Tíminn - 01.08.1978, Side 13
Þri&judagur 1. ágúst 1978
13
Skálholtskirkja vigö 1963
Nokkrir forvitnast um jarö-
göngin sem forðum tengdu
kirkju og staöarhús. Er ekki
reimt hérna? spyr feröalangur
frá Bretlandi —landi hallar-
drauganna! Fjórir langferða-
bilar renna i hlaö, fullhlaönir
Bandarikjamönnum, Bretum,
Frökkum, Þjóöverjum og
Norðurlandabúum, já, sá
fimmti kemur meö islenzkalang
ferðamenn, sem setjast i tún-
brekku og fá sér þar árbit i góða
veðrinu. Það var þurrviðri alla
dagana. 10.-16. júli, ogeinn dag-
inn 20 gráðuhiti. Einn blll enn!
Út úr honum stigur Hörður
Bjarnason (húsameistari staö-
arins), með kinverskan sendi-
herra og fylgdarlið hans i kjöl-
farinu. Þeir ganga hljóðlega
um, spyrja og benda, skoða
kirkjuna, og er siðar boðin
hressing i riki Jónu sumarráðs-
konu og Sveinbjarnar staðar-
ráðsmanns Bilstjórinn kinverski
kemur þó ekki inn, en virðist á
verði úti. Sveinbjörn Finnsson
og frú komu hingað austur til
eftirlits — og sannarlega er
mörgu að sinna og um að sjá á
Skálholtsstað. Nií var t.d. von á
stórum hóp orgelleikara og
presta að ráðgast um kirkjutón-
listarmál og syngja messur
fornar. Kirkjusöngur alltaf
mikið atriði. Hlýlegt og
snyrtilegt er i Skálholti hið
næsta,grösugt tún og græn engi
til allra átta^ Hvitá og Vörðufell
blasaviðf nálægð, en Mosfell og
Hestfjall nokkru fjær. 1 góðu
skyggni sér i fjarlægð til Heklu
með snjó i' ofanveröum hlíðum.
Annálar geta þess aö loftsteinn
frá henni hafi rotað mann i
Skálholti. 1 fjarska gefur að lita
Langjökul,. Tindafjalla- og
Eyjafjallajökul. Sérlega viðsýnt
er úr turni Skálholtskirkju og
sannarlega ómaksins vert að
rölta þar upp í góðu veðri. Ekki
sést til næstu byggðra bóla af
hlaðinu, en það eru Spóastaðir
ogLaugarás. Hæðir skyggja á,
en turninn er upp yfir þær haf-
inn. Lengra burt, handan Brú-
arár, sést sveitabærinn Sel og
kirkjustaðurinn Torfastaöir,
báðir undir Mosfelli. Handan
Hvitár blasa við byggingar
margar á Auðsholti en þar er
fjárbýli. Virðist stutt og greið-
fært þangað, þvi aö Hvitá sést
alls ekki á þeim kafla fyrr en
komiðer nær alveg að henni. En
aka verður um 40 km til
að komast á bil milli Auðsholts
og Skálholts. Bændurnir stytta
sér leið i bát yfir ána. Skammt
er frá Skálholti i Laugarás. Þar
er mikill jarðhiti og mýrlendi
gott til ræktunar enda er risið
þar upp mikið gróðurhúsa-
hverfi, með 14 gróðurhúsastöðv-
um, sem eigendur hafa aðalat-
vinnu af. Flatarmál gróðurhús-
anna mun vera um hálfur annar
hektari. Langmesteru ræktaðar
gúrkur, en þar næst tómatar og
Chrysanthemur. Jólastjörnur
o.fl. pottaplöntur einnig rækt-
aðar. Sölubúð er i Laugarási.
Þetta er vinalegt hverfi I dæld
undir Laugarásnum. Trjágróð-
ur virðistþrifast vel, smálundar
og belti af birki, viði, ösp og
reyni. Vænlegan trjálund sá ég
einnig við Sel undir Mosfelli.
Vaxa þráðbeinar Alaskaaspir,
gróðursettar 1953 nú um 7 m há-
ar I þeim lundi, ásamt alblómg-
uðum reynivið.
Skúrbyggingar sumarbúð-
annablasa viðaf Skálholtshlaöi.
í brdcku fyrir neðan þær hafa
verið gróðursettar hrfelur, sem
virðast þrifast vel. Þar er lika
blómjurtastóð mikið og fagurt i
girðingunni. Ber mikið á fjall-
dalafifli og mjaðurt.
