Tíminn - 02.08.1978, Page 7

Tíminn - 02.08.1978, Page 7
Miövikudagur 2. ágúst 1978 7 Rökræöur um þjóðfélag okk- ar, gerð þess og skipan, eru nauðsynlegar. Þær geta skilað markverðum árangri sé að þeim staðið með umbótahugar- fari og heiðarlegar tilraunir gerðar til að skilgreina og skoða og leita nýrra leiða til úrbóta, þar sem þeirra er þörf og hægt er við að koma. Samvinnustarfið og sam- vinnuhreyfingin hefir oft verið nefnd i daglegu tali áhuga- manna um þjóðmál að undan- förnu. Ég segi nefnd en ekki ræddvegna þess, að meira hefir borið á stóryrðum en rökræð- um. Hugtakaruglingur og full- yrðingar hafa setið i hásæti i stað rólegrar hugsunar. Slik vinnubrögð geðjast mér litt. Of- stækisfullur áróður er varhuga- verður. „AUÐHRINGUR — auðhring- ur” er hrópað nú og þar með á að vera búið að dæma og út- skúfa Sambandi islenskra sam- vinnufélaga og alla samvinnu- starfsemi i landi okkar. Þetta minnir óhugnanlega á aðferð, sem notuð var i Þýska- landi á árunum 1930 til 1940. Þá var hróðað: Gyðingur — Gyð- ingur. Allur vandi þjóðfélagsins átti að vera frá þeim runninn. Allt sem miður fór þeim að kenna. Og með hrópyrðum tókst að rugla svo skyn og dómgreind meginhluta heillar þjóðar, að til hörmunga leiddi. Við bætum ekkert i okkar þjóðlifi með að taka upp hlið stæð vinnubrögð. Við skulum hins vegar ekki vikjast undan þvi að ræða gerð og skipan þjóð- lifsþátta og undan þvi skorasi samvinnumenn ékki. Endurteknar fullyröingar „Auðhringur” er nafngiftin sem samvinnuhreyfingunni er valin og sem siðan er tönglast á. I nafngiftinni einoi á að felast útskúfunardómur, sem ekki þarf frekar að rökræða. Með nafngiftinni er talið að þetta form félagslegrar uppbygging- ar og mannlegra samskipta sé Hjörtur Hjartar: Er Sambandið auðhringur? afgreitt i eitt skipti fyrir öll. Þvi virðist trúað að enn muni takast með endurtekningu blekkingar- innar að afvegaleiða almenning og rugla dómgreind manna. Einföldun áróðursbragða og hugtakabrengl eru enn við liði. Hversu haldgott er þetta vopn? Hver eru megin einkenni auð- hrings? Væri ekki gagnlegt að gera sér grein fyrir þvi áður en fullyrt er að Sambandið sé auð- hringur? Eru auðhringar opin og frjáls félagssamtök? Nota auðhringar fjárráð sin eða lánstraust til al- mennrar uppbyggingar? Ræður þörf útbóta hversdagslegra vandamála einhverju teljandi um ver.kefnaval auðhrings eða er hagnaðarvonin snarasti þátt- urinn? Svör við öllum þessum spurn- ingum og mörgum öðrum hlið- stæðum liggja öll ljós fyrir. Það atriði, að auðhringar eru harð- lokuð samtök peningavalds, sem hefir gróðasjónarmiðið eitt að markmiði, ætti að vera nægj- anlegt til að sýna hversu langt frá marki er skotið þegar þrá- stagast er á þvi, að kaupfélögin og Sambandið séu „auðhring- ar”. Allir eiga jafnan rétt á þvi, að gerast meðlimir kaupfélags og hafa áhrif á stjórn þess og rekstur. Engum er hins vegar skylt að vera i kaupfélagi og engu kaupfélagi eða samvinnu- félagi ber skylda til að eiga að- ild að Sapibandinu. Ekkert valdboð gildir i þessu efni. Allir eru