Tíminn - 02.08.1978, Blaðsíða 8
8
Miðvikudagur 2. ágúst 1978
á víðavangi
Illgirni og heimska
t visi i gau- birtist grein eftir
Harald Blöndallögfræðing.þar
sem hann ræðir um hið svo-
nefnda Guðbjartsmál. i grein
Haralds segir m.a.:
„tslenskir blaðamenn geta
ekki sérhæft sig með sama
liætti og viða erlendis.Af þessu
leiðir, að þeir verða oft að
skrifa um hluti, sem þeir hafa
ekki tlltakanlega mikla
þekkingu á. Slikt ætti þö ekki
að koma að sök, ef þeir leggðu
sig fram um að setja sig inn i
mál og kynna sér þau áður en
þcir skrifa um þau. A þessu
vill verða misbrestur.
Einkanlega hcf ég orðið
þc ssa var i skrifum uin dóms-
mál, en þar er vanþekking
blaðamanna átakanleg. Það
er sjaldan, sem íslenskur
blaðamaður skrifar heila frétt
villulausa ef hún er um dóms-
mál — öll hugtök þvælast fyrir
þeim og nákvæmni i frásögn
er undantekning.
Gott dæmi um þetta eru
skrif Ilalldórs Halldórssonar
undanfarið um Guðbjaft heit-
inn Pálsson..
Ég hef eins og flciri lesið
greinar Halldórs Halldórsson-
ar. Það er hægt að lýsa þess-
um greinum með tveimur orð-
um : illgirni og heimsku.
Halldór Halldórssonsýnir i
þessum greinum sfnum, að
hann er ekki að leita sannleik-
ans i málinu. Hann er að reyna
Haraldur Blöndal
að koma höggi á Samvinnu-
bankann og EINAR Agústsson
og er að reyna að sýna framá
glæpsamlegar aðferðir bank-
ans eða Einars I þessu sam-
bandi.
Ekki hefur hann þó sýnt
fram á, að Einar hafi nokkuð
til saka unnið annað en að
þekkja Guðbjart og er það
ekki refsivert. Það er heldur
ekki refsivert af bankans
hálfu að eiga viðskipti við
Guðbjart. Halldór hefur ekki
sýnt fram á nein refsiverð við-
skipti þarna á milli.”
Stolin
skjöl
t grein Haralds Blöndal seg-
ir ennfremur:
„Þá er lika til þess að taka
flest þau viðskipti, sem Hall-
dór ræðir um áttu sér stað fyr-
ir um 10 árum siðan eða meira
og er sök, ef nokkur var, löngu
fyrnd.
Guðbjartur Pálsson lést
stuttu eftir að hann var hand-
tekinn með ólöglegum hætti og
sætti hraklegri meðferð sinna
yfirheyrsluaöila.
Meöan hann var i varðhaldi
voru ýmis einkaskjöl hans
tekin af þessum yfirheyrslu-
aðilum. Ég fæ ekki betur séð
en Halldór Halldórsson hafi
þar komist með puttann i, —
allavega er hann með undir
höndum skjöl, sem hann hefur
enga lagalega heimildtil þess
að vera með.
Guöbjartur Pálsson átti
börn. Þessi börn eiga að lög-
um þá réttarvernd, að faðir'
þeirra sé ekki svertur með
óviðurkvæmilegum hætti.
Þessi börn eiga lika þá vernd
að lögum, að óviðkomandi
maður úti i bæ fari ekki með
skjöl föður þeirra, eða illa
fengin afrit af þeim og birti i
blööum i hagnaöarskyni eins
og Halldór Halldórsson.
Það er ljóst, að Halldór
Halldórsson gat þvi aðeins
fengið aögang að skjölum
Guðbjarts Pálssonar, að ein-
hver rannsóknaraðilinn af-
henti honum þau gögn. Með
þvi hefur viðkomandi gerst
sekur um brot i opinberu
starfi. Alveg án tillit til þess,
hvað Guðbjartur Pálsson
gerði af sér i lifanda lif i, verð-
ur að rannsaka af opinberri
hálfu hvaðan Halldóri bárust
gögn sin.
Hið sama gildir um ýmsa
aðra leka frá mönnum i opin-
beru starfi, — t.d. um „frétt-
ir” Vilmundar Gylfasonar um
meint gjaldeyrisbrot nokk-
urra tslendinga, svo að dæmi
sé tekiö.”
Þ.Þ.