Enn einn ferðamannahópur.
Vill skoða kirkju og kaupa póst-
kort. Barbara kirkjuvöröur
hefur nóg að gera skreppur út I
flekk með hrífuna sina, þegar á
milli verður, veðrið er svo gott.
Ég geng út að Þorlákshver,
drjúgan spöl út i Skálholtstung-
um. Það bullar og sýður i hvern-
um en ekki gýs hann. Vatn úr
honum er leitt til Skálholts og
hitar staðinn. Nálægt Þorláks-
hver er sums staðar blátt af blá-
kollu. Græðisúra og vatnsnafli
vaxa þar einnig. Mariugræði-
súrublöð þykja græöandi.
Vatnsnafli er furðuleg jurt.
Blöðin alveg kringlótt og stilk-
urinn festur á miðri blöðku.
Blóm rauðleit á smásveipum.
Uppi á hæðarjaðri Bolhaus
skammt frá hanga gömul fjár-
hús uppi og gekk fé þar út og
inn, hélt sig inni þegar heitast
var. Það er löng fjárhúsagatan i
Skálholti eða hefur verið, þvi að
ný f járhús nærri bæ hafa verið
byggð.
Jarðhiti virðist drjúgur i
Stkálholtstungum og grennd,
sjást t.d. viða gufustrókar úr
jörð i mýrlendinu við Brúará og
út eftir öllum tungum. Fyrir
neðan Spóastaði eru gróður.hús
á öðru býlinu. Hér dreifir sér
hvarvetna fénaður um græna
haga. Gefur að lita kúaflota,
hrossastóð og fjárhópa úða i sig
grængresið. Byggingar mynd-
arlega ár bæjunum og ber súr-
heysturninn viöa hátt. óviða
farið að slá að mun um miöjan
júli.
Aftökustaður Jóns Arasonar I Skálhoiti (12/7. 1978)
Sumartónleikar I Skálholts-
kirkju sunnudaginn 16. júli.
Glúmur o g Helga léku á orgel og
sembal. Siðan messa hjá séra
Guðmundi, og aö þvi búnu
gengið út i sumarblíðuna. Hér
er allt hlýlegt og þrifalegt úti og
inni. Drukkið kaffi hjá prests-
hjónunum og siöan haldið heim
til Reykjavikur eftir ánægju-
lega dvöl I Skálholti. Næstu
sumartónleikar i vændum 29. og
30. júli. Leika þá Helga og
Manuela á sembal og flautu i
kirkjunni m.a. verk eftir Leif
Þórarinsson og Atla Heimi
Sveinsson.
Hér truflar ekki né deyfir si-
vakandi umferðardynur borg-
arinnar. Ekki er þó hljo'tt með
öllu úti fyrir. „Slyngur er spói
að semja söng”. Hljómstilling
hans hefur mörgum manni
dillað. NiðuriSkálholtstungum
lætur jaðrakan I sér heyra, og
heita má að loft I Skálholti
hneggi af hrossagauki allan
daginn.
Heimild um sögu Skálholts i
þessu greinarkorni er aðallega
ritið,,Skálholtsstaður” eftir
Sigurbjörn Einarsson biskup.
Myndskýringar: Einn
leiðangursmanna Joseph Banks
árið 1772, gerði mynd af Skál-
holtsstað og kirkju. Vita menn
þess vegna hvernig kirkja
Brynjólfs biskups leit út. A
myndinni við inngang jarðgang-
anna i Skálholti standa prests-
hjónin, Guðmundur og Anna, til
vinstri, en tónlistarfólkið, Helga
og Glúmur til hægri. Fjárhúsin
á Bolhaus eru nú auð og yfir-
gefin að kalla, en rammlega
hlaönir hafa veggir verið úr
hellugrjóti með torfstrengjum á
milli. Nýbæra var þar á ferð 11.
júli. Hrossastóðið á þessum
slóðum mun einkum til útreiða
og augnayndis.
Það er lif og starf á Skálholts-
stað að nýju.
Við gamalt fjárhús á Bolhaus i Skálholti (11/7. 1978)
Contour
veggdúkur
Contour er ódýr og smekkleg lausn, þegar kemur
að lagfœringu á eldhúsi eða baðherbergi og svo er
hann auðveldur i uppsetningu.
Contour dúkurinn gerir umhverfið aðlaðandi og
hlýlegt.
Byggingavörur
Sambandsins
Suóurlandsbraut 32 ■ Simar 82033 ■ 82180