Tíminn - 02.08.1978, Síða 6

Tíminn - 02.08.1978, Síða 6
6 Miðvikudagur 2. ágúst 1978 (Jtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjdri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gfslason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar biaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 100.00. Áskriftargjald kr. 2.000 á mánuÖ1, Blaöaprent h.f. Þetta er ekki hægt Þegar er viðræðum vinstriflokkanna lauk skall á slikt gjörningaveður árása og óhróðurs milli „sigur- flokkanna” svo nefndu, að ekki verður hjá þvi komist að álykta að það hafi löngu verið undirbúið fyrir fram. Meðan á viðræðum stóð um hugsanlega stjórnar- myndun höfðu slettur að visu gengið milli Alþýðu- flokks og Alþýðubandalags, en þó kastaði fyrst tólf- unum er ljóst var að hinn innihaldslitli og fyrirlit- legi leikur þessara fursta, sem kalla sig „alþýðu- vini” og þóttust sumir vilja vinstri stjórn, hlaut að taka aumlegan endi. Félagshyggjumenn harma þessi endalok og lýsa fullri ábyrgð á hendur forráðamanna „sigurflokk- anna”. í raun og veru er varla hægt lengur að tala um „sigurflokka” i þessu sambandi. Þegar á hólminn sjálfan var komið féllust þeim hendur. Þeir hafa þannig á vesaldarlegan hátt gloprað kosningasigri sinum niður og standa uppi sem pólitiskir sprelli- karlar. ömurlegastur virðist þó eftirleikurinn ætla að verða þegar Alþýðubandalagsmenn þyrpast i einni kös fram á siðum Þjóðviljans og úthúða Alþýðu- flokknum á svo skipulagðan og flokksagaðan hátt að ekki verður hjá þvi komist að álykta að allt hafi þetta verið fyrir fram undirbúið og sett núna á svið afloddaraskap. Hin pólitiska fjölbragðaglima Luðviks Jóseps- sonar er og samdægurs orðin að fimleikasýningu i undanbrögðum og sýndarmennsku. Það er ekki aðeins að hugtakið „sigurflokkar” er úr sögunni i reynd. Fyrir kosningar var mikið talað um „verkalýðsflokka” á landi hér, og átti sú póli- tiska dýrategund að búa yfir frábæru ágæti. Hver getur núna talað um „verkalýðsflokka”? Hugtakinu, þessu glæsta hrópyrði alþingiskosn- inganna, hefur verið. skolað niður i sorphaug ómerkilegustu kosningalyga sem núlifandi íslend- ingar þekkja. Nú dettur engum hugsandi manni það lengur i hug að fyrir þessum flokkum vaki framgangur fé- lagshyggju, athafnafrelsis og hagsmuna alþýðu. Þessir flokkar eiga engin úrræði önnur en að troða skóinn niður hvor af öðrum. Allan þennan kostulega hamagang verða launþegar landsins að greiða i langvarandi stjórnarkreppu meðan viðfangsefnin hlaðast upp. Alþýðuflokkur og Alþýðubandalag höfðu næg úr- ræði fyrir kosningar. Þá virtist sem sæmileg sam- staða hefði tekist með þessum tveimur flokkum um brýnustu aðgerðir. Þeir virtust ekkert þurfa til annarra að sækja. En hvernig fór? Hvað er nú orðið af öllum þessum dáðrakka hetjuskap fyrir hönd alþýðunnar? Reynslan sýnir að þetta er ekkert annað en dára- skapur fyrir hönd flokksgæðinga. Hvernig svo sem menn reyna að velta atburðum siðustudagaogvikna fyrir sér og reyna að réttlæta framkomu þessara manna, þá verður ekki hjá niðurstöðunni komist: Þetta er ekki hægt, virðulegu herrar. Það er ekki hægt að bjóða upplýstu nútimafólki