Fréttablaðið - 22.08.2006, Blaðsíða 46
Poppdrottningin Madonna verður
ekki kærð fyrir guðlast eins og
búist hafði verið við eftir tónleika
hennar í Düsseldorf en þetta
kemur fram á fréttavef AP-frétta-
stofunnar.
Þýskir saksóknarar tilkynntu
um helgina að þeir hygðust fylgj-
ast grannt með tónleikum Madonnu
eftir að þeim hafði borist kvörtun
um að söngkonan hefði í frammi
guðlast en það er lögbrot sam-
kvæmt þýskum lögum. Madonna
hefur oft hneykslað kirkjunnar
menn og í einu atriðanna í þessari
tónleikaferð lætur hún krossfesta
sig með þyrnikórónu á hausnum.
Söngkonan vísar hins vegar öllum
ásökunum um guðlast á bug. Hún
segist vera að benda á eyðnivand-
ann í heiminum en hann er hvað
mestur í Afríku og er talið að yfir
25 milljónir manna séu smitaðar af
veirunni, þar af tæplega tvær
milljónir barna. Þýski biskupinn
Magot Kaesmann sagði í samtali
við Bild am Sonntag að aðdáendur
dívunnar ættu að sniðganga tón-
leikanna. „Ég hélt að Madonna
væri betri en þetta af því hún
hefur alltaf sagst vera trúuð mann-
eskja,“ sagði Kaesmann í blaðinu.
„En kannski er vanvirðing á trúar-
brögðum eina leiðin fyrir roskna
poppstjörnu til að láta bera á sér,“
bætti biskupinn við. „Ég biðla því
til fólksins að sniðganga tónleik-
ana því stjörnur koma og fara en
kristin trú er til að eilífu.“ Tals-
maður söngkonunnar í New York
sagði atriðið ekki vera hugsað til
að vanvirða kirkjuna.
Talsmaður saksóknaraembætt-
isins í Düsseldorf, Johannes Mock-
en, lýsti því síðan yfir í gær að
stjórnvöld í borginni hygðust ekki
kæra Madonnu fyrir guðlast.
„Sumum trúuðum kann að finnast
atriðið móðgandi en það er ekki
glæpsamlegt,“ sagði Mocken við
fjölmiðla í gær. Poppdívan heldur
næst til Hannover en engar fregn-
ir hafa borist af því hvort stjórn-
völd þar ætli að grípa til aðgerða.
Madonna ekki lögsótt
KROSSFEST Á WEMBLEY Madonna hefur
vakið mikla athygli fyrir tónleikaferð sína,
Confession, en þýsk yfirvöld hafa hótað
henni lögsókn. FRÉTTABLAÐIÐ / GETTY IMAGES
[UMFJÖLLUN]
TÓNLIST
Allir þeir sem séð hafa hljóm-
sveitina Reykjavík! á tónleikum
vita að þar er þrusugóð hljóm-
sveit á ferð. Krafturinn er með
eindæmum, spilamennskan þétt
og sviðsframkoma til fyrirmynd-
ar. Plötunnar hafa því væntan-
lega margir beðið með mikilli eft-
irvæntingu. Mörgum
tónlistarmönnum hefur reyndar
tekist erfiðlega að koma hinum
flottu hljómum tónleika sinna
yfir á plast og mörgum mistek-
ist.
Reykjavík! nær þó furðu vel
að yfirfæra þennan ferska hljóm
yfir á plötuna sína. Reyndar nær
sviðsframkoman ekki neinum
hæðum á plötunni af skiljanleg-
um ástæðum. Krafturinn er svo
sannarlega til staðar og spila-
mennskan er í meira lagi þétt. Í
raun má segja að það slitni ekki
svitinn á milli laga. Söngur Bóas-
ar Hallgrímssonar er afar traust-
ur enda hefur Bóas fyrir löngu
tryggt sinn sess innan íslenska
rokkgeirans. Verst er samt að
geta ekki haft hann hoppandi um
allt eins og á tónleikunum, aftur
af skiljanlegum ástæðum.
