Fréttablaðið - 22.08.2006, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 22.08.2006, Blaðsíða 36
 22. ágúst 2006 ÞRIÐJUDAGUR24 timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis- atburði, stórafmæli og útfarir í smáletursdálkinn hér fyrir neðan má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5000. MERKISATBURÐIR 1809 Jörgen Jörgensen hunda- dagakonungur hrökklast frá völdum. 1901 Fyrirtækið Cadillac er stofn- að í Bandaríkjunum. 1968 Páll páfi VI kemur til Bogotá í Kólumbíu en það var fyrsta ferð páfa til Róm- önsku-Ameríku. 1978 Uppreisnarhreyfingin Sand- inistas tekur yfir þúsund manns í gíslingu í borginni Managva í Níkaragva og heldur þeim í tvo daga. 1973 Richard Nixon tilnefnir Henry Kissinger sem utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna. 2004 Ópið eftir norska listmálar- ann Edvard Munch er stolið af safni í Osló. DENG XIAOPING FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1904. „Það skiptir ekki máli hvort kötturinn sé svartur eða hvítur á meðan hann veiðir mýs.“ Deng Xiaoping var einn æðsti maður kínverska kommúnistaflokksins. Rósastríðið var í raun röð borgara- styrjalda á Englandi þar sem Hinrik Túdor bar sigurorð af Ríkarði III og kom Túdorum til valda á Englandi í deilum Lancaster-ættarinnar og York-ættarinnar. Merki Lancaster- ættarinnar var rauð rós en York- ættin bar hvíta rós sem merki og þessi merki eru stríðin kennd. Upphaf deilnanna er dauði Játvarðar III en báðar fylkingarinnar töldu sig eiga rétt á krúnunni vegna skyldleika við syni Játvarðar. Þar sem Lancaster- ættin hafði verið við völd síðan árið 1399 átti York-ættin í raun ekki tilkall til krúnunnar. Á fimmtándu öld var hins vegar mikill órói á Englandi eftir dauða Hinriks fimmta sem varð til þess að York-ættin náði völdum tímabundið þegar Hinrik VI, arftaki Hinriks fimmta, var frá vegna veikinda. Þegar hann sneri aftur neyddist hertoginn af York til þess að grípa til vopna til að halda völdum sínum. Fyrsta styrjöldin var í maí árið 1455 sem lauk með sigri York-ætt- arinnar og næstu fjögur árin var friður. Árið 1459 var barist að nýju og bardagar héldu áfram næstu tólf árin þar til York-ættin bar sigur úr býtum og Játvarður IV var krýndur kóngur fjórða mars 1461. Friðurinn varði aðeins í átta ár en þá tóku við deilur innan York-ættarinnar sem þeir Warwick og Clarence stóðu fyrir. Játvarður var hrakinn frá völdum árið 1470 með aðstoð Frakkakonungs og Hinrik VI tók við. Játvarði tókst að snúa vörn í sókn með því að vingast við Clarence og náði völdum á nýjan leik árið 1471 eftir að Hinrik VI var drepinn. Játvarður dó árið 1483 og frændi hans, Ríkharður III tók við. Þá hófst stríðið á nýjan leik en lauk þegar Ríkharður var drepinn þann 22. ágúst árið 1485. ÞETTA GERÐIST 22. ÁGÚST 1485 Rósastríðinu lýkur í Englandi ÚTFARIR 14.00 Eggert Böðvar Sigurðsson, dvalarheimilinu Höfða, Akranesi verður jarðsunginn frá Akraneskirkju. 15.00 Karl Vilhelmsson, Smáraflöt 15, Garðabæ, verður jarð- sunginn frá Garðakirkju. AFMÆLI Þórarinn Eldjárn rithöfundur er 57 ára. Ólafur Þórðar- son er 41 árs. „Ég átti alveg von á því að það gæti farið svona en fyr- irkomulag kosningarinnar er auðvitað þannig að maður veit ekki hvernig fer með ritarakjörið fyrr en að því kemur þannig að ég er bara fyrst og fremst þakklát og ofsalega glöð og ánægð með þetta,“ segir Sæunn Stefáns- dóttir, nýr ritari Framsókn- arflokksins, en þing flokks- ins var haldið um síðastliðna helgi. Þrátt fyrir að Sæunn sé ung að árum hefur hún ára- langa reynslu af stjórnmál- um bæði í háskólanum og á landsvísu. „Ég hef svo sem alltaf verið þannig gerð að ég hef frekar viljað spila inni á vellinum heldur en að vera á varamannabekkn- um,“ segir Sæunn þegar hún er spurð um aðdraganda framboðsins. „Mér fannst mikilvægt að í framboði til hvers embættis innan flokks- ins væru konur og karlar og ungt fólk og fólk með reynslu og með ólíkan bakgrunn og ég fór fram á þeim forsend- um fyrst og fremst,“ segir Sæunn. „Ég var ekki með þingmanninn í maganum framan af en þátttaka mín í pólitíkinni í Háskóla Íslands kveikti kanski áhuga minn á flokkspólitík þó svo að ég hafi alltaf verið pólitísk frá því að ég var barn, þannig að kannski leiddi eitt af öðru,“ segir Sæunn sem tók þátt í starfi Röskvu innan háskól- ans. Sæunn segir að í upphafi hafi kjörorð