Tíminn - 01.08.1978, Side 12

Tíminn - 01.08.1978, Side 12
12 Þriðjudagur 1. ágúst 1978 Ingólfur Davíðsson: Hrossahópur á Skálholtscngjum (10/7. 1978) Við jarðgöngin I Skálholti (12. júll 1978). dönsk gjöf en litskreyting þeirra verk Gerðar Helgadóttur. Nina Tryggvadóttir er höfundur hinnar stórfögru altaristöflu. Norðmenn gáfu byggingarefni (m.a. flisar á þak og gólf), enn- fremur hurðir og eina kirkju- klukku. Sviar hafa gefið tvær kirkjuklukkur og Finnar eina. Alls eru kirkjuklukkurnar átta, og er hljómur mikill og fagur þegar þeim er hringt. Færey- ingar gáfu fagra skrinarskál (skirnarsá) höggna i granit af færeyskum listamanni. Furðu margir biskupar hafa gengið um garða i Skálholti eða höggnir 7. nóv. 1550. Var þá lok- ið kaþólskum sið á fslandi, en konungur hremmdi miklar eignir klaustra og kirkju. Gegnt kirkjunni stendur lýð- skólinn, sérkennileg lá'g bygg- ing, sem virðist vera mörg sam- tengd smáhús, meö undirgöng- um og einkennilegum göflum. Leiðir þetta hugann að húsa- þyrpingunni á gamla Skálholts- stað á dögum biskupanna — og fer vel á þvi. Viðkunnanlegt dökkt hellugólf er i skóla og kirkju. Liklega er þó fremur erfitt að þrifa það t.d. i mat- stofu. Veggir i skóla hvitir og Þorlákshver I Skálholtstungum (15/7. 1978) alls 45, þar af 32 i kaþólskum siö. Flestir biskupanna voru is- lenzkir en þó 15 útlendir — allir fyrir siðaskipti. Má t.d. nefna Vilkin Hinriksson sem tók sam- an máldaga bók fyrir biskups- dæmið. Hinir útlendu voru ým- issa þjóða, flestir norskir og danskir, en einnig enskir, holl- lenzkir og þýzkir. Ljómi er enn yfir nöfnum allmargra is - lenzku biskupanna i Skálholti, t.d. hinna fyrstu fsleifs og Giss- urar, Klængs Þorsteinssonar, Þorláks helga, Páls Jónssonar, ögmundur Pálssonar, Odds Einarssonar, Gisla Oddssonar, Brynjólfs Sveinssonar, Jóns Vidalin og hinna siðustu Finns og Hannesar. Biskupsstólarnir voruhelztu fræöasetur landsins öldum saman, eftir að klaustrin voru öll. Margir stunduðu nám i Skálholts og Hólaskóla á fyrri öidum. Hvernig mundu skóla- sveinar vorra tima una sér, ef þeir værufærðir aftur i aldir — i hina fornu skóla? Mjög var þá litið upp til Skálholts- og Hóla- sveina, enströnghefur vistin oft veriðsvo reyndi á karlmennsku aö þola hana. Hvar skyldi f jósið hafa staðið þar sem Oddur Gott- skálsson þýddi Nýja testament- ið i laumi? Skammt frá kirkju og bóndabæ er litill reitur með minnisvarða girtur I klappar- holti, aftökustaður Jóns Arason- ar og sona hans, Ara lögmanns og séra Björns, en þeir voru „hlutlausir”, njóta myndir sln vel á þeim. Undirritaður kynni samt betur við ljósgræna veggi og kvistótt timburgólf I mat- stofu! f öðrum enda hins langa skóla húss eru nokkur heimavistar og sumargestaherbergi, og ber sérhvert þeirra eitt nafn: fsleifsvist, Gissurarskáli, Þor- lákssæti, ögmundarbúð Brynjólfsstúka, Vidalinsstóll, Biskupsstofa, o.s.frv. Ég gisti Gissurarskála og blasir kirkjan þar við. Rétt hjá skólanum stendur tveggja hæöa aðsetur skólastjórans, en Ibúöarhús prestsins skammt frá kirkjunni. Bóndinn býr nokkru fjær I sér- lega snotru húsi að sjá. Var Björn bóndi að slá túnið. Á göml- um ösku- og moldarveggja- rústahaug miklum skammt frá kirkjunni var allt gult af sóley oghvlttaf stórvöxnu kúmeni, en vallarfoxgras undirgróður. Skiptir þessi hóll og litið lautar- drag hjá, óvenju fagurlega lit- um og væri verðugt verkefni færum litmyndasmiö. Oft er leikið á sembal o.fl. hljóðfæri i kirkjunni. Margir ferðamenn koma inn, ganga flestir hljóðlega, setjast margir hverjir og hlusta á hina fögru hljóma um stund, orgel og sem- ball hljóma vel saman. Til eru lika ferðamenn sem æða eirðar- lausir um allt, taka myndir i si- fellu og snarast siðan út I bil. Dómkirkjan I Skálholti (Brynjólfskirkja) reist 1650-1651 Benediktsmessa á morgun, sumartónleikar i Skálholts- kirkju I vændum, bezt að bregða sér þangað með sembalflutn- ingabflnum. Það er reisn yfir Skálholtsstað nú, eftir langvar- andi niðurlægingu, og liggur þangað stöðugur straumur is- lenzkra og