Það sem vekur kannski mesta
athygli á þessari plötu fyrir utan
söng Bóasar og kraftmikla og
þétta spilamennsku eru góðar og
vandaðar lagasmíðar. Lög eins og
I‘m Good to My Friends, Marl-
boro Friday og Advanced Dung-
eons & Dragons eru öll melódísk-
ari og ljúfari en margt rokk og ról
sem maður hefur heyrt áður, án
þess þó að vera mjög væmin eða
væg. Þessar lagasmíðar eru það
mest heillandi við plötuna og því
eru „hefðbundnir“ rokkslagarar
með pönkuðu yfirbragði það sem
er leiðigjarnast á plötunni, til
dæmis lögin The Road To Serf-
dom og Ted Danson (sem er
reyndar líka einum of líkt ein-
hverju með Þeysurunum).
Yfirhöfuð er platan samt einn
mesti rokkeðalgripur sem komið
hefur út hér á landi í ágætis tíma.
Heildarmynd plötunnar er sterk
og í framtíðinni á hljómsveitin
ekkert eftir að gera annað en að
bæta sig. Leiðin liggur upp á við
hjá Reykjavík! sem þó er hátt
uppi.
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Kraftmikil og pínu
sóðaleg frumraun
REYKJAVÍK!
GLACIAL LANDSCAPES, RELIGION,
OPPRESSION & ALCOHOL
Niðurstaða: Reykjavík! sendir frá sér eina af
betri rokkplötum seinni ára á Íslandi. Full af
glimrandi hljómi, leiftrandi spilamennsku og
glitrandi melódíum. Umfram allt kraftmikil og
pínu sóðaleg.
Fyrirsætan Kate Moss er stödd
á Balí um þessar mundir þar
sem fyrirhugað var að hún
og rokkarinn Pete Doherty
gengju í það heilaga. Ekki
virðist þó ætla að verða úr
þeim áformum þar sem
Doherty var handtekinn
í London á föstudag-
inn með eiturlyf í
fórum sínum og
var sendur í
tveggja vikna
meðferð. Lög-
fræðingar Moss
hafa gert allt sem þeir
geta til að reyna að fá
Doherty lausan og er
fyrirsætan víst í öngum
sínum vegna þessa enda
var búið að skipuleggja
brúðkaupið sem á að
vera falleg íhugandi athöfn
með ljóðalestri og tilheyr-
andi.
Kate og Pete hafa verið
sundur og saman í
nokkur ár en virðast
nú vera búin að
finna hamingjuna
á ný á leiðinni í
það heilaga. Það
er að segja
ef
Doherty
getur
haldið
sig frá
fangels-
inu.
Ekkert brúðkaup hjá Kate í bili
ÁSTFANGIN UPP FYRIR HAUS Moss er stödd
á Balí þar sem hún bíður óþreyjufull eftir
Doherty sem var handtekinn á föstudag-
inn.FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
KATE OG PETE
Vandræðin virðast elta þau
hvert sem þau fara.
TVÖFALT FYNDNARI! TVÖFALT BETRI!
9.HVER
VINNUR!
FRUMSÝND 25. ÁGÚST UM LAND ALLT
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
VINNINGAR VERÐA AFHENDIR HJÁ BT SMÁRALIND. KÓPAVOGI. MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB. 99 KR/SKEYTIÐ.
SNAKES ON A PLANE kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
MIAMI VICE kl. 5, 8 og 10.50 B.I. 16 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 5, 8 og 10.50
THE SENTINEL kl. 8 og 10.20 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 4 og 6
SILENT HILL kl. 10 B.I. 16 ÁRA
OVER THE HEDGE ÍSL. TAL kl. 4 og 6
OVER THE HEDGE ENSKT TAL kl. 4
STICK IT kl. 8
50.000
MANNS
BYGGÐ Á VINSÆLUSTU BÓK Í HEIMI!
SNAKES ON A PLANE kl. 5.40, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
A PRAIRIE HOME COMPANION kl. 5.45, 8 og 10.15
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 6
SILENT HILL kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
CLICK kl. 5.50 og 8 B.I. 10 ÁRA
DA VINCI CODE SÍÐ. SÝNINGAR kl. 10.10 B.I. 14 ÁRA
SNAKES ON A PLANE kl. 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
MIAMI VICE kl. 8 og 10.40 B.I. 16 ÁRA
THE SENTINEL kl. 6 B.I. 14 ÁRA
ÁSTRÍKUR OG VÍKINGARNIR ÍSL. TAL kl. 6
!óíbí.rk004
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
SÍÐUSTU SÝNING
AR
Samuel L. Jackson fer á kostum í einum umtalaðasta spennutrylli ársins.
Á ÍSLANDI
HEIMSFRUMSÝND