upp á þvilikt at- hæfi sem þetta er. JS ERLENT YFIRLIT Rússar og Gyðingar andvígir Brzezinski Orðrómur um ósamkomulag hans og Vance ÞOTT Rússum og Gyðingum komi illa saman, viröast þeir þó sammála um að telja Ibigniew Brzezinski hinn vonda anda Carters forseta. RUssneskir fjölmiðlar halda þvi fram, að Brzezinski eigi öðrum fremur þátt i þvi, aö kólnað hefur i sambúð Sovét- rikjanna og Bandarikjanna að undanförnu, en Gyðingar þykjast geta rakið það til áhrifa h:ms, að Bandarikin eru ekki eins fylgispök viö þá og áður, heldur taka orðið meira tillit til Araba og reyna að finna málamiðlunarleið, sem báðir aðilar I Palestinu- deilunni ættu að geta sætt sig við. Erfitt er að dæma ym það á þessu stigi, hvað rétt er i þessum ásökunum, þvi að fjöl- miðlar geta ekki fylgzt nema takmarkaö með þvi, sem gerist að tjaldabaki í Hvita húsinu þar sem Carter, Brzez- inski og Vance utanrikisráð- herra leiða saman hesta sina. Hitt er ótvirætt, að þegar þeir Brzezinski og Vance láta i sér heyra opinberlega, er Brzez- inski ákveðnari og Vance var- færnari. Þetta getur stafað aö verulegu leyti af þvi, að þeir eru vanir aö tjá sig meö tals- vert ólikum hætti. Sá skoðana- ágreiningur.sem virðist koma fram hjá þeim, getur þvi meira veriö blæmunur en eðlismunur. Hann er eigi aö siður nægur til þess að koma áðurnefndri gagnrýni Rússa og Gyðinga byr i seglin. Þaö ýtir lika undir þetta, aö fyrirrennari Brzezinskis sem formaður öryggisráðs rikisins oghelzti ráðunautur forsetans i öryggismálum, Henry Kiss- inger, notaði aðstöðu sina til að draga úr áhrifum Rogers utanrikisráöherra og tók aö lokum við embætti hans. Brzezinski ber ákveðið á móti þvi, að hannhafi nokkuð slikt I huga, en meðal starfsmanna utanrikisráðuneytisins virðist hann þó grunaður um græsku. Þar virðist af þessum ástæö- um rikja nokkur tortryggni og andúð gegn honum. Hins vegar nýtur Brzezinski vax- andi vinsælda meðal hægri manna þingsins og þau áhrif geta átt eftir að reynast Carter drjúg, þegar hann þarf aö koma fram umdeildum utanrikismálum. ÞAÐ var Truman forseti, sem kom hinu svonefnda öryggisráði rikisins á fót áriö 1947. Hlutverk þess var að vera forsetanum sérstaklega til ráðuneytis, en auk hans áttu sæti i þvi varaforsetinn, utanrikisráöherrann, varnar- málaráöherrann og svo fleiri háttsettir embættismenn eftir þörfúm, eins og t.d. yfirmaður upp lýsin gaþ jónus tunna r (CIA) og formaður herráös- ins. Formaður ráðsins skyldi jafnframt vera sérstakur ráðunautur forsetans i öryggis- og utanrikismálum og hafa skrifstofu sina i Hvita húsinu. Meðan ráörikir menn voru utanrikisráðherrar eins og Acheson og Dulles bar lftið á þessu embætti, en Kennedy og Johnson voru það ráðrikir forsetar, að litið bar á sér- stökum ráðgjöfum þeirra. Þetta breyttist, þegar þeir Nixon og Kissinger komu til sögu. Nixon vildi færa sem mest völd i Hvita húsið og hóf þvi öryggisráð rikisins til nýrra áhrifa, þar sem hann og hinnsérstaki öryggismálaráð- gjafi hans gátu látiö til sin taka. Þetta þjónaði líka vel metnaöi og ráöriki Kissingers. Ibigniew Brzezinski Kissinger varð brátt áhrifa- meiri en utanrikisráðherrann, þvi að