flokksins um samvinnu, ábyrgð, kjölfestu og traust heillað hana en hún gekk í flokkinn fyrir fjórum árum. „Það sem vakti líka athygli mína var þessi áhersla á menntamál og á framgang ungs fólks. Mér finnst það vera mjög spennandi, ungu fólki hefur verið treyst fyrir miklum trúnaðar- og ábyrgðarstörf- um,“ segir Sæunn og nefnir sem dæmi þingmennina ungu, Birki Jón og Dagnýju Jónsdóttur. Sæunn segir að ritari flokksins ásamt landstjórn hans beri ábyrgð á stefnu- mótun á innra starfi flokks- ins og sjái um að virkja flokksmenn og stofnanir innan hans. Hún tekur á næstu dögum við þing- mannssæti fráfarandi for- manns og segist vera full til- hlökkunar að takast á við starfið en hún starfaði áður sem aðstoðarmaður heil- brigðisráðherra og félags- málaráðherra. „Ég hef verið að ljúka alls konar verkefnum sem hafa hlaðist upp bæði frá tíð minni í heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu og félagsmálaráðuneytinu og ég er enn í nokkrum nefnd- um,“ segir Sæunn og bætir við að hún hafi nú fengið tækifæri til þess að taka almennilegt sumarfrí í fyrsta sinn í nokkur ár. Sæunn segir að hún hafi notið þess að eiga svolítið frí í sumar með manninum sínum og fjölskyldu. „Við fórum í tólf daga ferðalag austur á land, á Austfirði, Langanes og Siglufjörð og upp á hálendi í kringum Mývatn sem var alveg ynd- islegt,“ segir Sæunn og bætir við að veðrið hafi leik- ið við þau hjónin í ferðinni. gudrun@frettabladid.is SÆUNN STEFÁNSDÓTTIR: NÝR RITARI FRAMSÓKNARFLOKKSINS Alltaf verið pólitísk Í BLÓMAHAFI Sæunn tók sér langþráð frí í sumar og veitir eflaust ekki af kröftunum þegar hún sest á alþingi fyrir hönd Framsóknarflokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fyrir viku voru fjórir nýir meðlimir teknir inn í Félag hundrað kílómetra hlaupara á Íslandi sem eru nú orðnir ellefu talsins. Hlaupararnir fjórir unnu það afrek á dög- unum að hlaupa hundrað kílómetra í Lapplandi í Sví- þjóð í lok júní og eru því gjaldgengir inn í hópinn. Þar af var ein kona, Elín Reed, sem er fyrsta íslenska konan sem hleypur hundrað kíló- metra og þar af leiðandi fyrsta konan í félaginu en hún stóð sig með glæsibrag í Svíþjóð og vann í kvenna- flokki. Ágúst Kvaran, einn með- lima félagsins, segir það hafa verið stofnað af fimm hlaupurum fyrir um tveim ur árum. Hann segir að með- limirnir hlaupi ekki endi- lega mikið saman en hittist reglulega og þekkist vel. Ágúst hljóp fyrst hundrað kílómetra árið 1998 í Hol- landi en síðan þá er búið að hlaupa 15 hundrað kílómetra hlaup og hefur Ágúst tekið þátt í þrem þeirra. Ágúst segir að æfingarn- ar fyrir hlaupin gangi oft út á það að hlaupa maraþon en meirihluti hópsins tók þátt í Reykjavíkurmaraþoninu um síðastliðna helgi og var það tuttugasta og annað maraþon Ágústs. Fyrsta konan í félagið HLAUPARARNIR Hér er hópurinn allur samankominn en fjórir meðlimir bættust við nýlega. MYND/ÓLÖF ÞORSTEINSDÓTTIR SKÓLINN BYRJAR Þrír af Headrick- sexburunum, þeir Grant, Sean og Ethan Headrick, leika sér með bíla- braut fyrsta daginn í leikskólanum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hulda Kristinsdóttir Víðilundi 20, Akureyri, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 14. þessa mánaðar, verður jarðsungin frá Lögmannshlíðarkirkju, föstudaginn 25. ágúst kl. 14.00. Aðalsteinn Kristjánsson Stefán Rafn Valtýsson Lagrimas FlóraValtýsson Urður Björk Eggertsdóttir Ólafur G. Tryggvason Viðar Eggertsson Sveinn Kjartansson Hulda Freyja Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, Sigrún Sigurjónsdóttir Strandgötu 45, Akureyri, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar mánudaginn 14. ágúst verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 24. ágúst kl. 13.30. Jarðsett verður í Bakkakirkjugarði. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Hlíð. Þórður Kárason. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, dóttir og systir, Ásta Unnur Jónsdóttir Gullengi 39, verður jarðsett frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 22. ágúst kl. 13.00. Þeim sem viljast minnast hennar er vinsamlegast bent á MINNINGARSJÓÐ KARITAS, í síma 551 5606 á milli kl. 09.00 - 11.00. Eyjólfur Guðsteinsson Inga Birna Guðsteinsdóttir Róbert Már Ingvason Jón Ingvarsson Inga Hilmarsdóttir og bræður hinnar látnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.