Fréttablaðið - 22.08.2006, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 22.08.2006, Blaðsíða 50
 22. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR38 GOLF Tiger Woods tryggði sér á sunnudaginn sinn 12. sigur á risamóti þegar hann lék hringinn á 68 höggum eða 4 höggum undir pari á lokadegi PGA-meistara- mótsins á Medinah-vellinum í Illinois. Með sigrinum varð hann fyrsti golfarinn til að vinna PGA- meistaramót tvisvar á sama velli. Hann lék hringina 4 á 270 högg- um, samtals 18 höggum undir pari, og var 5 höggum á undan næsta manni sem var Shaun Micheel. Tiger Woods hefur sett sér það markmið að bæta árangur Jacks Nicklaus á risamótum, en Nicklaus vann 18 sigra á risa- mótum á sínum ferli. „Það er enn löng leið framundan. Það tók Jack (Nicklaus) 20 ár að ná sínum árangri – 18 er stór tala,“ sagði Tiger Woods eftir sigurinn um helgina. Woods byrjaði síðasta daginn jafn Bretanum Luke Donald en sagði að púttin hjá sér hefðu ráðið úrslitum á lokadeginum. „Þetta var mjög sérstakur dagur. Ég átti frábæran dag á flötunum og mér fannst eins og ég gæti sett bolt- ann ofan í hvenær sem er. Það er ekki oft sem maður fær svona til- finningu og það vildi svo til að ég fann hana á síðasta degi á risa- móti. Þetta er frábær tilfinning,“ sagði tólffaldur risamótsmeistari í golfi, Tiger Woods. - dsd Tiger Woods ætlar að bæta árangur goðsagnarinnar Jacks Nicklaus: Tólf risatitlar í húsi hjá Tiger TIGER WOODS Vann enn einn titilinn um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Franski knattspyrnu- maðurinn Robert Pires, sem gekk í raðir Villarreal frá Arsenal í sumar, meiddist illa á vinstra hné í æfingaleik gegn Cadiz á föstu- daginn. Pires skaddaði krossband og þarf að gangast undir aðgerð til að fá bót meina sinna. Annar leikmaður Villarreal, Gonzalo Rodriguez, skaddaði einnig krossbönd í síðustu viku og ljóst er að þetta er mikil blóð- taka fyrir Villarreal. „Þetta eru sömu meiðsli og hjá Gonzalo,“ sagði Fernando Roig, forseti Vill- arreal. Ljóst þykir að Pires muni missa af meirihluta leiktíðarinn- ar sem senn fer að hefjast á Spáni. - dsd Robert Pires: Er alvarlega meiddur FÓTBOLTI Chelsea gekk í gær frá kaupum á hollenska landsliðsmann- inum Khalid Boulahrouz frá þýska liðinu Hamburg SV. Kaupverðið er ekki uppgefið. Leikmaðurinn fór í læknisskoðun hjá Chelsea um síð- ustu helgi og horfði á liðið leggja Manchester City í fyrsta leik meist- aranna á tímabilinu. Boulahrouz er sterkur miðvörð- ur en getur einnig leikið sem bak- vörður, bæði hægra og vinstra megin. „Í landi þar sem eingöngu má hafa 16 leikmenn í hóp á leik- degi er mikilvægt að hafa leik- menn sem geta leikið margar stöð- ur á vellinum,“ sagði Jose Mourinho, framkvæmdastjóri Chelsea. Þessi kaup eru talin draga úr líkum á því að Chelsea kaupi Ashley Cole en auka líkur á því að þeir selji William Gallas. - dsd Hollenski landsliðsmaðurinn Khalid Boulahrouz til Chelsea: Kaupin á Cole úr sögunni? KHALID BOULAHROUZ Nýjasti liðsmaður Chelsea. NORDIC PHOTOS/GETTY Klæddu þig vel Reykjavík: Kringlan, Bankastræti 5, Faxafen 12 Garðabær: Miðhraun 11 Akureyri: Glerárgata 32 Keflavík: Leifsstöð og söluaðilar um land allt. Frigg, powerstretch