sjálfráðir með hvaða kost þeir velja. Hjörtur Hjartar Frjálst val Ef gróðasjónarmiðið væri markmið kaupfélaganna létu þau hjá liða að hafa afskipti af áhættusamri atvinnustarfsemi og legðu ekki stórfé i byggingar íítt arðgefandi en ómissandi þjónustu- og vinnslustöðva. Þau hafa ekki látið timabundna örð- ugleika hrekja sig af hólmi. Þeirra sjónarmið eiga i engu skylt við markmið auðhrings, sem lætur efnishyggjuna eina ráða ákvörðunum sinum. Þegar Sambandið hóf iðn- rekstur sinn á Akureyri var að þvi stefnt að auka verðmæti búsafurða og efla atvinnustarf- semi. Slikt hefir jafnan gefist vel og verið leiðarsnúra við val verkefna. 1 þvi efni má benda á hvernig hefir verið unnið að vinnslu og sölu sjávarafurða. Iceland Products er hvorki auð- hringur eða hluti af auðhring heldur samtök sem byggð eru upp af um 30 frystihúsum kaup- félaganna og annara aðila. Þar er ekki um valdboð heldur frjálst val að ræða. Þannig má rekja fjölmarga fleiri þætti starfsemi kaupfélaganna og Sambandsins. Þarflegar framkvæmdir Litum til annarra átta. Alkunnugt er að viða hafa kaupfélög staðið að miklu um- bótastarfi. Stundum eru félögin litin öfundaraugum og reynt að leggja steina i götu þeirra. Meö samstarfi og samhjálp hefir oft verið auðið aö lyfta Grettistök- um. Þegar vel hefir árað hjá Sam- bandinu hefir það skilað til baka til aðildarfélaga sinna myndar- legum upphæðum. Slikt hefði enginn auðhringur gert, heldur lagst sem ormur á gullið. Kaup- félögin hafa ýmist látið þessa fjármuni, ásamt hagnaði af eig- in rekstri, renna til félags- manna sinna eða þeir hafa verið notaðir til þarflegra fram- kvæmda, sem félögin hafa ráð- ist I að vilja félagsmanna sinna. Öfugmæli Nú er þvi slegið föstu, að „auðhringurinn” — það er Sam- bandið eigi kaupfélögin og að „kaupfélagavaldið” drotni yfir lifi fólksins i smáu og stóru um allt land. Þetta er þá hvorki meira né minna en nýtt þræla- hald ef rétt reyndist. Hér er hins vegar um öfug- mæli að ræða. Kaupfélögin stofnuðu og reka Sambandið en ekki öfugt. Kaup- félagsfólkið ræður kaupfélögun- um og rekur þau. Það er þessa fólks að ákveða hvaða verkefn- um skuli sinnt. Verkstjórn á samvinnuheimilinu verður ekki falin þeim, sem hafa vantrú á samvinnurekstri. Um val verk- efna gildir hins vegar engin ein regla. Slikt þarf ætið að skoða og miða við aðstæður. Það var skiljanlegt að félögin yrðu i upp- hafi að takmarka hvaða vörur þau seldu. Veltuféð var nær ekkert. Þvi var tóbak og jafnvel kaffi látið sitja á hakanum. Þá var það talið utan verksviðs kaupfélaganna að hafa afskipti af fiskveiðum eða verkun og sölu sjávarafurða. Þá var um- boðssöluformið afgerandi stefnuatriði hjá kaupfélögun- um. Nú vilja andstæðingar sam- vinnuverslunar taka að sér að marka stefnuna. Samvinnustarf á að einskorðast við þröngt svið. Samvinnumenn mega að þeirra dómi t.d. ekki hafa afskipti af oliusölu. Þeir mega ekki eiga hlutafélag, jafnvel þótt það heiti Dyngja og sé myndarlegur at- vinnuveitandi á Egilsstöðum og þeir mega ekki i neinu formi hafa viðskipti