Fréttablaðið - 22.08.2006, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 22.08.2006, Blaðsíða 4
4 22. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR ����������������������������������������� ������������ ������������� ������������ ����������������������� ����������������������������������������������������������������� ���� ����� ����� �� GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 21.8.2006 Bandaríkjadalur 69,35 69,69 Sterlingspund 131,47 132,11 Evra 89,38 89,88 Dönsk króna 11,978 12,048 Norsk króna 11,113 11,179 Sænsk króna 9,707 9,763 Japanskt jen 0,5999 0,6035 SDR 103,35 103,97 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 123,2182 Gengisvísitala krónunnar ÍRAK, AP Saddam Hussein neitaði í gær að tjá sig um ákærur þær sem á hann eru bornar í nýju réttar- haldi sem hófst yfir honum og sex öðrum sakborningum í gær. Er honum var gefið tækifæri til að tjá sig við upphaf réttarhaldsins ítrekaði hann þá skoðun sína að dómstóllinn væri ólögmætur og réttarhaldið allt skrípaleikur einn. Ákærurnar í þessu nýja réttar- haldi snúa að umdeildum aðgerð- um íraska hersins í Kúrdahéruð- unum í Norður-Írak á árunum 1987 til 1988. Aðgerðirnar eru kenndar við bæinn Anfal, en í þeim voru tugir þúsunda Kúrda drepnir. Saksóknarar sýndu réttinum í gær myndir af jarðneskum leifum kvenna og barna sem grafin voru upp úr fjöldagröfum á vettvangi Anfal-aðgerðanna, þar á meðal eina af pelabarni sem enn hélt á mjólkurpelanum sínum. Ákæru- valdið sýndi einnig stórt landabréf af Norður-Írak, þar sem búið var að merkja inn á fjölda þorpa og bæja sem fullyrt er að herinn hafi, að skipun Saddams, þurrkað út allt líf í, meðal annars með því að beita sinneps- og taugagasi. „Það er kominn tími til að mannkynið fái að vita ... umfang glæpanna sem framdir voru gegn íbúum Kúrdistans,“ sagði aðalsak- sóknarinn Munquith al-Faroon. „Heilu bæirnir voru jafnaðir við jörðu, eins og það hefði ekki verið nóg að drepa allt fólkið,“ sagði hann. Réttarhaldið sem hófst í gær er önnur lotan í réttarhöldum yfir einræðisherranum fyrrverandi, þar sem gert er upp við meinta harðstjórnarglæpi áratugalangrar stjórnartíðar hans. Dómur hefur enn ekki verið kveðinn upp í fyrstu lotunni, þar sem réttað var í máli sem varðaði dráp á sjía-múslim- um í bænum Dujail á níunda ára- tugnum. Verði Saddam sakfelldur í öðru hvoru málinu á hann yfir höfði sér dauðadóm. Saddam mætti á sakamanna- bekkinn í sömu dökku jakkafötun- um og hann klæddist í hvert sinn sem hann sást við Dujail-réttar- haldið, sem stóð yfir í níu mánuði. En aðrar persónur og leikendur eru að þessu sinni breyttar. Nýr aðaldómari stýrir réttarhaldinu að þessu sinni. Og sex með-sakborn- ingar hans eru einnig aðrir en áður. Þeir eru nær allir fyrrver- andi yfirmenn í hernum. Þeirra þekktastur er Ali Hassan al-Majid, frændi Saddams, betur þekktur sem „Efnavopna-Ali“ vegna eitur- gassins sem hann var þekktur fyrir að beita. audunn@frettabladid.is Ný lota réttarhalda yfir Saddam Hussein Þótt dómur hafi ekki enn verið kveðinn upp í fyrstu réttarhöldunum yfir Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforseta, var í gær byrjað að rétta yfir honum fyrir fleiri ógnarverk sem framin voru í stjórnartíð hans. Að þessu sinni fjöldamorð á Kúrdum. SEGIR DÓMSTÓL ÓLÖGMÆTAN Einræðisherrann fyrrverandi sparaði ekki stóru orðin er hann fékk að tjá sig um nýju ákærurnar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP INDLAND, AP Hundruð þúsunda Ind- verja flykktust í musteri víðs vegar um Indland í gær, eftir að fregnir bárust þess eðlis að líkneski af guð- inum Ganesh væru farin að drekka mjólk. „Ég setti skeið með mjólk í að munni Ganesh og hann drakk hana,“ sagði Akhilesh Shukla, kaupmaður í Lucknow. Guðinn, sem ber fílshöfuð, er verndari góðrar lukku og gáfna. Klerkar telja atburðinn krafta- verk, en vísindamenn segja eðlileg- ar skýringar á mjólkurþambi líkn- eskjanna – þurrt yfirborð styttnanna sogar í sig vökvann. - smk Múgæsing á Indlandi: Guðalíkneski drekka mjólk GANESH Þó að þetta líkneski drekki enga mjólk, þá er hún af guðinum Ganesh. