Tíminn - 17.08.1978, Síða 17
Fimmtudagur 17. ágúst 1978
17
BÍLAR
óska» e6as 6 1
# Lagt á ráðin, talið frá vinstri,
Gestur, Ásgeir og Jóhann.
inná pitt stoppið (svæði þar sem
skipt er um hjólbarða og þess-
háttar) fraus annað hjól fast og
leit út fyrir að þeir yrðu að
hætta við keppnina. En þeir
höfðu heppnina með sér, keppn-
inni var frestað vegna þess að
slys hafði orðiö á Road Atlandic
kappakstursbrautinni sem er
stutt frá og gátu þeir þvi skipt
um bremsudiskinn sem hafði
sprungið.
Næsta keppni sem þeir As-
geir, Mike og Gestur taka þátt i,
verður i september i Riverside
Los Angeles og verður gaman
aö sjá hversu mikiö þeim fer
fram.
Sigurjón
Harðarson
# BUlinn hjólastilltur og yfirfarinn.
• Mike á rúmlega 200
milna hraða
Cristiansen, en hann ásamt fé-
lögum sinum Gesti Gunnarssyni
og Mikael Roche leggja stund á
kappakstur i fristundum sinum.
Asgeir og Mike starfa sem flug-
menn i Kaliforniu, en Gestur
nemur flugvirkjun. Þeir félagar
eru orðnir þekktir þar ytra und-
ir nafninu „Icelandic racing
team” eða Islenska kappakst-
ursliðið. Ásgeir keppir i flokki
formúla Ford, en hefur mikinn
hug á þvi að fá sér stærri bil og
komast i flokk B eða formúlu II.
Mike er hins vegar á stærri bil
og keppir hann i Can Am eða
formúla 5000.
Til þess að verða fullgildur
ökumaður i kappakstri verða
menn aö ganga i gegn um bæði
súrt og sætt. Þeir verða að fara
i skóla, þar sem farið er i gegn-
um öll þau ‘ hugsanlegu atriði
sem upp geta komið i kapp-
akstri. T.d. hvað á að gera ef
springur að framan á um 250
milna hraða. Já, það er jafngott
að standa klár á öllum þeim til-
fellum sem upp geta komiö.
Miklar öryggiskröfur eru
gerðar bæði fyrir ökumenn og
bila. ökumenn verða t.d. að
vera klæddir i samfesting sem
þolir eld i allt að eina minútu, og
siðan er i bilnum sérstakt
slökkvikerfi sem verkar þannig,
að sé ýtt á takka sem staðsettur
er i stýrinu sprautast slökkvi-
froða bæði á vél bilsins og öku-
mann.
Bill sá sem Mike ekur er af
gerðinni Lola T 332, en hann er
með breskan girkassa og drif,
en 305 -cu-in. Chevrolet V-8 vél
sem gefur um 580 hestöfl.
Eftir hverja keppni er bilinn
meira og minna tekinn i sundur
og allir hlutir grandskoðaðir. Þá
er vélin tekin i sundur og gerð
upp. Til gamans má geta þess,
að upptekning á vélinni getur
kostað allt að 600 þús eftir
hverja keppni. Einnig eru öll
dekk endurnýjuð fyrir hverja
keppni.
Sftasta keppni sem þeir félag-
ar tóku þátt i fór fram 23. júli sl.
á braut sem heitir Road
Amerjka og er i Elkhartlake.
Keppendur voru 36 og lentu þeir
i 12. sæti af 23 sem luku keppn-
inni. Brautin er 4.2 milur á
lengd og var þeirra besti timi
2.15 min. í undanúrslitum fyr-
ir keppnina urðu þeir fyrir þvi
óláni að drifið brotnaði og hafði
það þær afleiðingar að þeir
lentu aftarlega i rásröö, sem er
mjög slæmt og klukkutima fyrir
képpnina þegar bilnum var ekið
Kappaksur er hvað vinsæl-
asta bilasportið erlendis og er
þá átt við kappakstur á þar til
gerðum brautum. Þessar braut-
ir eru yfirleitt hringlaga, með
misjafnlega hættulegum beygj-
um. Brautirnar eru steyptar eða
malbikaðar og er þvi hægt að ná
óhemju hraða á þeim.
Keppt er I mismunandi flokk-
um, eftir stærð og gerö öku-
tækja. Formúla I er sá flokkur
sem mest er áberandi, þar
sem heimsfrægar kappaksturs-
hetjur og atvinnumenn láta
gamminn geisa. Þeir keppa á
algerlega sérhönnuðum bilum,
þar sem hver skrúfa hefur verið
þaulhugsuð af tæknimönnum og
sérfræðingum.
Siðan eru minni flokkar eins
og formúla II, formúla III, for-
múla Ford o fl. þar sem áhuga-
menn geta spreytt sig.
1 Bandarikjunum býr Asgeir
36