við erlenda aðila, jafnvel þótt vitað sé að engin þjóð i heiminum er eins háð og bundin erlendum viðskiptum eins og islenska þjóðin. I Sviþjóð eiga samvinnusam- tökin myndarlegan hlut i ferða- skrifstofu með verkalýðshreyf- ingunni. Hér er talið óviðeigandi að samvinnufólkið sinni ferða- málum og eigi og reki ferða- skrifstofu með Alþýðusambandi Islands og öðrum félagasam- tökum. Hlutur samvinnunnar yrði lit- ill ef að þessum ráðum yrði far- ið. Lýðræðisleg fjöldasamtök Það er stór hópur sem valiö hefir samvinnuformið og vill efla það og styrkja til félags- legrar uppbyggingar og at- vinnustarfsemi i flestum byggð- arlögum landsins. Þetta fólk velur sér fulltrúa og starfsmenn eftirfullkomlega lýðræöislegum reglum, sem einnig eru viðhafð- ar I öðrum fjöldasamtökum bæði hér á landi og i nágranna- löndum okkar, þar sem lýðræði er i heiðri haft. Allt tal um auð- hring, fámennisstjórnir og al- ræðisvald byggist á ókunnug- leika eða það er óvandað áróð- ursbragð. Samvinnufólkið hefir yfirleitt litil fjárráð en það hefir fundið leið og sannað, að stóra og gagnlega hluti er hægt að gera með samstilltu átaki jafnvel þótt afl eða átak hvers og eins sé ekki stóft. Siguröur H. Olafsson: Ný stjómarskrá « ; Sigurður H. ólafsson Stöku sinnum les maður um að verið sé að vinna að nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið ís- land. Lengi hefur verið unnið að þvi máli. Eða hvað? Nú hlýtur eitthvað að fara að gerast, þar sem ný stjórnarskrárnefnd er vist tekin til starfa. Mig langar til þess að bera fram tillögu, þess efnis, að þeg- ar sjórnarskrárnefnd hefur samið frumvarp til nýrrar- stjórnarskrár, að þvi, áður en það verður lagt fyrir Alþingi og þjóðina, verði visað til Sameinuðu þjóðanna til um- fjöllunar. Sömuleiðis verði frumvarpiðsent öllum stjórnum þjóða innan Sameinuðu þjóð- anna og yfirstjórn allra trú- flokka (jafnvel til forsvars- manna „pólitiskra öfga- flokka”), til þess að fá frá þeirra hendi vinsamlegt álit og ábendingar. Auðvitað veit ég að það verður ekki auðvelt fyrir sumar stjórnir að svara. En á allsherjarfundi hjá Sameinuðu þjóðunum yrði það ef til vill til þess að stjórnar- skrár margra rikja verði teknar til endurskoðunar og að okkar nýja stjórnarskrá (með aðsend- um ábendingum) yrði til fyrir myndar. Með þvi að leggja þetta mál þannig fyrir i stað þess að deila á aðrar þjóðir um grundvallarlög þeirra, þá gæti hugsast að þeir sem yrðu áheyr- endur að okkar umleitunum til sameinuðu þjóðanna tækju að Ihuga sin eigin grundvallarlög og önnur mannrettindi. Oft getur litil þúfa velt þungu hlassi. tsland er ekki nema litil þúfa I heimsbyggðinni. Hver veit hvort sú þúfa er nægilega stór til þess að veruleg • hreyfing komist á bætt grund- vallarlög þjóða? Og að lokum vil ég spyrja: Erum viðekki menn til að geta hlýtt á mismunandi skoðanir, og væri ekki fengur í að fá allar fáanlegar hugmyndir um hvernig „þjóðir heims” hugsa sér undirstöðu sérhvers þjóð- félags og rök þeirra hvers vegna?

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.