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GÓÐGERÐAMÁL Stefán Ásgrímsson, ritstjóri FÍB blaðsins, og Óskar Örn Guðbrandsson, fram- kvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, og dóttir hans Þuríður Arna lögðu af stað klukkan ellefu í gærmorg- un frá Reykjavík í hringferð um landið en markmiðið er að kom- ast ferðina á einum tanki. Takist það mun Hekla veita félaginu full afnot af bifreiðinni, sem er Skoda 1,9 dísil, í eitt ár. „Við reiknum með því að koma aftur í bæinn um hádegisbilið á miðvikudag,“ sagði Stefán áður en hann lagði í hann. „Við munum gista fyrst á Akureyri en svo verður nokkuð þungur áfangi þar á eftir því þá munum við keyra til Kirkjubæjarklausturs og þaðan í bæinn.“ Jón Trausti Ólafsson, mark- aðsstjóri Heklu, segir að dísilbif- reiðar eyði um 20 til 30 prósent- um minna en bensínbílar. „Ef þeir væru á bensínbíl kæmust þeir hugsanlega til Hafn- ar í Hornafirði,“ segir hann. „Þetta verður tæpt hjá þeim en þeir eiga að komast allan hring- inn á þessum bíl. Við munum taka á móti þeim með pompi og prakt á miðvikudag. Nú og ef illa fer þá erum við tilbúnir með brúsann.“ - jse Sparakstur Heklu og Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna: Fara hringinn á einum tanki STEFÁN ÁSGRÍMSSON FYLLIR TANKINN Það er eins gott fyrir Stefán að aka sparlega því ef hann kemst hringveginn á einum tanki mun Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna fá bifreiðina til afnota í heilt ár frá Heklu.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sextán ára í árekstri Sextán ára gamall ökumaður lenti í árekstri um síðustu helgi. Pilturinn var auðvitað ökuréttindalaus og að sögn lögreglunn- ar í Reykjavík hafa verið höfð afskipti nær 50 sinnum á árinu af of ungum ökumönnum. LÖGREGLUFRÉTTIR Fiskikör hrundu á mann Vinnuslys varð við höfnina á Fáskrúðsfirði í gær- morgun þegar fiskikör sem verið var að hífa úr togaranum Ljósafelli hrundu og skullu á starfsmanni. Var hann sendur á Fjórðungssjúkrahúsið á Norðfirði en hann reyndist ekki alvarlega slasaður sem má teljast mikil mildi að sögn lögreglunnar á Eskifirði. RÚSSLAND, AP Sprenging varð á yfirbyggðum markaði í Moskvu í Rússlandi í gærmorgun með þeim afleiðingum að tíu fórust og 31 slasaðist. Tveir hinna látnu voru börn. Samkvæmt frétt rússneskra fjölmiðla segir borgarstjórinn í Moskvu að um heimagerða sprengju hafi verið að ræða. Hafa lögregluyfirvöld hafið morðrann- sókn, sem bendir til þess að þau telji sprengjuna tengjast skipu- lagðri glæpastarfsemi eða við- skiptadeilu, frekar en hryðjuverk- um. Sprengjan sprakk á Cherkisov- skí-markaðnum um klukkan 10.30 að staðartíma og hrundi hluti byggingarinnar við hana. - smk Markaður í Moskvu: Sprenging ban- aði tugi manna SPRENGING Á MARKAÐI Lögregla og sjúkraflutningamenn við markaðinn þar sem tvær sprengjur sprungu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP GENF, AP Rauði krossinn tilkynnti í gær að öll fullvalda ríki heims, 194 talsins, hefðu undirritað Genfarsátt- málann um stríðsátök. Þetta er í fyrsta sinn sem nokkur samningur telst algildur í samfélagi þjóða. Svartfellingar voru síðastir þjóða til undirskriftar, í byrjun ágúst. Alþjóðlegi Rauði krossinn er sér- stakur verndari sáttmálans og sinn- ir ýmsum störfum í stríðsátökum í skjóli hlutleysis, til að mynda að hlúa að stríðsföngum og flytja boð milli þeirra og aðstandenda. Talsmaður samtakanna nýtti tækifærið til að áminna ráðamenn um að fara eftir þeim reglum sem gilda um stríðsrekstur. - kóþ Genfarsáttmálinn: Öll lönd hafa skrifað undir SVÍÞJÓÐ Karlmaður í Eskilstuna í Svíþjóð varð óþægilega undrandi þegar hann fór niður í kjallara hjá sér aðfaranótt sunnudags. Í kjall- aranum hafi eins og hálfs metra eiturslanga hringað sig á gólfinu. Maðurinn kallaði að sjálfsögðu strax á lögregluna og hún kom í fylgd slöngusérfræðings, að sögn Expressen. Slöngusérfræðingur- inn hefur slönguna í haldi meðan lögregla rannsakar málið og leitar eigandans. - ghs Óþægileg heimsókn: Fann slöngu í kjallaranum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.