peysa 5.400 kr. stærð 92-164 Stígvél Ófóðruð 2.400 kr. stærð 19-35 Fóðruð 2.900 kr. stærð 19-35 Esja, bakpoki 25L 3.200 kr. Muninn, stretch flauelsbuxur 1.900 kr. stærð 92-116 2.100 kr. stærð 128-164 Tilbúin í skólann Loki, bómullarhettupeysa Verð frá 2.100 kr. stærð 92-116 Verð frá 2.500 kr. stærð 128-164 FÓTBOLTI Bayern München ætlar ekkert að gefa eftir í baráttunni gegn leikmanni sínum, Owen Har- greaves sem heldur áfram að segja við blaðamenn að hann vilji fara til Manchester United. Bay- ern vill ekki selja og framkvæmda- stjóri félagsins, Uli Höness, er gramur yfir því að enski landsliðs- maðurinn sé að búa til læti í þeirri von að hann verði seldur. „Ég ráðlegg honum að halda kjafti því annars verð ég reiður og það er ekki gott fyrir hann,“ sagði Höness ákveðinn. „Ég skil ekki af hverju hann heldur þessu áfram eftir samtölin tvö sem ég hef átt við hann. Honum verður ekki leyft að fara frá félaginu og hann verð- ur að læra að virða ákvarðanir yfirmanna sinna. Þetta er einfald- lega spurning um virðingu.“ - hbg Uli Höness sendir Hargreaves tóninn: Annaðhvort heldur hann kjafti eða ég verð reiður OWEN HARGREAVES Vill komast til Man. Utd en Bayern München tekur ekki í mál að sleppa honum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Nígeríski landsliðsfram- herjinn Obafemi Martins, sem er á mála hjá Inter Milan, sagði frá því í gær að hann væri á leið til Newcastle á Englandi. „Ég er á leiðinni til Newcastle,“ sagði Mart- ins, sem ólmur vill komast frá Inter Milan eftir að liðið fékk bæði Zlatan Ibrahimovic og Hernan Crespo til liðs við sig í sumar. Félögin tvö eru sögð hafa komist að samkomulagi um kaupverð og mun það vera um 10,9 milljónir punda. „Að spila í úrvalsdeildinni hefur lengi verið markmið mitt og ég er mjög ánægður með að geta gengið frá þessum málum á næstu dögum,“ bætti Martins við. - dsd Obafemi Martins: Á leið til Newcastle FÓTBOLTI Forráðamenn Juventus neita að játa sig sigraða í barátt- unni við ítölsk yfirvöld. Juventus var dæmt niður í næstefstu deild og þarf að byrja tímabilið með sautján stig í mínus. Juve hefur enn og aftur áfrýj- að úrskurðinum en forráðamenn félagsins virðast vera tilbúnir að fara alla leið með málið. Á meðan er alls óvíst hvenær ítalska deild- in hefst en nú þegar hefur henni verið seinkað til 10. september. Fyrstu áfrýjun Juventus var hafnað af Ólympíusambandi Ítalíu og því hefur félagið ákveð- ið að fara með málið fyrir almenna dómstóla í landinu. Talið er líklegt að Juve fari enn lengra með málið verði úrskurð- ur ítalskra dómstóla félaginu ekki að skapi. Það gæti þýtt að ítölsku deildinni verði seinkað langt fram á vetur. Juventus var ekki eingöngu dæmt niður um deild og gert að byrja deildina með mínus sautj- án stig heldur voru síðustu tveir meistaratitlar teknir af félaginu. Inter var dæmdur annar titilinn en enginn meistari er skráður á Ítalíu hitt árið. Juventus var ekki eina félagið sem var dæmt í hneykslismálinu þvi AC Milan, Fiorentina og Lazio fengu einnig dóma en ekk- ert félag fékk eins þungan dóm og Juventus. Ítalska deildin enn í uppnámi: Juventus gefst ekki upp
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.