhverju sam-
bandi þar viö. Texti titillagsins er stuttur og fer
hér á eftir: I dance and sing/ And play those
pretty things/ Just to let you know that/ I’m just a
modern man.
Modern man er skemmtileg og jafnframt mjög
góö plata. Nýdjassinn meö rokk og sól blandi.
Fyrir þá sem kjósa djass af léttara taginu er þessi
plata tilvalin. Enda þótt slegið sé á léttari strengi
er allur flutningur meö afbrigöum góöur. Stanley
Clarke skilar öllum bassaleik frábærlega eins og
viö er aö búast. Hljómsveit hans er skipuö úrvals-
mönnum og til aöstoöar eru m.a. Steve Gadd, Jeff
Beck og Dee Dee Bridgewater.
KEJ
Styrktarfélag vangefinna
á Austurlandi:
Byggir
vistheimili á
Egilsstöðum
Sunnudaginn 1. júni s.l,- hélt
Styrktarfélag vangefinna á
Austurlandi aöalfund sinn i
félagsheimilinu Skrúö á
Fáskrúösfiröi.
Formaöur félagsins Aöalbjörg
Magnúsdóttir Fáskrúösfiröi,
flutti skýrslu stjórnar. Kom þar
m.a. fram, aö fyrir liggja tvær
umsóknir um starf forstööu-
manns viö vistheimili félagsins.
Vonarland, sem nú er I byggingu
á Egilsstööum. Vonazt er til aö
heimiliö geti tekiö til starfa
haustiö 1979 en I ætlun er aö for-
stööumaöur þess taki til starfa
nokkru áöur.
Bygging fyrsta áfanga
heimilisins hófst s.l. sumar og
stefnt er aö þvi aö húsin tvö sem I
þeim áfanga eru, komist undir
þak I haust. Samkvæmt bygg-
ingarsamningi er kostnaöur viö
fyrsta áfanga 90 millj. kr. og I ár
þarf um 85 millj. kr. til aö áætlun
standist.
Sérstakur gestur fundarins var
Siguröur Magnússon útbreiöslu-
stjóri ISI.og flutti hann erindi um
iþróttir og iþróttafélög fyrir
fatlaöa og þroskahefta. Var
geröur góöur rómur aö erindi
hans og uröu nokkrar umræöur
um þessi málefni aö erindi
Siguröar loknu. Ýmis önnur mál
voru á dagskrá fundarins.
Atta hlutu styrki
úr Rannsóknar-
sjóði IBM
Nýlega var úthlutaö i fjóröa
sinn úr Rannsóknarsjóöi IBM
vegna Reiknistofnunar Háskóla
Islands. Alls bárust 10 umsóknir
og hlutu 8 umsækjendur styrk úr
sjóönum, samtals 1.970.000 kr.
Styrkina hlutu:
Rannsóknastofnun land-
búnaöarins, 400 þús. kr. til úr-
vinnslu á tilraunum meö áburö i
úthaga.
Gunnar Sigurösson, læknir,
Ph.D. 350 þús. kr.til rannsókna á
verkunarmáta kólesterói-iækk-
andi lyfs.
Raunvisindastofnun Háskól-
ans, 300þús.krtil aö semja forrit
fyrir úrvinnslu á segulmælingum.
Þórólfur Þórlindsson, iektor,
220 þús. kr„ til framhaldsmennt-
unar I tölvunotkun á sviöi félags-
fræöi.
Jónas Eliasson, prófessor, 200
þús. kr.,til aö semja forrit fyrir
straumfræöilegar rannsóknir.
Helga Hannesdóttir læknir, 200
þús.kr.,tilrannsókna á heilsufari
eiginkvenna og barna sjómanna.
Rannsóknastofnun land-
búnaöarins, 200 þús. kr„ til af-
kvæmarannsókna á nautgripum.
Læknarnir Siguröur Guö-
mundsson, Gestur Þorgeirssonog
Gunnar Sigurösson, 100 þús. kr.,
til aö kanna tlöni áhættuþátta
fyrir æðakölkun.
Alþjóðlegnr vinnufundur
um kennslu og þjálfun í
jarðhitafræðum á
Laugarvatni 4.-8. júlí
Dagana 4.-8. júli n.k. veröur
haldinn á Laugarvatni vinnu-
fundur á vegum Háskóla Samein-
uöu þjóöanna. Þar veröur fjallaö
um kennslu og þjálfun I jaröhita-
fræöum og stuöning ýmissa stofn-
ana Sameinuöu þjóöanna viö
hana. Þaö er Háskóli Sameinuöu
þjóöanna, sem stendur fyrir fund-
inum og hefur boöiö til hans
erlendum gestum og nokkrum
islenzkum vfeindamönnum, sem
unniö hafa aö undirbúningi hugs-
anlegrar jaröhitaþjálfunar á veg-
um Sameinuöu þjööanna hér á
landi. Meðal þátttakenda á fund-
inum verða ýmsir forráöamenn
frá Háskóla Sameinuðu þjóöanna,
Unesco og Sameinuöu þjóöunum
á sviöum auölindanýtingar og
menntamála auk jaröhitasér-
fræöinga frá Bandarikjunum, E1
Salvador, Filippsey jum,
Indlandi, ítaliu, Japan, Kenýa,
Nýja-Sjálandi, Ungverjalandi og
Þýzkalandi.
Guömundur Pálmason, sem
hefur haft skipulagningu fundar-
ins meö höndum, mun setja hann
formlega, og aö þvi búnu ávarpar
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráöherra gesti fund-
arins. Siöan taka viö erindi og
umræöur. Auk þessmunu erlendu
gestirnir skoöa sig um og fara
meöal annars til Krisuvikur og
Kröflu.
Vinningar í happdrætti
Slysavarnafélags íslands
„Eftirtalin númer hlutu vinning
i happdrætti Slysavarnafélags
Islands 1978:”
Nr. 30531 Chevrolet Malibu fólks-
bifreiö.
Nr. 23735 Binatone sjónvarpsspil.
Nr. 8498 Binatone sjónvarpsspil.
Nr. 27546 Binatone sjónvarpsspil.
Nr. 28657 Binatone sjónvarpsspil.
Nr. 4767 Binatone sjónvarpsspil
Nr. 44779 Binatone sjónvarpsspil
Nr. 23503 Binatone sjónvarpsspil
Nr. 24712 Binatone sjónvarpsspil
Nr. 7966 Binatone sjónvarpsspil
Vinninganna sé vitjaö á skrifstofu
SVFI á Grandagaröi. Upplýsing-
ar um vinningsnúmererugefnar i
sima 2 71 23 (simsvari) utan
venjulegs skrifstofutima. SVFI
færir öllum beztu þakkir fyrir
veittan stuöning.”