Ragnar Guömundsson á Brjánslæk:
Vettlingatök á vandamálum
landbúnaðarins
— Svar til landbúnaðarráðherra
t dagblaðinu Timanum 20. júli
gerir Halldór E. Sigurðsson,
landbúnaðarráðherra, (hér eftir
skammstafað HES) athuga-
semd við svör sem ég gaf
blaðamanni Timans, eftir upp-
hringingu 11. júli s.l. og birt var
i Timanum degi siðar.
t upphafi kveðst HES, gera
undantekningu vegna þessara '
svara minna i umræddu viðtali,
frá þeirri reglu sinni að láta
kyrrt liggja, þó deilt sé á hann
og hans stefnu i blaðaviðtölum.
Sjálfsagt er að þakka HES
þessa undantekningu.
Eftir þennan inngang virðist
siðan slá verulega út I fyrir
HES. Hann fer á kostum nokkra
stund, en staðnæmist þvi næst
við þá staðreynd, að hans mati,
að ég hafni stefnu Framsóknar-
flokksins i landbúnaöarmálum.
Frammi fyrir
hverju stöndum
viö?
Við samanburð á viðtalinu við
mig og þvi sem HES segir, fæst
naumast hald i þvi áliti, þótt
rangtúlka megi orð min i þá átt.
Hið rétta er, að ég tel flokkinn
hafa goldið slikt afhroð, að ekki
sé hættandi á hæpna samstjórn,
þar sem ég tel okkur Fram-
sóknarmenn ekki þola slika
kosningaúfreið öðru sinni —
þetta var min meining i þvi að
óska þess að Framsóknarflokk-
urinn væri utan stjórnar þetta
sinn.
Við þá trú mina, að aumari
vettlingatök á vandamálum
landbúnaðarins verði naumast
tekin af næstu stjórn, stend ég
fullkomlega. Breytir þar engu
upptalning HES á afrekum sið-
ustu 7 ára, sem ég skil nú ekki
fullkomlega, þar sem þessi
stjórn hefur ekki setið 7 ár sam-
fellt. Ég hefi ekki aðeins
stundað búskap i 7 ár heldur 17
ár og þarf engar lagaupptaln-
ingar, veit þær allar þegar, en
frammi fyrir hverju stöndum
við bændur i dag?
Staðreyndir verða
ekki faldar
Staðreyndir eru alltaf staö-
reyndir og verða ekki faldar.
Það breytir engu þótt menn
leggi „rika áherslu á”, áherslan
ein dugir skammt, ef fram-
kvæmdina vantar svo til að
fylgja eftir.
Ég ætla mér ekki i neinar per-
sónulegar þrætur við HES, en
þessi undirtónn i grein hans, eða
viðtali við Timann, þykir mér
furðulegur. Hann vitir mig fyrir
dóma mina og álit, en hvað
verður honum siðan sjálfum á?
Hann segir m.a. skýrt og
greinilega „kjarnfóður hefur
verið ofnotað”. Rökstuðningur
er enginn. Þá má minna á um-
mæli HES i fjölmiðlum i vetur
s.l. þar sem hann sagði afkomu
bænda „aldrei betri” en i ár.
Hvað eru þetta nema fullyrðing-
ar? Eru bændur á sama máli al-
mennt?
Báðir bera ábyrgð
Ég vil að lokum mótmæla
siendurteknum orðum HES um
ádeilu mina á Framsóknar-
flokkinn i landbilnaðarmálum.
Hann virðist ekki hafa lesið við-
talið við mig mjög vandlega,
eða þá að hann hafi svo gersam-
lega aðra skoðun á umfangi
stjórnunar annars flokksins i
samstjórn tveggja flokka. Ég fæ
ekki séð, að hægt sé að taka
landbúnaðarmál, frekar öðrum
málum, út úr slikri samstjórn.
Báðir flokkarnir hljóta að bera
ábyrgðina á framkvæmd, þótt
auðvitað velti mikið á þeim ein-
staklingi, sem velst til að gegna
embætti ráðherrra i viðkomandi
ráðuneyti.
Að endingu vil ég að Halldór
E. Sigurðsson, landbúnaðarráð-
herra og aðrir viti það, að þegar
ég er spurður álits á málum og
málefnum, þá segi ég það um-
búðalaust, hvort sem öðrum lik-
ar betur eða verr. Lokaorðum
greinar HES gæti ég sem best
snúið heim aftur með gömlum
málshætti. „Kasta þú ekki
steinum úr glerhúsi”.
Með bestu kveðju
Ragnar Guðmundsson.
Nýskipaöur sendiherra Frakklands hr. Francois Desbans og nýskipaður sendiherra Chile hr. Svante Törnvall afhentu nýlega forseta Islands trúnaðarbréf sin aö við-
stöddum Einari Agústssyni utanrikisráðherra.
Siödegis þágu sendiherrarnir boö forsetahjónanna að Bessastöðum ásamt nokkrum fleiri gestum. Reykjavik, 28. júii 1978.
Afhentu trúnaðarbréf sín að Bessastöðum