erlendra feröa- manna. Skálholtshátið 23. júli orðin árlegur viðburður. Kirkju- leg mót haldin öðru hvoru og sumarbúðir eru á staönum. Sumartónleikar fara fram i kirkjunni fjórða árið röö skipu- lagðir af Helgu Ingólfsdóttur semballeikara. A Skálholtsstað er nú prestssetur, kristilegur lýðháskóli og bóndabær, en hæst her kirkjuna, veglega byggingu, i ..göa árið 1963. A sama grunni hefur höfuðkirkja landsins stað- ið i hálfa áttundu öld. Umhverf- iser grasi vaxinn kirkjugarður- inn, sem geymir bein flestra þeirra manna er svip settu á staðinn og þjóðlifiö um sina daga. Eru á staðnum legsteinar af gröfum nokkurra biskupa. Sumarið 1954 var grunnur dóm- kirkjunnar rannsakaður og fundust ýmsir munir, en merk- astur þeirra var steinþró Páls biskups Jónssonar (1195-1211). „Gissur hviti lét gjöra hina fyrstu kirkju I Skálholti og var þar grafinn að þeirri kirkju”, segir i Hungurvöku. Sú kirkja varð dómkirkja Islendinga og stóð fram á daga Gissurar Is- leifssonar biskups (1056-1080) er hann reisti nýja kirkju, þri- tuga að lengd, og vigöi Pétri postula. Klængur Þorsteinsson biskup á siðari hluta 1. aldar, reisti nýja kirkja af grunni, geysistóra timburkirkju, og er grundvöllur hennar stærstur allra kirkna i Skálholti. Komu út á tveimur skipum stórviðir til hennar, er Klængur biskup lét höggva I Noregi. Var hin nýja kirkja talin að öllu vönduð framyfir hvert hús annað á Is- landi, bæði aö viöum og smiöi, og var vigð meö mikiili viöhöfn af báðum biskupum landsins, að viðstöddu geysifjölmenni. Páll biskup Jónsson færði kirkjunni tvo glerglugga, keypti mikla fleiri að starfi við kirkjusmið- ina. Forsmiöur að kirkjunni var Guðmundur Guömundsson hinn yngri frá Bæ i Borgarfirði — hinn hagasti smiður hér á landi”. Var „Brynjólfskirkja” næst „Klængskirkju” að stærð, Bóndabærinn I Skálholti (11/7 1978) lagöur á Skálholtshátið árið 1956, en vígslan fór fram 1963. Kirkjan hefur fengiö margar mikilsverðar gjafir frá Norður- löndum. Danir gáfu orgeliö, ljóstækin, stólana, eina kirkju- klukku og fé til að skreyta kór- gafl yfir altari. Gluggarnir eru kirkjuklukku og lét gera stöpul (turn) fyrir þær. Arið 1309 laust eldingu i stöpulinn og brann þá kirkjan.öðrusinni^árið 1526i tið ögmundar biskups, brann kirkjan i Skálholti. ögmundur biskup lét þegar gera messu- færabúð (Þorláksbúö) í kírkju- garðinum en síðar veglega dómkirkju. Brynjólfur Sveinsson (1639-1674) lét gera stóra og veglega kirkju, sem teikning er til af, á árunum 1650-1651. Stóð hún þegar bisk- upsstóllinnvarlagöurniður áriö 1785, og hefði sennilega getað staðið enn ef rækt hefði verið við hana lögö, þvi að hún var mjög vönduð. Fékk biskup flutta til hennar þá bestu relcaviðu, er hann gat fengið og einnig utan- lands frá mikla viöu. Kom árið 1646 hið síðara Eyrarbakkaskip nærri fullt meö grenivið. Var ailt stórviðið á fsum heim dregið þá akfærigafstá vetrum. Voru stundum 30 smiðir eða grunnur hennar stærri en nýju kirkjunnar. Þau urðu siðustu örlög kirkjunnar að hún var rif- in og viðir hennar seldir á upp- boði. Gripir hennar margir fóru á dreif og eyðilögðust. All- margir dýrgripir eru þó enn til úr henni, t.d. altari og predikun- arstóll, er nú standa i nýju kirkjunni, ennfremur skirnar- fontur, hökull, kaleikur o.fl. á Þjóðminjasafni. Sennilega hafa hljóðfæri verið til fyrrumbæði á Hólum og Skálholtsstað. E.t.v. hefur Ragnheiður Brynjólfs- dóttir leikið á Clavicord? Jón ögmundsson, fyrsti Hólabiskup, var söngmaður mikill og tón- menntaður. Litil sveitakirkja reist á 19. öid skipaði sess hinnar veglegu dómkirkju, biskupsstóll og skóli voru flutt til Reykjavlkur 1785 eftir Móðuharðindin. Jarö- skjálftar stórskemmdu þá flest hús I Skálholtí, en kirkjan stóðst nær óskemmd. Slðasti Ská lholtsbiskup, Hannes Finnsson. Fékk þó leyfi til að sitja á staðnum sina em- bættistið (1785-1796). Hina nýju Skálhoitskirkju teiknaði Höröur Bjarnason, húsameistari rikis- ins. Var hornsteinn hennar Hásumardagar í Skálholti

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.