Nixon hafði hann meira I ráðum. Svo fór að Kissinger tók sæti utanrikisráöherrans. Brzezinski lýsti yfir þvi i upphafi, þegar Carter fól honum formennsku I öryggis- ráðinu og gerði hann að helzta ráöunauti slnum i utanrikis- og öryggismálum, að hann myndi ekki fara 1 slóð Kiss- ingers. Hann lét lika i fyrstu bera litið á sér opinberlega, en hefur komið fram i vaxandi mæli siöustu mánuði. Tvennt hefur einkum farið I taug- arnar á Rússum. Annað var það, að hann gagnrýndi harð- lega hernaðarlega ihlutun þeirra og Kúbumanna i Afriku, og taldi hana geta spillt fyrir samningum Rússa og Bandarikjamanna um tak- mörkun kjarnorkuvig- búnaðar. Hitt var, og það likaöi Rússum enn verr, að Brzezinski fór i heimsókn til Kina á slöastl. vori og hvatti siðan til nánari samvinnu Kin- verja og Bandarikjamanna. Þetta telja Rússar beina óvin- áttu viö sig. Gyðingar eru reiðir Brzezinski vegna þess, að hann hefur oft látið i ljós, að Israelsmenn verði aö slaka til, ef samkomulagá að nást milli þeirra og Araba. IBIGNIEW Brzezinski, sem oft er nefndur Ibig, er fæddur i Varsjá 1928. Foreldrar hans voru komnir af þekktum ættum embættismanna og stjórnmálamanna. Faðirhans starfaði I utanrikisþjón- ustunni, og var um skeið I Berlin á bernskuárum Brzezinskis. Arið 1938 var fað- ir hans sendur til Kanada og ilengdist þar eftir að Rússar og Þjóðverjar skiptu Póllandi á milli sin. Eftir að hafa lokið háskólanámiþar 1950 stundaði Brzezinski nám við Harvard- háskólann og fékk siðar kennslustarf þar og styrk til sögulegra rannsókna, en áhugi hans beindist þá einkum að stjórnskipulagi Sovétrikj- anna og ritaði hann bækur um það efni og vöktu þær tals- veröa athygli. Ein megin- niðurstaða hans var sú, aö stjórnskipulag Sovétrikjanna fæli það I sér, að það myndi staðna og verða ihaldssamt. Siðar sneri Brzezinski sér að málefnum annarra Austur-Evrópulanda og þar næst að málum Afriku og Asiu. Þá var hann kominn til Columbiaháskóla, en þangað fór hann um 1960. AIls hefur hann ritað 10 bækur um al- þjóðamál. Arin 1966-1968 starfaði hann sem sérstakur ráðunautur við utanrikisráðu- neytið og fékk þá m.a. þaö verkefni 1967 að skrifa ræður fyrir Johnson, þar sem hann hvatti til friðsamlegrar sam- búðar milli Bandarikjanna og Sovétrikjanna. 1 forsetakosningunum 1968 var Brzezinski sérstakur ráöunautur Humphreys. Brzezinski var þá orðinn and- vigur þátttöku Bandarlkjanna i Vietnamstyrjöldinni, þótt hann hefði verið henni fylgj- andi i upphafi. Arið 1973 bar fyrst saman fundum þeirra Cartersog Brzezinskis og urðu kynni þeirratilþess, að Carter geröihann að sérstökum ráðu- naut sinum. Þegar Carter myndaði stjórn sina, skipaði hann Brzezinski formann öryggisráðsins og sérstakan ráðunaut sinn. Þessu starfi fylgir það,aö Brzezinski ræðir við forsetann frá 20-30 minútum á hverjum virkum morgni og nær þvi eyrum hans betur en nokkur annar. Sitt- hvað bendir þó til þess, að Carter fari ekki alltaf eftir ráðum hans, heldur taki ekki minna tillit til Vances og Youngs. Af þessu leiðir, að fjölmiðlartelja stefnu Carters stundum reikandi og óákveðna-. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.